Morgunblaðið - 23.10.1979, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 23.10.1979, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 1979 Amerísk súkkulaðikaka Flestir eiga uppskrift af súkkulaöiköku, en stöku sinnum getur veriö gaman aö breyta til, reyna eitthvaö nýtt. Súkkulaöikökur eru yfirleitt auöveldar og fljót- legar í tilbúníngi og ákaf- lega vel þegnar, eins og allir vita. UPPSKRIFTIN. V« bolli smjör, V4 bolli smjörlíki, 2 bollar sykur, 1 tsk. vanilla, 2 egg, 3/« bolli gott kakó, 13/« bolli hveiti, 3/« tsk. lyfiduft, 3/« tsk. natron, V» tsk. salt, 13/« bolli mjólk. Smjör, smjörlíki, sykur og vanilla sett í skál, hrært þar til þaö verður Ijóst, þá er eggjunum bætt í. Kakó, hveiti, lyftidufti, natrón og salti hrært saman, bætt út í eggjahræruna ásamt mjólkinni. Degið sett í tvö smurð tertumót og bakað við með- alhita í 30—35 mín. GOTT SÚKKULAÐIKREM 2Ví bolli flórsykur, Vz bolli kakó, 2 matsk. smörlíki, 4 matsk. gott kaffi, vanilludropar, örlítill rjómi eða mjólk, ef víll. Hrært saman á venjulegan hátt og nægir á milli tveggja botna af meðalstærö og yfir kökuna líka. Þegar vasinn verður skýjaður Það er hægara sagt en gert að hreinsa „hálsmjóa“ blómavasa eöa karöflur, þegar ekki er hægt aö komast með bursta aö botninum. Best af öllu, er að þvo slík ílót vandlega, eftir hverja notkun, úr volgu vatni og láta þorna vel. En ef þaö hefur mynd- ast ský eða blettir í slíkum ílátum er gott að hella ediki í, bæta skammti af grófu salti og láta standa í yfir nótt eða lengur. Skolað vel með volgu vatni á eftir. Frysti- kistan Þaö er kunnara en frá þurfi aö segja, aö íslenzk heimili eru yfirleitt ákaflega vel búin vélum og tækj- um, og vekur þaö eftirtekt erlendra gesta. Okkur þykir þetta sjálfsagt mál. Eins lengi og elstu menn muna, hefur þaö tíökast hérlendis, aö birgja sig upp af matvælum fyrir veturinn og því ekki undarlegt, aö frystikistan eöa -skápurinn þætti þarfaþing á heimilum, þegar slíkt kom á markaöinn. Enda mun víst óvíöa í heiminum til jafn mikiö af frystikistum til heimilisnota og á íslandi. Samkvæmt könnun kvennaársnefndar á stööu og störfum íslenskra kvenna höföu 88% kvennanna frystikistu. í nýútkomnu blaði Húsfreyjunn- ar, sem gefiö er út á vegum Kvenfélagasambands íslands er tekiö saman, hve mikið þaö kostar aö eiga frystikistu og réttilega bent á, að frysting er dýr geymsluaö- ferö. Útreikningar Húsfreyjunnar líta þannig út: 300 — 350 I. frystikistur eyða aö jafnaöi um 600 kwh á ári. Meö söluskatti og ööru kostar rafmagn- iö í Reykjavík í júlí 1979 30,50 kr. hver kwh. Er rafmganskostnaður- inn því um 18,330 kr. yfir árið eöa rúmlega 1.500 á mánuði. Þaö eru teknir fyrir fleiri liöir, þó ekki veröi gerö skil hér í smáatriö- um, svo sem afskriftir, vaxtatap og viögeröarkostnaöur, og niöurstað- an er sú, aö þaö geti kostaö allt aö 80.000 kr. á ári aö eiga frystikistu. Þaö er því greinilegt aö allmikill kostnaöur bætist ofan á þaö, sem keypt er til aö setja í frystinn og ekki má gleyma umbúöunum, sem kaupa þarf til aö setja utan um matinn. Hreinsun frystikistunnar. Þaö er ef til vill í síöasta lagi aö gefa gaum aö affrystingu og hreinsun frystikistunnar, margir búnir aö sjá um þá hliö málsins og komnir langleiöina meö aö fylla kistuna aftur. Aö sjálfsögöu þarf aö nota tækifæriö og hreinsa kistuna þeg- ar lítiö er í henni. Vefja þarf utan um matvælin, sem tekin eru úr kistunni og eiga aö fara í hana aftur, og geyma þau í kæli á meöan. Þegar búiö er aö taka kistuna úr sambandi, er gott aö leggja dag- blöö í botninn, þau draga í sig vatn og einnig dettur þá á þau þaö, sem skafið er af veggjunum. Það er einnig til aö flýta fyrir aö setja skál meö heitu vatni ofan í kistuna. Aö sjálfsögöu má aldrei nota odd- hvassan hlut, til aö skafa hrímiö af veggjunum, heldur plastsköfu, eöa annaö þaö, sem eyöileggur ekki yfirboröiö. Þaö gildir það sama, um frysti- kistuna og kæliskápinn, aö ekki má nota sápu í þvottavatniö, heldur aöeins natron (sódaduft). Aö síöustu er nauösynlegt aö þerra kistuna vel aö innan, setja síöan mesta frost á í u.þ.b. klst., áöur en fariö er að setja matvæli í aö nýju og sett á venjulegt hitastig. Þetta ætti ekki aö þurfa aö taka 'nema einn til tvo tíma. Ekki ætti aö opna frystinn í nokkra klukkutíma eftir aö hann hefur verið settur í gang aö nýju. Vika gegn vímuefnum í TILEFNI aí alþjóðaári barns- ins viljum við vekja athygli á hvílíkt böl neysla vímueína, og þá einkum áfengis, er þjóðinni og hve miklum þjáningum það veld- ur bornum. Við heitum á landsmenn að hverfa til heilbrigðari hátta. Til að leggja áherslu á það viljum við hvetja alla þjóðholla menn til að neyta hvorki áfengis né annarra vimuefna dagana 21.-27. október nk. og leitast við að vekja athygli á skaðsemi neyslunnar. Garðar Cortes tónlistarkennari, Georg Trygjo ason lögfrsBÖingur, Gils GuÓmundsson alþingismadur. Gísli Halldórsson arkitekt, Gísli Jónasson skólaprestur, Gísli A. Þorsteinsson geðlæknir, Grétar í>orsteinsson trésmiður, Grímur Engilberts ritstjóri, Guðjón Jónsson járnsmiður, Guðlaug M. P. Wium húsmóðir, Guðmundur Auðbjörnsson málaram. Guðmundur J. Guðmundsson verkam., Guðmundur Guðmundsson sparisjóðsstjóri, Guðmundur Guðmundsson sóknarprestur, Guðmundur Gíslason fulltrúi, Guðmundur Hansen skólastjóri, Guðmundur Hermannsson yfirlögregluþj., Guðmundur Illugason fyrrv. hreppstjóri, Guðmundur Jóhannsson fél.m.ráðunautur, Guðmundur 1». Jónsson iðnverkamaður, Guðmundur Karlsson alþingismaður, Guðmundur Ingi Kristjánsson skáld, Guðmundur Oddsson yfirkennari. Guðmundur ólafsson skólastjóri, Guðmundur Sigurðsson héraðslæknir, Guðmundur Sigurðsson skólastjóri. Guðmundur Sigurðsson skrifstofustjóri, Guðmundur Pórðarson kennari, Guðmundur Þorsteinsson sóknarprestur, Guðný J. Guðmundsdóttir húsmóðir, Guðríður Elíasdóttir verkakona, Guðrún Benediktsdóttir húsmóðir, Guðrún Dóra Guðmundsdóttir hjúkrunarfr.. Guðrún Rafnsdóttir húsmóðir. Guðsteinn Þengilsson læknir, Gunnar Árnason lektor, Gunnar Björnsson sóknarprestur, Gunnar Dal rithöfundur, Gunnar Gíslason prófastur, Gunnar Már Kristófersson skipstjóri, Gunnar Sveinsson kaupfélagsstjóri, Gunnar Thoroddsen alþingismaður. Páll V. Daníelsson framkvæmdastj.. Páll Eiriksson aðstoðaryfirlögregluþj., Páll Jónsson sparisjóðsstjóri, Páll Þorsteinsson fyrrv. alþingismaður. Pálmi Gíslason útibússtjóri, Petra Christiansen húsmóðir, Pétur Guðjónsson rakari. Pétur Þ. Ingjaldsson prófastur, Pétur Sigurðsson kaupmaður, Pétur Sigurgeirsson vígslubiskup. Pétur Þorsteinsson sýslumaður. (Ofanskráð nöfn féllu niður. er listi undir- skrifenda var birtur í blaðinu s.I. laugar- dag). Afmæliskveðja: / Olafur Haukur / Amason 50 ára Ólafur Haukur Árnason áfeng- isvarnaráðunautur er fimmtugur í dag 23. okt. Hann er Siglfirðingur að ætt og uppruna og gekk í Menntaskólann á Akureyri. Að loknu stúdentsprófi fór hann til Kaupmannahafnar og lagði stund á bókmenntasögu. Ólafur var um hríð skólastjóri Miðskólans í Stykkishólmi og síðar Gagnfræða- skólans á Akranesi. 1970 var hann ráðinn áfengisvarnaráðunautur ríkisins og það er fyrst og fremst í sambandi við störf að bindindis- málum sem leiðir okkar hafa legið saman. Ólafur er sérstæður maður á marga lund. Hann er afburða ræðumaður, málhagur vel og ákaf- lega tryggur og vinafastur. Ég tel að það hafi verið bindindishreyf- ingunni mikill fengur að slikur gáfumaður skyldi setjast í sæti áfengisvarnaráðunauts. Þar legg- ur hann mörgum góðum málum lið án þess að óska að nafns síns verði getið. Á tímum sem við nú lifum, tímum yfirborðsmennsku og and- legrar fátæktar þá andar stundum köldu til hugsjónamanna. Ólafur lætur sig tísku og tíðaranda engu skipta. Að því leyti svipar honum til hinna stóru baráttumanna frá aldamótunum. Ólafur er kvæntur skólasystur sinni Björgu Hansen og eiga þau fagurt heimili í Kópavogi, þar sem sést vítt og breitt um nágrennið. Ég og kona mín þökkum þeim hjónum margar ánægjulegar sam- verustundir og færum þeim inni- legar hamingjuóskir á þessum tímamótum. Hilmar Jónsson Ritgerðasamkeppni TÍMARITIÐ „Heima er best“ á Akureyri eínir til ritgerðasam- keppni um dulræn fyrirbæri. í verðlaun eru bækur auk venju- legra ritlauna. Höfundur bestu ritgerðarinnar fær bækur að eigin vali úr bókaskrá „Heima er best“ að upphæð 40.000 krónur. Höfund- ur fjögurra næst bestu ritgerðanna fá bækur að eigin vali fyrir 10.000 krónur. Gerðar hafa verið endurbætur á „Heima er best“. Blaðið kemur nú út í nýju formi og ráðinn hefur verið nýr blaðamaður, Guðbrandur Magnússon. Útgefandi „Heima er best“ er Bókaforlag Odds Björns- sonar, ábyrgðarmaður er Geir S. Björnsson og ritstjóri er Steindór Steindórsson frá Hlöðum. HBIMA BR BBZT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.