Morgunblaðið - 23.10.1979, Page 28

Morgunblaðið - 23.10.1979, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 1979 Prófkjörsmál Alþýðuflokksins: Prófkjör verður í öllum kjördæmum nema Austurlandi PRÓFKJÖR Alþýðuflokksins eru nú i undirbúningi um land allt, nema á Austurlandi, þar sem talið er ógerlegt að framkvæma prófkjor vegna víðáttu kjördæmisins og hefur kjörnefnd þar verið falið að stilla upp framboðslista. I öllum öðrum kjördæmum verða prófkjör svo sem nú skal upp talið: Reykjavík í fyrsta sæti A-listans í Reykjavík bjóða sig fram tveir menn, formaður flokksins Benedikt Gröndal og Bragi Jósefsson. í önnur sæti, 2., 3., 4., og 5. sæti eru allt sjálfkjörnir menn, en þeir eru þessir: Vilmundur Gylfason, Jóhanna Sigurðardóttir, Jón Baldvin Hannibalsson og Kristín Guðmunds- dóttir. Vesturlandskjördæmi Framboðsfrestur í Vesturlands- kjördæmi var framlengdur og renn- ur ekki út fyrr en í kvöld. I gær var þó talið að Eiður Guðnason yrði sjálfkjörinn í fyrsta sæti A-listans, en um 2. sætið keppa þeir Guðmund- ur Vésteinsson og Gunnar Már Kristófersson. Vestfirðir Á Vestfjörðum gefur Sighvatur Björgvinsson fjármálaráðherra kost á sér i 1. sæti A-listans. Karvel Pálmason gefur kost á sér í 1. og 2. sætið, en hann var síðast á lista óháðra og Bjarni Pálsson gefur kost á sér í 2. sætið. Bjárni var síðast efsti maður á lista Samtaka frjáls- lyndra og vinstri manna. Norðurlandskjördæmi vestra I fyrsta sætið gefa kost á sér tveir menn: Finnur Torfi Stefánsson fyrr- um alþingismaður og dr. Jón Sæm- undur Sigurjónsson, deildarstjóri í tryggingaráðuneytinu. Jón Karlsson, formaður Verkamannafélagsins Fram á Sauðárkróki býður sig fram í 2. sæti listans. Norðurlandskjördæmi eystra Þar býður Bragi Sigurjónsson sig fram í 1. sæti listans og Árni Gunnarsson einnig. Jón Ármann Héðinsson býður sig fram í 1. og 2. sætið og Jón Helgason býður sig fram í 2. sætið. Um 3. sæti listans keppa þeir Bárður Halldórsson og Sigbjörn Gunnarsson. Suðurlandskjördæmi Þar er Magnús H. Magnússon sjálfkjörinn í 1. sæti A-listans, en um 2. sætið keppa þeir Ágúst Einarsson, Vestmannaeyjum, og Guðlaugur Tryggvi Karlsson. Reykjaneskjördæmi Kjartan Jóhannsson býður sig fram í 1. sæti A-listans þar. Um það sæti keppir einnig Ólafur Björnsson, sem gefur valkost allt frá 1. sæti í 5. sæti. Karl Steinar Guðnason býður sig fram í 2. sætið og Gunnlaugur Stefánsson í 2. og 3. sæti. í 3., 4. og 5. sæti býður sig fram Guðrún Helga Jónsdóttir og í 4. og 5. sæti býður sig fram Ásthildur Ólafsdóttir. Örn Eiðsson býður sig fram í 2. til 5. sæti listans. FORSETI ÍSLANDS, dr. Kristján Eldjárn, og Ragnar Borg, formaður sýningarnefndar, skoða myntsafn við opnun myntsýningar Myntsafnarafélags íslands i Bogasal Þjóðminjasafnsins s.i. laugardag. Ljósmynd Mbl. Kristján. Sýning Myntsafnarafélagsins: Leitast við að sýna mynt notaða síðustu 11 aldimar MYNTSÝNING Myntsafnara- félags íslands í Bogasal Þjóð- minjasafnsins var opnuð að viðstöddum fjölmörgum gest- um s.l. laugardag. Við opnun- ina flutti Ragnar Borg for- maður sýningarnefndar ávarp og sagði hann m.a. að á þessari sýningu væri leitast við að sýna mynt sem notuð hefði verið á Islandi á umliðnum 11 öldum, en sýningin er haldin í tilefni tíu ára afmælis félags- ins. Meðal gesta við opnun sýn- ingarinnar voru forseti íslands, dr. Kristján Eldjárn, og banka- stjórar Seðlabanka Islands, Jó- hannes Norðdal og Davíð Ólafs- son. Gunnar Bjarnason leik- tjaldamálari setti sýninguna upp, en henni lýkur n.k. sunnu- dag. Úr safni Seðlabankans eru nú í fyrsta sinn sýndir vöru- seðlar frá síðustu aldamótum og skrautslátta íslenzkrar gangmyntar þ.e. íslenzku mynt- arinnar frá upphafi. Mörg skemmtileg mótív eru á sýningunni eins og peningar sem sýna fólk með gleraugu, en það er mjög óalgengt. Þá má nefna safn gamalla skömmtunarseðla og vel upp sett safn barmmerkja, auk þess alla mynt og seðla sem gefnir hafa verið út á íslandi undan- farin hundrað ár. Framsóknarflokkur: Ólafur í fyrsta sæti syðra eða í heiðurssæti nyrðra Reykjavík í gær var talið í fyrri umferð skoðanakönnunar, sem fram fer meðal framsóknarmanna í Reykjavík um hvernig skipa eigi framboðslista flokksins í Reykjavík. Efstur að atkvæðum varð Ólafur Jóhannesson, fyrrum forsætisráðherra, sem hlaut 195 atkvæði, næstur varð Haraldur Ólafsson lektor með 167 atkvæði, þá Guðmundur G. Þórarinsson verkfræðingur 142 atkvæði, Sig- rún Magnúsdóttir, kaupmaður hlaut 70 atkvæði og Kristján Friðriksson iðnrekandi hlaut 54 atkvæði. Fleiri voru ekki gefnir upp, en Morgunblaðinu er kunn- ugt um að næsti maður var Sverrir Bergmann læknir og síðan Svala Thorlacius, sem þó mun hafa gefið um það yfirlýs- ingu að hún gæfi ekki kost á sér til framboðs. Vesturland „Þetta er lýðræðisleg ákvörðun kjördæmisþingsins að listinn sé sterkastur með því að raða á hann fólki eftir búsetu. Ég hlýt að hlíta þessum úrskurði. Nú dugir ekki að gráta Björn bónda heldur safna liði,“ sagði Dagbjört Höskuldsdóttir skrifstofumaður í Stykkishólmi í samtali við Mbl. í gær, en Dagbjört hafði stefnt að einu af efstu sætum á lista framsóknarmanna í Vestur- landskjördæmi, en fékk ekki til þess fylgi, hafnaði 6. sætinu en kaus að skipa níunda sætið. Halldór E. Sigurðsson fyrrum ráðherra skipar 10. sætið. Á kjördæmisþinginu gerðu Akurnesingar kröfur um að þeirra maður skipaði annað sæti listans, en settu fram varakröfu um 3ja sætið, sem Dagbjört skipaði við síðustu kosningar. Alexander Stefánsson, sem skip- aði annað sæti síðast, færist nú í 1. sætið, en í annað sæti valdist Davíð Aðalsteinsson Arnbjarg- arlæk á Mýrum. Jón Sveinsson á Akranesi, sem skipaði fimmta sætið síðast, var tilnefndur í þriðja sætið, en Dagbjört bauð sig fram á móti honum og var kosið í milli þeirra. Hlaut Jón 52 atkvæði og Dagbjört 22. Haukur Ingibergsson skólastjóri Bifröst, sem einnig hafði stefnt að einu af efstu sætunum, en beið lægri hlut fyrir Davíð Aðalsteinssyni, valdist í 4. sætið, sem Steinþór Þorsteinsson fyrrum kaupfélags- stjóri í Búðardal skipaði síðast. I fimmta sætið valdist Kristmund- ur Jónsson Giljalandi Dölum, í 6. sætið Ingibjðrg Pálsdóttir hjúkr- unarfræðingur Akranesi, í 7. sætið Sigurður Þórólfsson Fagradal Dölum og í 8. sætið Magnús Óskarsson yfirkennari Hvanneyri. Vestfirðir Kjördæmisþingi framsókn- armanna á Vestfjörðum, sem halda átti um helgina, var frestað. Steingrímur Hermanns- son er talin öruggur í efsta sæti listans, en slagurinn stendur um annað sætið, sem Gunnlaugur Finnsson skipaði síðast. Gunn- laugur er sagður hafa áhuga á að skipa sætið áfram, en margir telja, að hann eigi vegna tapsins í síðustu kosningum að draga sig í hlé. Munu margir framsóknar- menn á Vestfjörðum telja Magn- ús R. Guðmundsson bæjarritara á ísafirði heppilegan í annað sætið, en hann er fyrrverandi Samtakamaður og hyggjast framsóknarmenn þannig reyna að höggva í fylgi Karvels Pálma- sonar. Einnig hefur Sigurgeir Bóasson skrifstofustjóri í Bol- ungarvík verið nefndur til ann- ars sætis svo og Ólafur R. Þórðarson, sem skipaði þriðja sætið síðast, en er nú fluttur úr kjördæminu. Norðurland vestra Framsóknarmenn í Norður- landskjördæmi vestra una illa að sjá á bak foringja sínum Ólafi Jóhannessyni. Hann hafði til- kynnt, að hann myndi ekki verða aftur í framboði, og hafnaði ítrekuðum tilmælum um að end- urskoða þá afstöðu sína. Hins vegar mun mörgum framsóknar- mönnum í kjördæminu falla mið- ur að heyra sögur af framboði Ólafs í Reykjavík, sem myndi leiða til þess að hann skipaði ekki einu sinni heiðurssæti á listanum í Norðurlandskjördæmi vestra. Talið er að þeir Páll Pétursson og Stefán Guðmundsson muni skipa efstu sæti listans þannig að þeir færist upp, en þó mun einhver hreyfing austanvert í kjördæminu fyrir því að Stefán fari úr þriðja sæti í fyrsta og Páll verði þá áfram í öðru sæti. Frá framboðslistanum verður gengið um helgina. Norðurlandskjör- dæmi Eystra Þeir Ingvar Gíslason og Stefán Valgeirsson munu skipa tvö efstu sætin sem fyrr, en Ingi Tryggva- son gaf ekki kost á sér áfram í þriðja sæti og mun Guðmundur Bjarnason útibússtjóri Sam- vinnubankans í Keflavík, fyrr- verandi forseti bæjarstjórnar Húsavíkur, vera tilnefndur í hans stað, í fjórða og fimmta sæti eru tilnefndir Níels Lund kennari Bifröst og Hákon Há- konarson formaður Alþýðusam- bands Norðurlands, en við síðustu kosningar skipuðu Pétur Björnsson og Heimir Hannesson fjórða og fimmta sæti listans. Austurland Vilhjálmur Hjálmarsson fyrr- um ráðherra hefur tilkynnt sínum mönnum að hann muni ekki skipa efsta sæti listans nú og að hann vilji með því rýma til fyrir Halldóri Ásgrímssyni í ör- uggu sæti, sem yrði þá í öðru sæti, en Tómas Árnason í fyrsta. Talið er ósennilegt að séra Þor- leifur Kristmundsson á Kol- freyjustað, sem skipaði fimmta sætið síðast, sækist eftir sæti svo ofarlega nú og óvíst er talið um stöðu Jóns Kristjánssonar Egils- stöðum, sem var í fjórða sæti. Mikil hreyfing var fyrir því að fá Kristján Jónsson sveitarstjóra á Vopnafirði til að gefa kost á sér í 3ja eða 4rða sæti listans, en hann hefur aftekið það með öllu. Framboðsmál framsóknarmanna á Austurlandi verða sennilega ekki ráðin fyrr en á kjördæmis- þingi í byrjun nóvember. Suðurland Einhver undiralda er meðal framsóknarmanna í Suður- landskjördæmi og er talið að Jón R. Hjálmarsson fræðslustjóri vilji fá fram prófkjör til að skera úr um það, hvort þingmennirnir Þórarinn Sigurjónsson og Jón Helgason njóta fylgis til þess að skipa efstu sætin áfram. ólíklegt er talið að Jón eða einhver annar geti fellt annan hvorn þingmann- inn úr sínu sæti, en aðrar breytingar á listanum gætu fylgt í kjölfarið. Reykjanes Mikil breyting verður á lista framsóknarmanna í Reykjanes- kjördæmi, þar sem þrír efstu menn í kosningunum í fyrra, verða ekki með nú. Jón Skaftason yfirborgarfógeti gefur ekki kost á sér og heldur ekki þau Gunnar Sveinsson og Ragnheiður Svein- björnsdóttir. Jóhann Einvarðs- son bæjarstjóri í Keflavík mun hafa hug á að fara í framboð og einnig munu Markús Einarsson veðurfræðingur, Helgi H. Jóns- son fréttamaður og Þrúður Helgadóttir Mosfellssveit vera í hópi þeirra sem hafa hug á því að gefa kost á sér. Þeir Magnús Bjarnfreðsson og Jón Sigurðsson ritstjóri munu vera afhuga fram- boði með öllu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.