Morgunblaðið - 25.10.1979, Síða 22

Morgunblaðið - 25.10.1979, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 1979 Átti að ráða prmsessuna af dögum...? Kínverska flutningaskipið Yingshan strandaði út af bænum Samani á Hokkaido-eyju í Japan á laugardag, og skömmu eftir strandið brotnaði skipið í tvennt, eins og sjá má á myndinni. Veður víða um heim Akurayri Amsterdam Aþena 12 alskýjaö 11 skýjaó 23 heiöskírt Barcelona 21 skýjað Berlín 9 léttskýjaö BrUscel 14 rigníng Chicago 7 heióskírt Feneyjar 13 heiöskírt Frankfurt 12 heióskírt Genf 14 skýjaó Helainki 4 heióskírt Jerúsalem 22 mistur Jóhannesarborg 23 heiðskírt Kaupmannahöfn 7 skýjaö Las Palmas 23 skýjaö Líssabon 20 léttakýjaó London 14 skýjað Los Angeles 29 heióskírt Madríd 18 heióskírt Malaga vantar Mallorca 22 skýjaó Miami 28 skýjað Moskva 0 skýjað New York 26 skýjaó Ósló 5 léttskýjað París 13 skýjað Reykjavík S skýjaó Rio De Janeiro 37 skýjaó Rómaborg 22 heiðskírt Stokkhólmur 8 léttskýjaö Tel Aviv 28 mistur Tókýó 18 rigning Vancouver 15 rígning Vínarborg 9 skýjaó Einn lézt og margir á sjúkrahús eftir að hafa drukkið tréspíra Frá Jan-Erik Laure, fréttaritara Mbl. í Ósló. — 23. október. ÞRJÁTÍU og fjögurra ára gamall maður lét lífið og 34 voru í skyndi fluttir á sjúkrahús í Ósló frá Kristiansand eftir að hafa drukkið tréspíra, sem þeir héldu vera spíra. Mennirnir, sem fluttir voru á sjúkrahús, eru á aldrinum 18 til 30 ára. Þeir voru ekki taldir í lífshættu en eiga á hættu að missa sjón og hljóta líkamlegan skaða af. Los Angeles. 24. okt. AP. Reuter. BANDARÍSKA dagblaðið The Los Angeles Times segir í dag að gripið hafi verið til mjög víðtækra varúðarráð- stafana í Los Angeles þegar Margrét Bretaprinsessa heimsótti borgina í fyrri viku, þar sem vitað var að háttsettur maður úr írska lýðveldishernum, I.R.A., hafði verið sendur þangað til að ráða prinsessuna af dög- um. Margrét prinsessa er á ferð um Bandaríkin til að safna fé til styrktar Konunglegu óper- unni í London. Hún er nú í San Fransisco, en þaðan fer hún til Cleveland í Ohio-ríki. Fyrr í mánuðinum, þegar prinsessan var í Chicago, hafði dagblað þar í borg það eftir henni að Irar væru „svín“, og átti hún að hafa sagt þetta í umræðum um morðið á frænda hennar, Mountbatten lávarði. Margrét prinsessa hefur algerlega af- neitað þessum ummælum. Los Angeles Times segir að I.R.A. maðurinn hafi komið til borgarinnar um hálfum mán- uði á undan Margréti prins- essu og búið þar á móteli. Hafi hann ráðið kvikmyndatöku- menn í þjónustu sína til að komast að prinsessunni þegar hún átti að opna útibú frá Rolls Royce-bílasmiðjunum í Culver City, utan við Los Angeles. Maðurinn hafði hins vegar ekki látið verða úr árásinni vegna öryggisaðgerða lögreglunnar. Margrét Bretaprinsessa Mennirnir héldu sig vera að drekka spíra, sem þeir keyptu um borð í brazilísku skipi í höfn í Kristiansand. í veizlum í bænum var ólyfjaninnar neytt með fyrrgreindum afleiðingum. Þrjátíu ára gamall brazilískur sjómaður hefur verið handtek- inn fyrir að hafa selt tréspír- ann. Lögreglan í Kristiansand skýrði frá því, að tréspíranum hafi verið tappað af tunnum um borð í skipinu. Fyrir mistök seldi sjómaðurinn tréspírann í stað spírans en í tunnum um borð í skipinu voru hvort- tveggja tréspíri og spíri. Bólusóttúírýmt SÉRFRÆÐINGAR á vegum Al- þjóða heilbrigðismálastofnunar- innar, WHO, hafa lýst því yfir að bólusótt hafi nú verið útrýmt i heiminum. Siðustu bólusóttartil- fellin var að finna á norð-austur- horni Afríku, meðal hirðingja í Eþiópiu, Sómalíu, norðurhiuta Kenýa og Djibuti. Hafa læknar ferðast um þessi héruð að undan- förnu, en hvergi fundið bólusótt. Fyrir aðeins tólf árum hófst herferð gegn bólusótt á vegum WHO, en þá var veikin landlæg í 33 löndum, þar á meðal á Indlandi og í Kína. Með bólusetningum og auknu hreinlæti tókst smám sam- an að útrýma veikinni, og undir lokin fannst hún eingöngu á ofan- greindum svæðum í Afríku. Nú er svo komið, segja sérfræðingarnir, að bólusóttarsýkil er aðeins að finna í sjö rannsóknarstofum, sem WHO hefur eftirlit með, en þangað yrði leitað eftir bóluefni ef sjúk- dómsins yrði einhverntíma vart í framtíðinni. íslenzk mótmæli vegna réttar- haldanna í Prag ÍSLANDSDEILD Amnesty International hefur sent dr. Gustav Husak, forseta Tékkóslóvakíu, mótmæli vegna réttarhaldanna gegn tékknesku andófsmönnunum sex, sem hófust í Prag á mánudag. Orðsendingin er svohljóðandi: „íslandsdeild Amnesty In- ternational mótmælir rétt- arhöldunum gegn félögum VONS-nefndarinnar í Tékkó- slóvakíu og skorar á yður að stöðva réttarhöldin og láta fangana lausa. Við álítum að menn þessir séu sakfelldir fyrir að hafa neytt réttar síns til málfrelsis, sem þeim er tryggður með alþjóða mann- réttindasáttmálanum, sem Tékkóslóvakía er aðili að.“ Eins og fram kom hér í blaðinu í gær hafa andófs- mennirnir sex þegar verið dæmdir. Þetta gerðist Bandaríkjamenn urðu heimsmeistarar í bridge Rió de Janeiro. 21. október. EINU skemmtilegasta og mest spennandi einvígi um heimsmeist- aratitilinn í bridge er lokið. Bandarikjamenn sigruðu ítali i 96 spila einvígi með aðeins fimm punktum. Þegar 15 spilum var ólokið mátti heita að sigur Bandaríkjamanna væri í höfn. Höfðu þeir 66 punkta forskot. Þegar sjö spilum var ólokið höfðu ítalir saxað á forskotið svo að aðeins skildu 11 punktar. Að tveimur spilum óloknum voru punktarnir orðnir 15 Bandaríkja- mönnum í vil og dugði það enda þótt ítalir ynnu 10 punkta í síðasta spilinu. í bandarísku sveitinni voru eftir- taldir spilarar: Eddie Kantar, Bill Eisenberg, Bob Goldman, Paul Soloway, Malcolm Brachman og Mike Passell. Fjórir fyrstnefndu hafa áður orðið heimsmeistarar. Italska sveitin var skipuð eftir- töldum spilurum: Giorgio Bella- donna, Vito Pittala, Benito Gar- rozzo, Lorenzo Lauria, Arturo Franco og de Falco. Allir þessir spilarar nema Lauria hafa unnið heimsmeistaratitilinn Ástralía varð í þriðja sæti, Tai- wan í fjórða sæti, Mið-Ameríka í fimmta sæti og Brazilía rak lestina í sjötta sæti. 1973 — Herafli Bandaríkjanna i viðbragðsstöðu vegna uggs um sendingu sovézks herliðs til Mið- austurlanda. 1971 — Kína fær aðild að Sþ og Taiwan rekið. 1%2 — Kúbu-deilan nær há- marki. 1956 — Sameiginleg herstjórn Egypta, Jórdaníumanna og Sýr- lendinga skipuð. 1951 — Viðræður um vopnahié í Kóreu hafnar aftur í Panmun- jom. 1948 — Vargas neyddur til að segja af sér í Brazilíu. ' 1944 — Orrustan á Filippseyja- hafi. 1941 — Sókn Þjóðverja til Moskvu fer út um þúfur. 1938 — Japanir taka Hankow og kínverska stjórnin flýr til Chunking. 1936 — Þjóðverjar og ítalir mynda öxulinn Róm-Berlín. 1924 — Zinoviev-bréfið birt í Bretlandi. 1909 — Kóreskir ofstækismenn myrða japanska prinsinn Ito. 1900 — Bretar innlima Trans- vaal formlega. 1874 — Bretar innlima Fiji- eyjar. 1854 — Hetjuáhlaup léttvopn- uðu brezku riddaraliðsstórdeild- arinnar við Balaklava á Krím. 1794 — Rússar draga sig út úr ófriðnum við Frakka. 1760 — Georg III verður kon- ungur Bretlands. 1666 — Fjórveldabandalag Hol- lendinga, Brandenborgara, Brúnsvíkinga og Dana myndað. 15% — Spænskur leiðangursher til írlands. 1586 — María Skotadrottning dæmd til dauða. 1415 — Orrustan við Agincourt: Sigur Hinriks V á Frökkum. Afmæli — Thomas B. Macaulay, brezkur sagnfræðingur (1800— 1859) — Johann Strauss yngri, austurrískt tónskáld (1825— 1899) — Georges Bizet, franskt tónskáld (1838-1875) - Rich- ard Byrd, bandarískur heim- skautakönnuður (1888 -1957) - Mikael fv. Rúmeníukonungur (1921 -). Andlát — Geoffrey Chaucer, skáld, 1400 — Giorgione, list- málari 1610 — Georg II Breta- konungur 1760 — William Hog- arth, listmálari 1764. Innlent — íslendingum afhent- ur Keflavíkurflugvöllur 1946 — Sogs8töðin tekur til starfa 1937 — d. Magnús konungur hinn góði Ólafsson 1047 — Árni Helgason vígður biskup 1299 — d. Thomas Kráksson 1311 — Hannes Hafstein útnefndur 1903 — Fyrsta doktorsvörn við Há- skóla íslands 1919 (dr. Páll Eggert Ólason) — Alþingiskosn- ingar (fyrri dagur) 1959 — f. Helgi Valtýsson 1877 — d. Björn Þórðarson ráðherra 1963. Orð dagsins. Hégómagirnd er mesti smjaðrarinn — La Roche- foucauld, franskur rithöfundur (1613-1680).

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.