Morgunblaðið - 23.10.1979, Síða 19

Morgunblaðið - 23.10.1979, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 1979 19 Skúli Möller stýrimannaskólakennari: Pétur á toppinn Um næstu helgi fer fram hér í Reykjavík prófkjör sjálfstæð- ismanna um skipan framboðs- lista flokksins fyrir Alþingis- kosningarnar 2. og 3. desember n.k. Prófkjöri þessu þarf að hraða meir en æskilegt hefði verið vegna hins stutta tíma sem er til kosninga og af þessum ástæð- um verður tími fyrir utankjör- staðakosningar ákaflega naum- ur og kemur það því miður niður á stórum hópi manna, sem margir eru stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins, þ.e. sjómönnum. Er þetta slæmt því fíokkurinn efnir til prófkjörs svo stuðningsmenn hans geti haft áhrif á skipan framboðs- listanna og þess vegna vont þegar einni starfsstétt er gert næsta ókleift að taka þátt í því vegna aðstæðna sem ekki verður við ráðið. Aðstæður þær sem valda þessum stutta tíma til kosninga eru kunnar. Kratarnir hysjuðu loksins upp um sig buxurnar og sögðu að nú væri nóg komið, enda höfðu þeir frá myndun síðustu vinstri stjórnar étið ofan í sig öll meiriháttar kosn- ingaloforð sín. Reyndar er haft fyrir satt að þeir þættust góðir að geta orðið á undan kommun- um að rjúfa stjórnarsamstarfið, sem oft á tíðum var vart hægt að kalla samstarf. Þessi leikur kratanna fyllti kommana mikilli vandlætingu, en þeir sem fylgjast með sjá, að ekki er þeirra vegur meiri, að minnsta kosti hefur verið hljótt um slagorðin frá því í fyrra. Þessir tveir flokkar hafa verið kallaðir A-flokkarnir, þ.e. þeir telja sig sérstaka fulltrúa al- þýðunnar, launþeganna. Haf- andi þetta í huga er ákaflega fróðlegt að skoða hvernig þing- flokkar þeirra voru skipaðir. Alþýðuflokkurinn skartaði tveimur, hinir tólf voru mennta- og embættismenn. Skúli Möller. Alþýðubandalagið hafði einn þingmann úr röðum launþega, þann eina sem þeir hafa haft lengi, hinir þrettán voru mennta- og listamenn. En hvað kemur þetta próf- kjöri sjálfstæðismanna við? Sjálfstæðisflokkurinn á því láni að fagna að hann sækir fylgi sitt til allra stétta þjóðfé- lagsins, enda er kjörorð hans „Stétt með stétt“. Dreifing full- trúa hans á Alþingi og í hinum ýmsu sveitarstjórnum á hinar ýmsu stéttir hefur lengi verið í góðu lagi eða þangað til í síðustu Alþingiskosningum, en þá tap- aði flokkurinn allnokkru fylgi, af ástæðum sem ekki verða raktar hér, en full ástæða er til að minna á fyrir kosningar. Þá hurfu úr tölu þingmanna flokksins tveir af talsmönnum launþega. Annar þessara manna var Pétur Sigurðsson. Pétur Sigurðsson þarf ekki að kynna. Störf hans að hinum ýmsu félags- og velferðarmálum sjómanna hafa fyrir löngu gert hann þjóðkunnan, hvort heldur er í Sjómannafélagi Reykja- víkur eða Sjómannadagsráði. Þekktastur er Pétur þó senni- lega fyrir sitt ötula forystustarf í uppbyggingu Hrafnistu, dval- arheimilis aldraðra sjómanna, en við það hefur Pétur verið vakinn og sofinn. Jafnframt þessu hefur Pétur verið sannur talsmaður launþega, enda einn þeirra. Stór hópur stuðningsfólks Sjálfstæðisflokksins vann að kosningu Péturs í síðasta prófkjöri. Ýmislegt varð til þess að hann fékk ekki þá kosningu sem hann átti skilda og flokkn- um var nauðsyn. Pétur Sigurðsson. Nú gefst okkur, sem í landi erum, nýtt tækifæri til þess að tryggja þróttmiklum málsvara launþega sæti á framboðslistan- um. A síðasta Alþingi áttu sjómenn engan málsvara. Lát- um það ekki henda aftur. Merkja á við þá frambjóðend- ur sem kjósa skal með því sætisnúmeri sem maður vill að viðkomandi skipi á framboðs- listanum. Stuðningsmenn Sjálfstæðis- flokksins: Tökum þátt í prófkjörinu og ákveðum framboðslista flokks- ins. Kjósum Pétur sjómann og merkjum við hann með það lágri tölu að hann lendi í efstu sætunum. Á síðasta landsfundi flokksins var Pétur kosinn í miðstjórn með miklum glæsibrag. Tryggj- um honum jafn glæsilega kosn- ingu nú. Á toppinn með Pétur. Dreng dæmd- ar skaðabætur vegna slyss sem átti sér stað áður en hann fæddist Melbournc. (AP). ÁSTRALSKUR dómari hefur dæmt sjö ára göml- um dreng um 65 milljónir króna í skaðabætur fyrir slys sem átti sér stað fyrir burð hans. Móðir drengs- ins lenti í bílslysi þremur mánuðum áður en hún átti von á sér. Lungu hennar sködduðust og við það fékk fóstrið ekki nægilegt súrefni og varð fyrir heila- skemmdum. Móðir drengsins höfðaði mál fyrir hönd sonar síns, á hendur ökumanninum sem slysinu olli. Fyrir dóminum kom fram að greind drengsins, Lee Kenos er vel yfir meðallagi. Hins vegar hefur hann ekki stjórn á hreyfingum sínum og getur ekki notið eðlilegs lífs vegna bæklunar sinnar. Eftir dóminn sagði Lee við fréttamenn að hann hefði ávallt dreymt um að verða slökkviliðsmaður þegar hann yrði stór. En eftir réttarhöldin hefði sú skoð- un hans breyst. Nú vildi hann verða lögfræðingur. Ellert B. Schram: Sleppum slagorðunum Það fer víst ekki fram hjá neinum að kosningabaráttan er hafin. Flokkarnir dusta rykið af gömlu slagorðunum, fremja hjaðningavíg í sínum eigin röð- um og biðla til kjósenda eins og frelsandi englar. Þetta er gamla sagan og verður víst ekki um- flúin, þegar ríkisstjórn hrökkl- ast frá völdum eftir að allt er komið í óefni. Áður en lýkur verður það deginum ljósara, að verðbólguvandi og upplausn er ekki af efnahagslegum toga spunnin heldur stjórnmála- legum; vanmætti stjórnmála- manna og flokka til að koma sér saman, eða hafa einurð og þrek til að gera það sem gera þarf. Þar er enginn flokkur undan- skilinn. ★ Tvennt er athyglisvert við þá kosningabaráttu sem hófst með þingrofsumræðunum á þriðju- daginn. Annars vegar sú mikla heift sem blossar upp milli þeirra flokka, sem starfað hafa saman síðustu 13 mánuði. Djúp- stæður skoðanaágreiningur og persónuleg óvild kemur upp á yfirborðið, sem staðfestir þá augljósu staðreynd, að vinstri stjórnir, eða samstarf vinstri flokanna þriggja er dæmt til skammlífis. Þetta eru vinstri mönnum mikil vonbrigði. Þeir kenna hver öðrum um, enda þótt sökin sé þeirra allra. Kjósendur hafa fengið nóg af slíkum deilum. ★ Hins vegar vekur það athygli að nú tala menn, ef til vill í fyrsta skipti í alvöru, um hugs- anlegan meirihluta Sjálfstæðis- flokksins á þingi. Ekki aðeins sjálfstæðismenn láta sig dreyma um slíkan meirihluta. Andstæðingarnir óttast hann greinilega. Er þetta raunhæft? Þrennt skiptir máli í þessu sambandi. í fyrsta lagi er andúð og óánægja kjósenda á stjórn Ól- afs Jóhannessonar svo mikil, að þeir vilja allt til vinna, að koma í veg fyrir slíka stjórnarmynd- un aftur. í öðru lagi hafa íslendingar fengið sig fullsadda af sam- steypustjórnum yfirleitt og þeim eilífu innbyrðis deilum, sem leiða til bráðabirgða ráð- stafana, sem engan vanda leysa né stefnu boða. Þetta er í samræmi við það sem áður er sagt um að vandi þessarar þjóðar er ekki efnahagslegur, heldur stjórnmálalegur. Nú er það að vísu mjög blásið upp að Sjálfstæðisflokkur og Alþýðuflokkur stefni í samstarf eftir kosningar. Vissulega þarf það ekki að vera verri sam- steypustjórn en aðrar. Hugsan- lega betri, ekki síst ef stjórn af því tagi tækist jafn vel upp og gömlu viðreisnarstjórninni. En það yrði samsteypustjórn engu að síður, með öllum sínum annmörkum, háð duttlungum þeirra lýðskrumara, sem nú virðast ráða ferðinni í Alþýðu- flokknum. Sjálfstæðisflokkur- inn sækist ekki eftir því sam- starfi. ★ Ellert B. Schram í þriðja lagi er það Sjálfstæð- isflokkurinn sjálfur. Er hann fær um það að stjórna einn, spyr fólk? Hefur hann nægilega styrka forystu eða fastmótaða stefnu? Sjálfstæðismenn halda því að sjálfsögðu fram. En rétt er að gera sér grein fyrir því, að fólk er ekki búið að gleyma þeirri stjórn sem sat að völdum 1974—1978 undir forystu Sjálf- stæðisflokksins, og tókst ekki of vel upp í baráttunni gegn verð- bólgunni. Við skulum vona að flokkurinn hafi lært af reynslu þeirra ára, og reyndar þjóðin öll. Banabiti þeirrar stjórnar var flokkspólitísk afstaða. verkalýðsforystunnar, og stirð samvinna tveggja stjórnar- flokka. Ef Sjálfstæðisflokkurinn kemst á ný til valda, þá hefur hann nú styrkari og samvirkari forystu, markvissa stefnu og stóran hóp ungra manna, sem hefur náin tengsl við fólkið sjálft. Sá hópur verður í aukn- um mæli að fá tækifæri til að láta að sér kveða. ★ Fyrir Sjálfstæðisflokkinn er það aðalatriðið að falla ekki í gryfju lýðskrums og loforða, heldur tala því máli sem fólkið skilur, tæpitungulaust. Við eig- um ekki að leggjast í karp við hina flokkana, heldur einbeita okkur að því að segja fyrir kosningar, hvað við ætlum að gera eftir kosningar. Það er þýðingarlaust að halda því fram að verðbólgan verði leyst án áfalla eða einhverrar kjaraskerðingar. íslendingar vita þetta, og hafa ekki lengur áhuga á stjórnmálaforystu, sem heldur uppi blekkingum; sem þykist gera allt fyrir alla. ★ Þetta þýðir auðvitað ekki kreppu, eða að Sjálfstæðisflokk- urinn sé fjandsamlegur launa- mönnum. Hann hefur boðað frjálsa samninga og höfðar til ábyrgðar aðila vinnumarkaðar- ins. Sumum kann að reynast erfitt að átta sig á hvað þetta hefur í för með sér. Sjálfsagt átök en ekki endilega skert lífskjör. Það fer eftir því hvern- ig á er haldið. Víxláhrif launa og verðlags verður að afnema eða tak- marka, þó þannig, að tekið sé tillit til kjara þeirra lægst launuðu. Sú stefna hefur oft verið boðuð bæði frá vinstri sem hægri, en aldrei komist áþreif- anlega í framkvæmd. ★ Sjálfstæðisflokkurinn ætlar sér ekki og mun ekki leysa verðbólguna á kostnað þeirra lægst launuðu. Hann boðar vissulega ekki stríð gegn verka- lýðnum, en hann verður að bjóða hverri þeirri verkalýðs- forystu byrginn, sem hyggst beita afli sínu til flokkspóli- tískrar þjónkunar, eða gegn þeirri stefnu, sem að framan er lýst. Það er einlæg skoðun mín, að ef sanngirni, en um leið festa, er látin ráða, þá mun ekki standa á launafólki þessa lands, að taka höndum saman við Sjálf- stæðisflokkinn eða hverja aðra þá stjórn, sem vill ráða niður- lögum verðbólgunnar af einurð og réttsýni. Það er kominn tími til.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.