Morgunblaðið - 23.10.1979, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 23.10.1979, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 1979 21 Jón G. Sólnes fyrrv. alþm.: Að leikslokum Á fundi kjördæmisráðs Sjálf- stæðisflokksins í Norðurlandskjör- dæmi eystra, sem haldinn var í gær, var fellt með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða að verða við skriflegum óskum 451 flokksbund- ins stuðningsmanns flokksins um að prófkjör verði viðhaft við val frambjóðenda flokksins í kjör- dæminu við íhöndfarandi Alþing- iskosningar. Að fengnum þessum úrslitum eru örlög mín ráðin á þann veg, að fyrirfram er vitað, að kjörnefnd sem gera mun tillögu um skipan á væntanlegum lista mun ekki gera tillögu um að ég skipi það forystusæti sem ég hefi gert sl. tvö skipti er kosningar hafa farið fram. Við þessu er að sjálfsögðu kannski ekki mikið að segja, þó óneitanlega kunni það að koma mörgum skringilega fyrir sjónir, að í stjórnmálaflokki þar sem ítrekaðar samþykktir hafa verið gerðar um að hafa sem mesta breidd í því að hinn almenni stuðningsmaður flokksins geti haft áhrif á val væntanlegra frambjóð- enda, þá sé svo gersamlega vísað á bug ósk, sem studd er hartnær meirihluta sannanlegra flokks- bundinna meðlima flokksins í kjör- dæminu. Vegna þeirra fjölmörgu fylg- ismanna Sjálfstæðisflokksins, sem sýnt hafa mér vinsemd, uppörvun og stuðning, einmitt nú þessa síðustu og verstu daga þegar ekki hefur linnt árásum í fjölmiðlum þar sem dróttað hefur verið að mér öllum hugsanlegum vömmum og skömmum, er þetta greinarkorn sett fram. Á fundi kjördæmisráðsins í gær gerði einn af framámönnum Sjálf- stæðisflokksins í kjördæmi mínu að umtalsefni „ógæfu“ þá, eins og hann orðaði það, sem mig hefði hent og átti þá auðsjáanlega við margumtalað „símareikningsmál" og bréf yfirskoðunarmanna ríkis- reikninga til Alþingis þaraðlút- andi. í sambandi við þetta margum- talaða mál, þá hafði ég spurnir af því fyrir nokkru að hjá yfirskoðun- armönnum ríkisreikninga væru þessi mál til athugunar og að þeir litu þessi mál svo alvarlegum augum, að uppi væru hjá þeim áform um að skrifa forsetum Alþingis um málið og jafnvel að rétt væri þá þegar að senda málið til saksóknara ríkisins til meðferð- ar. Lítum svolítið nánar á þróun þessa máls. Um helgina 6. og 7. þ.m. var haldið Kjördæmisþing sjálfstæðismanna í N-landskjör- dæmi eystra. Að loknu þessu þingi er það á vitorði flestra fulltrúa sem sátú þingið til enda, en því lauk sunnudagsmorgun 7. okt., en þá höfðu þó nokkrir fulltrúar yfirgefið fundarstaðinn, í hverju þessar athugasemdir yfirskoðun- armanna ríkisreikninga væru fólgnar. Höldum áfram. Ég þurfti nauðsynlega að fara erlendis þriðjudaginn 10. okt. til stuttrar dvalar á fundi sem hafði verið ákveðinn fyrir rúmum 4 mánuðum. Mánudaginn 9. okt. átti ég tal við einn af yfirskoðunarmönnunum og tjáði honum að ég óskaði eindregið eftir því að fá að koma á fund yfirskoðunarmanna til þess að ræða þessi mál við þá og skýra mín sjónarmið (Yfirskoðunarmenn höfðu ekki að fyrra bragði séð ástæðu til þess að gefa mér tækifæri til þess að koma á þeirra' fund til þess að skýra mér frá í hverju athugasemdir þeirra væru fólgnar — að ég tali ekki um, að gefa mér kost á því að láta þeim í té umsögn mína.) en ástæður mínar væru þannig, að ég yrði fjarverandi væntanlega til sunnu- dags 14. okt. og að ósk mín væri að fundur minn með yfirskoðunar- mönnum gæti orðið þriðjudaginn 16. eða miðvikud. 17. okt. Ég tók það skýrt fram í þessu samtali við umræddan yfirskoðunarmann, að ef ekki væri hægt að verða við þessari ósk minni um timasetn- ingu viðræðnanna, myndi ég hætta við fyrirhugaða ferð mína. Umræddur yfirskoðunarmaður tjáði mér í þessu símtali að starfsmenn sínir væru mjög erfiðir viðfangs, en hann skyldi samt orðfæra þetta við þá, og eftir því sem ég skildi samtal okkar þá myndi hann mæla með því að orðið yrði við þessari beiðni minni um tilhögun viðræðnanna. Síðar um kvöldið 9. okt. tjáði umræddur yfirskoðunarmaður mér, að sam- starfsmenn sínir hefðu fallist á ósk mína og ég gæti því farið eins og hann oröaði það um leið og hann óskaði mér góðrar ferðar. Ég hraðaði ferð minni allt hvað ég gat og kom laugardaginn 13. þ.m. Á heimili mínu í Reykjavík beið þá umslag til mín boðsent frá Alþingi, en í umslaginu var bréf til mín undirritað af öllum yfirskoð- unarmönnum ríkisreikninga, dags. 12. þ.m., þar sem þeir senda mér afrit af margumræddu bréfi þeirra til forseta Alþingis. Samkvæmt dagsetningu umrædds bréfs gæti það verið vélritað um svipað leyti og verið var að prenta forsíðufrétt Þjóðviljans, sem út kom 13. þ.m. Svona er sambandið náið milli þingkjörinna trúnaðarmanna ríkisins við fjölmiðla, þegar til- gangurinn er að koma höggi á pólitískan andstæðing. Á síðasta fundi Alþingis sem rofið var 17. þ.m. notaði ég hið eina tækifæri sem gafst, en það var í heyranda hljóði að lesa umrætt bréf yfirskoðunarmanna ríkis- reiknings og skýrði þá um leið með nokkrum orðum viðhorf mitt til málsins. í þessu margumrædda „síma- reikningamáli" eru staðreyndir þessar: a) Alþingi hefur ekki greitt mér sem þingmanni eina krónu fram yfir það sem mér bar að fá. Enda öllum kunnugt sem þekkja ráð- deild og reglusemi skrifstofustjóra Alþingis, að hann innir ekki af hendi gfeiðslur umfram það sem honum ber. Með þessa staðreynd í huga, var þess vegna alveg tilefnislaust að vera að sriúa sér til forseta Alþing- is viðvíkjandi þessu máli. b) Að mismunur sá sem myndast hafði sem skuld hjá mér við Kröflunefnd vegna þess að um- ræddir reikningar höfðu verið greiddir henni, var með mjög auðveldum hætti hægt að jáfna út í sambandi við óuppgerðar kröfur mínar til nefndarinnar vegna notkunar einkabifreiðar o.fl., t.d. má benda á, að sem lausráðnum starfsmanni mun ég eiga rétt á greiðslu orlofsfjár af launum. Þá má geta þess, að áður en ég fór umrædda ferð, hafði ég að fullu endurgreitt Kröflunefnd áð- urnefnda simreikninga, þar sem ég taldi rétt að úr því að málið hafði tekið þessa leiðindastefnu hjá yfirskoðunarmönnum, þá skyldi ég greiða upphæðina, en bíða hins vegar eftir endanlegum úrskurði um kröfur mínar gagn- vart nefndinni. Vegna nýlegra um- mæla sem fallið hafa í fjölmiðlum um að ég sé að krefjast margfaldr- ar greiðslu vegna notkunar einka- Jón G. Sólnes bifreiðar, vegna þeirrar greiðslu sem þingmenn fá vegna bifreiða- notkunar í kjördæmi sínu, þá er því til að svara að ein ferð fram og til baka Ak/Krafla/Ak er 250—300 km, svoleiðis að miðað við slíkar aðstæður tel ég óskir mínar um greiðslu fyrir notkun einkabifreið- ar fyllilega á rökum reistar, enda ekki farið fram á annað en það, sem gildir hjá því opinbera í þessum efnum. Af því sem hér hefur verið sagt að framan um þetta „símareikn- ingamál“ þá leyfi ég mér að vonast til þess, að hægt sé að fallast á, að ef einhver vilji hefði verið til þess að sýna snefii af sanngirni í þessu máli, þá hefði það verið mjög auðleysanlegt, þannig að hér sé ekki um neina „OGÆFU“ að ræða. Því verður svo hins vegar ekki neitað, að óhjákvæmilega vaknar hjá manni grunur um, að eins og haldið hefur verið á þessu máli, því hampað í f jölmiðlum. i skúma- skotum, á bak við tjöldin, að þá hafi þótt meira í mun að spilla fyrir erfiðum keppinaut um þing- sæti og pólitiskum andstæðingi, heldur en að réttlætistilfinningin eingöngu hafi ráðið ferðinni, og lái mér hver sem vill, þó að slíkur grunur læðist að mér í sambandi við þetta mál. Ég get vel lýst því yfir að trúaröryggi mitt og traust á handleiðslu fullvissar mig um að örlaganornirnar spinna enga ógæfuþræði hvort heldur að því mig sjálfan snertir eða fjölskyldu mína. Þessu vildi ég hér með leyfa mér að koma á framfæri viö þá sem þetta kunna að lesa og þá alveg sérstaklega þann ágæta ræðumann á kjördæmisráðsfund- inum í gær, sem lét sér svo tíðrætt um „ÓGÆFU“ mína. Launamál mín hjá Kröflunefnd Fjölmiðlar hafa mjög miklað launagreiðslur til mín, það tímabil sem ég gegndi framkvæmdastjóra- störfum og sá um allt skrifstofu- hald hjá Kröflunefnd. Kannski er það rétt, að hér er um allstórar upphæðir að ræða. En ég vil þá í þessu sambandi leggja áherslu á, að ég innti af hendi gífurlega umfangsmikið starf og lagði oft nótt við dag og það ekki síður þegar ég var staddur í Reykjavík en á Akureyri. Um yfirvinnuna er það að segja, hvort menn kjósa að trúa því eða ekki, að það er ekki nema lítill hluti af þeirri vinnu sem ég innti af hendi umrætt tímabil, sem ég hefi gert reikninga fyrir. Það vill svo vel til, að ég á dagbækur sem ég hefi fært á þessum árum. Þessar bækur bera það greinilega með sér hvernig tíma mínum var varið vegna Kröflumála. Ég er reiðubúinn að afhenda þær bækur hlutlausum aðilum til athugunar en mun að sjálfsögðu krefjast þess að slíkum aðilum sé treystandi til þess að fara með slíkar heimildir sem dagbækur hljóta að vera sem trúnaðarmál. I sambandi við þessi launamál, vil ég leyfa mér að benda á, að ég mun með þeirri tilhögun sem ég hafði á þessum málum, hafa spar- að Kröfluvirkjun tugmilljóna króna greiðslur sem annars hefðu fallið til, ef stofnað hefði verið til þess skrifstofuhalds sem ekki hefði talist óeðlilegt, með hliðsjón af þeim umsvifamiklu framkvæmd- um sem Kröflunefnd hafði með að gera. Ég er reiðubúinn að sæta hlutlausri athugun á þeim málum og óttast ekki, að niðurstöður slíkra athugana myndu sanna mál mitt. Þessi grein er orðin lengri en ég hafði hugsað mér í upp.hafi. Ég bið lesendur að virða mér til nokkurr- ar vorkunnar að mér svellur móður út af þeim stanslausu ofsóknum og lygaáróðri sem hafður hefur verið frammi gagnvart mér nú um margra ára bil. Aðilar sem þar hafa átt drýgstan hlut að verki, og sem ég kannast ekki við að ég hafi nokkru sinni að fyrra bragði gert hið minnsta til miska, geta nú fagnað sigri. Þeim hefur tekist að ná takmarki sínu með því að bola mér út af lista sjálfstæðismanna í N-lands-kjördæmi eystra. Verði þeim sá sigur að góðu eftir því sem þeir hafa til unnið. Akureyri, 21. okt. 1979. Á hestum frá hjónavígslu ÞARFASTI þjóninn fékk ör- litla uppreisn æru s.l. laugar- dag. Þá voru gefin saman i hjónaband f Fríkirkjunni í Hafnarfirði Pálína Margrét Jónsdóttir og Sveinn Haukur Jónsson, bæði miklir hesta- menn. Að lokinni vigslu í kirkj- unni héldu þau hjónin á brott á tveimur gæðingum. Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum, sem ljósm. Mbl., Kristján tók, sat frúin í söðli eins og kvenna var siður fyrr á timum. Islenzk málnefnd fái að fastráða sérfræðing Ályktun aðalfundar Samtaka móðurmálskennara Eftirfarandi tillaga var borin fram á aðalfundi Samtaka móður- málskennara sl. vor og hlaut þar einróma samþykki: Aðalfundur Samtaka móðurmáls- kennara, haldinn í Kennaraháskóla íslands laugardaginn 9. júní 1979, skorar á menntamálaráðherra að beita sér fyrir því að fjárveiting til Islenskrar málnefndar verði stór- hækkuð á næstu fjárlögum svo að nefndin geti sinnt einhverju af þeim brýnu verkefnum sem hennar bíða. Einkum vill fundurinn leggja áherslu á að nefndin geti fastráðið sérfræðing í fullt starf þegar á næsta ári og fái fasta bækistöð fyrir starfsemi sína. Greinargerð: íslensk málnefnd var stofnuð með ráðherrabréfi 30. júlí 1964 og varð því 15 ára í sumar. í reglum, sem nefndinni voru settar og mennta- málaráðherra staðfesti 10, mars 1965, segir m.a. um hlutverk nefnd- arinnar: „íslenzk málnefnd er ráðgjafar- stofnun. Henni ber að veita opinber- um stofnunum og almenningi leið- beiningar um málleg efni á fræði- legum grundvelli." Meðal verkefna, sem nefndinni er ætlað að sinna, er fyrst talin í reglunum söfnun nýyrða og útgáfa þeirra. Þá á nefndin að „svara fyrirspurnum, sem henni berast frá stofnunum eða einstaklingum og leitast við að hafa góða samvinnu við aðilja, sem mikil áhrif hafa á málfar almennings, svo sem blöð, útvarp og skóla. Allar fyrirspurnir , og svör skulu geymd í plöggum nefndarinnar." — Loks er Islenskri málnefnd ætlað að hafa samstarf við aðrar málnefndir á Norðurlönd- um og senda fulltrúa á ársfundi þeirra. Skemmst er frá því að segja að nefndin hefir aldrei sinnt verkefn- um sínum eins og til var ætlast, nema helst því, sem minnstu máli skiptir, að senda fulltrúa á ársfundi norrænu málnefndanna. Islensk málnefnd er yngsta þjóð- lega málnefndin á Norðurlöndum, stofnuð að norrænni fyrirmynd og til þess að ekki vantaði hlekk í norrænu samstarfskeðjuna. En hún átti að vera miklu meira en uppfyll- ingarefni í norrænni samvinnu. Hún var arftaki „nýyrðanefndar" sem hafði tæpan hálfan annan áratug unnið ötullega að söfnun og útgáfu nýyrða (Nýyrði I—IV, Rvík. 1953— ’56 og Tækniorðasafn Sigurðar Guðmundssonar, Rvík. 1959) og not- ið til þess fjárveitinga frá Alþingi og stuðnings Menntamálaráðuneyt- is sem kostaði útgáfu flestra nýyrðasafnanna. — Nú er fjárveit- ingum til nefndarinnar hins vegar svo háttað að hún má sín einskis. Það er kaldhæðnislegt að blóm- legt málræktarstarf af hálfu hins opinbera skyldi leggjast niður jafn- skjótt og íslensk málnefnd komst á laggirnar. Síðan eru liðin 15 dýrmæt ár. Á þeim tíma hefir orðið býsna mikil breyting á menningarháttum þjóðarinnar. Samskipti okkar við aðrar þjóðir hafa margeflst, sjón- varp hefir tekið til starfa, stóriðja haldið innreið sína og mikil gróska orðið á mörgum sviðum tækni og vísinda, t.d. í tölvutækni. Erlend áhrif á íslenskt mál hafa aldrei verið eins sterk og nú og aldrei hefir verið eins brýn þörf fyrir opinbera stofnun til að sinna þeim verkefnum sem íslenskri málnefnd voru ætluð fyrir 15 árum. Ljóst er að þessi verkefni verða ekki leyst af hendi nema málnefnd- in fái a.m.k. einn fastráðinn starfs- mann nú þegar og fasta bækistöð. Nefndin hefir farið fram á fjárveit- ingar til þess en fjárveitingavaldið virt tillögur hennar að vettugi. Slíkt má ekki endurtaka sig. — Oft er þörf en nú er nauðsyn. Ályktun þessi ásamt greinargerð hefur verið send menntamálaráð- herra. Fjárveitinganefnd og menntamálanefndum Alþingis svo og til Islenskrar málnefndar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.