Morgunblaðið - 23.10.1979, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 1979
31
Stærsti
sigur Hiibners til þessa
Rætt við Guðmund Sigurjónsson, aðstoðarmann Hiibners í Rió
Rló de Janeiro, 22. október. AP. Reuter.
„ROBERT Hiibner vann sinn stærsta sigur á millisvæða-
mótinu í Ríó til þessa. Hefur ávallt skort herzlumuninn,“
sagði Guðmundur Sigurjónsson í viðtali við Mbl. Guðmund-
ur var aðstoðarmaður Hubners í Ríó. „Húbner byrjaði mjög
vel, tefldi mjög vel, vann fjórar skákir í upphafi í röð og
eftir átta umferðir hafði hann náð eins vinnings forskoti.
En í kjölfarið kom slæmur kafli hjá honum, tapaði fyrir
Tékkanum Smejkal. í lokin náði hann sér aftur á strik og
tryggði sér rétt í kandidatakeppnina nokkuð örugglega,“
sagði Guðmundur ennfremur.
Mesta spennan í Ríó í lokin
var hvort fyrrum heims-
meistaranum Tigran Petro-
sian eða Jan Timman, Hol-
landi, tækist að þoka sér upp
að Portisch og Hubner. Báðir
áttu biðskákir úr síðustu
umferðinni og höfðu peð yfir
þegar skákirnar fóru í bið.
Petrosian gegn Ivkov, Júgó-
slavíu, og Timman gegn
Garcia, Kúbu. Ivkov gaf skák
sína án þess að tefla hana
frekar en Timman tókst ekki
að knýja fram sigur gegn
Garcia og missti því af sæt-
inu. „Timman byrjaði mjög
illa en þegar flestir álitu
hann úr leik tók hann mikinn
endasprett og vann hverja
skákina á fætur annarri og
tefldi þá mjög vel,“ sagði
Guðmundur um frammi-
stöðu Timmans.
Tigran Petrosian var eini
keppandinn sem fór taplaus í
gegnum mótið. „Hann virðist
svo til ósigrandi en mér
fannst hann latur á köflum.
Ekki nógu mikil barátta í
honum en hann hristi af sér
slenið þegar mikið lá við eins
og í síðustu umferðinni þegar
hann varð að sigra Ivkov, og
tókst það,“ sagði Guðmund-
ur.
Samkvæmt fréttaskeyti
Reuters segir, að skáksér-
fræðingar séu sammála um,
að Portisch hafi teflt bezt
þegar honum tókst vel upp
og sérstaklega voru nefndir
sigrar hans gegn Sovétmönn-
unum Baganian og Balashov
sem dæmi um gullfallegar
skákir. „En óvænt töp gegn
minni spámönnum eins og
Sunye og Kagan settu strik í
reikninginn hjá honum,“
sagði Guðmundur.
Robert Hubner tefldi ekki
í síðustu umferðinni, sat hjá.
Lajos Portisch gerði þá jafn-
tefli við Leonid Shamkovich,
Bandaríkjunum. Petrosian
vann Ivkov og Timman gerði
jafntefli við Garcia, eins og
áður sagði. Önnur úrslit:
Velimirovic vann Kagan,
Harandi, íran, vann Sax,
Sunye vann Vaganian, og
Torre vann Herbert. Smejkal
og Balashov gerðu jafntefli.
Lokastaðan í Ríó varð:
1.—3. Húbner, Petrosian,
Portisch 11,5 v. 4. Jan Timm-
an 11. 5.-6. Ivkov, Sunye 9,5.
7.-9. Sax, Balashov og Torre
9. 10.—11. Shamkovich,
Smejkal 8,5. 12. Vaganian 8.
13,—14. Velimirovic, Garcia
7.5. 15. Harandi 6.5. 16.
Bronstein 6. 17,—18. Her-
bert, Kagan 4.5 vinninga.
Guðmundur Sigur jónsson
Nú er þetta í fyrsta sinn,
að þú ert aðstoðarmaður. I
hverju er það einkum fólgið?
„Það er einkum að undirbúa
skákina við næsta andstæð-
ing, brugga launráð á kvöld-
in. Athuga hvað hann hefur
komið fram með. í sannleika
sagt þá er þetta talsvert
erfitt en mig langaði að
reyna þetta og hafði gaman
af — tel mig einnig hafa lært
nokkuð af því.“
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Njarðvík
Til sölu 2ja og 3ja herb. íbúöir í
sambýlishúsi í smíöum. Öll sam-
eign fullfrágengin. Söluverö 2ja
herb. íbúöir 10 millj. 3ja herb.
11.2 millj. Beöiö eftir húsnæðls-
stjórnaláni. Einbýlishús viö
Borgarveg. Skipti á fasteign í
Keflavík koma til greina.
Fasteignasalan Hafnargötu 27,
Keflavík, sími 1420.
Margar
gerðir
feröavíðtækja
Bílaútvörp, bílasegulbönd og
bílaloftnet. Ódýrar töskur og
hylki fyrir kassettur og hljóm-
plötur T.D.K. og Ampes-kassett-
ur. Hljómplötur, músíkkassettur
og áttarása spólur. íslenskar og
erlendar. Mikiö á gömlu veröi.
Póstsendum.
F. Björnsson
radíóverzlun,
Bergþórugötu 2.
Sími 23889.
,EDDA 597910237 — 1 atkv.
IOOF Rb. 1 '12910238'A —
I.O.O.F 8 = 16124108’/i = 0
A.D. K.F.U.K.
Biblíulestur „Konur og karlar í
söfnuölnum" séra Auður Eir Vil-
hjálmsdóttir.
Nefndln
Fram skíöadeild
Aðaifundur
skíöadeildar Fram veröur
fimmtudaginn 1. nóv. kl. 20.00 í
félagsheimilinu viö Safamýri.
Stiórnin
Fíladelfía
Almennar samkomur í dag kl. 17
og 20.30. Raaðumaður Dr.
Thompson. Ath. síöasta vika.
Farfuglar
Leöurvinna
Miövikudag kl. 20.00.
.Farfuglar
Leikhúsferö
Efnt veröur til leikhúsferöar í
Þjóöleikhúsiö föstudaginn 26.
okt. n.k. fyrir aldraöa í Hafnar-
firði á leiksýninguna Stundar-
friöur. Saetaferöir eru kl. 19 frá
íþróttahúsinu viö Strandgötu.
Pöntunum á aögöngumiöum
veita eftirtaldir móttöku: Jó-
hanna Andrésdóttir, sími 50390,
Kristín Magnúsdóttir sími 50405
og Lára Jónsdóttir sími 51090.
Félagsmálaráð Hafnarfjaröar.
Hilmar Foss
Lögg. skjalaþýð. dómt. Hafnar-
stræti 11, sími 14824, Freyju-
götu 37, sími 12105.
raöauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
Selfoss og nágrenni
Sjálfstæöisfélagiö Óöinn heldur almennan félagsfund þriöjudaginn
23. okt. kl. 20.30 aö Tryggvagötu 4.
Fundarefni:
1. Upptaka nýrra félaga.
2. Framboösmálin rædd.
3. Gestur fundarins veröur Friörik Sóphusson alþm. sem mun ræöa
um stefnumál Sjálfstæðisflokksins og svara fyrirspurnum.
Stjórnin
Mýrasýsla —
Kveöjusamsæti
Kaffisamsæti veröur haldiöaö Hótel Borgarnesi laugardaginn 27. okt.
n.k. kl. 21. Þar veröa kvödd hjónin frú Sigrún Hannesdóttir og fyrrv.
sýslumaöur Ásgeir Pétursson. Öllum er heimil þátttaka. Listar
liggja frammi hjá Bjarna Helgasyni, Laugarlandi, Símoni Teitssyni,
sími 7211 og Þorleifi Grönfeldt sími 7120, Borgarnesi.
Fulltrúarráöiö
Keflavík
Aöalfundur Sjálfstæöisfélags Keflavíkur veröur haldinn fimmtudaginn
25. okt. í sjálfstæöishúsinu í Keflavík kl. 20.30 síödegis.
Gestur fundarins veröur Ellert Eiríksspn.
Stjórnin..
Launþegaráð Sjálf-
stæðisflokksins í
Reykjaneskjördæmi
heldur almennan fund fimmtudaginn 25. þ.m. og hefst hann kl. 20.30
í sjálfstæölshúsinu Hamraborg 1, Kópavogi.
Dagskrá.
Stjórnmálaviöhorfiö,
Alþingiskosningar.
Ávarp flytja Salóme Þorkelsdóttir, Ríkharö Björgvinsson, Kristján
Haraldsson og Bjarni Jakobsson.
Allt sjálfstæöisfólk velkomiö. Fjölmenniö.
Stjórnin.
Selfoss og nágrenni
Sjálfstæöisfélagiö Óöinn heldur almennan
féalgsfund þrlöjudaglnn 23. okt. kl. 20.30 að
Tryggvagötu 4.
Fundarefni:
1. Upptaka nýrra félaga.
2. Framboðsmálln rædd.
3. Gestur fundarlns veröur Friörik Sóphus-
son, alþm. sem mun ræða um stefnumál
Sjálfstæöisflokksins og svara fyrlrsþurn-
um.
Stjórnln.
Vogar Vatnsleysuströnd
Aöalfundur Sjálfstæöisfélags Vatnsleysustrandarhrepps veröur
haldinn í kvöld kl. 20.30, Glaöhelmum.
Fundarefni: Venjuleg aöalfundarstörf.
Stjómin.
Hvöt — Félag
sjálfstæðiskvenna
í Reykjavfk
Félagsfundur miðvikudaglnn 24. okt. n.k. kl. 20.30 á 1. hæð í Valhöll,
sjálfstæöishúsinu, Háaleitisbraut 1.
Fundarefni:
1. Kosning uppstilllnganefndar.
2. Konur, sem eru frambjóöendur fyrir Sjélfstæöisflokkinn í prófkjöri
í Reykjavík kynntar.
3. Ingveldur Hjaltested syngur viö undirleik Jónfnu Gísladóttur.
4. Frjálsar umræöur og veitingar.
Stjórnin.
Málfundafélagið
Óðinn
heldur aöalfund, fimmtudaginn 25. október
kl. 20.30 fValhöll, Háaleitisbraut 1.
Dagskrá:
1. Venjuleg aöalfundarstörf.
2. Kosning til fulltrúaráös Sjálfstæðisflokks-
ins í Reykjavfk.
3. Geir Hallgrímsson formaður Sjálfstæöis-
flokksins ræöir stjórnmálaástandið.
Stjórn Óöins.
Árnessýsla
Almennur fundur Sjálfstæöiskvennafélags
Árnessýslu veröur haldinn miövikudaginn 24.
október kl. 21 aö Tryggvagötu 8, Selfossi.
Dagskrá: Stjórnmálin. Ólafur Helgi Kjartans-
son mætir á fundinn.
Stjórnin.