Morgunblaðið - 25.10.1979, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 1979
Hið íslenzka kennarafélag:
Samræmd námsskrá fyrstu
áfanga framhaldsskólans
Lionsmenn í heim-
sókn í Víðinesi
Þar sem Lionsdaginn í ár, 8.
október bar upp á mánudag, fóru
félagar úr Lionsklúbbnum Fjölni
i heimsókn til vistmanna á Vist-
heimilinu Víðinesi, sunnudaginn
7. okt., en Víðines hefur verið
aðalverkefni klúbbsins til
liknarmála undanfarin 6 ár.
Viðinesheimilið hóf starfsemi
fyrsta vetrardag 1959 og verður
þvi 20 ára um þessar mundir eða
27. október.
Eldra heimilið rúmar 35 vist-
menn, en nú nýverið var hluti nýja
heimilisins tekið í notkun og
rúmar það til að byrja með 12
vistmenn, en kemur til með að
rúma 34—36 fullbúið. Verður það
1300 fermetrar á tveim hæðum.
Formaður Lionsklúbbsins
Fjölnis, Egill Snorrason, afhenti
heimilinu að gjöf húsgögn að
verðmæti 4,2 milljónir króna,
framleidd af Gamla Kompaníinu
h.f.
Síðan var spilað bingó við vist-
menn frameftir degi, um verðlaun
sem Fjölnismenn gáfu.
Hið íslenska kennarafélag
gekkst fyrir ráðstefnu um fram-
haldsskólann dagana 20. og 21.
október að Hótel Loftleiðum.
Eftirfarandi tillögur og álykt-
anir voru samþykktar:
„1. Um fjármögnun
framhaldsskólans:
Ráðstefnan fagnar því, að í nýju
frumvarpi til laga um fram-
haldsskóla skuli gert ráð fyrir því
að ríkissjóður greiði allan stofn-
kostnað við framhaldsskóla og
námsvistargjöld skuli felld niður.
Sú er hinsvegar skoðun ráð-
stefnunnar að framhaldsskólinn
muni aldrei búa við sömu kjör vítt
um landið nema sama regla gildi
um greiðslu alls skólakostnaðar á
framhaldsskólastigi. Ráðstefnan
telur að kostnaðaraðild sveitarfé-
laganna leiði til margvíslegra
vandkvæða. Verði hins vegar
stofnað til slíkrar verulega tak-
markaðrar aðildar sé nauðsynlegt
að greiðsluskylda sveitarfélaga
vegna kostnaðar við nám í verk-
legum og bóklegum greinum verði
hin sama í krónutölu á hvern
nemenda.
2. Um námsskrá:
Bráðnauðsynlegt er að þegar
verði sett samræmd námsskrá er
nái til fyrstu námsáfanga fram-
haldsskólans. Tryggja verður að
nemendur um allt land verði jafnt
settir hvað varðar undirstöðunám
og þar með að flutningur milli
skóla tefji ekki nám þeirra. Kapp-
kosta þarf að fá til námsskrár-
gerðar hæfa starfsmenn er þekkja
bæði fræðilegan og hagnýtan þátt
greina sinna tii hlítar. Einkum á
þetta við um nám sem binst
atvinnugreinunum.
3. Um skólaskipan
Ráðstefnan leggur til að í 17. gr.
frv. til laga um framhaldsskóla
falli niður eftirfarandi málsgrein:
„í hverjum landshluta skal vera
eins fjölbreytt val námsbrauta og
við verður komið." í þess stað
komi: „Hvert fræðsluumdæmi
skal skipuleggja sem eina heild og
innan þess starfi a.m.k. einn
kjarnaskóli og annað framhalds-
nám í umdæminu tengist honum.
Þá starfi í umdæminu eitt skóla-
verkstæði og fleiri fari íbúatala
yfir 25.000.“
4. Um verkmenntun:
Ráðstefnan tekur undir með
nýloknu Iðnþingi og telur brýna
nauðsyn á að nú þegar verði
mótuð heildarstefna í verkmennt-
un landsmanna. Þar verði m.a. við
það miðað að fyrri hluti námsins
fari í æ ríkari mæli fram í skólum
og einnig endurmenntun og
símenntun.
Ráðstefnan leggur þunga
áherslu á að til eflingar verk-
menntun og verkmenningu í land-
inu er nauðsynlegt:
1. Að starfsfræðsla fari fram í
grunnskóla.
2. Að leggja fé í skólabyggingar
fyrir verknám.
3. Að búa skólana tækjum sem eru
fullnægjandi hverju sinni.
4. Að efla menntun kennara.
5. Að setja á fót verknámsrann-
sóknardeild í menntamálaráðu-
neytinu sem m.a. geri úttekt á
innihaldi verknámsins.
6. Að veita fjármagni til náms-
skrár og námsgagnagerðar.
7. Að veita fjármagni til nauðsyn-
legs eftirlits og umsjónar skóla
með nemendum í námsstörfum í
atvinnulífinu.
Þar sem augljóst er að verk-
menntun og verkmenning er und-
irstaða efnahags og afkomu þjóð-
arinnar þá furðar ráðstefnan sig á
að ekki skuli lögð meiri áhersla á
að kynna og reka verkmenntun í
fjölmiðlum.
5. Um bekkjarkerfi
og áfangakerfi
Ráðstefnan telur augljóst að
skólar með bekkjarkerfi og skólar
með áfangakerfi geti starfað hlið
við hlið. Báðir þessir möguleikar
hafi ótvíræða kosti. Æskilegt sé
að nemendur sem hefja nám í
framhaldsskóla geti valið milli
áfangaskóla og bekkjarskóla.
Ráðstefnan telur rétt að nám í
framhaldsskólum verði samræmt
að nokkru marki, en þess þá
vandlega gætt að samræmingin
takmarki ekki svigrúm einstakra
námsgreina og einstakra skóla til
skipulagningar kennslu og þróun-
ar námsefnis.
6. Um gildistöku laga
um framhaldsskóla
Ráðstefnan telur brýna nauðsyn
bera til að lög um framhaldsskóla
verði samþykkt á næsta alþingi.
Við gildistöku þeirra sé nauðsyn-
legt að lög um viðskiptamenntun
verði látin falla úr gildi (sérstök
ákvæði um Samvinnuskólann og
Verslunarskólann) enda bresti þá
forsendur þess að ríkissjóður
greiði kostnað við einkaskóla."
Auglýst
eftir framboðum
til prófkjörs
í Austurlandskjördæmi
Ákveðið hefur verið að prófkjör um val frambjóðenda á lista
Sjálfstæðisflokksins í Austurlandskjördæmi við næstu alþingis-
kosningar fari fram dagana 2. og 3. nóvember n.k.
1) Gerö skal tillaga til kjörnefndar innan ákveðins framboðsfrests sem kjörnefnd setur.
Tillagan er því aöeins gild, að hún sé bundin viö einn mann og getur enginn
flokksmaður staöiö aö fleiri en tveim slíkum tillögum. Tillagan skal borin fram af 20
flokksmönnum búsettum í kjördæminu.
2) Kjörnefnd er heimilt aö tilnefna prófkjörsframbjóöendur til viðbótar frambjóöendum
skv. 1)-liö eftir því sem þurfa þykir, enda sé fjöldi þeirra þrisvar sinnum meiri
samanlagöur en fjöldi kjörinna þingmanna Sjálfstæöisflokksins og uppbótarþing-
manna, sem síöast hlutu kosningu fyrir kjördæmið. v
Hér meö er auglýst eftir framboöum til prófkjörs sbr. 1. lið hér aö
ofan. Skal framboö vera bundið viö einstakling, sem kjörgengur
verður í næstu Alþingiskosningum og skulu 20 flokksbundnir
Sjálfstæöismenn standa aö hverju framboöi. Enginn flokksmaöur
getur staöiö aö fleiri en 2 framboðum. Framboöum ber aö skila
ásamt mynd af viökomandi til framkvæmdastjóra yfirkjörstjórnar
Magnúsar Þóröarsonar, Lagarási 2, Egilsstöðum eigi síöar en kl. 12
aö hádegi, föstudaginn 26. okt. ’79.
Yfirkjörstjórn Sjálfstæðisflokksins
í Austurlandskjördæmi.
Nýjung í glerframleiðslu
PILKINGTON - glerverksmiðj-
urnar í Halmstad í Svíþjóð hafa
ákveðið að byggja nýja verk-
smiðju, sem kosta mun um 40
milljónir sænskra króna. Verk-
smiðjan mun framleiða einfalt
gler, sem sérstaklega er hannað
fyrir aukna hitaeinangrun í hús-
um.
Glerið er framleitt þannig, að
það er húðað á sérstakan hátt.
Húðunin hefur ekki í för með sér
takmarkanir á gegnsæi, en aftur á
móti orsakar hún minnkun á
hitatapi úr húsnæði, langbylgju-
hitageislun, sem venjulega leitar
út í gegnum rúður. Tvöfalt ein-
angrunargler, framleitt úr þess
konar gleri, eykur því verulega
einangrun húsa. Munurinn á slíku
einangrunargleri og venjulegu
einangrunargleri er um helmings
munur á hitatapi. Þetta orkuspar-
andi gler verður til að byrja með
sett á markað á Norðurlöndum, og
væntanlega þar með á íslandi.
Uppgjör
— dönsk
skáldsaga
Bókaútgáfan Iðunn hefur sent
frá sér skáldsöguna Uppgjör,
Manneskja i mótun eftir Bente
Clod. Bók þessi kom út í Dan-
mörku 1977. Áður hefur höfundur-
inn gefið út safn af greinum,
sögum og ljóðum undir heitinu
Det autoriserede danske samleje
og andre nærkampe. Uppgjör er
sjálfsævisöguleg saga og lýsir
einkareynslu höfundar. Bente
Clod er fædd 1946, nam uppeldis-
fræði og starfaði á því sviði um
skeið. Hún hóf ritstörf 1974. Hún
hefur starfað mikið í kvennasam-
tökum og stofnsetti í fyrra ásamt
fleiri konum Kvindetryk, forlag
sem eingöngu gefur út bækur eftir
konur sem raunar vinna sjálfar að
útgáfunni. Bente Clod hefur feng-
ist við allar greinar ritmennsku,
ort ljóð, skrifað greinar í blöð og
tímarit, sögur og ritgerðir, og
mest byggir hún á eigin
lífsreynslu. Um aðdraganda þess-
arar bókar, Uppgjör, segir hún:
„Það voru árin næst á undan
kvennaárinu sem réðu úrslitum.
Ég gat ekki komist hjá að glíma
við þetta æpandi misræmi milli
orða minna og athafna. Vanmátt-
ur minn í starfinu og endanlegt
nauðungaruppgjör mitt við sam-
búð tveggja manneskja, — þetta
hvort tveggja ýtti mér af stað í
ferðina löngu þaðan sem engin
leið lá til baka. Það vissi ég seinna.
— Líf annarra virtist í föstum
skorðum en mitt líf einkenndist af
uppgjöri. En það þurfti margfalt
uppgjör áður en tókst að raða
brotunum saman í heild og ná
fótfestu."
Álfheiður Kjartansdóttir þýddi
bókina. Hún er 293 bls. Prentrún
prentaði.