Morgunblaðið - 23.10.1979, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 1979
13
Leikfélag Þorlákshafnar:
Sýnir Grenið
eftir Kjartan Heiðberg
Þorlákshöfn. 19. október 1979.
LEIKFÉLAG Þorlákshaínar
frumsýndi leikritið GRENIÐ eft-
ir Kjartan Heiðberg á fimmtu-
dagskvöldið í Félagsheimilinu
hér i Þorlákshöf n, við mjög góðar
undirtektir leikhúsgesta. Þetta
er fyrsta leikrit hins unga höf-
undar, en engum blandast hugur
um, eftir að hafa séð Grenið, að
hér er á ferðinni efnilegur leik-
ritahöfundur sem stingur á einu
af mörgum kýlum með einurð og
festu. Leikstjóri er Eyvindur Er-
lendsson, en hann er Þorláks-
hafnarbúum að góðu kunnur því
hann setti á svið tvö verk fyrir
Leikfélagið á fyrstu árum þess.
Hann er þekktur fyrir það að ná
fram öllu sem fyrir hendi er hjá
hverjum og einum leikara, og oft á
mettíma. Leikendur eru átta. Að-
alhlutverkin fara þau með Sig-
ríður Garðarsdóttir, sem leikur
ömmuna, sem fær engan frið til að
annast reykvísku ógæfubörnin
sem af sjálfsdáðum eru hjá henni.
Hún fer mjög vel með sitt hlut-
verk. Geir Bjarnþórsson leikur
Steina, vandræðamanninn með
hlýja hjartaþelið. Hann skilar
sínu hlutverki með afbrigðum vel.
Leikendur eru allir ungt fólk, og
því byrjendur á hinum þyrnum
stráða vegi listarinnar, en eftir að
hafa horft á þessa sýningu, held
ég, að Leikfélaginu hafi bæst
góður efniviður sem lofar miklu í
framtíðinni.
Leikfélag Þorlákshafnar var
stofnað 1970 og hefur boðið upp á
eitt leikrit á ári að undanskildu
árinu 1973. Félagið hefur því
unnið ágætt brautryðjendastarf,
og ættu Þorlákshafnarbúar að
minnast þess með því að sækja
leiksýningar þess allir sem einn.
Stjórn félagsins skipa Guð-
mundur P. Jónsson formaður,
Guðrún S. Sigurðardóttir, Hjör-
leifur Brynjólfsson, Jóna Kristín
Engilbertsdóttir og Gissur Bald-
ursson.
Leikfélagið hyggst sýna Grenið
víðs vegar um Suðurland á næst-
unni, og ég hygg að enginn þurfi
að sjá eftir því haustkvöldi sem
varið er til að sjá þetta snjalla
verk í meðferð Leikfélags Þor-
lákshafnar.
— Ragnheiður.
Frá sýningu Leikfélags Þoriákshafnar á Greninu eftir Kjartan Heiðberg: Gróa Steina og Gunna með nýja
barnið.
Prófkjör
Sjálfstæöisflokksins
Já 1. sætið
Gudmundur Hansson
20-30 skiptinemar
AFS á næsta ári
ÞESSA dagana stendur yfir um-
sóknartími fyrir unglinga fædda
1962 og 1963, sem áhuga hafa á að
gerast skiptinemar, á vegum AFS
International-Intercultural Prog-
rams, segir í frétt frá AFS.
Í ár eru 23 nemar erlendis á
vegum AFS. Flestir þeirra eru í
Bandaríkjunum, en einnig eru nem-
ar í Frakklandi, Sviss, Austurríki,
Spáni og í Malaysíu. Hér á landi eru
6 nemar, sem komu í ágústbyrjun, og
koma til með að vera hér á landi
fram í júlíbyrjun næsta ár.
Á komandi ári má búast við að
utan fari 20—30 nemar. Enn er óvíst
hver dvalarlöndin verða, enda leggur
AFS mesta áherslu á að finna
fjölskyldur og nema, sem eiga vel
saman, svo að báðir aðilar fái sem
mest út úr reynslu þeirri, sem
nemendaskiptum fylgir. Möguleg
dvalarlönd eru þó u.þ.b. 60, en AFS
starfar í fleiri löndum en nokkur
önnur samtök á sviði nemenda-
skipta.
Eitt af því, sem einkennt hefur
starf AFS, er sú mikla áhersla, sem
sjálfboðaliðar og starfsfólk leggur á
að aðstoða nemendur og fjölskyldur
meðan á dvöl nema stendur. Þetta
felst aðallega í ráðgjöf og námskeið-
um. Vegna forystu AFS á þessu
sviði, veitti Æskulýðssjóður Evrópu-
ráðsins samtökum AFS í Evrópu,
EFIL, styrk til að vinna að rann-
sóknum á nemendaskiptum, og
áhrifum þeirra á þátttakendur. AFS
á Islendi hefur tekið þátt í rannsókn
þessari, en ekki er búist við að henni
ljúki fyrr en eftir tvö ár.
Fyrir nokkrum árum dugðu þátt-
tökugjöld íslenskra nema rúmlega
fyrir kostnaði, sem hlaust af þátt-
töku þeirra. Mismunurinn fór í að
greiða niður þátttökugjöld nema í
þriðja heiminum. Vegna mikilla
gengisfellinga á s.l. árum er sú staða
komin upp, að þátttökugjald
ísienskra nema duga aðeins fyrir
rúmlega 80% kostnaðar, en mismun-
urinn er greiddur úr alþjóðlegum
sjóðum, og aflað hér innanlands með
framlögum til félaga og fyrirtækja.
AFS hefur það að markmiði sínu
að gefa unglingum tækifæri til að
kynnast framandi menningarsvæð-
um, án tillits til efnahags. Af þeim
ástæðum veitir AFS þeim ungling-
um, sem koma frá lítt efnuðum
heimilum, sérstaka styrki, til að
gera þeim þátttöku mögulega. Einn-
ig vill AFS ekki gera mun á
þátttakendum vegna stjórnmála-
eða trúarviðhorfa. AFS leitar því að
þátttakendum sem eru reiðubúnir til
að virða aðra, þrátt fyrir ólíkan
uppruna og menningu — fólki með
hugmyndaflug, þolinmæði, kímni,
forvitni, sveigjanleika og skilning.
30 tonna bílkrani meö glussabómu og góöum
búnaöi.
Einnig Allen bílkranar meö grindarbómu.
RAGNAR BERNBURG-vélasala sími 27020 kv.s.
82933.
Auglýst
eftir framboðum
til prófkjörs
í Austurlandskjördæmi
Ákveðiö hefur verið að prófkjör um val frambjóðenda á lista
Sjálfstæðisflokksins í Austurlandskjördæmi við næstu alþingis-
kosningar fari fram dagana 2. og 3. nóvember n.k.
1) Gerö skal tillaga til kjörnefndar innan ákveöins framboösfrests sem kjörnefnd setur.
Tillagan er því aöeins gild, aö hún sé bundin viö einn mann og getur enginn
flokksmaöur staöiö aö fleiri en tveim slíkum tillögum. Tillagan skal borin fram af 20
flokksmönnum búsettum í kjördæminu.
2) Kjörnefnd er heimilt aö tilnefna prófkjörsframbjóöendur til viöbótar frambjóöendum
skv. 1)-lið eftir því sem þurfa þykir, enda sé fjöldi þeirra þrisvar sinnum meiri
samanlagöur en fjöldi kjörinna þingmanna Sjálfstæöisflokksins og uppbótarþing-
manna, sem síöast hlutu kosningu fyrir kjördæmiö.
Hér með er auglýst eftir framboðum til prófkjörs sbr. 1. liö hér að
ofan. Skal framboð vera bundiö viö einstakling, sem kjörgengur
veröur í næstu Alþingiskosningum og skulu 20 flokksbundnir
Sjálfstæðismenn standa aö hverju framboði. Enginn flokksmaður
getur staöið aö fleiri en 2 framboöum. Framboðum ber aö skila
ásamt mynd af viðkomandi til framkvæmdastjóra yfirkjörstjórnar
Magnúsar Þóröarsonar, Lagarási 2, Egilsstööum eigi síöar en kl. 12
aö hádegi, föstudaginn 26. okt. '79.
Yfirkjörstjórn Sjálfstæðisflokksins
í Austurlandskjördæmi.
Notaóirbílartilsölu
Wagoneer '79 ekinn 4600 km.
Eins og úr kassanum. Sklpti á
ódýrari bíl koma til greina.
Wagoneer '77, ekinn 30.000
km. Skipti á ódýrari bíl æskileg.
Wagoneer ’74, ekinn 76.000
km. 8 cyl. sjálfsk. vökvast.
Cherokee „S“ '79, ekinn 12.000
km. 8 cyl. sjálfsk. vökvast.
Cherokee '74, ekinn 100.000
km 6 cyl. beinsk. vökvast.
Concord De Luxe Station ’79,
ekinn 5.000 km. sjálsk. vökvast.
Concord 4ra d. '78 ekinn
26.000 km. 6 cyl. sjálfsk. vökv-
ast.
Hornet '77 ekinn 49.000 km. 6
cyl. sjálfsk. vökvast.
Hornet ’75, ekinn 80.000 km. 6
cyl beinsk. vökvast.
Hornet AMX ’77, ekinn 39.000
km. 8 cyl. 304 cyl. sjáffsk
vövast. Bíll hinna vandlátu.
Hornet Hatchback '75, ekinn
70.000 km. 6 cyl, sjálfsk. vökv-
ast.
Lancer 1400, 4 d. ’78 ekinn
13.000 km.
Lancer 1400, 4 d. ’77, ekinn
20.000 km.
Lancer 1400 EL ’75 4 d. ekinn
65.000. Bíll í toppstandi.
Galant 1600 GL ’74 ekinn
83.000 km.
Lada Sport '79, ekinn 15.000
km. Skipti koma til greina á
góöum 6. cyl. Wagoneer.
Lada Sport ’78, ekinn 26.000
km. meö dráttarbeisli og
kassettutæki.
Fíat 128 2 d. '78, ekinn 3.000
km. Skipti á nýlegum minni bíl
með afturdrifi æskileg.
Fíat 132 GLS ’76, ekinn 20.000
km. Fallegur bíll.
Cortína 1600 L Station ’76,
ekinn 61.000 km.
Cortína 1600 L 4 d. '74 ekinn
76.000 km. Vel með farinn.
Sunbeam 1600 De Luxe ’76,
ekinn 50.000 km.
Sunbeam 1500 Station '73,
ekinn 120.000 km. Upptekin
vél.
Sunbeam 1500 '70. Ódýr.
Datsun 120 Y, ’77, ekinn 19.000
km.
Audi 100 LS ’76 ekinn 70.000
km. Bíll í sérflokki.
Volvo 144 ’72, ekinn 70.000
km. Bíll sérflokki.
Volvo Amazon ’68. Nýuppgerö
vél.
CJ.7 Jeep '79, ekinn 7.000 km.
6 cyl. 4 gíra. Vel útbúinn jappi.
Willys Jeep lengri gerð '65.
Heppilegur bíll fyrir hestamenn
og fl.
AM Concord 2ja og 4ra
d. nú þegar útleystir á
lága veröinu. Tökum all-
ar geröir bíla í um-
boðssölu.
Allt á sama stað
EGILL.
VILHJALMSSON
HE
Laugavegi 118-Simi 15700