Morgunblaðið - 25.10.1979, Page 17

Morgunblaðið - 25.10.1979, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. OKTOBER 1979 17 Dr. Jónas Bjamason efnaverkfræðingur: Er nóg atvinna til? Full atvinna hefur verið hér á landi í orði kveðnu. í það minnsta eru fáir skráðir atvinnulausir. En þetta ástand er því miður villandi, þar sem hér ríkir „dulbúið at- vinnuleysi" á mörgum sviðum. Margir aðilar hafa bent á þetta. I sjávarútvegi er stunduð mun meiri útgerð en skynsamlegt er miðað við ástand fiskstofna og eðlilega nýtingu fiskiskipa. Alls konar veiðikvótar eru nú notaðir og sókn í fisk er takmörkuð með ýmsum hætti eins og öllum er kunnugt. í reynd er þetta atvinnu- bótavinna að vissu marki. Hið sama á við um landbúnað. Haldið er dauðahaldi í mjög mikla kindakjöts- og mjólkurframleiðslu langt umfram þarfir í því skyni að halda uppi atvinnu fyrir það fólk, sem í sveitum býr. Þetta ástand er nú flestum að verða ljóst, en vandræði sveitafólks eru gífurleg, og það er tæpast nokkur stjórn- málamaður frá landsbyggðinni, sem þorir að horfast í augu við staðreyndir málsins, hvað þá að segja sannleikann við sína um- bjóðendur. í íslenzkum iðnaði hafa fram- farir engan veginn orðið nægilega miklar. I flestum greinum hans er framleiðsla á hvern starfsmann mun minni en tíðkast í nágranna- löndum okkar. Ástæður fyrir þessu eru fjölmargar, en íslenzkir iðnrekendur viðurkenna vanda- málið. Samkeppnisaðstæður íslenzks iðnaðar eru mjög slæmar af fjölmörgum ástæðum. Formað- ur Félags íslenzkra iðnrekenda Sagði, að þetta jafngilti því miður dulbúnu atvinnuleysi á vissan hátt. í verzlun og viðskiptum hefur þróunin farið á sumum sviðum yfir á rangar brautir vegna ófull- kominna markaðsaðstæðna. Það þýðir, að of mikið vinnuafl er bundið við störf á þessum sviðum, svo að ekki sé minnst á allan þann vinnusparnað, sem gæti orðið við einföldun á tollafgreiðslu og með frjálslegri viðskiptaháttum, svo dæmi séu nefnd. Rangar fjárfestingar í öllum aðalatvinnuvegum þjóðarinnar binda vinnuafl í byggingaiðnaði, og verðbólgan hefur valdið því, að bæði almenningur og fyrirtæki fjárfesta í fasteignum til að varð- Dr. Jónas Bjarnason. að undanrennunni. Við höfum getað lifað vel þrátt fyrir óarðbær störf. Áttu börn í skóla? Reikna má með, að nálægt 30.000 af ungu fólki komi út á vinnumarkaðinn á næstu tveimur áratugum. Það þýðir, að milli 2 til 3000 manns bætast við árlega á næstu árum. Hvaða atvinnu fær þetta unga fólk? Fær það atvinnu í samræmi við áhuga sinn og menntun? Það er háskaleg stað- reynd, að stór hluti þess vinnuafls, sem bætzt hefur við á undanförn- um árum, hefur annað hvort fengið starf hjá hinu opinbera eða endað sem „útþynning" í fram- leiðsluatvinnuvegunum og þjón- ustu, en verðbólgan verður stöðugt kostnaðarsamari. Það þýðir lítið að hrópa: „Samningana í gildi“. að gera. Það hefur bara ekki verið hlustað á þá. Þróun undanfarinna ára hefur orðið sú, að auðlindir og hráefni verða stöðugt verðmætari annars vegar og háþróuð tækni- þekking hins vegar. Þaar þjóðir, sem búa við annað hvort eða hvort tveggja, státa almennt af beztum lífskjörum. ísland á verulegar auðlindir, en það er lífríki sjávar og orka fallvatna og jarðvarma. Fiskstofnar hafa verið ofveiddir. Þar sem iðntæknibylting tekur mannsaldra, er nokkurn veginn ljóst, að við þurfum að nýta orkuna hið bráðasta til stóriðju og prkufreks iðnaðar, annars dragast íslendingar áfram niður hvað lífskjör varðar. Ýmis konar smá- iðnaður er nokkurs virði, en hann mun ekki skiptá sköpum fyrst un) ' sinn, vegna þess, að hann verður Taka verður atvinnu- málin föstum tökrnn veita peninga. Því hefur verulegt vinnuafl verið bundið við störf, sem beinlínis hafa orðið til vegna verðbólgunnar. Opinber starfsemi þenst út, og öllum er kunnugt um þau vinnu- afköst, sem þar ríkja í mörgum tilvikum. Einnig eru til opinberar stofnanir, sem eru til næsta lítils gagns. Hausinn upp úr sandinum! Þrátt fyrir dulbúið atvinnuleysi á ýmsum sviðum hefur íslenzka þjóðin getað lifað góðu lífi fram til þessa. Mörgum verður því spurn, hvort ekki sé allt í lagi og hlutirnir megi ganga áfram eins og verið hefur. Menn lifa jú fyrir annað en bara hagvöxt, ekki satt? Það eru líka takmörk fyrir því, hvað unnt er að gera miklar kröfur til íslenzkra atvinnuvega, sem eru flestir hverjir smáir í sniðum á mælikvarða hins stóra heims. Það eru ekki allir, sem vita það, að meginundirstaða lífskjara okkar eru auðlindir sjávar. Því miður hefur verið ausið ótæpilega af þeim nægtarbrunni, svo þangað er ekki meira að sækja fyrst um sinn. Það þarf meira að segja að minnka sókn í þorsk. Það er búið að hirða rjómann, og nú er komið Sannleikurinn er sá, að horfur næstu ára eru alvarlegar. Eina vonin er sú, að stjórnmálamenn og aðrir ráðamenn horfist tafarlaust í augu við vandann og leggi drög að iðnþróun, sem bitastæð er. Sem stendur eyða menn tímanum í að rífast um það, hversu margir bátar megi stunda ákveðnar veið- ar eða hvaða ný rök megi finna fyrir því, að sauðfjárrækt skuli stunduð af jafnmiklu kappi og áður. Aðgerða er þegar þörf Sem betur fer eru margir menn til hérlendis, sem vita hvað þarf almennt ekki samkeppnisfær við erlenda framleiðslu, nema eitt- hvað sérstakt komi til. Ýmsar fiskafurðir má einnig gera verðmætari með frekari úr- vinnslu en nú er, en það kostar einnig iðnþróun. Hvernig sem á málin er litið, er ljóst,. að verja þarf gífurlegu fjármagni í orku- vinnslu og stóriðnað svo og til tæknimenntunar fólks, til þess að unnt verði að bjóða því unga og efnilega fólki, sem nú er í skólum landsins, upp á atvinnu við sitt hæfi og sómasamleg lífskjör í framtíðinni, svo að það telji bú- setu á íslandi yfirleitt eftirsókn- arverða. Finnbjörn Hjartarson prentari: Óhugnadur í smáfrétt á forsíðu Morgun- blaðsins nýlega var frá því skýrt, að uppskerubrestur hefði orðið í Sovétríkjunum, hinn mesti í 4 ár. Þessi litla frétt minnir á þá óhugnanlegu staðreynd, að nú þurfa Rússar enn á ný að falast eftir korni á Vesturlöndum. Eig- um við að skoða hvað er á bak við þessa litlu frétt? Gullið blóðrauða Þegar Rússar leituðu eftir kaup- um á korni í Kanada og Banda- ríkjunum og buðu gull fyrir, var geysileg andstaða gegn þeirri verzlun í þessum löndum. Kanada- menn og Bandaríkjamenn vissu, að það gull var grafið úr jörðu af pólitískum þrælum, aðallega fólki frá Eystrasaltslöndum, úr svo gullsnauðum jarðvegi, að á engan hátt annan var mögulegt að vinna gullið, svo að kostnaðarverð vinnslunnar væri ekki margfalt miðað við gullmagn. Sá drifkraft- ur sósíalismans er hér er um rætt fer því miður fram hjá umfjöllun í fjölmiðlum á íslandi. Það er eins og íslendingar þori ekki að hugsa um óþægilegan sannleika og því síður að ræða hann. Hvers konar sósíalismi Svavar Gestsson sagði í blaða- viðtali fyrir síðustu kosningar, að íslenzkir sósíalistar vildu ekki eiga neitt samneyti við aumingja- skap rússneskra sósíalista. Veturinn 1977—1978 hafði Menningar- og fræðslusamband alþýðu félagsmálaskóla í þremur önnum fyrir alþýðubandalagsfólk. Þar voru kommúnistar á höttum eftir frambærilegu fólki. Þátttak- endur þessara námskeiða fengu í bónus ferð til austantjaldslanda og komu heim laugardaginn fyrir kosningar. Þannig eru nú heilind- in í þeim herbúðum. Ragnar Arnalds hefur stundum talað um heimasmíðaðan sósíal- isma og aldrei skýrt neitt nánar hvað sá sósíalismi hefur fram yfir þann rússneska. Sá, sem nú talar oftast um sósíalisma í fjölmiðlum, án frek- ari skýringar á hvað er að graut- ast í höfði hans, er Einar Karl Haraldsson, Þjóðviljaritstjóri. Rússneskir andófsmenn hafa einmitt lýst því frábærlega hvert sá kraftur er sóttur, sem gefur hina fölsku mynd af Rússlandi. íslenzkir sósíalistar geta kannski svarað því, hvert þeir ætla að sækja framkvæmdaafl í sinn kommúnisma? Ekki náum við í neinar Eystrasaltsþjóðir og ekki er gull á íslandi. Sagan endurtekur sig Þegar Sovétmenn byrjuðu á að flytja Eistlendinga til Rússlands, var fólki smalað í járnbrautarlest- ir og gripaflutningavagna í þús- Finnbjörn Hjartarson. undatali. Þegar þeir voru fullir, var ekkert verið að flýta sér að koma fólkinu á áfangastað. Það var matarlaust og vatnslaust í marga daga. Þannig lézt það í hundraðatali. Þeim sem eftir lifðu var dreift um Sovétríkin í námur hins glæsta sósíalisma — sem vinnafl — þrælar. Nú horfir heimurinn á að fólki er pakkað í skip í Viet-Nam og Kampútseu og þeim sökkt við landsteina. Sósíalisminn fer af stað með sama hætti þar og í móðurlandinu. Draumurinn Við íslendingar höfum gegnum árin hlustað á kommúnista lýsa því hástemmdum orðum hve það tæki Rússland mörg ár að ná velmegun Bandaríkjanna. Ágætt dæmi um þá spádóma kemur fram í viðtali, sem Matthías Johannes- sen átti við Þórberg Þórðarson árið 1959. Þar segir sá oddviti sósíalisma, að það taki Rússa 15—16 ár að ná Bandaríkjunum og fara fram úr þeim. Nú eru árin orðin 20, og það sem gerzt hefur er, að ný tækniöld er fyrir löngu gengin í garð í Bandaríkjunum, öld rafeindafræði, á meðan Sov- étríkin dragast alltaf meira og meira aftur úr. Eru íslendingar ólæsir? Annar spekingur sósíalisma á íslandi, Sverrir Kristjánsson flutti ræðu á fundi í Austurbæjar- bíói á vegum MÍR 10. marz 1953 og talaði þá um Stalin. Hann sagði m.a.: „Og ekki var styrjöldinni fyrr lokið en Stalin kvaddi þjóð sína á nýjan leik til friðsamlegra starfa og benti henni á þær fjarvíddir, er biðu landsins í nýsköpunarstarfi sósí- alismans. Stalíns mun minnzt á spjöldum sögunnar sem eins mesta bylt- ingarmanns allra alda. En hann er einnig skýrasta sönnun þess, að í verkalýðsbyltingunni er fólgin ótæmandi orka friðsamlegrar nýsköpunar. Sósíalisminn er frið- ur í hverri sinni taug. Sósíalism- inn hringir inn tímabil friðarins, friðar milli einstaklinga og friðar milli þjóða. Friðurinn er tilveru- mynd sósíalismans.“ Nokkru síðar sagði Sverrir: „Hinn unga Georgíumann frá Gori hafði einnig dreymt slíka drauma. Hann var svo farsæll, gifta hans svo mikil, að hann sá ekki aðeins þennan draum rætast. Hann gerði drauminn að verul- eika. Vilji mannsins er himnaríki hans, sagði Stalín einu sinni. Milli vilja og athafna Stalíns var aðeins stutt skref." Það má mikið vera að menn klígjar ekki við slíkan lestur. Og ef Islendingar eru ekki gjörsamlega heillum horfnir, ættu þeir að lesa vel greinar Bukovskys og bera þær saman við þennan „sósíaliska frið- flytjanda." Tilvitnuð ræða Sverris Krist- jánssonar er flutt um það leyti þegar Bukovsky er að komast á legg- Og enn reika íslenzkir sósíalist- ar í grárri þoku ímyndana um eigið ágæti. Áð þeir séu færari að framkvæma sósíalisma en þjóð, sem alið hefur menn eins og Tolstoy, Dostojevsky, Thajkovsky og Solzhenitsyn og Vladimir Bukovsky? óhugnaður Þegar Bukovsky flutti erindi sitt á fundi Samtaka um vestræna samvinnu og Varðbergs lét quisl- ingur Rússa á íslandi og Þjóðvilja- ritstjóri sig hafa það að mæta, eflaust til að reyna að finna á honum snöggan blett, þessum margpínda manni. Þá finnur maður enn á ný, að sovéski óhugnaðurinn er kominn inn á gafl á íslandi. Islendingar verða að fara að átta sig á því að engir strengir verða snúnir úr sósíalisku slýi. Sá strengur, sem heldur uppi sterk- ustu þjóðfélögunum er úr allt annarri átt, og um þann streng ræði ég ekki í þessari grein. Samskipti fjölmiðla, stofnana og fyrirtækja verður umræðu- efnið á morgun- fundum Stjórn- unarfélagsins STJÓRNUNARFÉLAG íslands hefur ákveðið að efna til morgunfunda í næstu viku þar sem um- ræðuefnið „Samskipti fjöl- miðla, fyrirtækja og stofn- ana“ verður tekið til um- fjöllunar. Fundirnir verða þrír, 29. októ- ber þar sem ritstjórarnir Styrmir Gunnarsson hjá Morgunblaðinu og Árni Bergmann hjá Þjóðviljan- um munu reifa umræðuefnið: „Ábyrgð og skyldur fjölmiðla gagnvart fyrirtækjum og stofnun- um“. Annar fundurinn verður 31. október, þar sem ritstjórarnir, Hörður Einarsson hjá Vísi og Jón Sigurðsson hjá Tímanum munu reifa umræðuefnið: „Siðferði, völd og áhrif fjölmiðla". Síðasti fundurinn verður svo 2. nóvember þar sem Emil Björns- son, fréttastjóri sjónvarpsins, Páll Heiðar Jónsson, dagskrárgerðar- maður hjá útvarpinu, og Kári Jónasson, fréttamaður hjá útvarp- inu, munu reifa umræðuefnið: „Umfjöllun og fréttaflutningur ríkisfjölmiðla um starfsemi fyrir- tækja og stofnana". Fundirnir hefjast þessa morgna klukkan átta og lýkur stundvís- lega klukkan tíu. Vegna húsnæðis- þrengsla verður tala þáttakenda miðuð við átján.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.