Morgunblaðið - 25.10.1979, Side 33

Morgunblaðið - 25.10.1979, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER 1979 33 hins vegar um svör hinna þriggja. Meðan svo er get ég ekki játað því að konur standi jafnt að vígi og karlmenn. En þar sem orsakarinnar er fyrst og fremst að leita í uppeldi kynslóðar sem bjó við önnur og ólík viðhorf er það trú mín að dætur og synir okkar, sem stönd- um í miðpunkti þessara öru þjóð- félagsbreytinga, eigi eftir að standa jafnar að vígi en nú er. Erna Ragnarsdóttir innanhússarkitekt: Breyta þarf ímyndinni — hinni sögulegu hefð Svarið við þessari spurningu er afdráttarlaust neikvætt. Konur sækja ekki fram til þátttöku í stjórnmálum af sömu ástæðum og þær sækjast yfirleitt ekki eftir forystuhlutverki eða krefjandi ábyrgðarstörfum í þjóð- félaginu. Þetta ástand mun vara; — á meðan sú skoðun ríkir að hlutverk kvenna sé að þjóna, fórna og standa að þaki karlmannanna, í stað þess að ganga fram fyrir skjöldu sem fullgildir einstakl- ingar með hæfileika sem verða að fá að nýtast þeim sjálfum og samfélaginu; — á meðan konur skortir yfir- leitt trú á sjálfa sig og sitt eigið kyn og þar af leiðandi traust annarra; — á meðan meginábyrgðin á uppeldi barna og hvers konar þjónusta á heimilinu er á herðum kvennanna; — á meðan við gerum ekki gangskör að því að breyta viðmið- uninni, ímyndinni, hinni sögulegu hefð, að eingöngu karlmenn stjórni; Konum verður að gefast kostur á að taka mun virkari þátt í ákvarðanatöku á öllum sviðum þjóðlífsins. Það er lýðræðisleg krafa en ekki síður samfélagsleg vegna þess að konur hafa annars konar reynslu en karlar og er konur og karlmenn vinna hlið við hlið næst mun meiri breidd í viðhorfi til verkefnanna en annars er mögulegt. Væru konur til jafns við karl- menn í forystu þjóðmála, væri það öðrum konum í landinu mikil hvatning til virkari þátttöku í þeirri umræðu og ákvarðanatöku. í uppeldinu er fordæmið sem móðir veitir dóttur án efa þyngst á metunum, fordæmi móður sem tekur sjálfa sig alvarlega og leit- ast við að axla ábyrgð samfélags- ins jafnhliða skyldum sínum sem foreldri. Jóhanna V. Gísla- dóttir mennta- skólanemi: Velja fólk með tilliti til skoðana Ég tel að konur og karlar standi tiltölulega jafnt að vígi í almennu stjórnmálastarfi. Þegar konur sækjast hins vegar eftir að komast í valdamiklar og eftirsóttar stöður virðast þær standa verr að vígi. Það er talið æskilegt að konur séu með, en ákveðinnar andstöðu gæt- ir þegar þær hyggjast ganga örlítið lengra en áður hefur tíðkast. Hugarfarsbreytingar er þörf til að aðstæður batni. Það á að velja fólk með tilliti til skoðana, hæfi- leika o.s.frv. en kynferði á engu máli að skipta. Jóna Gróa Sigurðar- dóttir húsmóðir: Er umhverf- ið andsnúið? Því ekki? Samkvæmt gildandi lögum er kynjunum ekki mismunað. í lög- um um grunnskóla er það tryggt að allir nemendur skuli hafa sömu námstækifæri. En eins og þessar tölur sýna glöggt, hafa konur gefið sig minna að pólitísku starfi til þessa. Nú má spyrja: Er umhverfið þeim andsnúið? Eru ríkjandi hefðir þeim til traf- ala? Stendur eðli þeirra síður til þjóðmálabaráttu? Skyldu foreldrar draga úr pól- itískum áhuga dætra sinna? Svona mætti lengi spyrja. Vera má að misrétti kynjanna sé ennþá ríkjandi í þjóðfélaginu, en það er annað þessu tengt sem ég held að meiri hluti kvenna láti sig miklu varða, en það er uppeldi næstu kynslóðar. gangskör Umsjón Þórunn Gestsdóttir Ragnhildur Helga- dóttir fyrrv. alþm.: Réttur og hæfni er ekki kynbundin Ég skil spurninguna svo, að hún fjalli um hina uppvaxandi kynslóð. Spurt er hvort jöfn sé aðstaða dætra og sona til að hefja þátttöku í stjórnmálum. Spurn- ingin er ekki um staðreyndir um stjórnmálaþátttöku, heldur um aðstöðu. Svar mitt er hiklaust játandi. Réttur og hæfni til stjórnmála- þátttöku er vitanlega ekki kyn- bundin. Nútíma uppeldi og fræðsla í skólum landsins gerir stúlkur og drengi nákvæmlega jafnvel hæf til félagsstarfa, ákvarðana og stjórnar. Og réttur- inn til slíks er jafn. Ástæða er til að hvetja ungar stúlkur til að nota þessa aðstöðu enn betur en nú og vera ósmeykar vi að fara nýjar eða fáfarnar leiðir. Islandi veitir ekkert af því að ungt og skynsamt fólk, bæði stúlkur og piltar noti þann mögu- leika, sem gefst með þáttöku í stjórnmálum til að hafa bætandi áhrif á umhverfi sitt og framtíð þjóðar sinnar. Salome Þorkels- dóttir gjaldkeri: Verðum að keppa á jafn- réttis- grundvelli Svo er fyrir að þakka að við búum í lyðfrjálsu landi, þar sem konur og karlar hafa jafnan rétt. Því ætti ekki að vera neitt til fyrirstöðu að dætur og synir standi jafnt að vígi að hefja þáttöku í stjórnmálum. En því miður er það staðreynd að konur láta oft gamlar venjur og fordóma hafa áhrif afafstöðu sína til að vera virkir þátttakendur. Oft finnst okkur konum ekki vera tekið nægjanlegt tillit til okkar á þjóðmálavettvangi, en við verðum að gera okkur grein fyrir því, að slíkt gerist ekki af sjálfu sér. Við verðum að sýna hæfni okkar og keppa við karlmennina á jafnréttisgrundvelli. Hitt er svo annað mál, að forréttindi konunnar — móður- hlutverkið — verður aldrei frá henni tekið, og í frumbernsku þarf barnið á henni að halda. Á því tímabili hlýtur hún að vera verr sett til að taka virkan þátt. Sá tími sem móðirin helgar sig barnauppeldi getur orðið henni ómétanlegur reynslutími, sem gerir hana hæfari en ella að taka afstöðu á þjóðmálavettvangi síðar. Með sveigjanlegri vinnutíma og breyttu viðhorfi foreldra á verka- skiptingu innan heimilis, öðlast faðirinn jafnframt aukin tækifæri til að vera meira samvistum við börn sín. Ef ég hefði verið spurð fyrir svo sem 10—15 árum hefði ég svarað spurningunni neitandi. Konur sem á þeim tíma gáfu sig að stjórnmál- um, öðrum félagsstörfum eða fóru að vinna utan heimilis, höfðu oft að veganesti, vonda samvizku af því að þær væru að bregðast skyldum sínum við heimilis- og uppeldisstörfin. Viðhorfin hafa breytzt, það er nú skilningur á því að konur, sem áhuga hafa á þessum málum, eigi að hafa tæki- færi til þess að vera virkir þátt- takendur, og það sem meira er um vert, að það sé þörf á að nýta þeirra hæfileika. Mín skoðun er því sú, að þróun- in sé í rétta átt, og að innan tíðar verði ekki þörf á að hvetja konur umfram karla, í fjölmiðlum, til að gefa kost á sér á framboðslista fyrir kosningar, eins og nú þarf að gera. Sigurlaug Bjarna- dóttir mennta- skólakennari: Ótvíræð þjóðfélags- leg skylda Tvímælalaust ekki — enn sem komið er. Ríkjandi viðhorf í okkar þjóðfélagi ganga enn út frá því, að uppeldi stúlkna skuli miðast fyrst og fremst að því að búa þær undir barnauppeldi og heimilisstörf, það sé karlanna að sinna almennutn þjóðmálum og stjórnmálastarfi. Þessi viðhorf eru þó greinilega á undanhaldi, einkum meðal yngra fólks. En þróunin gengur fjarska hægt, og þannig muh hún silast áfram, þangað 'til konúr' sjálfar vakna til vitundar útn, að það er ekki aðeins réttur þéirra, heldur ótvíræð þjóðfélagsleg skýldá að taka sjálfstæða, pólitíska afstöðu og sækja fram til aukinna áhrifa í stjórnmálum við hlið karla. Konur verða að sýna virka samstöðu, eigi árangur að nást. Leggjum rækt við heimili og fjölskyldu, en látum það samt ekki útiloka okkur frá því að beita okkur á öllum sviðum þjóðlífsins eftir því sem hugur og hæfileikar standa til Vinnum að jafnari verkaskiptingu kynjanna — jafn- rétti í reynd. Vorió þegar mest gekk á Ný unglingabók: Vorið þegar mest gekk á ÚT ER komin hjá IÐUNNI ungl- ingabókin Vorið þegar mest gekk á eftir sænska höfundinnGunnel Beckman. Jóhanna Sveinsdóttir þýddi. Þetta er sjálfstætt fram- hald sögunnar Þrjár vikur fram yfir sem út kom í fyrra. — Sagan gerist vorið sem Maja verður átján ára. Sambandi hennar og Jonna sem svo mikil áhrif hafði í fyrri sögunni, er nú lokið og ný kynni takast. Á kápubaki bókar- innar segir svo meðal annars. „Það var vorið þegar Maja áttaði sig smám saman á ýmsu sem áður var hulið, þegar hún byrjaði að skilja sín eigin viðbrögð og annarra. Vaknaði til vitundar um ábyrgð hvers og eins.“ Gunnel Beckman hefur meðal annars hlotið Nilla Hólmgeirs- sonar-verðlaunin sem er mesta viðurkenning sem sænskum barnabókahöfundum er veitt. — Vorið þegar mest gekk á er 131 bls. Prisma prentaði. Fyrirlestur um dulspeki Blaðinu hefur borizt eftirfarandi frá Rósarkrossreglunni: Rósarkrossreglan á íslandi heldur almennan fyrirlestur í Norræna húsinu á laugardag kl. 2. Fyrirlesturinn nefnist „Dul- speki í vestrænu þjóðfélagi“, og er öllum opinn. A eftir verður svarað fyrirspurnum um regluna og starfsemi hennar. Rósarkrossreglan er alþjóðleg Regla manna og kvenna. Hún leggur áherslu á dulsálarfræði og heimspeki, sem miðar við að vekja þá þætti í eðli einstaklingsins sem liggja í dvala, þannig að hann geti nýtt meðfædda hæfileika sína og lifað hamingjusömu og nýtu lífi. Reglan nær þessu takmarki með persónulegum leiðbeiningum og kennslu, sem eru fólgnar í að fræða hann um lögmálin í heimin- um í kringum hann og í honum sjálfum. Þetta sameinast allt í lifandi heimspeki, dulsálarhug- myndafræði og raunvísindum eins og eðlisfræði, efnafræði, líffræði, heilsufræði og sáiarfræði. Reglan leitast einnig við að eyðu hjátrú hindurvitnum með fræðslu. Rós- arkrossreglan er alls ekki trúar- legs eðlis og þar sgm reglan er alþjóðleg hefur hún í hópi sínum fólk af ölium kynþáttum og trúar- brögðum. Enn hafa fræði Reglunnar ekki verið þýdd á íslenzku. í dag eru þau m.a. skrifuð á dönsku, sænsku og ensku. Þeir sem hafa áhuga á að fá upplýsingar um hvernig þeir geta numið fræði Reglunnar er velkomið að skrifa til Rósarkross- reglunnar, Atlantis Pronaos, Pósthólf 7072,127 Reykjavík, Ros- enkors-ordenen, AMORC, Box 7090, 40232 GÖTEBORG 7, Sverige eða Rosicrucian Order, San Jose, Cal. 95191, U.S.A. (Fréttatilkynning)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.