Morgunblaðið - 27.11.1979, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 1979
Ellert B. Schram:
Framsóknar-
menn vilja nýj-
an vegaskatt
FÉLAG ísl. bifreiðaeig-
enda hélt sl. laugardag
fund þar sem fulltrúum
stjórnmálaflokkanna var
boðið að koma og f jalla um
stefnu flokkanna í vega-
málum. Fluttu þar fram-
söguerindi Ellert B.
Schram fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn og Bjarni Ein-
arsson fyrir Framsóknar-
flokkinn, en fulltrúar Al-
þýðuflokks og Alþýðu-
bandalags komu ekki til
fundarins.
í framsöguræðu sinni
vakti Ellert B. Schram at-
hygli fundarmanna á því,
að í fjárlagafrumvarpinu,
er fyrrverandi ríkisstjórn
undirbjó og Tómas Árna-
son lagði fram með fyrir-
vara hinna flokkanna,
kæmi fram að leggja ætti á
landsmenn nýjan vegaskatt
til að afla fjár til lagningar
bundins slitlags á þjóðvegi
Greiðfært
nema um
Vestfirði
GREIÐFÆRTer nú víðast hvar um
landið nema hvað óíœrt er um
Vestfirði.
Samkvæmt upplýsingum vegaeft-
irlitsmanna eru KÍettháls og Dynj-
andisheíði ófærar og ekki víst hve-
nær heiðarnar verða mokaðar. Er
greiðfært að mestu leyti um aðra
landshluta og fært stórum bílum og
jeppum um Möðrudalsfjallgarð.
landsins. Kvað Ellert nú
þegar nóg komið af skatt-
lagningu á bíleigendur og
lýsti andstöðu sinni við
hugmyndum um auknar
álögur á bíleigendur.
Sóttu ekki
fund F.Í.B.
FÉLAG íslenzkra bifreiða-
eigenda boðaði til fundar
siðastliðinn laugardag og
var þar öllum fjórum
stjórnmálaflokkunum boð-
ið að hafa framsögu. Sam-
kvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins sóttu
hvorki fulltrúar Alþýðu-
bandalags né Alþýðu-
flokks fundinn.
Alþýðuflokkur sendi félag-
inu tilkynningu 15 til 20
mínútum eftir að fundurinn
átti að hefjast og kvaðst ekki
geta sent neinn fulltrúa til
fundarins. Alþýðubandalag
mætti ekki. Eftir því sem
fulltrúar félagsins sögðu í
gær, mun Eiður Guðnason
hafa ætlað að sækja fundinn.
Hins vegar var aldrei algjör-
lega ákveðið, hver yrði full-
trúi Alþýðubandalagsins á
fundinum, en rætt hafði verið
um Þorstein Magnússon og
Guðrúnu Hallgrímsdóttur.
e>
INNLENT
Skoðanakönnun Dagblaðsins:
Svipuð niður-
staða og hjá Vísi
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
verður sigurvegari kosninganna
og bætir við sig 6 þingmönnum,
samkvæmt skoðanakönnun sem
Dagblaðið lét framkvæma um
helgina.
Samkvæmt skoðanakönnuninni
fær Alþýðuflokkurinn 14,4% at-
kvæða og 9 þingmenn, tapar fimm,
Framsóknarflokkurinn fær 22,3%
atkvæða og 13 þingmenn, bætir
við sig einum þingmanni, Sjálf-
stæðisflokkurinn fær 41,9% at-
kvæða og bætir við sig sex þing-
mönnum eins og fyrr er getið og
Alþýðubandalagið fær 19,0% at-
kvæða og 11 þingmenn, tapar
þremur þingmönnum. Þá nær
Eggert Haukdal kjöri á Suður-
landi samkvæmt könnuninni. Ekki
kemur fram í frétt Dagblaðsins
hve stórt úrtakið var í skoðana-
könnuninni en 20% þeirra sem
spurðir voru höfðu ekki ákveðið
sig ennþá, 8,5% vildu ekki svara
og 6,5% ætluðu að skila auðu eða
kjósa ekki.
Fyrir síðustu helgi birti Vísir
niðurstöðu skoðanakönnunar sem
blaðið lét framkvæma og sam-
kvæmt henni fengi Alþýðuflokk-
urinn 15% atkvæða, Framsóknar-
flokkurinn 20% atkvæða, Sjálf-
stæðisflokkurinn 44% atkvæða og
Alþýðubandalagið 17% atkvæða.
Allmargar skoðanakannanir hafa
verið gerðar frá síðustu kosning-
um til þess að kanna fylgi stjórn-
málaflokkanna. Hér birtist tafla
yfir þær og fremst eru hlutfalls-
tölur flokkanna í kosningunum í
fyrra.
Ungírú ísland 1978, Halldóra Björk Jónsdóttir, krýnir Kristínu Bernharðsdóttur
frá Vestmannaeyjum ungfrú lsland 1979 á Hótel Sögu s.l. sunnudag. Vinstra
megin við hana erAuður Elísabet Guðmundsdóttir sem varð nr. 3 en hægra megin
er Guðbjörg Sigurðardóttir sem varð nr. 2. — Sjá bls. 31. M>’ndir Emilla-
Vaxtaákvörðun fyrir ríkisstjórn:
Hækka vextir um 6 til
8 prósentustig 1. des.?
SAMKVÆMT upplýsing-
um, sem Morgunblaðið afl-
aði sér í gær, hefur Þjóð-
hagsstofnun gert spá um
framvindu verðbólgunnar
með tilliti til þess, að hinn
1. desember á að ákveða
vaxtahækkun samkvæmt
Ólafur Jóhannesson um forsetaframboð:
Tek það til alvar-
legrar íhugunar
— komi áskorun fram
ÓLAFUR Jóhannesson, sem skíp-
ar efsta sæti framboðslista
Framsóknarflokksins í
Reykjavík, segir i samtali við
dagblaðið Vísi i gær, að hann
muni taka það til alvarlegrar
fhugunar, ef hann fái áskoranir
um að gefa kost á sér til
forsetakjörs.
Orðrétt segir Ólafur Jóhann-
esson í samtalinu við Vísi: „Það
hefur ekki veriö skorað á mig
ennþá að gefa kost á mér tii
forsetakjörs, en ef það verður
gert mun ég taka þann kostinn
til alvarlegrar íhugunar.“
Ólafur Jóhannesson sagði
einnig við Visi: „Ég verð þing-
maður áfram, auðvitað með þeim
fyrirvara að lif og heilsa endist,
nema ég verði hafinn í æðra
vcldi.“
íslenzk stjórnvöld:
Mótmæltu sendlráðs-
tökunni í Teheran
OO , l>- c 1:1 *© . <3 oó cd N 00 r- c •2 oí s-: 05 ip o$ N «0(5 C - . 03 «—• 05 r* >
"* s *- p1 0.5 | i q’ « S JO u s cc £ Q -- Vísir í marzh 11 q ~ Vísir 8. okt. Dagbl 21. ok . 'O .b c cc . > <M
Alþýðuflokkur 22,0% 21.1% 15,3% 15,1% 16,7% 12,7% 15,2% 12,8% 15%
Framsóknarflokkur 16,9% 15,6% 5,1% 13,5% 20,7% 21,5% 8,9% 21,9% 20%
Sjálfstæðisflokkur 32,7% 42.2% 44,2% 49,2% 44,3% 50,6% 58,5% 43,3% 44%
Alþýðubandalag 22,9% 21,1% 28,4% 22,2% 17,3% 13,3% 17,0% 21,9% 17%
ÍSLENZK stjórnvöld mótmæltu
nýlega við írönsk stjórnvöld töku
sendiráðs Bandarikjanna i Te-
heran, að sögn Benedikts Grön-
dal, forsætis- og utanríkisráð-
herra. Benedikt kvað þó nokkuð
mörg ríki, sem hefðu stjórnmála-
—
2
•o ' .
* >
3 2
bc ~
£ <£>
Q IM
samband við Iran, hafa tekið
saman höndum og létu þau ald-
ursforseta sendimanna í Teheran
bera fram hörð mótmæli við
íranstjórn. Var það sendiherra
Tékkóslóvakiu, sem bar fra mót-
mæUn.
Benedikt Gröndal kvað þessa
leið hafa verið valda vegna þess
að um er að ræða brot á friðhelgi
sendiráðs. Því kvað Benedikt
bæði bandarisk og írönsk stjórn-
völd vita um afstöðu íslenzkra
stjórnvalda til töku sendiráðsins
í Teheran. Benedikt kvað öll
næstu nágrannaríki okkar hafa
tekið þátt í þessum mótmælum,
bæði Austur- og Vestur-Evrópu-
lönd.
lögum vinstri stjórnarinn-
ar um stjórn efnahags-
mála o. fl. í þessari spá,
sem í raun er tvíþætt, er
annars vegar spáð með
mikilli varúð og gert ráð
fyrir 57% verðbólgu á ári
og hins vegar er spá þar
sem gert er ráð fyrir, að
verðbólgan verði hátt á 7.
tug prósenta. Miðað við
fyrri spána eiga vextir að
hækka um 6 prósentustig,
en miðað við hina síðari
um og yfir 8 prósentustig.
Úrvinnsla þessa er nú í höndum
Seðlabankans og hefur fyrsta
skýrsla verið send ríkisstjórn til
ákvörðunar. Er búizt við því, að
ríkisstjórnin muni fjalla um
vaxtamálin á fundi sínum árdegis
í dag, en hvort ákvörðun verður
tekin, er ekki ljóst. Benedikt
Gröndal, forsætisráðherra sagði í
gær, að sér vitanlega, væri
ákvörðun Seðlabankans ekki kom-
in til ríkisstjórnarinnar. Hún væri
seðlabankamál, en hann kvað
bankamálaráðherra hafa haft
samband við bankastjórnina um
málið. „Síðast þegar ég vissi, var
niðurstaða Seðlabankans ekki
komin, en sé svo, hefur það gerzt
nú síðdegis," sagði Benedikt
Gröndal í gær.
Þótt kveðið sé á um það, að
vextir skuli hækka samkvæmt
verðbólgustigi í lögum vinstri
stjórnarinnar um stjórn efna-
hagsmála, í svokölluðum Ólafslög-
um, þá er vaxtahækkunin ekki svo
fastbundin, þ.e.a.s. áfangarnir eru
ekki lögbundnir, að ríkisstjórn
hefur á valdi sínu að fresta áfanga
um sinn, sýnist henni það betri
kostur.
Fundur Geirs í
Njarðvík í kvöld
GEIR Hallgrímsson íor-
maður Sjálfstæðisflokksins
verður í kvöld kl. 20:30 á
almennum fundi í Sjálf-
stæðishúsinu í Njarðvík.
Mun hann á fundinum
íjalla um stefnu Sjálfstæð-
isflokksins í hinum ýmsu
málaflokkum og svara
spurningum fundarmanna.