Morgunblaðið - 25.09.1979, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 1979
19
Islenska sveitin
rak lestina
á Italíu
ÍSLENSKA sveitin sem þátt tók
í FIAT-keppninni í golfi hafn-
aði i 18. og siðasta sætinu i
landskeppninni. Lék sveitin
samanlagt á 1119 höggum.
íslensku piltarnir, þeir
Björgvin Þorsteinsson og
Hannes Eyvindsson, höfnuðu í
14. sæti. Lék Hannes á 241
höggi og Björgvin á 240, sam
tals 481 höggi. Spánn sigraði í
karlaflokki á 446 höggum.
Skotar urðu í öðru sæti með 451
högg og írar hrepptu þriðja
sætið með 457 högg.
í kvennaflokki lék Jóhanna
Ingólfsdóttir á 302 höggum og
Kristín Þorvaldsdóttir á 336
höggum, eða samanlagt 638
höggum. Spánn bar hér einnig
sigur úr býtum, sló samanlagt
461 högg. Svissneska kvenna-
sveitin varð önnur á 469 höggum
og sænsku dömurnar urðu í
þriðja sæti með 472 högg.
Ólafur fararstjóri Tómasson
tók þátt í golfkeppni fararstjóra
og lék hann í sveit með tveimur
öðrum, báðum stórsnjöllum at-
vinnumönnum. Varð sveit sú
sem Ólafur skipaði í öðru sæti,
hörkuárangur, því að mótið var í
rauninni geysisterkt.
Stórliðin
hætta við
TÖLUVERT hneyskli er í gangi
þessa dagana, varðandi þátt-
töku sovéskra, rúmenskra og
austur-þýskra handknattleiks-
liða í Evrópubikarkeppnunum í
ár. Málið er það, að þessar
þjóðir hafa dregið lið sín út úr
keppnunum.
Astæðan er sú, að þessar
þjóðir koma allar sterklega til
greina sem sigurvegarar á
ðlympíuleikunum í Moskvu
næsta sumar og ætla þær þess
vegna að leggja alla áherslu á að
undirbúa landslið sín fyrir
keppnina og gera það á kostnað
félagsliðanna.
Þetta verður til þess að lið
ýmissa minni handboltaþjóða,
t.d. Noregs, eiga nú góða mögu-
leika á að komast nokkuð áleiðis
í keppnunum. En fyrir vikið
verður hér ekki um sömu keppni
að ræða, heldur aðra og mun
veikari.
Island mætir
Finnum á
fimmtudag
ÍSLENSKA unglingalandsliðið
í knattspyrnu leikur fyrri leik
sinn gegn Finnum i undan-
keppni Evrópukeppni ungl-
ingalandsliða á Fögruvöllum á
fimmtudaginn næstkomandi og
hefst leikurinn klukkan 17.30.
Siðari viðureign iiðanna fer
fram í Finnlandi 27. október
næstkomandi. Það liðið sem ber
hærri hlut frá borði í viðureign-
um þessum keppir fyrir vikið í
lokakeppninni sem fram fer i
Austur-Þýskalandi.
Landsliðsþjálfarinn Lárus
Loftsson hefur valið hópinn sem
mætir Finnum og skipa hann
eftirtaldir leikmenn:
Stefán Jóhannsson KR
Kristinn Árnason Vík.Ól.
Benedikt Guðmundsson UBK
Hafþór Sveinjónsson Fram
Guðmundur Torfason Fram
Ómar Rafnsson UBK
Sigurjón Kristjánsson ÍA
Lárus Guðmundsson Vík.
Ragnar Margeirsson ÍBK
Sigurður Grétarsson UBK
Óskar Þorsteinsson Vík.
Ásbjörn Björnsson KA
Einar Ólafsson ÍBÍ
Valur Valsson FH
Jósteinn Einarsson KR
Gísli F. Bjarnason KR
Svo sem sjá má, skipa þennan
hóp allmargir reyndir 1. deildar-
leikmenn og aðrir úr 2. deild,
meira að segja hafa vel flestir
piltanna þá reynslu á bak við sig
þó að ungir séu að árum. Krist-
inn Árnason markvörður frá
Ólafsvíkur-Víkingum er eini
leikmaðurinn sem kemur úr 3.
deild og er hann jafnframt fyrsti
leikmaðurinn með Víkingi sem
leikur með landsliði.
íslensk unglingalandslið hafa
oft gert stóra hluti í undan-
keppnum þessum og þá slegið út
sterkari lið en það finnska.
Finnar hafa þó verið á uppleið
með knattspyrnuna og er því
fjarri því að leikurinn sé þegar
unninn. Þegar í lokakeppnirnar
hefur komið, hefur ísland jafnan
staðið fyrir sínu og meira að
segja vel það, þó að ekki hafi
verðlaunapallurinn verið hlut-
skipti liðsins.
• Pétur Pétursson heldur uppteknum hætti í
hollensku úrvalsdeildinni og skorar í hverjum leik.
Pétur er nú markhæstur í deildinni með níu mörk.
Hefur skorað þremur mörkum meira en Daninn
Henning Jensen sem er næstur. Þetta er ekki lítið
afrek hjá Pétri þar sem hollenska deildin er ein sú
besta í Evrópu. Sjá allt um erlenda knattspyrnu á
bls. 22.
Viggó
leikur ekki
landsleiki
LJÓST ER að krafta Viggós
Sigurðssonar mun ekki njóta
með íslenska handknattleiks-
landsliðinu í vetur. Handknatt-
leikslið FC Barcelona gefur
hann ekki lausan og sjálfur
hefur Viggó ekki áhuga á að
leika með liðinu meðan hann
dvelst á Spáni.
Þetta er auðvitað slæmt fyrir
landsliðið, því að Viggó er í mjög
góðri æfingu um þessar mundir
og myndi styrkja lið Islands
mjög mikið. Viggó lék sinn
fyrsta leik í 1. deildinni á Spáni
um helgina gegn Malaga og stóð
sig vel.
Til stóð, að handboltalið
Barcelona kæmi með knatt-
spyrnuliðinu til Islands og var
mál það komið svo langt, að búið
var að setja á leikdag norður á
Akureyri, þar sem Barcelona
átti að keppa við KA. Ekkert
varð hins vegar úr heimsókn
handboltaliðsins og var skýring-
in sú, að ekkert pláss var í þeim
tveim flugvélum sem liðið kemur
til lands í, ásamt áhangendum
sínum, en áhangendurnir höfðu
forgang að sætum.
ógnvaldur markvarö-
anna Krankl leikur hér á
miðvikudag með liði sínu
FC Barcelona. Sjá viðtal
við þennan fræga leik-
mann á bls. 16—17.
Osgood
rekinn!
GEOFF Hurst, fyrrverandi
miðherji enska landsliðsins i
knattspyrnu, tók við fram-
kvæmdastjórastöðu Chelsea
í þrjár vikur til reynslu.
Kappinn byrjaði með lát-
um, rak Peter Osgood fyrir
að bregða sér í golf i stað
þess að mæta á æfingu og
neitaði síðan að leika góð-
gerðaleik. Siðan setti hann
aðra sjö leikmenn á sölu-
lista. Ærslabyrjun það!
Malmö
keypti
markvörð
SÆNSKA stórliðið Malmö
FF keypti nýlega til sín
markvörð, Hansen nokkurn.
Aðalmarkvörður liðsins, Jan
Möller, hefur átt við meiðsli
að striða að undanförnu.
Talið var að Malmö hefði
áhuga á því að fá Þorstein
Ólaísson. markvörð ÍBK og
islenska landsliðsins, til liðs
víð sig. Nú virðist fara lítið
fyrir þeim áhuga, hafi hann
á annað borð verið fyrir
hendi.________
Tap hjá
Barcelona
BARCELONA, mótherjar
ÍA i Evrópukeppninni töp-
uðu deiidarleik sinum gegn
Real Madrid á sunnudaginn,
skoruðu leikmenn Real
þrivegis, en Barcelona svar-
aði með tveimur mörkum.
Þrem umferðum er nú lokið
á Spáni og er Barcelona í 6.
sæti með þrjú stig. Gijon,
Real Madrid og Espanol
hafa öll unnið alla leiki sina
til þessa og hafa því fullt
hús stiga efst á töflunni.
Úrslit leikja í spænsku
knattspyrnunni um helgina
urðu þessi:
Malaga — Sevilla 2—1
Burgos — Atletico Mad. 1—1
Gijon — Las Palmas 4—1
Hercules — Bilbao 2—1
Real Socied. — Valencia 0—0
Salamanca — Rayo Vall. 3—0
Real Mad. — Barcelona 3—2
Betis — Almeria 0—0
Espanol — Zaragoza 2—0
Asensi
kemur
ekki
SPÆNSKA stórliðið Barce-
lona kemur hingað til lands
án tveggja af betri leikmönn-
um sínum, sem léku landsleik
fyrir Spán gegn Portúgal í
gær og komust því ekki með
tii íslands. Þð eru þeir
Migueli og sjálfur fyrirliðinn
Asensi sem hér um ræðir, en
í þeirra stað koma tveir
margreyndir landsliðsmenn,
Olmo og Martinez.
Stefán
með
met
Stefán Stefánsson, ungur
ÍR-ing ur, setti um helgina
nýtt Islandsmet í tugþraut í
unglingaflokki. Hlaut Stef-
án 5333 stig, góður árangur.