Morgunblaðið - 23.10.1979, Síða 24

Morgunblaðið - 23.10.1979, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 1979 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 1979 25 Köflóttur leikur dugði KR til sigurs gegn Fram KR-INGUM tókst að knýja íram sigur gegn Fram í Úrvalsdeild- inni í körfuknattleik á laugar- daginn. Úrslitin urðu 74:66, eftir að Fram hafði verið yfir í leikhléi 40:33. Leikurinn var jafn allan timann og mjög spennandi undir lokin, en á siðustu mínútunum sigldu KR-ingar fram úr og sigruðu örugglega. Frömurum gekk afleitlega að finna leiðina ofan i körfuna siðustu 5 mínút- urnar og breyttist staðan úr 64:64 í 74:66 eða 10:2 fyrir KR á þessum tíma. KR-ingar verðskulduðu fyllilega sigur í þessum leik og víst er að liðið mun leika betur þegar þeir fá Bandaríkjamanninn Jackson til liðs við sig, en það verður þegar í næsta leik. Þá var Jón Sigurðsson allur annar og sterkari leikmaður í þessum leik en gegn ÍS á dögunum, yfirburðamaður í liði KR og langbeztur íslendinganna á vellinum. Leikur KR var þó mjög köflótt- ur að þessu sinni. Tvívegis í fyrri hálfleiknum komu kaflar þar sem KR-ingum var fyrirmunað að skora. Þannig breyttist staðan úr 14:9 fyrir KR í 20:14 fyrir Fram á nokkurra mínútna kafla og síðustu mínútur fyrri hálfleiksins breyttu Framarar stöðunni úr 33:28 fyrir KR í 40:33 sér í hag. Fyrst farið er að tala um köflóttan leik á þetta reyndar við um Framarana og er þar lokakaflinn bezta dæmið. John Johnson, Framarinn skotvissi, fór rólega af stað, en er leið á leikinn gerðist hann at- kvæðameiri og skoraði margar bráðgóðar körfur. Undir lokin lék hann þó illa og átti ekki hvað minnstan þátt í, að KR-ingar sigldu fram úr. Hann lét þau orð falla eftir leikinn, að ef Fram léki ekki betur í vetur, þá ætti liðið K: 74:66 ekki skilið að vera áfram í Úrvals- deildinni. Sennilega rétt hjá kapp- anum, en það er þó ekki miklu meira en herzlumuninn, sem vant- ar hjá liðinu til að það standi hvaða liði öðru á sporði. Auk Jóns Sigurðssonar í liði KR, gerði Geir Þorsteinsson góða hluti og byrjaði reyndar af mikl- um krafti, en hægði síðan á sér. Garðar virðist vera að ná sér á strik. John Johnson er Jón Sig- urðsson Framara, en þó ekki eins góður að þessu sinni. Símon Ól- afsson og Þorvaldur Geirsson áttu báðir ágætan leik. Leikinn dæmdu Sigurður Valur Halldórsson og Kristbjörn Al- bertsson og komu dómar þeirrar viðstöddum nokkrum sinnum á óvart. Það var þó svo sem ekkert undarlegt að þkeir vísuðu Einari Bollasyni, landsliðseinvaldi og heittrúuðum KR-ingi, upp í áhorf- endastúkuna þegar hann var far- inn að láta helzt til mikið í sér heyra í öllum látunum í seinni hálfleiknum. - áij. • Það er engu líkara en að leikmenn KR og Fram séu að tilbiðja einhvern ósýnilegan hollan vætt, en ekki að skjóta í körfu. _________ _______________________________________________Ljósm. Guðjón. • í kvöld leikur íslenska unglingalandsliðið í handknattleik fyrsta leik sinn í HM unglinga sem fram fer í Danmörku. íslenska liðið mætir Portúgal í Lyngby íþróttahöllinni á Sjálandi. Á miðvikudag leika þeir svo gegn heimsmeisturum unglinga, Rússum. • Kristinn Jörundsson sækir að körfu Valsmanna og það er Tim Dwyer sem reynir að stöðva hann. Ljósm. Kristján I ElnKunnagiönn | . .. ...........—-—< LIÐ VALS Ríkharður Hrafnkelsson 3 Torfi Magnússon 3 Jóhannes Magnússon 2 Þórir Magnússon 3 Kristjén Ágústsson 3 Óskar Baldursson 1 Guðbrandur Lárusson 1 Jón Steingrímsson 1 Siguröur Hjörleifsson 2 LIÐ ÍR Þorfinnur Guönason 1 Kolbeinn Kristinsson 3 Kristinn Jörundsson 4 Stefán Kristjénsson 1 Jón Jörundsson 2 Guömundur Guömundssonl Kristjén Sigurösson 1 Jón Indriöason 1 Erlendur Markússon 1 Dómarar: Guöbrandur Sigurösson og Þréinn Skúlason 3. Liö Fram: Símon Ólafsson 3, Þorvaldur Geirsson 3, Björn Jónsson 2, Björn Magnússon 2, Guömundur Hallsteinsson 1, Ómar Þréinsson 2, Þórír Gíslason 1. Liö KR: Jón Sigurösson 4, Geir Þorsteinsson 3, Birgír Guöbjörnsson 2, Garöar Jó- hannson 3, Ágúst Líndal 1, Árni Guömundsson 2, Eirík- ur Jóhannesson 2, Þröstur Guömundsson 1. Kðriuknaltieikur STAÐAN Staðan í úrvalsdeildinni í körfuknattleik eftir leiki helgar- innar er þessi: Valur - ÍR 83:79 Fram - KR 66:74 Valur ÍS UMFN KR ÍR Fram 2 20 189:176 4 2 1 1 160:155 2 2 1 1 158:154 2 2 1 1 144:146 2 2 1 1 153:156 2 2 0 2 163:180 0 Vaistnerm eru nú einir ósigraðir Reykjavíkurmeistarar Vals standa nú einir ósigraðir í úr- valsdeildinni í körfu þegar tveim- ur umferðum er lokið. Þeir sigr- uðu ÍR-inga i Hagaskóla á sunnu- dag og hrepptu tvö dýrmæt stig. Sigur Valds var engan veginn átakalaus og það var ekki fyrr en á lokasekúndum leiksins að Jó- hannes Magnússon gulltryggði sigur Vals — þegar hann skaut utan af kanti og knötturinn rataði rétta leið í körfuna. Sigur Valsmanna var í höfn og þeir fögnuðu innilega. Valsmenn verðskulduðu sigurinn á sunnu- dag — þeir sýndu meiri hörku, meiri baráttu. Þótt á móti blési í fyrri hálfleik þá létu þeir ekki deigan síga, komu tviefldir til siðari hálfleiks og tóku völdin. Greinilegt að Valsmenn verða illviðráðanlegir í vetur — það lið, sem önnur verða að sigra ef íslandsmeistaratign á að vinnast. Viðureign Vals og IR var mikið uppgjör Bandaríkjamannanna Tim Dwyer’s og Mark Christian- sen’s. Mark var óumdeilanlega sigurvegarinn í fyrri hálfleik en í þeim síðari, þegar mest á reyndi var Tim sigurvegarinn án nokkurs vafa. Mark var heillum horfinn undir körfunni, furðulegt hvað hann hitti illa, jafnvel úr einföld- ustu færum. Það reyndist dýr- keypt — hinum megin brást Tim vart körfuskot. Þó að viðureign þessara tveggja Bandaríkjamanna hafi verið há- punktur leiksins þá var leikur Kristins Jörundssonar það sem oft yljaði áhorfendum. Þessi síungi leikmaður sýndi marga snjalla hluti, hann hlýtur að hafa glatt hjarta Einars Bollasonar, lands- liðsþjálfara, sem lifði sig af lífi og sál inn í leikinn. ÍR-ingar byrjuðu leikinn af r-83:79 miklum krafti, drifnir áfram af tríóinu Kristni, Mark og Kolbeini Kristinssyni. Þeir náðu brátt öll- um tökum á leiknum og skoruðu fjögur fyrstu stigin. Fyrstu mínúturnar báru mikil einkenni taugaspennu og ekki var mikið skorað, eftir sex mínútur var staðan 7—4. Bæði lið furðu- lega mistæk. Þá losnaði nokkuð um, ÍR-ingar náðu góðum tökum á leiknum og eftir 11 mínútna leik skildu tíu stig, 24—14. Valsmenn létu þó ekki deigan síga, náðu að minnka muninn í 26—21, ÍR-ingar náðu níu stiga forustu, 32—23, og 15 mínútur liðnar. Enn voru sveiflur, Valsmenn minnkuðu í tvö stig, 37—35. ÍR-ingar klykktu út með góðum endaspretti, staðan í leikhléi var 42—35. Bæði lið höfðu verið mjög mistæk, þannig hafði Dwyer misst knöttinn oftar en einu sinni í hendur IR-ingum. Valsmenn mættu ákveðnir til síðari hálfleiks og á 5. mínútu hafði þeim tekist að jafna, 48—48. Þeir bættu um betur, skoruðu hvert stigið á fætur öðru og á 9. mínútu hafði þeim tekist að ná tíu stiga forustu, 62—52, og síðan 64—52, tólf stiga forustu. Og sveiflurnar héldu áfram, nú varð það ÍR að saxa á forskotið, á 15. mínútu skildu aðeins tvö stig, 68—66, og skömmu síðar var Tim Dwyer vísað af velli með fimm villur. ÍR-ingar virtust hafa öll ráð Valsmanna í hendi sér og skömmu síðar hafði þeim tekist að jafna, 74—74. Þá var Mark Christ- iansen vísað af velli með fimm villur, áður hafði Jón Jörundsson fengið sína fimmtu villu. Hjá Val var röðin komin að Þóri Magnús- syni, hann fékk sína fimmtu villu þegar 1 minúta og 18 sekúndur voru eftir. Þá var staðan 77—76. Baráttan í hámarki en Valsmenn með Torfa Magnússon í broddi fylkingar reyndust sterkari á endasprettinum og sigruðu 83—79. Tvö dýrmæt stig til Vals — og liðið verður áreiðanlega með í toppbaráttunni í vetur. Leikur Valsmanna er ekki mikið fyrir augað, leika fremur þungan körfu- knattleik. En vörnin er geysisterk og í sókninni njóta þeir öryggis Tim Dwyers, sem sjaldan bregst körfuskot. Hið sama má segja um Kristján Ágústsson og Torfa Magnússon. Þórir Magnússon er óstöðvandi þegar sá gállinn er á honum. Ríkharður Hrafnkelsson er traustur leikmaður, sem ekki gerir sig sekan um margar villur. IR hins vega skortir breidd Vals. Tríóið Kristinn Jörundsson, Mark Christiansen og Kolbeinn Kristinsson ber liðið uppi. Jón Jörundsson er hins vegar mjög misjafn í leikjum sínum. Hann var mjög daufur gegn Val og þeir þrír félagarnir nutu ekki nægilegs stuðnings. Sannleikurinn er, að IR vantar fimmta mann í liðið, vilji það blanda sér af alvöru í toppbar- áttuna. Þeir eiga bezta bakvarða- dúettinn, þá Kristin og Kolbein, Mark er geysisterkur leikmaður en enn sem kornið er vantar „týnda hlekkinn”. Stig Vals skoruðu: Tim Dwyer 20, Þórir Magnússon og Torfi Magnússon 14, Kristján Ágústs- son 12, Ríkharður Hrafnkelsson 10, Sigurður Hjörleifsson og Jó- hannes Magnússon sex stig hvor. Stig IR skoruðu: Kristinn Jör- undsson 24, Mark Christiansen 18, Kolbeinn Kristinsson 17, Jón Jör- undsson og Stefán Kristjánsson 6, Erlendur Markússon 4 og Jón Indriðason 2. Leikinn dæmdu Þráinn Skúla- son og Guðbrandur Sigurðsson — í heildina fórst þeim það vel úr hendi, ákaflega erfiður leikur að dæma. II.Halls. Anna Lára Friðriksdóttir er nú komin aftur til keppni eftir meira en árs fjarveru, og verður það vonandi til að hressa upp á kvennajudoið í vetur. Noröur- landamót kvenna í judo verður í Danmörku í næsta mánuði, en ekki er enn ráðið hvort íslenskar stúlkur verði meðal þátttakenda. Bjarni var yfirburðamaður í þyngri flokknum, og vann fullnað- arsigur (ippon) í öllum viðureign- um. • Halldór Guðbjörnsson til hægri á myndinni hefur lagt andstæðing sinn í gólfið. Halldór Guðbjörnsson sigraði í léttari flokknum á haustmótinu í júdó sem fram fór um síðustu helgi. Karlar, léttari flokkur 1. Halldór Guðbjörnsson JFR. 2. Ómar Sigurðsson UMFK. 3. Níels Hermannsson Á. Halldór vann hér nauman sigur. Barátta þeirra Ómars var jöfn eins og oft áður. Báðir fengu „shido“ (3 refsistig) vegna þófs og stimpinga, en Halldór fékk sigur- inn með dómaraúrskurði þar sem hvorugum tókst að skora stig. Ómari gekk illa með Níels og tókst ekki að ná yfirhöndinni fyrr en á síðustu sekúndu lotunnar. þr. HAUSTMÓT JSÍ Haustmót JSl var haldið s.l. sunnudag, og var þetta fyrsta landsmót vetrarins. Keppendum í karlaflokki var skipt í tvo þyngd- arflokka og voru skiptin um 78 kg. Stúlkur kepptu i einum flokki. Úrslit urðu þessi: Kvennaflokkur 1. Anna L. Friðriksdóttir Á. 2. Margrét Þráinsdóttir Á. 3. Anna Líndal Á. Karlar, þyngri flokkur 1. Bjarni Friðriksson Á. 2. Garðar Skaftason Á. 3. Kolbeinn Gíslason Á. Judó Bjarni vann á „ippon“ í öllum viðureignunum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.