Morgunblaðið - 25.09.1979, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 25.09.1979, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 1979 23 Svo sem kunnugt er af fréttum hafa bændur víða um land átt í miklum erfiðleikum með heyskap í sumar vegna ótíðar. Hafa sumir bændur á Norður- og Norðausturlandi ekki náð inn neinu heyi en aðrir allt að helmingi venjulegs heyfengs. í samtölum við bændur hér á eftir kemur í ljós að til nokkurs niðurskurðar verður að koma, jafnvel þótt hægt verði að ná inn heyi, en til þess þurfa bændur nokkra samfellda þurrkdaga. Mesta ótíð er ég man — segir Benedikt Sigurðsson — Hér hefur gengið bolvanlega og rikt ein mesta ótið, sem ég man og menn eru ákaflega illa settir með allan heyskap, sagði Benedikt Sigurðsson á Grims- stöðum á Fjöllum. — Tveir góðir dagar komu þó núna um helgina, laugardagur- inn nýttist þó ekki vel þar sem snjór var yfir og síðan var barist á sunnudeginum, en um nóttina haugrigndi síðan ofan í allt saman og var því til einskis barizt. Við erum búnir að flytja sláturfé til Kópaskers og hefst slátrun þar á þriðjudag, en búið hefur verið svo um hnútana að við getum slátrað frekar í lok sláturtíðar, um miðjan næsta mánuð, þannig að komi þurrkur fram að því væri hægt að ná inn frekari heyjum. Þegar er vitað að fækka mun talsvert, en eng- inn hefur þó enn getað tekið ákvörðun um hversu mikið það verður. Búið er að flytja í hrepp- inn talsvert af kjarnfóðri og graskögglum og menn hafa verk- að í vothey, en það dugar að sjálfsögðu ekki til. Grímur P. Jónsson (t.v.) og Benedikt Sigurðsson. G jörbreytir ástandinu ef við f áum 3 þurrkdaga -segir Jóhann Helgason —ÞURRKADAGARNIR um helgina urðu ekki nógu marg- ir og því var litlu hægt að ná inn, en þó má segja að aðeins hafi þokast, sagði Jóhann Helgason á Leirhöfn í samtali við Mbl. — Snjór var yfir fyrst í stað sem tók ekki upp fyrr en langt var liðið á dag og síðan var hægt að vinna á sunnudag, ná flötu heyi upp í garða, en síðan tók að rigna aðfararnótt mánu- dags og nokkuð fram eftir á mánudag. Nú er hann genginn í Jóhann Helgason norðanátt aftur og er vart búist við þurrki strax, en fengjum við 3—4 þurra daga samfleytt myndi það gjörbreyta ástand- inu hér og hefðum við haft mánudaginn þurran líka hefði það einnig gjörbreytt öllu. — Menn eru búnir að ná mismiklu og heyið er alls ekki ónýtt þótt það hafi legið svo lengi þar sem búið er að vera svo kalt og vona menn því enn að bregði til betri tíðar, á næstu einni til tveimur vikum. Slátrun er hafin og eru dilkar rúmum 2 kg léttari til frálags en venjulega. Lítið í hlöðum — segir B jörgvin Þórodsson — FYRRI þurrkdagurinn um helgina var góður undirbúning- ur fyrir seinni daginn, sem menn gátu notað að nokkru og náð inn einhverju til viðbótar af heyi, en sumir voru þó fjarverandi þar sem nú standa yfir göngur, sagði Björgvin Þóroddsson bóndi að Garði i Þistilfirði. — En heyskaparfréttir héðan eru mjög daprar og víða er lítið í hlöðum ennþá þótt tröppugangur sé í því. Menn halda enn í þá von að úr rætist og hægt verði að ná inn einhverju af þeim hrakning- um sem á túnum liggja. Heyið er í mjög mismunandi ástandi; þar sem nýlega hefur verið slegið er það nokkurn veginn í lagi ennþá, en víða hafa hey legið í mánuð og þola þau vart lengri hrakninga. Illa hefur gengið að ná fénaði af heiðunum og fundust á einni heiðinni dauðar kringum 30 kind- ur í fönn eða öðrum hættum. Mikill snjór er á heiðunum og verður að nota vélsleða við leitirn- ar. Aldrei lengri þurrkur en nokkra tíma í senn -segir Grímur P. Jónsson — HÉR hefur enginn getað stundað neinn heyskap i sept- embermánuði. örlítið náðist þó inn um helgina, en í heildina er sennilega óhætt að segja að búið sé að ná inn 40—50% af þvi sem menn þurfa, sagði Grímur P. Jónsson i Ærlækjar- seli í Öxarfirði er Mbl. ræddi við hann i gær. — Segja má að þurrkur hafi aldrei staðið lengur en nokkra tíma í senn að undanförnu og menn hafa lítið getað notfært sér hann. Ástandið er þó mjög misjafnt, hjá sumum hefur ekki náðst inn tugga, en aðrir eru heldur betur settir og fer það nokkuð eftir því hvernig súg- þurrkunin hefur nýst. Menn hafa löngum verið bjartsýnir hér um slóðir, en eru þó kannski farnir að þreytast á því núna. Það er óhugur í mönnum að reyna heyflutninga, bæði vegna kostnaðar og umfangs og verður reynt að skoða aðrar leiðir, en það er alveg ljóst að fækka verður fénu til muna, svo að því miður eru engar góðar fréttir héðan ennþá, sagði Grímur að lokum. Þurrkdagamir notuð- ust misjafnlega vel — segir Vigfiis Jónsson Vigfús Jónsson á Laxamýri hafði þetta að segja: Þessir þrír þurrkadagar frá föstudegi til sunnudags notuð- ust mjög misjafnlega i Þingeyj- arsýslu. Þurrkarnir voru dauf- ir nema í gær, en þó setti þá niður skúrir sums staðar. Bárð- dælingar gátu ekkert notað þessa daga vegna snjóa og sömu sögu er að segja úr Mývatns- sveit, að örfáum bæjum undan- skildum, og af Mið-Tjörnesi. í lágsveitunum komu mikil hey inn í gær, enda stóð vel á að því leyti að margir fengu hjálp frá Húsavík af því að það var sunnudagur, sem munaði miklu. í nótt rigndi mikið og fengu magir ofan í. Tiltölulega fáir hafa lokið heyskap í lágsveitunum, en lang- víðast eru hey úti og ástandið uggvænlegt, ef ekki koma þurrk- ar, sérstaklega í Bárðardal og á Tjörnesi. Heyin reyndust ótrú- lega lítið skemmd eftir svona langan tíma og það gerir kuld- inn. Ef það koma þurrkar, getur ástandið því lagast mikið. , .. _ Ljósm. Anton Arnarson. Vigfus Jonsson Laxamýri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.