Morgunblaðið - 25.09.1979, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 1979
5
Leiðrétting
frá STEFi
Hr. ritstjóri.
I greinargerð, sem blað yðar
birti frá STEFi s.l. laugardag féllu
niður úr niðurlagi 2. mgr. nokkrar
setningar, sem brengluðu verulega
merkingu.
Niðurlag málsgreinarinnar átti
að vera þannig:
Eftir 30 ára harða baráttu
STEFs er nú svo komið, að um 600
rétthafar njóta góðs af starfsemi
félagsins. I þessum stóra hópi
rétthafa eru aðeins um 20 popp-
höfundar, sem eitthvað hafa sam-
ið að marki, þannig að hér koma
fleiri hagsmunaaðilar við sögu en
þeir einir, og fráleitt er, að megin-
hluti tekna STEFs sé tilkominn
vegna flutnings verka íslenskra
popphöfunda, eins og ofangreind
samtök hafa haldið fram. Auk
mikils flutnings verka annarra
íslenskra höfunda en popphöf-
unda, kemur það hér inn í mynd-
ina, að mikill meirihluti þeirra
verka, sem gjaldskyld eru til
STEFs, eru verk erlendra höf-
undá, sem STEF fer með umboð
fyrir. Hlutur íslenskra popphöf-
unda í tekjuöflun STEFs er því
óverulegur og eins og samningum
STEFs við tónlistarneytendur er
háttað mundi það engu breyta um
tekjur félagsins þótt flutningur
íslenskra popplaga félli alveg nið-
ur- Með þökk fyrir birtinguna.
Kútter
Sigurfari
Akranesi 17. sept. 1979.
Unnið hefur verið sumarlangt
að lagfæringu Sigurfara og miðað
vel áfram. Slegið hefur verið í allt
dekkið og gengið frá því vel og
varanlega að öðru leyti. Neðan
þilja hefur lúkarinn, sem að nær
öllu hefur haldið sínu óbreyttu í
gegnum árin, verið yfirfarinn, svo
og káetan með meiru. Þær hrak-
spár einstakra manna, sem hafa
látið á sér kræla varðandi Sigur-
fara, m.a. í fjölmiðlum, er hér með
vísað til síns heima, því áfram
verður haldið við uppbyggingu
skipsins, eftir efnum og ástæðum,
unz settu marki er náð. Það er
vissa — og verður vonandi ýmsum
„vantrúuðum" holl lexía. Jóhann
Arsælsson, skipasmiður á Akra-
nesi, hefur haft umsjón með
verkinu og unnið sjálfur að lag-
færingunni ásamt þremur
mönnum. Mikið er enn ógert í
Sigurfara og eðlilega, m.a. og
sérstaklega varðandi reiða, þétt-
ingu á skrokknum m.m. —
Draumurinn er að gera Sigurfara
það til góða, að hann verði að öllu
eins og hann var, er hann í eigu
okkar Islendinga gegndi sínu hlut-
verki, háreistur og tignarlegur. En
þetta kostar stóran skilding. —
Vafalaust á hann marga vildar-
menn að og víðs vegar, sem vilja
stuðla að því, að þessi óskadraum-
ur rætist með því að rétta fram
hönd sína og eiga þar með sinn
hlut í því, að kútter Sigurfari, einu
minjarnar, sem við íslendingar
eigum um hið merkilega tímabil í
sögu okkar, Skútuöldina, sýni það,
að við greiðum okkar skuld við
fortíðina með sóma. Við lítum á
Sigurfara sem sameign okkar
allra — þjóðarinnar allrar. Látum
þá sögulegu og dýrmætu sameign
njóta skilnings og nokkurs örlæt-
is. Þökk sé þeim, sem til þessa
hafa sýnt Sigurfara virðingu sína
og velvilja í verki. Júlíus.
„Kútter Sigurfari ennþá reiða-
laus við byggðasafnið í Görðum.
Ljósm.: Júlíus Þórðarson.
Sýna
muni úr
steinleir
LISTAMENNIRNIR Guðný,
Rúna og Gestur sýna myndir og
muni úr steinleir í versluninni
Epal, Síðumúla 20. Á sýningunni
eru einnig stólar, borðstofuhús-
gögn, lampar og gluggatjalda-
efni, allt hannað af ýmsum
listamönnum. Sýningin er opin
kl. 9—18 þriðjudaga og föstu-
daga til kl. 22 og laugardaga frá
kl. 10 til 12. Munirnir eru allir til
sölu.
enn bætum
vió
þjónustuna
Meó nýrri áætlunarleió milli Noregs, Svíþjóóar og 5 staóa
á íslandi stuólar Eimskip markvisst aó betri tengingu vió
Noróurlöndin um leió og vióskiptavinirnir njótaenn fullkomnari
flutningaþjónustu.
Siglingaleióin
REYKJAVÍK
ÍSAFJÖROUR
SIGLUFJÖRÐUR
AKUREYRI
HÚSAVÍK
BERGEN
GAUTABORG
MOSS
KRISTIANSAND
Aflió ykkur nánari upplýsinga hjá okkur í síma 27100 eóa hjá
umboósmönnum okkar úti á landi.
EIMSKIP
SÍMI 27100
*