Morgunblaðið - 25.09.1979, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 1979
1 3
Frönsku alpafjallabjörtfunarsveltirnar að störfum á Mount Blanc.
hæsta fjalli Evrópu. Eftir að mennirnir á jörðu niðri höfðu gengið frá
sjúklinttnum á sjúkrabörur er hann fluttur i sjúkrahús með þyrlu.
Svissneskir Björgunarsveitarmenn leita í snjóflóði.
Hór má sjá hvernig björgunarsveitarmaður fer niður með sjúkling á
til þess Kerðum fjaliasjúkrabörum sem sjúklintturinn er hundinn
niður á. Félagar hans sjá um að slaka honum niður.
viðkomandi alpaklúbbum, sem eru
gífurlega fjölmennir í þessum
löndum. í Sviss er um að ræða
samvinnu björgunarsveitar
Svissneska Alpaklúbbsins og
fyrirtækis er nefnist Schweizer-
ischer Rettungsflugwacht, sem
hefur yfir að ráða þyrlum og
sjúkraflugvélum auk þess að hafa
innan sinna vébanda sérþjálfað
sjúkralið, lækna og hjúkrunarkon-
ur. — Til þess að komast í þessar
björgunarsveitir þurfa viðkom-
andi umsækjendur að ganga gegn-
um mjög stranga þjálfun, þar sem
þeir þurfa að sýna fram á af-
burðahæfni í fjallgöngum, við
allar aðstæður og í flestum tilfell-
um verða menn ennfremur að ráða
yfir mikilli kunnáttu á skíðum, en
ennfremur eru til sérstakar sveitir
björgunarsveitarmanna, sem
sérhæfa sig í björgunaraðgerðum
við skíðastaði.
Þess má til gamans geta hér, að
íslendingar hafa haft nokkurt
samstarf við þessa aðila, þegar
björgunarsveitarmenn frá Fíug-
björgunarsveitinni í Reykjavík og
Hjálparsveit skáta í Reykjavík
hafa tekið þátt í æfingum þeirra,
sem eru mjög fjölþættar. Þar er
um að ræða námskeið og æfingar í
snjóflóðabjörgunum og svo
„venjulegum" björgunaraðgerðum
í fjalllendi.
Eins og áður sagði, er yfirstand-
andi ár það versta í sögunni,
aldrei hafa svo margir farist eða
slasast. Þessi óhugnanlega þróun
hófst að marki fyrir um tíu árum,
en árið 1969 fórust 156 menn í
löndunum fjórum. Síðan hefur
stöðugt sigið á ógæfuhliðina og
það sem af er þessu ári hafa
sexhundruð manns þegar farist.
Forsvarsmenn björgunarsveit-
anna telja að ekki verði nein
breyting á fyrr en stjórnvöld grípa
í taumana og setja mun strangari
reglur en nú gilda reglur sem eru
þannig, að ef menn fara ekki eftir
þeim, verða þeir að greiða háar
fésektir og látnir greiða björgun-
araðgerðina. í því sambandi má
nefna að í Noregi gilda mjög
strangar reglur um hvaða búnað
menn eiga að hafa meðferðis til
þess að geta talist fullgildir á fjöll.
Sé ekki farið eftir þessum reglum
verða menn að borga allan kostn-
að við leit og björgun.
Hér á landi eru fjallgöngur
mjög vaxandi íþrótt svo það má
allt eins búast við að slysum fjölgi
í fjöllum í náinni framtíð. Engar
reglur eru til um það hvernig
menn eiga að vera búnir, né nein
tilkynningarskylda þar sem menn
gætu látið vita hvert ferðinni væri
heitið og hver væri áætlaður
komutími, en slíkt myndi auðvelda
málið mjög ef til leitar- eða
björgunaraðgerðar kæmi. í sam-
tali við forráðamenn Islenzka
Alpaklúbbsins, sem er eini aðilinn
hér á landi sem stendur fyrir
beinni fræðslu fyrir fjallamenn,
bæði fyrir félaga og utanfélags-
menn, sögðu þeir að áhugi á
fjallamennsku færi mjög vaxandi
hér á landi og væri tala félaga í
klúbbnum til að mynda komin yfir
200, en hann var stofnaður fyrir
rúmlega þremur árum. Á vegum
klúbbsins eru haldin fjölmörg
námskeið á ári, þar sem kennd ehu
öll helztu undirstöðuatriði fjalla-
mennsku og fólki bent á heppi-
legastan klæðnað. Til dæmis stæði
yfir nú um helgina námskeið þar
sem farið væri yfir helztu atriði í
sambandi við klettaklifur og
fjallgöngur á klettóttum svæðum
og væru þar rúmlega tuttugu
þátttakendur. í næsta mánuði er
svo fyrirhugað námskeið þar sem
undirstöðuatriði í fjallamennsku á
jöklum verða til umfjöllunar. Það
námskeið fer að mestu leyti fram í
falljökli Eyjafjallajökuls, sem er
eitt vinsælasta æfingasvæði
fjallamanna hér á landi. Björgun-
arsveitir landins eru til að mynda
tíðir gestir þar.
Að lokum eitt heilræði til fjall-
amanna. FRÆÐSLAN ER BEZTA
VÖRNIN, ásamt góðum búnaði.
— sb.
BALLETTSKÓLI
EDDU ^
SCHEVING
Skúlagötu 34
og félagsheimili
Seltjarnarness
/----------------------------------N
Kennsla hefst 2. október í byrjenda- og framhaldsflokkum.
Innrltun og upplýslngar f síma 76350 kl. 2—5 e.h.
__________________________________>
^^danskennarasambaniHs^nds
Danski rithöfundurinn og listfræöingurinn
POVL VAD
ræöir um ritverk sín og les upp þriöjudaginn 25.
sept. kl. 20:30.
Verið velkomin Norræna húsið
NORR4NA HUSIO POHJOLAN TALO NORDENS HUS
80
wött
Verd:
497.660.-
Greiðslukjör
Eitt
glæsilegasta
tækiö á
markaðinum
BUÐIN Skipholti19
" /
29800