Morgunblaðið - 25.10.1979, Síða 1
48 SIÐUR
235. tbl. 66. árg.
FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 1979
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Prag-dómum mót-
mælt einum rómi
— jafnt af kommum og erkiíhaldi
Bonn — 24. október. AP.
ANDÓFSMANNADÓMUNUM í Prat? hcfur í datí verið harðlctta mótmælt um alla Vestur-Evrópu. ojf lejfKjast þar
á eitt rikisstjórnir, stjórnmálaflokkar með hinar ólíkustu skoðanir, samtök og einstaklingar. Er staðhæft að hér
sé um að ræða gróft brot á Ilclsinki-sáttmálanum, og íhuga aðildarríki Efnahagsbandalagsins að grípa til aðgerða
gegn tékkncsku stjórninni. Er bersýnilcgt að stjórnir ýmissa rikja ætla sér ekki að láta sitja við orðin tóm að
þessu sinni. og franska stjórnin tilkynnti eftir að mótmæli hennar höfðu verið birt, að ekki yrði af heimsókn Jean
Francois-Ponchct utanríkisráðherra til Tékkóslóvakíu að sinni.
Bohuslav Chnoupek, utanríkisráð-
herra Tékkóslóvakíu, flutti í morgun
árlega stefnuræðu sína á löggjafar-
samkomu Tékka og Slóvaka og kvað
Tékkóslóvakíu hafa fylgt ákvæðum
Helsinkisáttmálans út í æsar, um
leið og hann áréttaði stuðning
stjórnar sinnar við détente-stefn-
una. Á Vesturlöndum hafa þessi
ummæli, daginn eftir að andófs-
mannadómarnir voru uppkveðnir,
orðið til að auka á andúðina í garð
stjórnarinnar í Prag.
68 þingmenn allra flokkka í neðri
málstofu brezka þingsins birtu í dag
yfirlýsingu þar sem dómunum er
mótmælt og Pragstjórnin gagnrýnd
sérstaklega fyrir að vanvirða 14.
grein mannréttindayfirlýsingar
Sameinuðu þjóðanna um einstakl-
ings- og skoðanafrelsi. Orkumála-
ráðherra Tékkóslóvakíu er nú í
Lundúnum og hefur brezka stjórnin
verið gagnrýnd fyrir að eiga við
hann orðastað samtímis því að
mótmæla andófsmannadómunum.
L’Unita, málgagn ítalskra komm-
únista, gagnrýnir dómana á forsíðu,
og ítalska alþýðusambandið, þar sem
kommúnistar hafa tögl og hagldir,
skorar á verkalýðssamtök í Tékkó-
slóvakíu að sýna nú einu sinni að
þau geti tekið óháða afstöðu og beiti
sér gegn þessum kúgunaraðgerðum
stjórnarinnar. Franska kommún-
istamálgagnið L’Humanité, sem
jafnan hefur reynt að hlífa komm-
únistastjórnum á áhrifasvæði Sovét-
ríkjanna, bregður nú vana sínum, og
krefst þess afdráttarlaust að andófs-
mennirnir sex verði látnir lausir
þegar í stað.
„Fáránlegt og óþolandi", sagði
Wolff, einn af leiðtogum hollenzkra
kommúnista um dómana, og „pól-
itískur skrípaleikur", sagði Ola
Ullsten utanríkisráðherra Svíþjóöar,
þegar hann krafðist þess á þingi í
dag að slík brot á Helsinki-sáttmál-
anum yrðu ekki liðin.
Hua Kuo-Feng litur inn i stálbræðsluofn i Krefeld i Vestur-býzkalandi,
en hinn kinverski leiðtogi hefur ferðast um helztu iðnhéruð og kynnt
sér tækniframfarir i heimsókninni til Vestur-Þýzkalands. (AP-stmamynd)
Hua Kuo-Feng í Vestur-Þýzkalandi:
/
Obreytt stefna að
Brésneff látnum
Bonn, 24. október. AP.
HUA Kuo-Fcng, sem undanfarna
daga hefur vcrið í Vestur-býska-
landi, lýsti þcirri skoðun sinni i
dag. að litilla breytinga væri að
vænta á stefnu Sovétstjórnarinnar
er Leonid Brésneff hyrfi af valda-
stóli. „Auðvitað get ég ekki um það
spáð hvenær Brésneff lætur af
embætti, en það get ég fullyrt að
stefna Sovétmanna mun ekki breyt-
ast við það. svo orð verði á ger-
andi." sagði Ilua.
Hua hefur hvað eftir annað sneitt
að Sovétstjórninni í Evrópu-ferð-
inni, en nokkra athygli hefur vakið
að hann hefur ekki verið jafn
hvassyrtur í garð hennar og ýmsir
aðrir kínverskir leiðtogar. Á
blaðamannafundi í Bonn í dag vék
hann sér undan því að ræða um
útþenslu Sovétríkjanna í Afríku og
Miðausturlöndum, með þeim orðum
að hann langaði ekki til að valda
Schmidt gestgjafa sínum
óþægindum.
Dean Chenoweth kastaðist út ár „fiuSbát“ sinum, Miss Budweiser, er farkosturinn var á um það bil 350
Kiiomctra hraða á klukkustund á Seattle-vatni i fyrradag. en kappinn var þá á góðri leið með að setja nýtt
hraðamet á vatni. Chenoweth liggur nú í sjúkrahúsi með sex brotin rifbein, en líðan hans er sögð þolanleg.
Ástæðan fyrir því að „flughátnum" hlekktist á er talin sú að ein skrúfa hans hafi brotnað. (AP-simamynd)
Ný stjórn í dag?
Kaupmannahttfn, 24. október. AP.
BÚIZT er við því að Anker Jörg-
ensen leggi fram ráðherralista
nýrrar minnihlutastjórnar jafnað-
armanna á morgun og ekki síðar
en á föstudaginn, en þegar i
morgun gekk forsætisráðherrann
á fund Margrétar drottningar og
gerði henni grein fyrir úrslitum
kosninganna og áformum sinum
um myndun nýrrar stjórnar. Kosn-
ingaúrslitin eru fremur túlkuð sem
persónulegur sigur Anker Jörgen-
sens en sigur flokks hans, jafn-
framt því sem þau eru talin
ótvirætt merki um að Danir hafi
fengið sig fullsadda af pólitiskum
harðlinuflokkum.
Þess er vænzt að hinni nýju stjórn
veitist auðveldara að kljást við
efnahagsmálin en fráfarandi sam-
steypustjórn jafnaðarmanna og
Vinstri flokksins en þó er talið
ólíklegt að Anker Jörgensen takist
að afla stjórninni þingfylgis, sem
geri henni kleift að láta verulega til
sín taka.
Anker Jörgensen hefur enn engu
viljað spá um það hvaðan stuðning-
ur við minnihlutastjórnina muni
koma, en almennt er búizt við því að
hann muni leita til Vinstri flokks-
ins, þrátt fyrir þann ágreining
flokkanna, sem leiddi til nýrra
kosninga, en sá stuðningur verður
að vera fyrir hendi áður en þing er
kallað saman hinn 6. nóvember.
Saudi-Arabar
auka olíu-
framleiðslu
Lundúnum, 24. okt. AP.
SAUDI-Arabar ætla að auka
oliuframleiðslu sína um milljón
tunnur á dag, að því er brezka
vikuritið The Economist skýrir
frá, en tilgangurinn er að stuðla
að jafnvægi á olíumarkaði.
Stjórn Saudi-Arabíu hefur ekki
staðfest frétt þessa, en Saudi-
Arabar hafa áður heitið því að
framleiðsla á dag þar til í des-
ember fari ekki niður fyrir 9,5
milljónir tunna.
Harkalegar móttökur
Tókýó, 24. október.
NÝFÆTT barn, sem fallið
hafði niður um salernisop í
járnbrautarlest, fannst á lífi
og hágrátandi að tæpum sex
stundum liðnum, en á þeim
tíma höfðu sjö járnbrautar-
lestir brunað eftir teinunum.
Tildrög þessa atburðar eru
nokkuð óljós en eftir því sem
öryggissérfræðingar Tókýó-
járnbrautanna komast næst,
varð móðirin, sem er 44 ára,
þess vör að fæðingarhríðir
voru að hefjast og hraðaði sér
þá-til salernis. Mun hún hafa
hnigið þar í ómegin, og misst
um leið barnið niður um opið
með einhverjum hætti.
Barnið, sem er 12 marka
drengur, meiddist á höfði og er
ekki talið úr lífshættu, en
þegar það féll var lestin á
fimmtíu kílómetra ferð á
klukkustund.
Keisara-
skurður
New York. 24. okt. AP
SÍÐASTLIÐIN sex ár hefur
íranskeisari verið með krabba-
mein í sogæðakerfi, en á meðan
hann ríkti i tran taldi hann
nauðsynlegt að halda þessu
leyndu, að því er talsmaður
hans skýrði írá í New York í
dag. Keisarinn fyrrverandi
gekkst undir uppskurð i dag
og er haft eftir læknum hans,
að tilgangurinn með aðgerð-
inni hafi verið sá að kanna á
hve alvarlegt stig krabbamein-
ið væri komið, en ekkert hefur
verið Iátið uppi um árangur
enn sem komið er.
Gallblaðra sjúklingsins var
fjarlægð, en hann var á skurð-
arborðinu í tvær og hálfa
klukkustund. Farah Diba, fyrr-
um keisaradrottning, vitjaði
manns síns á sjúkrabeðnum, en
talsmaður keisarans sagði í
kvöld að útlit væri fyrir að hann
næði sér fljótt og vel eftir
aðgerðina.