Morgunblaðið - 25.09.1979, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 1979
15
10 ár síðan framleiðsla
*
hófst í Alverinu:
í DAG, 25. september, eru liðin
10 ár síðan álframleiðsla hófst
með fullum afköstum í Álverinu í
Straumsvík. Þann dag hófst
framleiðsia í 120. og siðasta
kerinu í fyrsta áfanga verksmiðj-
unnar. í maí 1970 var ál fram-
leitt í 160 kerjum og í október
1972 var ál framleitt i 280
kerjum. Nú stendur yfir stækkun
Álversins og í maí 1980 verður ál
væntanlega framleitt í 320 kerj-
um. Starfsmenn eru nú tæplega
700 talsins. Frá því Álverið hóf
starfrækslu til dagsins i dag hafa
verið framleidd 606 þúsund tonn
af áli og er heildarsöluverðmætið
fært til gengis Bandaríkjadollars
31. desember 1978 um 175 mill-
t'arðar króna. Stjórnarformaður
slenzka álfélagsins hf. hefur
verið frá upphafi Halldór H.
Jónsson og forstjóri hefur verið
frá upphafi Ragnar S. Halldórs-
Greiðslur til innlendra
son.
aðila tæpir 49 milljarð-
ar króna á tímabilinu
í ritinu „íslenzk álvinnsla 10
ára, 1969—1979“, eftir Þorgeir
Ibsen skólastjóra í Hafnarfirði,
sem íslenzka Álfélagið hf. gefur út
í tilefni þessara tímamóta hjá
félaginu, er að finna margvíslegan
fróðleik um starfsemi Isals, að-
dragandann að stofnun félagsins
og áhrif þess á íslenzkt þjóðlíf og
þá sér í lagi á þróun mála í
Hafnarfirði.
Þar kemur m.a. fram, að
greiðslur til innlendra aðila vegna
rekstrar ísals á tímabilinu 1.
október 1969 til 31. desember 1978,
færðar upp til gengis Bandaríkja-
dollars um síðustu áramót, nema
samtals kr. 48.976.000.000,00, þ.e.
48 milljörðum og 976 milljónum
króna. Skiptingin er þessi:
M.kr.
Framleiðslugjald 3.580.1
Raforka 10.218.1
Vextir og afborganir
af hafnarkostnaði 3.535.8
Launagreiðslur og
launatengd gjöld 19.080.9
Farmgjöld til E.í. 3.102.7
Ymsar greiðslur 9.458.4
Samtals 48.976.0
í ritinu kemur fram að ísal er
og hefur verið stærsti skattgreið-
andi landsins s.1.10 ár, enda þótt
fyrirtækið hafi ekki verið með
mesta veltu, en venjulega verið í
3.-5. sæti hvað veltu snertir. Eru
nefnd dæmi þessu til sönnunar,
t.d. frá árinu 1973 þegar velta
ísals hf. var 4040 milljónir króna
en skattgreiðslur 89,2 milljónir en
velta Sambands íslenzkra sam-
vinnufélaga var 5532 milljónir en
skattgreiðslur 47 milljónir. Velta
Flugleiða hf. var 4800 milljónir en
skattgreiðslur 15.8 milljónir.
Sama ár var velta Söral, systur-
fyrirtækis ísals í Noregi, 4063
milljónir króna en skattgreiðslur
38 milljónir. Skattgreiðslur eru að
meðtöldu aðstöðugjaldi (landsút-
svari) og eignaskatti en án launa-
skatts, tryggingagjalda, kirkju-
garðsgjalda o.fl.
Álverið í Straumsvík hefur
nokkra sérstöðu meðal annarra
fyrirtækja að því leyti að það býr
við staðgreiðslukerfi skatta.
Skatturinn, þ.e. framleiðslugjald-
ið, er greitt mánaðarlega allan
ársins hring. Gjaldið nam í fyrra
416.4 milljónum króna og af því
hlaut Hafnarfjarðarbær 140 mill-
jónir króna.
Frá því Álverið hóf framleiðslu
með fullum afköstum í lok sept-
ember 1969 til 31. desember 1978
hefur það greitt til ríkis og bæjar
í framleiðslugjaldi samtals 1649,5
milljónir króna en umreiknað til
gengis Bandaríkjadollars í lok
ársins 1978 nemur upphæðin 3580
milljónum króna.
Þorgeir Ibsen getur ítarlega í
riti sínu áhrifa íslenzka álfélags-
ins hf. á uppbyggingu Hafnar-
fjarðarbæjar á umliðum árum og
áhrif fyrirtækisins á atvinnulíf í
bænum. Þar kemur fram að strax
við byggingu Álversins hafi
ástand atvinnumála batnað til
mikilla muna og hafi svo verið
áfram og einnig hafi framkvæmd-
ir allar stóraukist í bænum á
flestum sviðum. Enda hafi tekjur
Hafnarfjarðarbæjar af fram-
leiðslugjaldinu árin 1970—1978 að
báðum árum meðtöldum numið
7,6% af heildartekjum bæjarfél-
agsins. I fyrra voru starfsmenn
ísals 657 og þar af voru um 48%
búsett í Hafnarfirði. Útsvars-
greiðslur þeirra til Hafnarfjarðar-
bæjar námu í fyrra 8% af heildar-
útsvarsgreiðslum í bænum.
í lokaorðum: segir Þorgeir Ibsen
m.a.:
„Um ekkert einstakt félag eða
atvinnu- og framleiðslufyrirtæki á
íslandi hefur verið rætt í eins
ríkum mæli á opinberum vett-
vangi síðustu misserin og Álverið í
Straumsvík. Reyndar hefir þessi
umræða í flestum, ef ekki öllum
fjölmiðlum þessa lands átt sér
stað miklu lengur, eða allar götur
frá því Álfélagið var stofnað fyrir
röskum áratug. Á undirbúnings-
árunum að stofnun þessa félags, á
því rúmlega 5 ára skeiði, sem
samningaviðræður stóðu yfir, áð-
ur en því var ýtt á flot, var af og
til deilt hart á væntanlega tilvist
þess, einkum í sölum Alþingis og í
ýmsum dagblöðum. í umræðum
þessum hefir iðulega gætt mikilla
hleypidóma og misskilnings eða
hreinnar fákunnáttu í flestu því,
er þetta fyrirtæki varðar. Skal það
ekki rætt nánar, þótt ærin ástæða
sé til.
Á hinn bóginn fer það ekki á
milli mála og er óumdeilanlegt, að
ekkert eitt fyrirtæki hefir valdið
eins miklum og afgerandi þátta-
skilum í atvinnusögu landsins á
síðustu áratugum og stóriðjan í
Straumsvík. Það hefði sennilega
þótt saga til næsta bæjar, ef því
hefði verið spáð á árunum um
1960, að á næsta leiti væri það, að
á Islandi risi upp fyrirtæki, sem
aflaði þjóðinni tuga milljarða
króna í gjaldeyristekjum á
skömmum tíma. En það er einmitt
það, sem hefir gerzt. Frá því að
ISAL hóf að framleiða í septem-
ber 1969 til dagsins í dag hefir það
fært í þjóðarbúið um það bil 49
milljarða króna í hreinum gjald-
eyristekjum, miðað við núgildandi
gengi.
Áhrif ISAL á afkomu þjóðar-
búsins orka ekki tvímælis og ekki
hefir Hafnarfjörður farið þar var-
hluta af, eins og dæmin hér að
framan sýna. Þar eru þau einna
áþreifanlegust, þótt ýmsir vilji
ekki um það ræða, en kjósi fremur
að láta það liggja í þagnargildi.
Það er skammt öfganna á milli.
Og vissulega væri það mikil fjar-
stæða að halda því einu fram, að
hin öra framþróun í Hafnarfirði
síðastliðinn áratug sé ISAL ein-
göngu að þakka. Þar koma fleiri
þættir við sögu. En að sínu leyti
væri það jafnmikið út í hött að
halda því fram, að ISAL ætti þar
ekki hlut að máli og hann ekki svo
lítinn. — Þegar framkvæmdirnar í
Straumsvík hófust árið 1967, var
íbúatala Hafnarfjarðar tæplega 9
þúsund manns, en var um síðustu
áramót orðin því sem næst 12 þús.
manns. Hafði vaxið um 2'k % á ári
eða þriðjung alls.
Á sama tíma hefir íbúatala
Reykjavíkur lítið sem ekkert vax-
ið, og önnur bæjarfélög hafa vaxið
1% á ári að meðaltali. Það væri
freistandi að fara nokkrum orðum
um þær öru framfarir, sem átt
hafa sér stað í Hafnarfirði, á
flestum sviðum á þessu tímabili.
En ekki er rúm til þess að fara
mikið út í þá sálma hér. Aðeins
má minna á það, að aldrei áður í
sögu bæjarins hafa gatnagerðar-
framkvæmdir úr varanlegu efni
verið eins stórstígar og á þessu
tímabili. Götur í Hafnarfirði eru
samanlagt um 42 km. Af þeim eru
um 28 km komnir með varanlegt
slitlag eða % og hefir langmest af
því verið lagt á umræddu tímabili,
eða rúmlega 80%. Byggðin hefir
stórlega aukizt og þanizt út. Norð-
urbærinn, milli 3 og 4 þúsund
manna byggð, hefur allur orðið til
á þessu tímabili. Það er athyglis-
vert, að af öllu samanlögðu hús-
næði, sem fyrirfinnst í Hafnar-
firði er 60% yngra en 15 ára og
50% yngra en 10 ára. Á þessu
tímabili hefir margri stórfram-
kvæmdinni verið hrundið af stað
og lokið, bæði á vegum einstakl-
inga og hins opinbera. í því
sambandi skal síðast en ekki sízt
minna á hitaveituna, sem kom í
bæinn fyrir rúmum tveim árum.
Með komu hennar komst í höfn
eitt stærsta hagsmunamál Hafn-
firðinga, hagsmunamál, sem bæj-
arbúar höfðu lengi þráð að næði
fram að ganga. — Af framans-
ögðu er ljóst, að á umræddu
tímabili hefir framfarasókn Hafn-
arfjarðar verið meiri en á nokkru
öðru tímabili í sögu hans.“
Sparivelta Samvinnubankans:
Lánshlutfall allt a
Fyrirhyggja í fjármálum er
það sem koma skal. Þátttaka
í Spariveltu Samvinnubank-
ans er skref í þá átt. Verið
með í Spariveltunni ogykkur
stendur lán til boða. Láns-
hlutfall okkar er allt að
200%. Gerið samanburð.
£ /wVS 2
% V/ ^
Upplýsingabæklingar liggja frammi
í öllum afgreiðslum bankans.
Samvinnubankinn
og útibú um land allt.