Morgunblaðið - 23.10.1979, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 1979
37
Stefán Pétursson frá Húsavík:
Um loðnu og
loðnugöngur
Þegar ég var að alast upp á
Húsavík, fór ég snemma að leika
mér í fjörunni og þá var loðnan
árvisst komin í apríl. Veiðafæri
voru ekki önnur þá en fyrirdrátt-
arnet úr landi. Þessi fjöruloðna
var notuð til beitu fyrir Norður-
landi a.m.k. fram yfir 1950, en
hefur minnkað síðan og eiginlega
horfið.
Árið 1940, þegar ég fór fyrst að
róa frá Sandgerði, var hins vegar
lítið notað af loðnu til beitu þar,
en hafði samt þá nýlega verið
reynt og jókst jafnt og þétt úr því.
Þó komu ár, þegar engin loðna
gekk vestur með Suðurlandi, eins
Stefán Pétursson
og átt hefur sér stað stöku sinnum
á síðustu árum.
Eftir að farið var að leita loðnu
hefur hún alltaf fundizt norður af
Kolbeinsey, eða á því svæði, en
breytingin hefur orðið sú, að í
staðinn fyrir að ganga upp að
Norðurlandi gengur hún nú suður
með Austfjörðum og jafnvel Vest-
fjörðum. I mínum augum geta
þessar breytingar ekki hafa orðið
nema vegna breyttra skilyrða í
sjónum.
Undanfarin ár hafa fiskifræð-
ingar verið að mæla og reikna út
stærð loðnustofnsins og niður-
staðan var sú, að óhugsandi væri
að ofveiða hann. Þó var það árið
1977, þegar haustveiðar höfðu
staðið í eitt eða tvö ár, að þeir
töldu rétt að veiða ekki meira en
1,5 milljónir lesta rétt á meðan
áhrif þessara haustveiða á stofn-
inn væru að koma í ljós. Trúin og
vissan um loðnumagnið var slík,
að þingmenn allra flokka sam-
þykktu á alþingi, að erlend veiði-
skip fengju að veiða og eitt skip
frá Danmörku jafnvel ómælt
magn af loðnu.
Þegar haust- og vetrarveiðar á
loðnu hófust áttu Islendingar ekki
skip til að stunda þessar veiðar að
fjórum — fimm skipum undan-
skildum. Um það leyti og upp úr
því fór uppbygging loðnuveiðiflot-
ans fram og er varla lokið. Útgerð-
armönnum hefur. verið álasað
fyrir þessar framkvæmdir, en
öllum sem til þekkja og hafa
kynnt sér málið er ljóst, að þessar
veiðar hefðu ekki verið stundaðar
með skipunum eins og þau voru.
Til glöggvunar má geta þess, að
framkvæmdir ásamt undirbúningi
við breytingu á loðnuskipi tekur
um 6—10 mánuði, þannig að þeir
sem 1977 ákváðu út frá ótakmark-
aðri loðnuveiði að láta breyta
sínum skipum, hafa nú notað þau í
eitt og hálft ár. Síðan hafa
fiskifræðingar lagt til minnkandi
veiðimagn og í vor komust þeir
niður í 600 þús. lestir frá vori til
vors á öllu Norður-Atlantshafi. Til
þess að finna þessa tölu nutu þeir
aðstoðar norskra fiskifræðinga,
sem af mannlegum og eðlilegum
ástæðum vilja veiðimagnið sem
minnst á meðan loðnan er utan
þeirra landhelgi.
í haust hafa ísl., norskir og
færeyskir fiskifræðingar leitað
loðnu og mælt og skv. því, sem frá
þeim hefur heyrzt, gefa þær mæl-
ingar til kynna mun meira magn
en niðurstöðurnar í vor. Á þessum
forsendum finnst mér ekki hægt
að stöðva veiðarnar eins og sakir
standa.
Þessar vormælingar og niður-
stöður þeirra hafa gefið sjávar-
útvegsráðuneytinu tilefni til að
lýsa því yfir, að 600 þús. tonna
magninu verði ekki breytt, hvað
svo sem síðari mælingar sýna.
Loðnuafurðirnar gefa okkur
nokkuð hátt hlutfall af þjóðar-
tekjum og einn eða tveir fiski-
fræðingar taka sér mikla ábyrgð á
herðar með því að ákveða hvert
þetta hlutfall skuli vera.
Reykjavíkurdeild RKÍ:
Hyggst kaupa 2-3 nýja
sjúkrabíla á næstunni
REKSTÚR sjúkrabilanna í
Reykjavík í samvinnu borgaryf-
irvalda og Reykjavíkurdeildar
Rauða kross Islands er um-
fangsmesti þáttur starfseminnar,
en á síðustu 4 árum hefur deildin
keypt 4 sjúkrabíla. Á döfinni er
að kaupa 2—3 til viðbótar og
verður stefnt að því að nýta
bilakostinn sem örast, en að
meðaltali hafa þeir verið kallaðir
út 27—28 sinnum á sólarhring,
segir í frétt frá Reykjavikurdeild
R.K.Í.
Þá hefur rekstur sumardvalar-
heimilis fyrir Reykjavíkurbörn
verið mikilvægur þáttur í starf-
semi deildarinnar og var árin 1977
— 78 starfrækt slíkt heimili á
Silungapolli, sem var á síðasta ári
ráðstafað til annarra aðila og er
það í fyrsta sinn í 30 ár sem þessi
starfsemi fellur niður. Rauði
krossinn á land í Laugarási í
Biskupstungum, en ekki hefur enn
verið ákveðið hvernig það skuli
nýtt. Á lofti eru hugmyndir um að
reisa þar dvalarheimili þar sem
börn og gamalmenni gætu dvalið
samtímis eða heilbrigð börn og
fötluð. Þá hefur deildin staðið
fyrir ýmiss konar fræðslunám-
skeiðum og verið teknir fyrir
einstakir þættir skyndihjálpar svo
sem blástursaðferðin og voru þau
30—40 á starfstímanum.
Kvennadeildin hefur rekið fönd-
urstarfsemi, sjúklingabókasöfn,
heimsóknaþjónustu, sölubúðir á
sjúíkrahúsum o.fl. og hafa sjálf-
boðaliðar lagt þar til ómælda
vinnu endurgjaldslaust. Reykja-
víkurdeildin hefur fjármagnað
st.arfsemi sína með ýmsu móti og
eru helstu tekjustofnar félags-
gjöld, smámiðahappdrættið sem
hefur gefið af sér um 5 milljónir á
ári, merkjasala, kosningagetraun
og söfnunarkassarnir.
Meðal nýjunga hjá Volvo í 1980 árgerðinni er fernra dyra útgáfa af 343 bilnum, sem þá heitir 345.
Kostar hann nú frá 6,4—6,8 m.kr. og er sama verð fyrir hann sjálfskiptan og beinskiptan, en 343
billinn kostar 6,1—6,5 m.kr. Ljósm. Emiha.
Ný dísilvél og femra
dyra 343 meðal nýjunga
Innrétting i 244 GL.
VOLVOUMBOÐIÐ Veltir
h.f. kynnir um þessar
mundir árgerð 1980 af
Volvo bílum og er þar að
finna ýmsar endurbætur
og nýjungar frá því sem
verið hefur. Þessar nýj-
ungar eru: Volvo 244 GLT
sem er fernra dyra lúx-
usbíll í 240 seríunni og er
hann ætlaður þeim sem
gera miklar kröfur til
þæginda á langkeyrslum.
Önnur viðbót við 240 fjöl-
skylduna er 2 lítra fimm
strokka dísilvél sem ber
nafnið D5 og þriðja við-
bótin er í 340 fjölskyld-
unni, 345 og er það vafa-
laust bíllinn innan þeirrar
fjölskyldu sem mesta at-
hygli mun vekja hér á
íslandi, sögðu forráða-
menn Volvo er þeir
kynntubílana fyrir frétta-
mönnum.
Hingað til hafa 343-bílarnir
aðeins verið tvennra dyra eða
þrennra dyra því afturhurðin er
stór og opnast vel, en fernra
dyra bíllinn á nú að ná til enn
fleiri en hingað til hafa viljað fá
343-bílinn. Þá eru á 343- og
345-bílunum nýjar felgur sem
Bflar
eftir JÓHANNES
TÓMASSON
auka breidd milli hjóla um 2 cm
og 343 og 345 GL gerðirnar eru
búnar vindskeiðum að framan
sem eiga að geta aukið hámarks-
hraðann auk þess að spara orku
um 2%.
Innréttingu í Volvo 240 og 260
hefur verið breytt verulega, t.d.
hnakkapúðum, hattahillu o.fl. en
þrjár mismuriandi innréttingar
eru nú fáanlegar allt eftir ytri lit
bílsins. Þá eru nýir speglar á
hurðunum og eru þeir stillan-
legir að innan. Ákveðnar gerðir
240 og 260 bílanna eru búnar
fjarstýrðum hurðarlæsingum
þannig að sé lykli snúið í einni
hurð læsast hinar hurðirnar
einnig eða opnast. Verður þessi
búnaður einnig fáanlegur sem
aukabúnaður.
Nú eru fáanlegar bæði fimm
og sex strokka dísilvélar. Hefur
5 strokka bíllinn tveggja lítra vél
sem skilar 68 DIN hestöflum við
4800 snúninga, en sex strokka
bíllinn 2,4 lítra vél er skilar 82
hestöflum við 4800 snúninga á
mínútu.
Indriöi G.
Þorsteinsson
fundarstjóri,
Guðmundur H.
Garöarsson
frummaelandi
Frjálst útvarp og sjónvarp!
Hotel Esja fimmtudagskvold
Undirbúningsfundur að stofnun
samtaka áhugafólks um frjálsan
rekstur útvarps og sjónvarps
verður n.k. fimmtudagskvöld kl.
20.30 að Hótel Esju.
Frummælandi er Guðmundur
H. Garðarsson viðskiptafræð-
ingur og fundarstjóri Indriði G.
Þorsteinsson rithöfundur.
Undirbúningsnefnd