Morgunblaðið - 27.11.1979, Qupperneq 1
262. tbl. 66. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 1979
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Síðustu árásarmenn-
irnir umkringdir í
kjallara moskunnar
Allir verða að her-
væðast og ráðast gegn
„djöfullegu valdi“
Riyadh — 26. nóvember — AP
SÍÐUSTU dfgamennirnir, sem náðu
moskunni miklu á sitt vaid i siðustu
viku, hafa verið króaðir af i
kjallaragimaldinu undir helgi-
dómnum, að þvi er Yamani, oliu- og
upplýsingaráðherra, skýrði frá i
útvarpi í kvöld. Hermenn munu enn
bíða með lokaáhlaupið i von um að
ná mönnum lifandi og til að komast
hjá þvi að valda frekari spjöllum á
helgidómnum en þegar er orðið.
Yamani nefndi ekki hversu margir
mennirnir væru, en hann sagði að
efri hæðir moskunnar og mínarett-
urnar sjö væru nú allar á valdi /
stjórnarhersins.
Yamani sagði, að skömmu eftir
árás öfgamannanna hefðu öryggis-
sveitir saudi-arabíska hersins slegið
skjaldborg um moskuna og hefðu
þær verið reiðubúnar að endur-
heimta helgidóminn úr höndum
árásarmanna þegar í stað. Kahled
Spuming uin
varnarvilja
— segir Carrington
Brössel — 26. nóvember — AP
„ÁKVÖRÐUN ráðherra NATO-
ríkjanna í næsta mánuði um
hvort 572 meðaldrægum eldflaug-
um skuli komið fyrir í Vestur-
Evrópu mun leiða í ljós hvort
Evrópuríki hafa döngun í sér til
að verja sig sjálf,“ sagði Carr-
ington utanríkisráðherra Breta i
dag. Carrington kvaðst ekki
búast við því að ákvörðun
NATO-ríkjanna um slíka endur-
nýjun á varnarkerfi sínu hefði i
för með sér andstöðu Soveíríkj-
anna við frekari afvopnunarvið-
ræður.
Almennt er búizt við því, að
utanríkis- og varnarmálaráðherr-
ar Atlantshafsbandalagsins sam-
þykki á fundi sínum í Brussel í
desember að koma fyrir í Vestur-
Evrópu 108 Pershing-2 eldflaugum
og 464 sjálfstýrðum eldflaugum,
þrátt fyrir töluverða andstöðu
ýmissa stjórnmálaflokka í aðild-
arríkjunum um þessar mundir. Af
hálfu Sovétríkjanna stendur nú
sem hæst áróðursherferð gegn
eldflaugamálinu, en slíkar her-
ferðir eru algengar þegar ákvarð-
anir eru teknar um vopnabúnað
vestrænna ríkja.
konungur hefði hins vegar viljað
freista þess í lengstu lög að koma í
veg fyrir átök, manntjón og
skemmdir á helgidómnum. Að lokum
hefði þó ekki verið um annað að
ræða en að ráðast til atlögu og hefði
moskan þá verið endurheimt. Nokkr-
ir árásarmenn hefðu þó flúið niður
í hvelfinguna undir helgidómnum,
þar sem þeir væru nú umkringdir, og
væri þess skammt að bíða að þeir
gæfust upp.
Dó ef tir
sniglaát
Nancy — 26. nóvember — AP
27 ÁRA methafi í sniglaáti,
Marc Quinquandon, andað-
ist í sjúkrahúsi i Nancy í
gær eftir að hafa sporðrennt
sex tylftum snigla á þremur
mínútum og fjórum sekúnd-
um.
Quinquandon hafði verið
heiðursgestur í sniglaveizlu á
laugardagskvöldið. Hafði
hann á orði að sér liði ekki
sem bezt eftir átið og var
fluttur í sjúkrahús á sunnu-
dagsmorgun.
Met hans í sniglaáti var frá
því í júlí, en þá hámaði hann
í sig tólf tylftir á 11 mínút-
um. Hann hafði sett sér það
mark að slá það met á næsta
ári og eta þá 200 snigla á
stundarfjórðungi, en kona
hans hefur að undanförnu
reynt að fá hann til að halda
í við sig af heilsufarsástæð-
um. Maðurinn vó rúm 180
kíló er hann lézt.
Jedda — 26. nóvember — AP
BOEING 707 frá Pakistan In-
ternational Airlines, með 146
pílagríma og 11 manna áhöfn,
fórst rúmum hálftima eftir flug-
tak frá Jedda i morgun.
—segir Khomeini
Teheran — 26. nóvember — AP.
KHOMEINI trúarleiðtogi var ær
i garð Bandaríkjanna í ræðu sem
hann flutti i hinni helgu borg
Qom i dag. Kvað hann alla þegna
sína verða að hervæðast svo hægt
væri að ráðast af alefli gegn
„djöfullegu valdi“ Bandarikj-
Pílagrimarnir voru allir frá Pak-
istan, en þotan var á leið til
Karachi. Að sögn forráðamanna
flugfélagsins kviknaði í þotunni
rétt eftir að hún hóf sig til flugs.
Siðan varð sprenging og steypt-
anna. Sagði Khomeini að nú væri
allt i húfi fyrir írani, — ef þeir
beindu ekki kröftum sínum
óskiptum að því að yfirbuga
Bandarikin væri saga þeirra
senn öll.
„Allir verða að læra að fara með
vopn og skjóta," sagði Khomeini,
„því að öðru vísi kemur trúar-
styrkurinn okkur ekki að gagni.
ist þotan þá til jarðar. Brakið
dreifðist yfir mikið svæði rétt
fyrir norðan hina helgu borg
múhameðstrúarmanna, Mekka,
og komst enginn lífs af.
Tölur um þá sem fórust með
þotunni eru nokkuð á reiki, en
loftferðaeftirlitið í Saudi-Arabíu
telur að 166 hafi verið um borð.
Starfsmenn PIA-flugfélagsins í
Jedda telja ekki útilokað að um
skemmdarverk hafi verið að ræða,
en í Karachi segja forráðamenn
félagsins að skammhlaup hafi
orðið í þotunni og hafi það orsakað
íkveikju. Á fundi með frétta-
mönnum í Karachi kom fram að
30 mínútum eftir flugtak hafi
flugstjórinn tilkynnt að ekki væri
allt með felldu, reykur væri í
farþegarými og stjórnklefa, og
hafi hann farið fram á leyfi til
lendingar. Rétt á eftir steyptist
þotan til jarðar, og kom niður í
fjalllendi norður af Mekka. Þyrlur
saudi-arabíska flughersins fundu
flakið í fjalllendi eyðimerkur, og
dreifðist það um 8 ferkílómetra
svæði, sem er mjög örðugt yfir-
ferðar.
Þjóð, sem að fáum árum liðnum
mun eiga 20 milljónir æsku-
manna, verður líka að eiga 20
milljónir manna undir vopnum."
Skömmu eftir að ræðu Khom-
einis var útvarpað var lesin orð-
sending frá byltingarráðinu um að
senn hæfist skipulögð herþjálfun
um allt landið, og væri frekari
tilkynninga að vænta um hverjir
skyldu taka þátt í henni.
Ólgan í landinu fer stöðugt
vaxandi, og trúarleiðtogar hafa
hvatt til víðtækari mótmælaað-
gerða gegn Bandaríkjastjórn en
áður. Jafnframt hafa þeir ítrekað
fyrri brigzl um að Bandaríkja-
stjórn hafi staðið fyrir innrásinni
í Moskuna miklu í Mekka.
I nótt söfnuðust þúsundir
manna saman fyrir utan banda-
ríska sendiráðið í Teheran, en
hingað til hafa nætursamkomur
ekki verið haldnar fyrir utan
sendiráðið. Margir mótmælenda
klæddust hvítum skikkjum, sem
tákna vilja til að deyja fyrir
málstaðinn. „Carter dauðan, keis-
arann dauðan," hrópaði múgurinn.
Hjá Sameinuðu þjóðunum hefur
verið samþykkt að öryggisráðið
komi saman til fundar til að ræða
málið hið allra fyrsta, en ekki
hefur verið ákveðið hvenær.
Bandaríkjastjórn lýsti því yfir í
kvöld, að ekki yrði setzt að samn-
ingaborði með íransstjórn nema
öruggt væri að slíkar viðræður
leiddu til tafarlausrar frelsunar
gíslanna 49, sem enn eru í sendi-
ráðinu.
Bandarískur þingmaður, George
Hansen, er staddur í Teheran á
eigin vegum, og fékk hann að ræða
við gíslana í sendiráðinu á sunnu-
daginn. Kvað hann fólkið þreytt
en við bærilega liðan að öðru leyti.
Bandaríkjastjórn hefur látið í ljós
áhyggjur af ferðalagi Hansens, og
telur afskipti hans geta spillt fyrir
samningum.
Símamynd AP.
Hundruö ættingja og vina biðu pilagrima, sem væntanlegir voru til Karachi, en Boeing-þotan fórst
skömmu eftir flugtak frá Jedda i Saudi-Arabíu.
Boeing-þota í pílagríma-
flugi fórst með 157 manns