Morgunblaðið - 23.10.1979, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 23.10.1979, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 1979 fltargttiifrlfiMfe Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guömundsson. Fróttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson Ritstjóm og skrifstofur Aöalstrœti 6, sími 10100. Auglýsingar Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla Sími 83033 Áskriftargjald 4000.00 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 200 kr. eintakiö. Varnarmálin og Alþýðubandalagið Kosningabaráttan, sem nú er aö hefjast, mun snúast um önnur málefni en utanríkis- og varnarmál. Efnahagsöngþveitið og ótti manna við algjört úrræðaleysi í kjölfar uppgjafar vinstri flokkanna mun móta afstöðu kjósenda. Þeir verða að gera upp við sig, hvort þeir vilja glundroðann áfram eða ábyrga forystu. Hins vegar má ekki gleyma því, að í kosningunum 1971 var ekki deilt um utanríkis- og varnarmál, en að þeim loknum ákvað vinstri stjórn að taka upp varnarleysisstefnu. Alþýðubandalagið heldur enn í orði fast við þá stefnu, að varnarsamningnum skuli rift og íslendingar hætti þátttöku í Atlantshafsbandalaginu. Framsóknarflokkurinn hefur jafnan verið reiðubúinn til að stíga víxlspor í öryggismál- unum telji hann sér það henta til að ná völdum með Alþýðubandalaginu. Og 1956 sameinaðist Alþýðuflokkurinn um varnarleysisstefnu með hinum vinstri flokkunum. Síðasta vinstri stjórn var sú fyrsta af þeim stjórnum síðan 1956, sem ekki hafði það á stefnuskrá sinni að draga úr vörnum landsins. Utanríkisstefnunni frá 1949, sem mótuð var með aðild íslands að Atlantshafsbandalaginu, var fylgt og ekki hróflað við Bandaríkjamönnum á Keflavíkurflugvelli. Þvert á móti endurbætti varnarliðið tækjakost sinn og haldið var áfram undirbúningi að smíði nýrrar flugstöðvar í samvinnu við stjórnvöld í Washington. Sú spurning vaknar því, hvort Alþýðubandalagið hafi horfið frá varnarleysisstefnu sinni á borði. í málflutningi herstöðvaandstæðinga hefur þess gætt undanfarið, að þeir eru farnir að gera sér grein fyrir því, að stefna þeirra er úr sér gengin. Þeir geta ekki bent á neinn annan kost en þann, sem við nú búum við, sem tryggir öryggi lands og þjóðar. Aðgerðir og yfirlýsingar þessara rökþrota samtaka hafa nú í haust snúist um aukaatriði í sambandi við dvöl varnarliðsins eða andúð á íslenskum lögreglumönnum, sem gera ekki annað en gegna skyldu- störfum sínum og gæta laga og réttar í landinu. Vandræði herstöðvaandstæðinga og Alþýðubandalagsins eru auðskiljanleg, þegar litið er til þess, hvernig lega landsins hefur leitt okkur inn í skurðpunkt austurs og vesturs í keppninni um yfirburði á Norður-Atlantshafi, sem skipta sköpum fyrir okkar eigið öryggi og varnir Norður- álfu. Kjósendur eiga engu síður heimtingu á að vita, áður en þeir gera upp hug sinn, hvaða stefnu Alþýðubandalagið ætlar að fylgja í varnarmálum að kosningum loknum. Um þetta efni verða að liggja fyrir afdráttarlaus og skýr svör. Þess vegna er spurt: Ætla kommúnistar að gera það að úrslitaskilyrði fyrir þátttöku í ríkisstjórn að kosningum loknum, að sú stjórn hafi uppsögn varnarsamningsins á stefnuskrá sinni? Eða mun Alþýðubandalagið halda við þá afstöðu, sem það tók í síðustu ríkisstjórn? Olíuviðskiptin Svonefnd olíuviðskiptanefnd hefur lokið fyrstu könnun sinni á undirtektum undir nýskipan á olíuinnflutningi til landsins. Svör þau, sem fengist hafa, eru eins og við var að búast. Ekki er á svipstundu unnt að hefja olíukaup hjá nýjum aðilum. En auðvitað eru aðrir möguleikar fyrir hendi en okursamningarnir við Sovétríkin. Nú þegar gæslumaður Rússlandsviðskiptanna fyrir hönd Alþýðubandalagsins er horfinn úr stól viðskiptaráðherra ætti að vera unnt að taka til hendi og ganga fordómalaust til þess verks að gera þá olíukaupasamninga, sem hagstæðastir eru. Saga olíumálanna á þessu ári sýnir betur en nokkuð annað, hve hallir íslenskir kommúnistar eru enn undir Moskvuvaldið. Það er von, að menn, sem haldnir eru slíkri vanmetakennd gagnvart stórveldi, geti aldrei áttað sig á því, að aðrir íslendingar láta hreinskilni en ekki undir- lægjuhátt ráða í samskiptum sínum við aðrar þjóðir. gáfaða sveitapilts sem villist til hálfþroskaðs bæjar í landi sem er að stíga fram úr rökkri margra alda erlendrar kúgunar hafi gleymst í Ofvita Kjartans Ragnarssonar. Fólki finnst víst meira gaman að hlæja að þeim sem eru í senn stærri og smærri en umhverfi sitt. Og sannarlega koma þeir — Jón Hjartarson í hlutverki meistarans þess sem segir söguna 30 árum síðar og Emil Guðmundsson sem Þór- bergur hinn ungi sá er lifir atburðina — áhorfendum til að hlæja. Leikendur Jón Hjartarson birtir okkur Þórberg Þórðarson á sviðinu — meira þarf ekki að segja. Emil Guðmundsson er full fljótmælt- ur þannig að gullkornin komast ekki alltaf til skila, en hann hefur þann innileika í svipnum sem skilar sér bak við brjóst- beinið. Steindór Hjörleifsson og Karl Guðmundsson brugðu upp ólíkum kátlegum myndum. Nema Steindór í hlutverki dr. Jóns Þorkelssonar fornskjala- varðar enda sá kafli í söngleikja- stíl. Harald G. Haralds og Hjalti eftir ÓLAF M. JÓHANNESSON Ólafur M. Jóhannesson mun skrifa leikdóma ásamt Jóhanni Hjálmarssyni i Morgun- blaðið í vetur. Hann er fæddur i Neskaupstað, lauk kennara- jprófi frá Kennaraháskóla Islands 1972 og BA prófi i almennri bókmenntasögu og ensku frá Háskóla íslands 1977. — BA ritgerðir hans fjölluðu um leikverk, annars vegar í bókmenntasogu um MARAT/SADE eftir Peter Weiss, hins vegar i ensku um ákveðna þætti MACBETH og KING LEAR. Þá hefur hann fengist við myndlist og hélt einkasýningu 1977. ýmis kvæði Þórbergs í tíma og ótíma, nánast með sama hætti og í amerískum söngleikjum. Auðkeyptar vinsældir voru fjarri Meistara Þórbergi. Um músikina hans Atla Heimis skal ég ekki dæma, en fannst seinasta lagið fallegt, mætti e.t.v. gefa það út á snældu til ágóða fyrir Nýja-leikhúsið. En leikhljóð eru hins vegar af skornum skammti, til dæmis er vesalings Ofvitinn er að reika um drullugar götur höfuðstaðarins rennblautur, með gat á sólunum. Þar hefði mátt heyrast í rigningu. Reyndar er eins og vesöld þessa sérlundaða Emil Guðmundsson (Þórbergur), Harald G. Haraldsson (Rögnvald- ur), Soffía Jakobsdóttir (Fraukan) og Jón Hjartarson (Meistar- inn). Ofvitinn Leikfélag Reykjavíkur: OFVITINN í leikgerð Kjartans Ragnars- sonar. Leikverkið OFVITINN Leikverkið Ofvitann verður að meta að mestu sem sjálfstætt verk. Bókin er slík perla að það skiptir eiginlega ekki máli í hvers kyns umgjörð hún er felld, hún heldur ljóma sínum. Sem leikverk er Ofviti Kjartans Ragnarssonar mörgum kostum gæddur. Verkinu er snúið í rétta tímaröð og verður þannig sam- felldara og sjálfstæðara. Val þátta og tilsvara er oftast með ágætum. En þó vantar þann þátt Ofvitans sem mér finnst leik- rænastur; þegar Þórbergur gekk í stúku. Þar er sú grátbrosleg- asta lýsing á tilbúnu himnaríki sem finnst. Þessi þáttur settur á annað svið með nýrri og bjartari sviðsmynd hefði dýpkað verkið og sýnt annan flöt en þann gráleita sem Ofviti Kjartans gerist á. Annars er hin grá- móskulega leikmynd og lýsing Steinþórs Sigurðssonar og Daní- els Williamsson, með ólíkindum rík að stemmningu og tekur ekkert burt frá textanum. Með því að varpa samtíðarmyndum á tjald að baki, færir leiktjalda- meistarinn huga áhorfandans til í tíma og rúmi. í hróplegri andstæðu við þennan svipsterka einfaldleika umbúðanna er sú smekkleysa að vera að syngja Rögnvaldsson sem sniðnir í hlut- verk skólapiltanna Rögnvalds og Þorleifs. (Hlutverk Hjalta á líklega eftir að koma honum í heimsmetabók Guinness). Ólaf- ur Thoroddsen er full daufur Oddur. Sigurður Karlsson nær svipbrigðum hins frelsaða Sveit- unga. Fraukan (Soffía Jakobs) er frábær eins og dregin upp úr keldu á hún mikinn þátt í besta atriði verksins, fyrstu lyftingu Þórbergs. Lilja Þórisdóttir er sæt frá náttúrunnar hendi og það var Elskan hans Þórbergs vafalaust líka. Einhvernveginn hafði ég nú hugsað mér Unu í Unuhúsi (Margrét Ólafsdóttir) öðruvísi, hlédrægari. Jón Júlíus- son (Erlendur) hefur náttúrulegt göngulag upphafinna manna og ekki skemmir höfuðlagið, góð týpa. I leikslok Það er alltaf dálítið undarleg tilfinning að sjá persónur bókar fá hold og blóð. Persónur sem maður hafði magnað upp í huga sér í samvinnu við forskriftir Meistarans. Persónur sem kannski eiga bara heima á sviði ímyndunaraflsins. Við leikslok fannst mér Þórbergur stara á mig af hinum tveim stóru ljós- myndum sem komið var fyrir sitthvorum megin við sviðið og mér fannst hann segja að hann „... ætti ekki heima á þessu plani.“ En þegar tjaldið féll og innileg fagnaðarlætin bárust um salinn, sýndist mér svipurinn breytast og bregða fyrir brosi líkt og hann hugsaði: „Nú sló ég mér upp.“ Karl Guðmundsson, Steindór Hjörleifsson, Emil Guðmundsson, Sigurður Karlsson og Jón Hjartarson í hlutverkum Þórbergs, Meistarans, Sveitunga og tveggja þjóna. Lelkllst

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.