Morgunblaðið - 23.10.1979, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 1979
5
Fundur hjá Hvöt:
Sjálfetæð-
iskonur í
framboði
kynntar
HVÖT, félag sjálfstæðiskvenna
í Reykjavík, efnir til almenns
fundar annað kvöld, þar sem
þær konur sem bjóða sig fram
til prófkjörs Sjálfstæðisflokks-
ins, verða kynntar, þ.e. Bessí
Jóhannsdóttir, Björg Einars-
dóttir, Erna Ragnarsdóttir,
Elin Pálmadóttir, Jóna Sigurð-
ardóttir og Ragnhildur Helga-
dóttir.
Þær munu allar flytja stuttar
ræður og listamennirnir Ing-
veldur Hjaltested og Jónína
Gísladóttir munu flytja hluta af
efnisskrá þeirri er þær fluttu í
velheppnaðri för um Norðurlönd
fyrir skömmu. Síðan verða
frjálsar umræður og veitingar.
Fundarstjóri verður Margrét
Einarsdóttir og fundarritari
Hildur Einarsdóttir.
Það hefur ætíð verið stefna
Hvatar að veita þeim konum
sem hyggja á stjórnmálastörf á
vegum Sjálfstæðisflokksins sem
bezta aðstoð, sérstaklega fyrir
kosningar eins og nú.
Fundurinn verður í Sjálfstæð-
ishúsinu að Háaleitisbraut 1 og
hefst klukkan 20.30.
Wolfgang Schneiderhan fiðlu-
leikari leikur á næstu tónleik-
um Sinfóníuhljómsveitar
íslands.
Saltað og
kryddað á
Akranesi
Akranesi. 22. október
í DAG er síld söltuð og
krydduð á öllum „plönum“
hér á Akranesi. Sólfari AK
kom með 98 lestir, Haraldur
AK 10 66 lestir og Reynir
AK með 47 lestir af fallegri
síld eftir því sem um er að
ræða nú til dags.
Togarinn Krossvík landar
hér í dag 140 lestum af
karfa. Hér er suðvestan
stormur og óvíst um hvort
skip halda á veiðar að svo
komnu máli. — Júlíus.
Yfir þrjú þúsund
barnabókatitlar
ALÞJÓÐLEG barna- og ungl-
ingabókasýning var opnuð á
Kjarvalsstöðum s.l. laugardag. Á
sýningunni sem fyrst var sett
upp í Frankfurt á alþjóðlegri
sýningu 1978 eru yfir 3 þúsund
bókatitlar frá yfir 70 löndum.
Að sögn Önnu Torfadóttur er
þetta farandsýning sem sérstak-
lega er helguð barnaári og hefur
farið víða um heim. Það eru
íslenzkir bókasafnsfræðingar,
bókaverðir og Rithöfundasam-
band Islands sem standa að sýn-
ingunni hér.
Þá sagði Anna að allar bækur á
sýningunni væru frumútgáfur,
gefnar út á árabilinu 1970—1978.
í tengslum við sýninguna er
starfandi bókasafn, sem almenn-
ingsbókasöfnin á höfuðborgar-
svæðinu standa að. Þar er börnun-
um auk þess að fá bækur lánaðar
gert kleift að leika sér, lita og
leira. Þá er sérstök Nonnadeild
þar sem teikningar úr Nonnabók-
um eru sýndar, auk þess sem
litskyggnusýning er þar á hverj-
um degi.
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
Schneiderhan leikur
á næstu tónleikum
AÐRIR áskriftartónleikar Sin-
fóníuhljómsveitar Islands verða á
fimmtudaginn kemur kl. 20.30 í
Háskólabíói. Efnisskráin verður
sem hér scgir: Beethoven Egmont
forleikur og fiðlukonsert og
Holmboe sinfónía nr. 5. Stjórn-
andi er danski hljómsveitarstjór-
inn Eifred Eckart-IIanscn og ein-
leikari Wolfgang Schnciderhan.
Wolfgang Schneiderhan er
fæddur árið 1915 í Vín og hóf hann
tónlistarnám þriggja ára og kom
fyrst fram aðeins fimm ára að
aldri, en ellefu ára var hann þegar
hann kom fyrst fram sem einleik-
ari með hljómsveit í Kaupmanna-
höfn. Árin 1933—1949 lék hann
sem konsertmeistari í Sinfóníu-
hljómsveit Vínar og Fílharmóníu-
hljómsveit Vínar. Hafði hann þá
þegar unnið til Schubert-verðlaun-
anna og hóf hann árið 1937 að
einbeita sér meira að flutningi
kammertónlistar, segir í frétt frá
Sinfóníuhljómsveitinni. Hefur
honum verið sýndur margvíslegur
heiður, m.a. verið veittur riddara-
kross Dannebrog-orðunnar og unn-
ið til ' fjölda heiðursverðlauna.
Hann hefur starfað sem prófessor
við margar tónlistarstofnanir í
Austurríki og Sviss og er viður-
kenndur sem einn af mestu einleik-
urum í dag. Þá hefur hann komið
fram með fjölmörgum virtustu
hljómsveitum heimsins.
Eifred Eckart-Hansen kom fyrst
fram árið 1949 að loknu prófi í
tónlist frá Konunglega danska
tónlistarháskólanum með hljóm-
sveitarstjórn sem aðalgrein og
stundaði síðan framhaldsnám í
Mílanó. Stjórnaði hann um skeið
Kammersveit ungra tónlistar-
manna og var árið 1961 ráðinn
stjórnandi tónlistarsals Tívolí-
skemmtigarðsins og ári síðar tón-
listarstjóri Tívolí og hefur gegnt
því starfi síðan.
Gagnvarin
fura
endist von
úrviti
1.
2.
3.
4.
Eingöngu er notuð góð fura og nær gagnvörnin
alveg að kjarna viðarins.
Viðnum er síðan rennt inn í þar til gerða
tanka.
Tankurinn er síðan fylltur með Boliden
saltupplausn og henni þrýst inn í viðinn undir
7 kg/cm þrýstingi.
Viðurinn er síðan tilbúinn til notkunar en þarf
þó að þorna í ca. 2 vikur.
Tilraunir sýna, að gagnvarinn viður endist
a.m.k. f jórum sinnum lengur en óvarinn viður.
Við erum eina fyrirtækið á íslandi, sem höfum
tæki til að gagnverja við undir þrýstingi.
Timburverzlunin Volundur hf.
KLAPPARSTÍG 1, SÍMI 18430 — SKEIFAN 19, SÍMI 85244