Morgunblaðið - 23.10.1979, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 1979
27
Sjálfstæðisflokkurinn á Suðurlandi:
Uppnám
um skipan
D-listans
Sjálfstæðisflokkurinn hafnar
prófkjöri í Nordurlandi eystra:
Örlög mín
eru rádin
— segir Jón G. Sólnes
TALSVERT uppnám er nú meðal
sjálfstæðismanna í Suðurlands-
kjördæmi vegna skipunar á lista
flokksins i næstu kosningum.
Hafa Vestmannaeyjar og sýslurn-
■ ar þrjár, Árnessýsla, Rangár-
vallasýsla og Vestur-Skaftafells-
sýsla ekki getað komið sér saman
um skipan manna á listann og
hafa Árnesingar haft á orði að
bjóða fram sérstakan lista, verði
Steinþór Gestsson eigi í fyrsta
sæti. Hafa ýmsar tillögur verið
gerðar til lausnar þessari deilu,
en engin hlotið hljómgrunn.
Á fundi stjórnar kjördæmis-
ráðs tilkynntu Árnesingar i
síðustu viku, að þeir krefðust
þess að Steinþór Gestsson skipaði
fyrsta sæti listans, ef ekki yrði
prófkjör. Hins vegar óskuðu þeir
eftir prófkjöri og tilkynntu fram-
boð Steinþórs í 1. sætið, ef það
yrði ofan á. Barst þá tilkynning
frá Vestmannaeyingum um að
þeir væru mótfallnir prófkjöri.
Fötluð börn í
leikhúsferð
til Akureyrar
LAUGARDAGINN 27. október,
eða fyrsta vetrardag, fer hópur
fatlaðra barna ásamt foreldrum í
dagsferð til Akureyrar á vegum
Kristins Guðmundssonar farar-
stjóra. Á Akureyri fer hópurinn
m.a. í leikhúsið og sér sýningu
Leikfélags Akureyrar á Galdra-
karlinum í Oz. I hópnum verða 15
börn og er þetta í fjórða skiptið
sem Kristinn skipuleggur ferð af
þessu tagi.
Rangæingar höfðu ekki látið
neitt uppi um þetta atriði.
Upp úr þessu hófst samninga-
gerð milli Árnesinga og Vest-
mannaeyinga, þar sem miðað var
að því að Árnesingur skipaði 1.
sætið, en Vestmannaeyingur 2.
sætið, Rangæingur hið 3. og Skaft-
fellingur 4. sætið. Var lagt til
grundvallar kjörfylgi Sjálfstæðis-
flokksins í sýslunum. Á kjörfundi
kom síðan fram tillaga frá Rang-
æingum um opið prófkjör með
breyttum prófkjörsreglum, þar
sem samræmdar reglur mið-
stjórnar flokksins myndu ekki
henta í kjördæminu. Skilyrði um
niðurröðun á lista var sú að hver
sýsla fengi ekki nema eitt sæti.
Kom þá upp tillaga frá Árnesing-
um um að kjördæmisráðið stillti
upp skipan fjögurra efstu sæt-
anna, þannig að Árnesingur skip-
aði fyrsta sætið, Vestmannaeying-
ur annað, Rangæingur hið 3. og
Skaffellingur 4. sætið. Jafnframt
tilkynntu Árnesingar að þeir
myndu fara í sérframboð með
Eyjamönnum, ef þessu yrði hafn-
að. Hótuðu þá Rangæingar að
ganga af fundi, ef þeirra maður
yrði settur í 3. sætið. Studdu
Skaftfellingar Rangæinga í þess-
ari deilu.
Um þetta var deilt fram og
aftur á fundinum. Seint á laugar-
dagskvöld var gengið til atkvæða-
greiðslu og átti fyrst að bera upp
hina skilyrtu tillögu Rangæinga
og var allt útlit fyrir að hún yrði
felld með nokkrum meirihluta. Lá
þá í loftinu að þeir myndu ganga
út og byðu sérstaklega fram með
Skaftfellingum. Kom þá fram til-
laga um að kjörnefnd samræmdi
prófkjörsreglur og var sú tillaga
felld með minnihluta atkvæða, þar
sem allmargir sátu hjá. Var þá
borin upp skilyrt tillaga Rangæ-
inga um opið prófkjör yfir allt
kjördæmið. Var hún felld á jöfnu
33:33, en tvö atkvæði voru ógild.
Var þá fundi frestað.
Á sunnudag var aftur tekið til
við þessi mál. Hafði þá meiri hluti
kjörnefndar 6 af 11 nefndar-
mönnum samþykkt tillögu Árnes-
inga um skipan fjögurra efstu
sæta listans um að Árnesingur
yrði í 1. sæti, Eyjamaður í 2.,
Rangæingur í 3. og Skaftfellingur
í 4. sæti. Báru Rangæingar þá
fram tillögu um að efnt yrði til
skoðanakönnunar meðal flokks-
bundinna sjálfstæðismanna. Sú
tillaga var ekki afgreidd og fundi
frestað, þar sem Rangæingar báðu
um tíma til þess að kanna fleiri
leiðir til lausnar deilunum.
Á fundinum kom fram m.a. sú
hugmynd að Guðmundur Karlsson
skipaði 3. sæti listans og Árni
Johnsen 4. sætið. Árni lýsti því
yfir að hann aftæki slíkt með öllu,
þar sem ekki væri unnt að ganga
þannig á rétt Skaftfellinga og þó
sérstaklega Siggeirs Björnssonar.
Engin ástæða væri til þess að
stærri sýslurnar træðu þannig á
hinni minnstu. Mun því þetta mál
hafa verið úr sögunni og það
aldrei lagt fram.
Engin lausn fékkst því á fram-
boðsmálin og er óákveðið hvenær
nýr fundur verður boðaður.
KJÖRDÆMISRÁÐ Sjálfstæðis-
flokksins i Norðurlandskjördæmi
eystra hafnaði um helgina próf-
kjöri með 39 atkvæðum gegn 8 og
tveir sátu hjá. Áður hafði kjör-
nefnd hafnað prófkjöri með 10
atkvæðum gegn þremur. Er þvi
ljóst að prófkjör á vegum flokks-
ins fer ekki fram og skapar það
óvissu um framboð Jóns Sólnes,
sem skipað hefur fyrsta sæti
D-listans i þessu kjördæmi i tvcnn-
um undanförnum alþingiskosn-
ingum.
Kjörnefnd hefur verið boðuð
saman til fundar á fimmtudag og
kjördæmisráð aftur á sunnudag og
gangi allt að óskum, mun fram-
boðslisti flokksins þá liggja fyrir.
Jón Sólnes, sem ritar grein í
Morgunblaðið í dag, segir að þar
með séu örlög hans ráðin á þann
veg að fyrirfram sé vitað, að
kjörnefnd, sem gera mun tillögu
um skipan á væntanlegum lista
muni ekki gera tillögu um að hann
skipi það sæti, sem hann hafi
skipað. Segir hann að 451 hafi
skrifað undir ósk um að prófkjör
yrði haldið og það komi skringilega
fyrir sjónir er flokkurinn hafni
slíku.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Morgunblaðið aflaði sér í gær
munu fulltrúar nokkurra félaga í
kjördæminu hafa lýst því að ógern-
ingur væri að halda prófkjör í
heimabyggðum þeirra. Fyrir lá þá
að ekki væri unnt að halda prófkjör
um allt kjördæmið og samþykkti
því kjördæmisráð eins og áður er
getið að hafna prófkjöri. Skiptar
skoðanir voru á kjördæmisráðs-
fundinum, þótt niðurstaða hafi
verið þetta eindregin. Jón G. Sólnes
sat ekki fundinn til loka hans, og
var farinn áður en til atkvæða-
greiðslu kom.
Rætt er um að skipan listans
verði þannig að Lárus Jónsson
verði í fyrsta sæti, í 2. sæti Halldór
Blöndal og í hinu þriðja Vigfús B.
Jónsson á Laxamýri, en þetta mun
þó alls kostar óafráðið og mun eigi
fást úr því skorið fyrr en kjörnefnd
gerir tillögu til kjördæmisráðs og
það samþykkir hana.
Tómas Árnason fyrrum fjármálaráðherra:
Hvers vegna óbreytt
br áðabirgðalög?
TÓMAS Árnason fyrrum fjár- vörugjald. „Þessi lög þýða 13,5
málaráðherra óskaði eftir því milljarða í skattheimtu á næsta
við Mbl. í gær, að blaðið kæmi ári og þarna var gullið tækifæri
þeirri spurningu hans á fram- fyrir Alþýðuflokkinn og Sjálf-
færi, hvers vegna ríkisstjórn stæðismenn að bremsa af skatt-
Alþýðuflokksins hefði gefið út heimtuna," sagði Tómas. „Ég
óbreytt bráðabirgðalög fyrri spyr: Hvers vegna? Og ég veit að
ríkisstjórnar um söluskatt og þeir eru fleiri sem spyrja."
í slenzkt tónverk fr umflutt í
kveðjuboði forsetah jónanna
Þorkell Sigurbjörnsson.
í KVEÐJUBOÐI íslenzku
forsetahjónanna við lok
heimsóknarinnar í
Belgíu lék kvartettinn
Aurora Borealis nokkur
verk fyrir gesti við geysi-
góðar undirtektir. Meðal
annars lék kvartettinn
nýtt tónverk eftir Þorkel
Sigurbjörnsson, sem
hann samdi sérstaklega
fyrir þetta tækifæri og
nefndi „petits plaisirs“.
Kvartettinn skipa systurnar
Rut, Unnur María og Inga Rós
Ingólfsdætur og Hörður Áskels-
son eiginmaður Ingu Rósar. Þau
hjónin stunda tónlistarnám í
Dússeldorf en Unnur María
stundar nám í London.
Rut Ingólfsdóttir stundaði
nám við Konunglega tónlistar-
skólann í Bruxelles í þrjú ár og
lauk námi 1969. Er hún eini
íslenzki tónlistarmaðurinn, sem
stundað hefur nám í Belgíu.
Þegar unnið var að undirbúningi
heimsóknar forsetahjónanna til
Belgíu var leitað til Rutar með
ósk um að hún annaðist tón-
listarflutning í kveðjuboði for-
setahjónanna.
Rut sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær að það hefði orðið
að ráði að kvartettinn Aurora
Borealis (Norðurljós) léki í boð-
inu, en kvartettinn hélt tónleika
á Italíu og Islandi í sumar. Rut
sagði ennfremur að hún hefði
snúið sér til Þorkels Sigur-
björnssonar og beðið hann að
semja tónverk fyrir hópinn til
flutnings við þetta tækifæri og
hefði hann tekið bóninni afar vel
og samið verk það sem fyrr er
getið.
Kvartettinn kom saman í
Dússeldorf nokkrum dögum
fyrir kveðjuboðið og æfði en til
Bruxelles kom hann daginn fyrir
kveðjuboðið. í boðinu lék kvart-
ettinn fyrst sónötu í g-moll eftir
Hándel en síðan verk Þorkels,
sem er í fjórum þáttum fyrir
tvær fiðlur, cello og sembal.
Þvínæst lék kvartettinn þrjú
þjóðlög í útsetningu Þorkels og
loks Triosónötu eftir Telemann.
Kvartettinum var klappað lof í
lófa fyrir leik sinn og var verki
Þorkels sérstaklega vel fagnað,
Meðlimir kvartettsins voru
sæmdir heiðurspening forseta
íslands í þakklætisskyni fyrir
leik sinn. Ennfremur færðu kon-
ungshjón Belgíu þeim sérstakar
þakkir.
Rut Ingólfsdóttir sagði að þær
systur og Hörður hefðu verið
ákaflega ánægð með þær góðu
móttökur sem þau fengu og væru
mjög þakklát þeim aðilum sem
gerðu þeim kleift að koma fram í
þessu kveðjuboði.
Kvartettinn Aurora Borealis. Frá vinstri Rut, Unnur Maria, Hörður og Inga Rós.