Morgunblaðið - 23.10.1979, Page 39

Morgunblaðið - 23.10.1979, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 1979 39 Minning—Hervin Hans Guðmundsson „Mínir vinir (ara (jöld, (eigðin þessa heimtar köld.“ Hinn slyngi sláttumaður er allt- af að slá, án afláts. Hann er trúr þjónn og sér um að lögmál lífs og dauða uppfyllist án undantekn- inga. Þegar vinir og vandamenn falla í ljáfarinu, verður sæti þeirra autt og söknuður sækir þá heim, sem eftir standa. Þegar ég frétti lát vinar míns frá æsku og uppvaxtarárum, fann ég til sakn- aðar og margvíslegar minningar rifjuðust upp, allar góðar. Hervin Hans Guðmundsson húsasmíða- meistari andaðist í Reykjavík 4. ágúst síðastliðinn og er mér bæði ljúft og skyldt að skrifa nokkur minningarorð um hann. FyrSt vil ég segja lítið eitt frá ættum hans og æskuheimili, þvi eplið fellur ekki langt frá eikinni. Foreldrar Hervins voru Guð- mundur Stefánsson og kona hans Þórunn Baldvinsdóttir. Hervin var fæddur í Litladalskoti í Lýt- ingsstaðahreppi 15. nóvember 1907 á fyrsta búskaparári foreldra sinna þar. Foreldrar Þórunnar voru: Bald- vin Jónsson og Herdís Jónasdóttir. Baldvin var í móðurætt kominn af Gunnlaugi Gunnarssyni hrepps- stjóra á Hofi í Dölum. Afkomend- ur Gunnlaugs í beinan karllegg voru bændur á Hóli í Tungusveit yfir hundrað ár og er það af sumum kölluð Hólsætt. Baldvin og Herdís bjuggu á ýmsum kotum í Lýtingsstaðahreppi á síðasta fjórðungi nítjándu aldar og voru bláfátæk. Hálfbróðir Þórunnar var Hans Baldvinsson bóndi á Hrólfsstöðum í Akrahreppi, faðir hinna lands- kunnu systkina, Jakops H. Líndal á Lækjamóti og Rannveigar. Foreldrar Guðmundar voru Stefán Guðmundsson og kona hans Sigurlaug Ólafsdóttir og bjuggu þau á Giljum, en síðar á Daufá. Stefán var kominn af séra Jóni Sveinssyni presti í Goðdölum og í aðra ætt af Hjalmi bónda á Keldulandi, sem nafnkenndur var á sinni tíð, en hann var móðurfað- ir séra Jóns Steingrímssonar, sem stöðvaði eldhraunið á Síðu með bæn. Sigurlaug kona Stefáns var dóttir Ólafs Guðmundssonar hreppsstjóra í Litluhlíð, en Ólafur var þriðji ættliður frá Jóni og Björgu á Skeggsstöðum, sem Skeggsstaðaætt er kennd við. Guðmundur Stefánsson var fæddur að Giljum 26. ágúst 1879 og nú eru því 100 ár liðin frá fæðingu hans. Af því tilefni væri sérstök ástæða til, að minnast hans, svo merkur maður sem hann var. Stefán og Sigurlaug bjuggu fyrst á Giljum, síðan í Litluhlíð, en fluttu að Daufá 1886. Níundi áratugur 19. aldar var hinn harð- asti á allri öldinni. Fyrst var frostaveturinn mikli 1881, svo mislingasumarið 1882, þegar snjóaði í hverri viku um sláttinn. Vorið 1885 var svo hart að ýmsir bændur urðu að skera lömb undan ám sínum vegna heyleysis. Þá tók út yfir þegar fjögurra daga stórhríð gerði 16. til 20. maí 1887 og í því veðri fennti fé til dauðs á flestum bæjum í Skagafjarðar- og Húnavatnssýslum. Mörg þessi ár var hafís fyrir Norðurlandi. Vafalaust hafa þau Stefán og Sigurlaug misst eitthvað af búfé sínu á þessu harða vori ’87, en það var ekki nóg. 19. ágúst um sumar- ið andaðist Stefán 36 ára að aldri og Sigurlaug stóð ein eftir með fimm syni unga og var Guðmund- ur elztur þeirra, 8 ára. Auk þeirra, var faðir Stefáns, Guðmundur Oddsson hjá þeim, aldurhniginn og örvasa. Sigurlaug bjó á Daufá eftir lát manns sins, við sára fátækt, til 1893. Guðmundur átti heima hjá móður sinni þann tíma, en vann fyrir sér að nokkru. Guðmundur mun snemma hafa hugsað sér, að brjóta hlekki fátæktarinnar og tókst það með ágætum. Eftir fermingu var hann í vistum og síðar lausamaður og nafnkenndur fyrir dugnað og harðfengi, að hverju sem hann vann. Hann var hófsamur og hagsýnn, sýnt um fjármál og féll ekki verk úr hendi. Um og eftir tvítugsaldurinn var hann orðinn vel efnaður og var það alla æfi. Árið 1904 kvæntist Guðmundur Þórunni Baldvinsdóttur og litlu síðar eða árið 1907 hófu þau búskap í Litladalskoti og keyptu þá jörð. Búskapur þeirra blómgað- ist vel þar, en kotið mun hafa orðið of lítið, svo þau keyptu Lýtingsstaði árið 1915 og fluttu þangað. Sú jörð er landmikil og fleytir miklum peningi. Og það stóð ekki á þvi, að Guðmundur á Lýtingsstöðum varð einn af stærstu bændum sveitarinnar. Þar var líka mannflesta heimilið að ég hygg, en þar voru oft tuttugu manns í heimili yfir sumarið. Guðmundur hafði margt kaupa- fólk og vann að heyskap af miklu kappi. Sjálfur var hann með allra beztu sláttumönnum. Þú mátt segja og skrifa að ég hafi aldrei orðið heylaus, sagði hann við mig eitt sinn. Harða veturinn 1920 voru 70 hross á húsi á Lýtings- stöðum og hátt á annað hundrað fjár. Tvídyra hesthús var uppi á túninu. Þar voru 15 hryssur með folöldum og voru hryssurnar í annari krónni, en folöldin í hinni og þessum peningi var hleypt út fyrir dyrnar einu sinni á dag til þess að folöldin gætu sogið. Þenn- an vetur eyddust heyfyrningar og fækkaði Guðmundur þá hrossum nokkuð. Bærinn á Lýtingsstöðum var að falli kominn og það var fyrsta verk Guðmundar vorið 1915 að byggj a hús úr timbri og torfi áfast við gamla baðstofu. Þetta hús var þrjár stofur og rishæð yfir með tveimur herbergjum, suður- og vesturkvistur var það kallað. Vestast bæjarhúsa var þinghús alþiljað og í suðurenda þess var lítið herbergi og þar voru lík geymd, sem biðu greftrunar og þar var fólk látið velja alþingis- menn í einrúmi. Guðmundur og Þórunn þekktu vel fátæktina frá æskuárum. Fá- tæka höfðu þau alltaf hjá sér. Framkoma þeirra við fátæka og sjúka var sönn fyrirmynd. Lýt- ingsstaðaheimilið var einstakt. Það stóð öllum opið. Gamalt fólk var þar tímum saman sem hvergi átti athvarf. Sjúklingar voru þar oft, sem biðu eftir viðskilnaði við þennan heim. Kona nokkur, Signý hét hún, lá rúmföst á Lýtings- stöðum heilt sumar og mun hafa verið berklaveik, því hún var með blóðspýting. Um haustið var hún flutt í sjúkrahús og átti þá skammt ólifað. Geðveik kona var í sveitinni, einstæðingur. Hún fékk brjálsemisköst, en var róleg á milli. Þegar hún brjálaðist, var hún flutt að Lýtingsstöðum og vakað yfir henni þar, meðan á þvi stóð. Lýtingsstaðaheimilið var bæði gamalmennaheimili og sjúkrahús. Sjúkrahúsið á Sauð- árkróki gat þá ekki tekið við öllum þeim sem veikir voru. Það kom sér vel að Þórunn Baldvinsdóttir hafði góða hæfi- leika til að hjúkra sjúkum, mönnum og málleysingjum. Sagt var að hún hafi erft þá eiginleika frá Herdísi móður sinni. Hún var fremur dul í skapi, en prúðmann- leg og hlý í viðmóti. Vinna sem hún lagði á sig fyrir þetta stóra heimili var með ólíkindum. Hún fór fyrst á fætur og vann fram á nætur. Við venjuleg heimilisstörf bættist svo það, að þar á þings- staðnum voru oft fjölmennir fund- ir og öllum veitt vel. Ég held að Þórunn hafi ekki fundið fyrir þvi, sem kallað er féhyggja. Hún þurfti ekki að hugsa um fjármál, því hún hafði alltaf nóg fyrir framan hendurnar. Maður hennar sá um það. Mesta gleði hennar var að hjálpa þeim sem voru í nauðum staddir. Guðmundur Stefánsson var vel meðalmaður á hæð, fremur grann- ur, en svaraði sér vel, kvikur á fæti og svipmikill. Andlitsdrættir báru vott um sterkan vilja. „Maðurinn með glampann í aug- unum“, sagði séra Lárus á Mikla- bæ um hann í afmælisveizlu, en Guðmundur hafði unnið við, að endurbyggja gamla bæinn á Miklabæ. Guðmundur bjó yfir miklu skapi, var örlyndur. Hann var hreinskilinn og stundum hrjúfur í viðmóti, en það var eins og skurn sem skýlir heitum til- finningum, því hann var barngóð- ur og fann til með þeim sem bágt áttu. Hjálpsemi hans var við- brugðið. Hann brá fljótt við ef hann var beðinn að sækja lækni eða ljósmóður, en það var honum ekki nóg. Hann fór á bæina þar sem bágar ástæður voru, ræddi við fólkið og bauð aðstoð sína, og hann var glöggur á úrræði sem til voru. Guðmundur var maður um- svifa og naut þess að stjórna því sem gera þurfti. Oft sá hann um sjúkraflutninga á kviktrjám. Það fór vel um sjúklinga í slíkum flutningum, en aðgæslu var þörf og hestar urðu að vera stilltir. Um tvítugsaldur fór Guðmundur að vinna við smíðar, einkum húsa- byggingar. Ekki fór hann í skóla eftir fermingu en framan af árum vann hann með Guðmundi Guð- mundssyni bónda og smið á Reykjarhóli, en hann var lærður smiður. Á þeim tíma, sem Guðmundur var bóndi á Lýtingsstöðum, smíðaði hann flestar eða allar líkkistur, sem þörf var fyrir í sveitinni, vann við það í þinghús- inu og var fljótur, lagði oft nótt við dag. Veturinn 1916 smíðaði hann utanum Símon Dalaskáld. Þá kom til hans maður úr hrepps- nefnd og gerði kröfu um, að hann smíðaði ódýra kistu, því skáldið átti ekki peninga fyrir kistunni. Guðmundur sagðist hafa smíðað þessa kistu eins og venjulegt var, hvorki dýra né ódýra, setti upp 30 krónur og fékk aldrei neitt borgað. Áður en Guðmundur og Þórunn byrjuðu búskap, voru þau tvö ár 1905 til 1907 í húsmennsku á Sveinsstöðum hjá foreldrum mínum, en Guðmundur mun þá hafa unnið við húsasmíði á ýmsum stöðum meira eða minna. Sumir þola ekki sambýli í þröngu húsnæði, en Þórunn og móðir mín þoldu það svo vel, að með þeim var einlæg vinátta æviiangt eftir það og sýnir það vel skaphöfn og innræti beggja. Veturinn 1919 var móðir mín heilsulítil og var rúmföst þegar leið á vetur. Þá kom Guðmundur á Lýtingsstöðum og ræddi við for- eldra mína, en eftir það var mamma flutt að Lýtingsstöðum og þar var hún rúmföst svo vikum skipti og naut hinna mjúku handa vinkonu sinnar unz hún komst á fætur. Eftir brunann á Mælifelli haustið 1921 varð heimafólk þar húsnæðislaust og næsta vetur var móðir mín á Lýtingsstöðum og þar fæddist yngsti sonur hennar í febrúar 1922. Guðmundur Stefánsson brá búi á Lýtingsstöðum árið 1927, en fjölskylda, hans bjó þar næstu árin. Eftir það vann hann nær eingöngu við húsasmíði á ýmsum stöðum. Hann var vestur í Víðidal og byggði íbúðarhúsið á Lækja- móti, sem enn sómir sér vel. Þegar Guðmundur hafði lokið þeirri byggingu fékk hann húsasmíða- réttindi og mun Jakob bóndi hafa gefið honum góð meðmæli. Guðmundur andaðist í Reykja- vík árið 1959 nær áttræður að aldri og hafði þá unnið við húsa- byggingar auk annars í 60 ár eða allt að því. Þórunn Baldvinsdóttir var 9 árum eldri en Guðmundur, fædd 1870. Árið 1896 átti hún son með Jóhanni Lárusi Jónssyni bónda og ekkjumanni á Lýtingsstöðum. Það er Jónas, lengi bóksali á Akureyri, nú búsettur í Reykjavík. Börn Guðmundar og Þórunnar auk Her- vins eru: Stefana gift Ólafi Sveirissyni frá Mælifellsá, Sveinn lengi kaupfélagsstjóri á Sauðár- króki og Unnur gift á Sauðár- króki. Allar minningar mínar um Her- vin Guðmundsson frá uppvaxtar- árum okkar eru góðar. Hann var snemma iðjusamur og dugandi, fremur dulur, prúður í umgengni, skipti ekki skapi, en á góðri stund brá hann fyrir sig léttri kímni. Allir eiga tvær ættir og ég hygg það ekki fjarri sanni að Hervin hafi erft skaplyndi móður sinnar, en umsvif og athafnaþrá föður síns. Eftir að hann fór frá Lýt- ingsstöðum um tvítugsaldur voru kynni okkar ekki mikil. Ég sá hann þó stöku sinnum og síðast í Varmahlíð fyrir tveimur árum og þótti hann þá bera aldurinn vel. Fyrir 12 eða 14 árum var ég um tíma við vinnu í Reykjavík. Það atvikaðist þannig, að ég var hálfs- mánaðartíma í fæði hjá Hervin og konu hans, sem ég hafði þá ekki séð áður. Anna Guttormsdóttir frá Síðu í Víðidal er góð kona og ég fann ylinn — hinn andlega yl —, sem vermdi heimilið. Hervin Hans var alveg eins og á fyrri tíð, grandvar til orðs og æðis, fremur dulur, en broshýr stundum. Þegar ég ætlaði að greiða Hervin fæðið, vildi hann ekki taka við neinni greiðslu. Hann sagði ekki neitt, en ég vissi að hann lét mig njóta vináttu frá fyrri tíð. Börn Hervinsog Önnu voru þrjú: Haukur flugstjóri, er fórst í sorg- legu flugslysi 15. nóvember síð- astliðinn, Guðmundur og Arndís. Guðmundur er húsasmíðameistari og er hann fjórði ættliður í beinan karllegg, sem stundar þá iðju. Guðmundur á Lýtingsstöðum sagði mér, að Stefán faðir sinn hefði verið meiri og betri smiður að eðlisfari, en hann sjálfur. Tveir vinir Hervins skrifuðu kveðjuorð í Morgunblaðið 15. ág- úst, en þann dag mun hann hafa verið borinn til moldar. Þar er skrifað: „Hervin var dulur í skapi og fáskiptinn við fyrstu kynni. Hann var frábitinn allri sýndarmennsku eða að trana sér fram þótt hæfileika skorti ekki. Hann átti aðild að ýmsum fyrirtækjum og félögum og mun hafa reynst góður liðsmaður þar sem hann kom við sögu. Hervin var glaður í góðra vina hópi og sannur vinur vina sinna". Ég veit ekki betur en þessi mannlýsing sé rétt, og hún er líka vitnisburður um, að Hervin hefur notið mikillar mannhylli, en mannhylli er eitt hið bezta, sem fólk getur hlotið á hervistardög- um. í erfiðum sjúkdómsþrautum var Hervin Hans umburðarlyndur og æðrulaus. Ég þakka honum góða vináttu fyrr og síðar og flyt fjölskyldu hans samúðarkveðjur. Ég vildi að þessi burtkallaði vinur minn gæti komið kveðju minni til feðra vorra: „Ég kem eftur, kannske í kvöld". Björn Egilsson, frá Sveinsstöðum. Eiríkur Gunnars- son - Minningarorð Fæddur 6. júní 1956. Dáinn 1. marz 1979. Helfregn berst okkur á öldum ljósvakans. Vélbáturinn Ver hefur farist. Var það ekki nafnið á bátnum hans Eika? Seinna kom vissan, hann hafði farist með bátnum. í hug minn kemur kveðjustundin er hann kom til mín. „Ég kem til þess að kveðja, fer til Vestmannaeyja í nótt, sé þig í vor, ef ég kem þá aftur, þú veist að ég verð ekki langlífur. Ég hef svo oft sagt þér það.“ Var koma hans til æðri stranda þá nær en ég gat trúað? Það var eins og ekkert kæmi þessum unga dreng á óvárt. Þroski og lífsreynsla spunnu viðkvæman streng í lífsviðhorfi hans. Hann var samnefnari þeirrar æsku, sem elst upp í því þjóðfélagsöngþveiti sem margt ungmennið hefur ekki þolað. Eiki reif sig út úr blekk- ingarvef sýndarmennskunnar. Hann fór á sjóinn, vildi vera frjáls og standa á eigin fótum. Ungur drengur, sem vinnur sig upp í starfi á sjó og er talinn góður sjómaður, enginn liðléttingur og fær góða einkunn hjá traustum skipstjóra. Það er ekki geðþótt- aeinkunn. Það er alvörueinkunn í skóla lífsbaráttunnar. Hljóm- grunnurinn í öllu hans lífi var móðir hans. Hann sagði oft: „Mamma, er það eina, sem ég elska. Mér finnst stundum að ég sýni henni það ekki nógu vel.“ Ekki hafa þau verið létt sporin hennar, þegar hún fylgdi drengn- um sínum til skips í kulda vetrar- ins. Það er svo margt sem kemur í hugann, nú þegar Eiríkur er farinn frá okkur, en er samt svo nálægur í hugum okkar og minn- ingum og ekki hvað síst hjá móður sinni, sem vermandi ljós á vegum hennar og allra ástvina. Það var svo oft, sem við Eiki ræddum um lífið og tilveruna. Hyað tæki við á næsta tilverustigi. í dag skil ég margt af því, sem hann sagði miklu betur. Mig langar í þessum fáu línum að þakka Eika fyrir allan hans hlýhug og tryggð. Þeir voru ófáir fiskarnir sem hann færði mér, og snúningarnir sem hann fór. Minningar allra sem þekktu hann rétt verða geymdar. Guð blessi ástvini hans. Laufey Jakobsdóttir. Afmœlis- og minningargreinar ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu línubili.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.