Morgunblaðið - 25.10.1979, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 1979
11
Spesia írá 1771 fram- og bakhlift.
Viljið þér
sjá spesíur og
gamla seðla?
Á MYNTSÝNINGUNNI, sem nú
er í Bogasal Þjóðminjasafnsins
er stærsta úrval sem hingað til
hefur verið sýnt hér á landi af
mynt og seðlum og er óhætt að
segja að allir, sem komið hafa á
sýninguna, hafa lokið upp lofs-
orði um hana. Ótrúlega margir
spyrja hvort spesíurnar gömlu
séu sýndar, en fjölmargar þeirra
eru til sýnis í einu púltinu.
Spesíurnar voru stórir silfurpen-
ingar, úr góðu silfri. Þær voru
rúm 28 grömm á þyngd. Margar
sögur eru af því, að ríkari
hændur áttu svo margar spesíur
eftir RAGNAR
BORG
í kistuhandraðanum, að þeir
gátu auðveldlega snarað út jarð-
arverði, en sjón er sögu ríkari.
Komið á sýninguna strax í dag
og skoðið spesíurnar og fleira.
Það er alltaf einhver frá Mynt-
safnarafélaginu á staðnum til að
leiðbeina gestum.
KftéHA
' '.f
KKÓNA
%
k f
i
* ‘
$
I
%
Krónuseðlar á myntsýningunni, að ofan seðlarnir frá 1922 þar á
meðal heil örk. Að neðan kvislingarnir frá 1941 í mörgum litum.
Afhjúpun — Ný
bandarísk saga
IÐUNN hefur gefið út söguna
Afhjúpun eftir bandaríska höf-
undinn Susan Isaacs. Hún hefur
birt greinar í þarlendum tímarit-
um en þetta er fyrsta skáldsaga
hennar og heitir á frummálinu
Compromising Positions. Um efni
bókarinnar segir svo á kápubaki:
„Júdit Singer er ung menntuð
kona sem býr í dauflegu hjóna-
bandi með hrútleiðinlegum eigin-
manni á Long Island. Óvæntur
gustur berst inn í ófullnægt líf
hennar þegar tannlæknirinn
Fleekstein finnst myrtur á stofu
sinni. Grunur fellur á eina vin-
konu Júditar og hún fer af eigin
hvötum að rannsaka málið. Það
verður til þess að kynni takast
með henni og Nelson Sharpe sem
lögreglan hafði sett til að kanna
þetta morðmál. Samstarf þeirra
verður náið og hefur sín áhrif á
hjónaband hennar. Það kemur í
ljós að sitthvað í samskiptum
tannlæknisins við konur þolir illa
dagsbirtuna. Meðal annars hafði
APHJúPun
hann fengið húsmæður í hverfinu
til að sitja fyrir á nektarmynd-
um.“
Afhjúpun er 276 bls. Úlfur
Ragnarsson þýddi söguna. Prent-
rún prentaði.
Kristján - nýbók frá Salti
BÓKAÚTGÁFAN Salt hf. hefur
nýlega sent frá sér bókina Krist-
ján eftir danska höfundinn H.e.
Nissen í þýðingu Gunnars Sigur-
jónssonar. Segir í frétt frá útgáf-
unni að bókin sé rituð fyrir
unglinga og sé kjörin fyrir þá er
vilja fræðast um kristindóm.
Höfundurinn lýsir tveimur ár-
um í lífi menntaskólanemans
Kristjáns, hvernig hann verður
kristinn og hvernig hann mætir
ýmsum vandamálum í daglegu lífi
heima fyrir og í skólanum, segir í
frétt útgáfunnár og ennfremur
hvernig félagi hans Pétur kemur
við sögu, leiðir hann fyrstu skrefin
í trúarlífinu, frá sífeildri baráttu
Kristjáns og ósigrum hans þar til
sigur Krists lýkst sífellt betur og
betur upp fyrir honum.
Bókin er tæpar 70 bls. sett hjá
Grágás hf., prentuð hjá
Prentsmíði, Prentmyndastofan
annaðist filmuvinnu og Arnarberg
bókband.
BENSÍNIÐ í BOIN
Sumir keyra í rykkjum, spyma af stað, spóla, spæna
og snögghemla. Eru í einskonar kvartmíluleik við um-
ferðarljósin. Slíkt hefur óþarfa bensíneyðslu í för með sér.
Viljir þú draga úr bensíneyðslunni og spara þér stórar
fjárhæðir, verður þú að gera þér ljóst að aksturslagið
skiptir miklu máli.
Aktu rólega af stað. Vertu spar á innsogið. Haltu
jöfnum hraða og hæfilegri fjarlægð frá næsta bíl. Gefðu
þér góðan tíma. Það eykur bensíneyðslu um 20—25% að
aka á 90 km. hraða í stað 70, auk þess sem það er ólöglegt.
Hafðu ekki toppgrind né aðra aukahluti á bifreiðinni að
ástæðulausu. Réttur þrýstingur í dekkjum skiptir líka
máli.
Hafðu bílinn ávallt í toppstandi.
Og reyndu jafnan að velja hentugar akstursleiðir.
SPARAÐU AKSTURINN - ÞÁ SPARARÐU BENSÍN.
c - ORKUSPARNAÐUR
ÞINN HAGUR
MÓÐARHAGUR
Starfshópur um eldsneytisspamað í bílum:
Orkuspamaðamefnd iðnaðarráöuneytisins
Bílgreinasambandið
Félag íslenskra bifreiðaeigenda
Olíufélögin
Strætisvagnar Reykjavíkur
Umferðarráð