Morgunblaðið - 25.09.1979, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 1979
Á morgun
leika ÍÁ og
Barcelona í Evr-
ópukeppni bik-
arhafa. Ein
stærsta stjama
Barcelona er
Hansi Krankl.
Blaðamaður
Mbl. ræddi við
hann á Spáni á
laugardag.
Út af fyrir sig er það mikil lífsreynsla að fá
tækifæri til að heimsækja jafn stór íþrótta-
félög og F.C. Barcelona, enda erfitt að gera
sér í hugarlund stærðargráðuna fyrr en
maður sér með eigin augum mannvirki
f élagsins og fær að kynnast því sem þar fer
fram. í þessu tilviki naut ég góðrar
leiðsagnar handknattleiksmannsins Viggós
Sigurðssonar sem leikur sem atvinnu-
maður hjá handknattleiksliði félagsins.
Viggó hafði útvegað okkur tilskilda passa
til að fá að fara inn á aðalleikvanginn og
jafnframt að eiga viðtöl við tvo af
þekktustu leikmönnum félagsins, þá Hansi
Krankl og Alan Simonsen.
Eftir aö hafa spjallaö viö þá
félaga fengum viö leyfi til aö
fara inn á aöalleikvanginn þar
sem æfing fór fram og fylgjast
meö æfingunni. Það var ekki
laust viö aö þaö þyrmdi yfir
mig þegar ég gekk inn á
grasvöllinn og horföi á him-
inhá áhorfendastæöin allt um
kring, þau voru aö vísu aö
mestu auð því að aðeins um
3000 manns fylgdust með
æfingunni aö þessu sinni,
engu aö síður mátti ímynda
sér þá miklu stemmningu sem
hlyti aö vera þegar 110 þús-
und Spánverjar eru mættir á
staðinn til að hvetja sína
menn.
Leikvangur FC Barcelona
nefnist Nou Camp, og er sá
glæsilegasti í Evrópu og þótt
víðar væri leitaö. Hann hefur
nýlega veriö endurbyggöur og
tekur nú 110 þúsund manns
og þar af um 45 þúsund í
sæti. Nou Camp mun veröa
aðalleikvangurinn í næstu
heimsmeistarakeppni í
knattspyrnu en hún fer eins
og kunnugt er fram á Spáni.
Þennan laugardagsmorgun
mátti sjá foreldra meö unga
drengi sem voru mættir á
leikvanginn meö syni sína og
horföu þeir meö lotningu á
knattspyrnusnillingana æfa.
Mátti lesa þaö úr andlitum
þeirra, aö þeir áttu sér þá von
stærsta aö ná einhvern tíma
jafn langt í íþróttinni og þeir.
í knattspyrnuheiminum er
F.C. Barcelona þekkt fyrir aö
gera tilboö sem hvorki
knattspyrnumaöurinn eöa fél-
ag hans getur hafnaö. Og þaö
er ein ástæöa fyrir því, að hjá
félaginu hafa veriö margir af
þekktustu knattspyrnusnill-
ingum Evrópu.
Ef ekki kæmu til reglur um,
aö aöeins tveir erlendir leik-
menn mega leika með hverju
liði telja margir aö Barcelona
heföi samansafn allra fræg-
ustu leikmanna heims en er
reglurnar voru settar um 1960
voru ekki færri en 20 lands-
liðsmenn hjá félaginu frá sjö
löndum.
Allir framkvæmdastjórar
félagsins eru þekktir fyrir aö
fara eigin leiöir þegar þeir
kaupa leikmenn og taka þá
jafnvel ekkert tillit til þjálfara
liðsins. Núverandi fram-
kvæmdastjóri Bacelona, Nun-
es, sem er margfaldur milljón-
eri, er engin undantekning.
Hann er sá sem valdið hefur
og þegar hann fer af staö
hreyfir enginn litla fingur til
þess aö mótmæla.
Nunes festi kaup á Johan
Cryuff og félaga hans Neesk-
ens. Þegar þeir hurfu frá
félaginu þurfti stjörnur á borð
viö þá til aö halda uppi
merkinu. í þeirra staö komu
Hans Krankl og svo Alan
Simonsen, Nunes ræöst ekki
á garðinn þar sem hann er
lægstur.
Hans krankl er heims-
þekktur knattspyrnumaöur
enda veriö einn markahæsti
leikmaöur evrópskrar
knattspyrnu mörg undanfarin
ár. Krankl lék lengi með Rapid
Vín og skoraði mikiö af mörk-
um, t.d. skoraöi hann 36 mörk
keppnistímabilið 1974— 75
og hlaut aö launum silfurskó
Adidas, áriö eftir skoraði hann
32 mörk og 30 mörk keppn-
istímabilið þar á eftir en
1977—78 var hann í meiri
ham en nokkru sinni áöur og
skoraði 41 mark í 36 leikjum í
1. deildinni austurrísku og
vann gullskó Adidas þaö áriö.
Sama vor lék hann meö
landsliði Austurríkis í Heims-
meistarakeppninni í Argentínu
og var þá í miklu stuöi,
skoraöi t.d. tvö mörk í 3:2
sigri austurríska landsliðsins
gegn því vestur-þýzka.
Nú til dags eru markaskor-
arar eins og Krankl ekki á
hverju strái og þaö kom þvi
ekki á óvart aö stórlið Evrópu
reyndu aö kaupa hann frá
Rapid. Barcelona var hlut-
skarpast og honum var tekið
meö miklum fagnaöarlátum er
hann kom þangað í fyrsta
skipti, 8000 áhangendur liös-
ins voru mættir á flugvellinum
eöa álíka margir og sóttu leiki
Rapid Vín aö meöaltali. Og
Krankl brást ekki vonum for-
ráðamanna liösins, hann varö
lang markahæsti leikmaöur
liösins s.l. keppnistímabil og
skaut aftur fyrir sig köppum
eins og Kempes og Bertoni.
Krankl haföi komiö
snemma á leikvanginn þenn-
an morgun og viö ætluöum að
spjalla saman áöur en æfingin
hæfist.
Þegar viö höföum komiö
okkur þægilega fyrir, baö ég
Krankl aö segja mér hvert
upphafið heföi veriö aö ferli
hans.
— Pabbi gaf mér fótbolta
þegar ég var um fimm ára
gamall og ég hef eiginlega frá
þeirri stundu verið bundinn
viö boltann. Ég byrjaði aö
keppa níu ára gamall meö liöi
heima í Austurríki, ég er
vinstrifótarmaöur og átti oft
gott meö aö koma markvörö-
unum úr jafnvægi og skora.
Nú, 18 ára gamall var ég
kominn á atvinnumanna-
samning hjá Rapid Vín. Svo
kom þetta hvaö af ööru.
Hvernig ferðu aö því að
skora öll þessi mörk?
— Þaö veröur aö segjast
eins og er, aö ég er metnaðar-
gjarn og þaö hjálpar. Þá
viröist ég hafa þá eiginleika aö
vera á réttum staö á réttri
stund. Þetta byggist líka á
heppni og um leið aö vera
nógu áræöinn. Ég ætla aö
Krankl á Nou Camp,
glæsilegasta leikvelli
Spánar, sem verður aðal-
leikvangur næstu
HM-keppni í knattspyrnu
og tekur 110 þúsund
manns. Ljósm. mu. þr.