Morgunblaðið - 23.10.1979, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 1979
35
30 til 35 megawött
fara upp um strompa
verksmiðja í Borgarfirði
Akranesi. 17. október 1979.
NÝLEGA var Rótaryklúbb
Akraness boðið að halda sinn
vikulega fund i járnblendiverk-
smiðjunni á Grundartanga. —
Að loknum kvöldverði skýrðu
heimamenn byggingu verk-
smiðjunnar og allan gang
kísiljárnsframleiðslunnar, frá
uppskipun hráefnisins til út-
skipunar fullunninnar vöru. —
Síðar fóru þeir með hópinn um
hin ýmsu athafnasvæði og þjón-
ustudeildir og sýndu vélar og
tæki verksmiðjunnar í 70%
framleiðslu, hér varð að spara
30% orku sem annars staðar í
stóriðjuverksmiðjum, vegna
vatnsskorts rafstöðvanna á há-
lendinu. —
Það má fullyrða, að á Grund-
artanga er allt til fyrirmyndar
Úr þessum tveimur reykháfum, Sementsverksmiðjunnar og
Síldarverksmiðjunnar fara samtals 12 til 13 megavött af orku.
hvað hagræðingu og þrifnað
varðar, og það má teljast furðu-
legt að þarna á Klafastöðum við
Hvalfjörð, skuli hafa risið svo
stór verksmiðja og athafnasvæði
á svo skömmum tíma. — En eitt
vakti þó sérstaka athygli mína.
„Það fara 25 megavött af ónýttri
orku út í loftið við kælingu frá
bræðsluofninum." Þessar upp-
lýsingar gáfu mér tilefni til þess
að athuga hve mikil orka færi út
í loftið frá öðrum verksmiðjum á
Akranesi. — Mér var tjáð að um
8 megavött færu upp um reyk-
háfinn á Sementsverksmiðjunni,
eða álíka mikil orka og „Krafla"
gefur í dag, — og í gegnum
Síldarverksmiðjustrompinn
færu 4—5 megavött. Það eru þá
samtals um 30—35 megavött,
sem fara forgörðum í þessum
þrem verksmiðjum hér á nesinu
milli Borgarfjarðar og Hval-
fjarðar.
Lærðir menn segja, að það sé
mjög erfitt að beizla þessa orku,
en það virðist nú vera harla
ótrúlegt, nú á þessari skóla- og
tækniöld. — Það er reyndar
hafin tilraun með að hagnýta
umframhitann frá ofninum á
Sementsverksmiðjunni og spáir
það góðu. — En hvað um alla
aðra strompa á Islandi, hvað
skyldu mörg „megavött" fara
ónýtt upp um þá?
Júlíus. —
Heilhveitið
maðkað eftir
rúmlega hálfs
árs geymslu
Húsmóðir kom að
máli við Mbl. og hafði
meðferðis staut sem í var
maðkað heilhveiti. Poka
með hveitinu hafði konan
keypt fyrir V2—I ári og
notaði þá hluta þess. í gær
tók hún hveitið fram aftur
en hafði geymt það í pokan-
um í lokuðum glerstaut.
Heilhveitið var þá iðandi af
möðkum. Konan mundi
ekki í hvaða verslun hún
keypti hveitið en pokinn er
merktur Náttúrulækn-
ingafélagi íslands
Norrænarog
grískar sagnir
— í þýðingu Sigurðar A. Magnússonar
GOÐ og garpar úr norrænum
sögum nefnist bók sem væntan-
leg er frá Bókaforlaginu Sögu
innan skamms, og einnig er
væntanleg frá sama forlagi bókin
Goð, menn og meinvættir úr
Kápa bókarinnar Goð og garpar
sem væntanleg er frá Bókaforlag-
inu Sögu innan skamms. f bók-
inni eru 78 myndir og fjallað er
um alla helstu þætti norrænnar
goðafræði.
grískum sögnum, en eins og nöfn
bókanna gefa til kynna fjalla þær
um fornar goðsagnir og hetjusög-
ur. Fyrrnefnda bókin er eftir
Brian Branston, en hin síðar-
nefnda eftir Michael Gibson, en
þýðingu og aðlögun að íslenskum
hugarheimi hefur Sigurður A.
Magnússon rithöfundur annast.
Saga mun einnig á næstunni
gefa út bókina Dæmisögur Esóps í
þýðingu Þorsteins frá Hamri. í
bókinni eru 143 sögur og hún er
prýdd fjölda litmynda og svart-
hvítra mynda.
Þá sendir Hörpuútgáfan á
Akranesi frá sér sjö bækur nú í
haust; Borgfirsk blanda, sögur og
sagnir úr borgfirsku þjóðlífi; Til
síðasta manns og Hákarlar og
hornsíli, báðar úr bókaflokknum
Hetjudáðir; I greipum dauðans
eftir Gavin Lyall; Ást og hamingja
eftir Bodil Forsberg, og loks
Óvænt örlög eftir Erling Poulsen.
Eins og áður hefur verið skýrt
frá í fréttum Morgunblaðsins
munu koma út fjölmargar bækur
nú í haust eins og endranær, bæði
þýddar bækur og íslenskar. Verð
jólabókanna í ár verður líklega um
það bil 40 til 50% hærra en það
var í fyrra.
EFÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
Al GLYSINGA-
SÍMINN ER:
22480
HLJÓMPLÖTUÚTGÁFAN HF
Dreifing, Skífan Laugavegi 33 S. 115 08.