Morgunblaðið - 23.10.1979, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 1979
33
SVO VIRÐIST sem Englend-
ingur nokkur hafi á undan-
förnum árum skipulagt
ferðir um ísland og selt
farþegum sínum gistingu í
húsum í eigu einkaaðila án
þess að hafa nokkra heimild
til að nota þessi hús, hvað
þá að leigja þau öðrum. Frá
þessu er greint í Vestfirzka
fréttablaðinu og er í eftir-
farandi frásögn stuðst við
frétt þess blaðs.
Umræddur Englendingur
heitir Dick Philips og er
titlaður prófessor, hann er
sagður búa í kastala sínum á
Suður-Englandi á vetrum, en
dvelst hérlendis á sumrin.
Hópferðastarfsemi hans er
ekki einskorðuð við ísland,
en her á landi hefur hann
einkum gengist fyrir ferðum
um Hornstrandir og Jökul-
firði og á Mýrdalsjökul.
í sambandi við ferðir á
Hornstrandir hefur Philips
Hópur ferðamanna við Fjalir við Hornbjarg. Náttúrufegurð er einstök og með hverju árinu fjölgar
þeim sem leggja leið sína um friðlandið Hornstrandir og Jökulfirði.
Leigir útlendingum sumar-
bústaði án leyfis eigenda
þessi birgðastöð í gamla
verzlunarhúsinu á Hesteyri,
en hann hefur haft þetta hús
á leigu í nokkur ár. Að sögn
Vagns Hrólfssonar í Bolung-
arvík, en hann ferjar hópana
til Hesteyrar, eru 4—15
manns í hverjum hópi og fer
Philips yfirleitt með í fyrstu
ferðina á vorin. í gestabók-
um Slysavarnaskýlanna á
Hornströndum má lesa nöfn
skjólstæðinga Philips allt frá
árinu 1973.
Á Horni eru tvö hús í
einkaeign og ræddi Vest-
firzka fréttablaðið við Arnór
Stígsson, sem á sumarbústað
á Horni. Sagði Arnór að
vitað væri með vissu, að
hópar ferðamanna hefði haft
aðsetur í húsunum undanfar-
in 4 ár, en þeim hefði aldrei
verið komið í opna skjöldu
fyrr en síðastliðið vor. Þá
voru í húsunum 12 skemmti-
ferðamenn á vegum Philips.
Tjaði fólk þetta Arnóri og
þeim, sem með honum voru,
að það hefði gist húsin í
góðri trú og greitt prófessor
Philips fyrir aðstöðuna.
Síðar hefði Arnór fengið bréf
frá Philips þar sem hann
baðst afsökunar á veru fólks-
ins í húsunum, en það hefði
verið gert án sinnar vitund-
ar.
Segir Arnór, að þó sé ljóst,
að þetta sé ekki í fyrsta
skipti, sem ferðamenn gista
þarna án leyfis, þvi eigendur
húsanna hafa orðið að gera
þau hrein á hverju sumri
eftir dvöl ferðamanna þar.
Eigendur húsanna eru einnig
hættir að læsa þeim því
hurðir eru einfaldlega brotn-
ar upp.
Eyþór Einarsson, formað-
ur Náttúruverndarráðs, segir
1 samtali við blaðið, að Bret-
inn Dick Philips hafi aúg-
sýnilega mikið umleikis í
hópferðastarfsemi hér á
landi, því frétzt hafi af
honum víða um land þar sem
hann hafi setzt upp í sælu-
húsum og gangnamannakof-
um og hafi menn á honum
illan bifur vegna ofríkis og
frekju. í samtalinu við Eyþór
kemur fram, að útlendingar
geti skipulagt starfsemi sem
þessa hérlendis að þvi til-
skildu, að þeir hefðu til þess
leyfi samgönguráðuneytis-
ins, sem setur háar trygg-
ingar fyrir slíkum leyfum.
Hins vegar hafi skipuleggj-
endur ferðahópa ekkert leyfi
til að nýta mannvirki í ann-
arra eigu, hvað þá að leigja
þau út fyrir peninga. — Sé
slíkt gert er vitanlega um
saknæmt atriði að ræða,
sagði Eyþór Einarsson.
Ekki er vitað til þess að
húseigendur á Hornströnd-
um hafi kært ólögmæt afnot
af húsum sínum enda óhægt
um vik þar sem þeir vita í
fæstum tilfellum deili á hin-
um óboðnu gestum, segir
Vestfirzka fréttablaðið að
lokum.
Mskandi og gott
á fímm sekúndum.
Það er Fountain.
■JTií'Jl
wnnk
‘W m 4 f|
TRÆK ,
Engin venjuleg kaffívél
Fountain drykkjavélin er
engin venjuleg kaffivél, því að þú
getur valið um sex kaffitegundir,
fjórar tetegundir, þrjár súkkulaði-
tegundir, sjö súputegundir og fjóra
ávaxtadrykki.
Þú getur fengið vél með tveim,
fjórum eða sex fyllingum í einu,
með eða án sjálfsala.
Fimm sekúndur
Það tekur þig aðeins fimm
sekúndur að fá frískan og góðan
drykk úr Fountain.
Fountain hcntar alls staðar
Fountain hentar vel fyrir
fyrirtæki, stór eða smá, söluskála
og heimili.
Einning eru fáanlegar 24volta
vélar fyrir skip, báta og langferða-
bíla.
Ath! Ókeypis hiáefni
l.sept. I.des.
Kaupir þú Fountain nú, færðu
fyrsm fyllingamar ókeypis.
Síðan er hráefninu ekið til þín, án
endurgjalds, hálfsmánaðarlega eða
eftir samkomulagi.
Ég óska eftir að fá senda Fountain drykkjavél
fyrir:
□ 2 fyllingar □ 4 fyllingar □ 6 fyllingar
- gegn póstkröfu.
□ Ég óska eftir að fá senda mvnd- og verðlistí
□ Ég óska eftir að fá sölumann í heimsókn.
Natn____________
Heimili
Sími
Pósthólf 7032
127 Reykjavík
Sími 16463