Morgunblaðið - 25.10.1979, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 1979
Varavið
hættunni
af heima-
bruggi
Stykkishólmi, 24. okt.
AÐALFUNDUR Félags áfengis-
varnanefnda í Snæfellsnes- og
Hnappadalssýslu var haldinn
laugardaginn 13. þ.m. í Stykkis-
hólmi.
Á fundinN mættu fulltrúar víðs
vegar að úr sýslunni, báru saman
bækur sinar og ræddu vandamál
liðandi stundar.
Það fór ekki milli mála að ástand
þessara mála meðal þjóðarinnar er
síður en svo álitið gott. Bæði á
heimilum og á samkomum er
áfengisneysla til mikilla vandræða.
Vita lögreglumenn gerst hvað er að
gerast í þessum efnum. Sú stað-
reynd blasir við að bjór og heima-
brugg er síður en svo til þess fallin
að minnka áfengisneyslu.
Félagið hefir undanfarin ár bent
á hættuna, sem af heimabruggi
stafar, og farið hvað eftir annað
fram á við ráðamenn þjóðarinnar
að bruggefni verði tekið af svo-
nefndum frílista.
Unglingavandamálin virðast
skálkaskjól fullorðinna og afleiðing
af framferði þeirra.
Fundarmenn voru sammála um
að ekki mætti í þessum efnum reka
lengur á reiðanum og bentu á að
fyrir hvert vínveitingahús sem
opnað væri yrði ríkið eða almenn-
ingur að stofnsetja drykkjumanna-
hæli eða afvötnunarstöð og töldu
litla hagsýni í slíku.
Margar tillögur voru ræddar og
samþykktar og meðal annars eftir-
farandi:
1. Fundur í Félagi áfengisvarna-
nefnda í Snæfellsnes- og Hnappa-
dalssýslu ítrekar áskorun sína til
stjórnvalda um að koma í veg fyrir
heimabrugg með því að taka brugg-
efni, sem notuð eru, af frílista.
2. Fundurinn vítir þá ákvörðun
dómsmálaráðherra að lengja sölu-
tíma áfengis í vínveitingahúsum.
Bendir fundurinn á að þessi
ákvörðun er algerlega andstæð
tilmælum Alþjóðaheilbrigðisstofn-
unarinnar og í mótsögn við þá
áfengismálastefnu sem nú er uppi
höfð í flestum menningarlöndum
og grundvallast á víðtækum vís-
indarannsóknum. Lýsir fundurinn
ábyrgð á hendur ráðherra vegna
þessa athæfis enda var augljóst í
fyrra að ekki var meirihluti á
Álþingi fyrir þessari ákvörðun.
3. Fundurinn varar við þeim
hugmyndum sem fram hafa komið
um lækkun lögaldurs til áfengis-
kaupa. Bendir fundurinn á hörmu-
legar afleiðingar slíkra lækkana í
nokkrum fylkjum Bandaríkjanna,
svo og það að Norðmenn og Svíar
hafa ekki lækkaö lögaldur til kaupa
á sterkum drykkjum þó að þeir hafi
fært lögræðis- og kosningaaldur í
18 ár. Virðist ástæðulítið að end-
urtaka tilraunir, sem mistekist
hafa vestanhafs, á íslenskri æsku.
4. Aðalfundur Félags áfengis-
varnanefnda í Snæfellsness- og
Hnappadalssýslu lítur með vaxandi
ugg á vínveitingaleyfi sem yfirvöld
veita félagasamtökum og telur að
þar sé um að ræða fordæmi til hins
verra. Fundurinn álítur að þessum
leyfum verði að fækka ef árangur á
að nást í að stemma stigu við því
böli sem af áfengisneyslu stafar.
Skorar fundurinn á dómsmála-
ráðherra að hlutast til um að
Hækkuð verði gjöld fyrir þessi
leyfi, a.m.k. í 50.000.- kr. —
Fréttaritari.
Þessi mynd var tekin í skoðunarferð i Svartsengi, og á myndinni er alþjóðaforsetinn ásamt Lionsmönnum á
íslandi. Ljósmynd Mbl. Emilia.
Heimsforseti Lions á íslandi
SÍÐDEGIS á þriðjudag kom
hingað til lands Lloyd Morgan,
alþjóðaforseti Lionshreyfingar-
innar, en hann er ættaður frá
Nýja Sjálandi. Kom forsetinn
hingað frá Kaupmannahöfn, en
hann er um þessar mundir á
ferðalagi, og með honum í förinni
er eiginkona hans, Ngaire Morg-
an.
Ólafur Þorsteinsson, fjölum-
dæmisstjóri Lions á Islandi tók á
móti forsetanum, ásamt ýmsum
embættismönnum hreyfingarinn-
ar hér. Var haldið þegar í stað í
orkuverið í Svartsengi, en vegna
veðurs varð ekki af móttökuathöfn
á flugvelli.
í Svartsengi tóku Lionsmenn á
Suðurnesjum á móti forsetanum
og Ingólfur Aðalsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Hitaveitu Suður-
nesja, sýndi orkustöðina.
í morgun, miðvikudag, hélt
Lloyd Morgan til Akureyrar í
stutta heimsókn til Norðurlands,
en síðdegis í dag mun hann eiga
viðræður við forsætisráðherra
íslands, Benedikt Gröndal.
Á fimmtudag er ráðgert að
alþjóðaforsetinn fari til Vest-
mannaeyja, en á fimmtudagskvöld
verður hann viðstaddur Lions-
hátíð á Hótel Sögu, sem hefst kl.
19.30, og er það hápunktur þessar-
ar heimsóknar.
Lloyd Morgan mun halda af
landi brott á föstudag með áætl-
unarflugvél Flugleiða til Glasgow.
(FréttatilkynninK).
GENGIN er í gildi reglugerð um
samráð stjórnvalda um efna-
hagsmál og kjaramál við samtök
launafólks, bænda og atvinnurek-
enda, sem ólafur Jóhannesson.
fyrrum forsætisráðhcrra setti
samkvæmt heimild i lögum um
stjórn efnahagsmáia o. fl. Sam-
þykkti fyrrverandi ríkisstjórn
reglugerðina, sem tók gildi 19.
október síðastliðinn.
í reglugerðinni er gert ráð fyrir
að minnsta kosti ársfjórðungsleg-
um samráðsfundum fulltrúa ríkis-
stjórnarinnar og samráðsnefndar
hverra samtaka um sig. Þessi
samtök eru: Alþýðusamhand Is-
lands, Farmanna- og fiskimanna-
INNLENT
samband íslands, Bandalag
starfsmanna ríkis og bæja,
Bandalag háskólamanna, Sam-
band íslenzkra bankamanna,
Stéttarsamband bænda, Samband
íslenzkra sveitarfélaga, Vinnu-
málasamband samvinnufélaganna
og Vinnuveitendasamband ís-
lands. — Samtökin ákveða sjálf
fjölda fulltrúa í samráðsnefnd
sinni, en ríkisstjórnin tilnefnir
þrjá fulltrúa af sinni hálfu.
I fréttatilkynningu frá forsætis-
ráðuneytinu segir, að verkefni
samráðsins sé að ræða meginþætti
í efnahagsmálum og helztu efna-
hagsmarkmið ríkisstjórnar bæði
frá ári til árs og til lengri tíma.
Markmiðið með samráðinu á
þessu sviði sé að leggja grundvöll
að samræmdum ákvörðunum í
opinberum fjármálum, peninga-
og lánamálum, lífeyrismálum og
verðlagseftirliti af opinberri
hálfu, og á sviði kjaramála af
hálfu aðila vinnumarkaðarins.
Auk þess verður í samráðinu
fjallað um þjóðhagsáætlanir, fjár-
festingaáætlanir, lánsfjáráætlan-
ir, tekjustefnu og forsendur
þeirra. Þar að auki geti samráðið
tekið til þess sem til framfara
þykir horfa í atvinnumálum,
launamálum og efnahagsmálum.
Auk samráðsfunda með einstök-
um samráðsaðilum, kveður reglu-
gerðin á um árlegan, sameigin-
legan fund þeirra allra, sem for-
sætisráðherra kallar saman fyrir
15. október. Fyrir þann fund
leggur forsætisráðherra skýrslu
um þjóðhagsáætlun fyrir næsta
ár. Á þennan sameiginlega fund
tilnefndir Alþýðusamhand íslands
sex fulltrúa, Vinnuveitendasam-
bandið fimm, BSRB og Vinnu-
málasambandið tvo hvort og
FFSÍ, BHM, Samband íslenzkra
bankamanna, Stéttarsamband
bænda og Samband sveitarfélaga
einn hvert.
Skartgripa-
verzlun Jóns
Sigmundssonar
75 ára
JÓN Sigmundsson
gullsmiður auglýsti í
Isafold 29. október 1904
að hann hefði hafið
starfsemi sína hér í bæ
að Grjótagötu 10.
Verslunin er því 75 ára
um þessar mundir. Hún
var lengst af við Lauga-
veg 8 en er nú í Iðnað-
arhúsinu við Hallveig-
arstíg. Forstöðumaður
fyrirtækisins er Símon
Ragnarsson gullsmið-
ur, sonarsonur Jóns
Sigmundssonar.
I tilefni afmælisins
hefur verslunin látið
gera safn gullhringa
undir kjörorðinu
„Demantur er almenn-
ingseign". Safn þetta er
til sýnis í versluninni
um þessar mundir.
Reglugerð um samráðs-
nefnd tók gildi fyrir helgina
Var samþykkt af fyrrv.ríkisstjórn og gefin út af Ólafi Jóhannessyni
Vetrarfundur SÍR
VETRARFUNDUR Sam-
bands íslenskra rafveitna
verður haldinn í dag, 25.
október, að Hótel Sögu í
Reykjavík og hefst hann kl.
8.45 f.h. Aðalsteinn Guð-
johnsen formaður SÍR setur
fundinn en aðrir þeir sem á
fundinum munu tala eru:
Jakob Jónsson orkumála-
stjóri, Gunnar Ámundason
rafmagnsverkfræðingur,
Ingólfur Ágústsson rekstrar-
stjóri, Karl Ragnars verk-
fræðingur, Steinn Frið-
geirsson deildarverkfræð-
ingur og Finnbogi Jónsson
verkfræðingur. Auk þess
verða almennar umræður.
Opinn A.A.
fundur
á ísafirði
A.A.-samtökin halda opinn fund í
Gúttó-húsinu á ísafirði laugar-
daginn 27. okt. n.k. kl. 16.00.
Félagar frá Reykjavík mæta á
fundinn, sem er öllum opinn. Á
dagskrá er kynning á starfsemi
A.A. samtakanna.
Hveragerði:
Sjálfstæðisfélagið Ing-
ólfur hefur vetrarstarf
Hveragerði 23. október.
Sjálfstæðisfélagið Ingólfur hóf
vetrarstarf sitt með almennum
félagsfundi í gærkvöldi. Rædd voru
framboðsmál og nýir félagar voru
teknir inn. Gestur fundarins var
Albert Guðmundsson fyrrv. alþing-
ismaður sem ræddi um stjórnmál
fyrr og nú. Fundurinn var f jölsótt-
ur og urðu mjög almennar umræð-
ur og var ríkjandi mikil ánægja
með fundinn.
Fyrirhugað er mikið starf í vetur
og næsta verkefni verður hin árlega
leikhúsferð til Reykjavíkur. Þá er að
sjálfsögðu mikið starf franiundan
vegna Alþingiskosninganna í byrjun
desember og eru félagsmenn hvattir
til þess að hjóða sig fram til starfa
svo að sigur Sjálfstæðisflokksins
verði sem stærstur. — Sigrún.
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavlk:
Hvernig á að kjósa?
Hverjir mega kjósa?
Hvernig er talið?
í PRÓFKJÖRI Sjálfstæðis-
flokkaiiui i Reykjavik á að kjósa
átta frambjóðendur, hvorki
færri né fleiri. Það skal gert með
þvi að setja tölustafi frá einum
upp í átta fyrir framan nðfn
frambjóðendanna, en þeim er
raðað á atkvæðaseðilinn eftir
stafrófsröð. AtkvæðaseðiIIinn er
ógildur séu kosnir fleiri en átta,
og einnig ef merkt er við færri
en átta frambjóðendur.
Til þess að úrslitin Verði bind-
andi fyrir kjörnefnd þurfa 6504
Reykvíkingar að taka þátt í
prófkjörinu, og auk þess þurfa
einstakir frambjóðendur að fá
minnst 50% atkvæða til að kosn-
ing þeirra sé bindandi.
Rétt er að vekja athygli á þvi,
að þátttaka í prófkjörinu er opin
óflokksbundnum . stuðnings-
mönnum Sjálfstæðisflokksins
ekki síður en hinum flokks-
bundnu.
Talning fer þannig fram, að
fyrst eru talin saman þau at-
kvæði er frambjóðendur fá í
fyrsta sæti. Sá er flest atkvæði
hlýtur í fyrsta sæti skipar það, en
atkvæði annarra í það sæti telj-
ast jæim til tekna í næstu sæti
fyrir neðan. Þannig mun sá skipa
annað sætið sem fær flest at-
kvæði í fyrsta og annað sætið, sá
skipar þriðja sætið sem flest
atkvæði fær í fyrsta, annað og
þriðja sæti, og þannig koll af
kolli. Framhjóðanda nýtast ekki
þau atkvæði er hann fær í sæti
fyrir neðan það er hann hafnar í.
Sá frambjóðandi til dæmis, sem
flest atkvæði hlýtur í fyrsta,
annað, þriðja, fjórða, fimmta og
sjötta sæti, fær sér ekki talin þau
atkvæði er hann kann að fá S
sjöunda og áttunda sæti.