Morgunblaðið - 27.11.1979, Síða 2

Morgunblaðið - 27.11.1979, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 1979 Ellert B. Schram: Framsóknar- menn vilja nýj- an vegaskatt FÉLAG ísl. bifreiðaeig- enda hélt sl. laugardag fund þar sem fulltrúum stjórnmálaflokkanna var boðið að koma og f jalla um stefnu flokkanna í vega- málum. Fluttu þar fram- söguerindi Ellert B. Schram fyrir Sjálfstæðis- flokkinn og Bjarni Ein- arsson fyrir Framsóknar- flokkinn, en fulltrúar Al- þýðuflokks og Alþýðu- bandalags komu ekki til fundarins. í framsöguræðu sinni vakti Ellert B. Schram at- hygli fundarmanna á því, að í fjárlagafrumvarpinu, er fyrrverandi ríkisstjórn undirbjó og Tómas Árna- son lagði fram með fyrir- vara hinna flokkanna, kæmi fram að leggja ætti á landsmenn nýjan vegaskatt til að afla fjár til lagningar bundins slitlags á þjóðvegi Greiðfært nema um Vestfirði GREIÐFÆRTer nú víðast hvar um landið nema hvað óíœrt er um Vestfirði. Samkvæmt upplýsingum vegaeft- irlitsmanna eru KÍettháls og Dynj- andisheíði ófærar og ekki víst hve- nær heiðarnar verða mokaðar. Er greiðfært að mestu leyti um aðra landshluta og fært stórum bílum og jeppum um Möðrudalsfjallgarð. landsins. Kvað Ellert nú þegar nóg komið af skatt- lagningu á bíleigendur og lýsti andstöðu sinni við hugmyndum um auknar álögur á bíleigendur. Sóttu ekki fund F.Í.B. FÉLAG íslenzkra bifreiða- eigenda boðaði til fundar siðastliðinn laugardag og var þar öllum fjórum stjórnmálaflokkunum boð- ið að hafa framsögu. Sam- kvæmt upplýsingum Morgunblaðsins sóttu hvorki fulltrúar Alþýðu- bandalags né Alþýðu- flokks fundinn. Alþýðuflokkur sendi félag- inu tilkynningu 15 til 20 mínútum eftir að fundurinn átti að hefjast og kvaðst ekki geta sent neinn fulltrúa til fundarins. Alþýðubandalag mætti ekki. Eftir því sem fulltrúar félagsins sögðu í gær, mun Eiður Guðnason hafa ætlað að sækja fundinn. Hins vegar var aldrei algjör- lega ákveðið, hver yrði full- trúi Alþýðubandalagsins á fundinum, en rætt hafði verið um Þorstein Magnússon og Guðrúnu Hallgrímsdóttur. e> INNLENT Skoðanakönnun Dagblaðsins: Svipuð niður- staða og hjá Vísi SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN verður sigurvegari kosninganna og bætir við sig 6 þingmönnum, samkvæmt skoðanakönnun sem Dagblaðið lét framkvæma um helgina. Samkvæmt skoðanakönnuninni fær Alþýðuflokkurinn 14,4% at- kvæða og 9 þingmenn, tapar fimm, Framsóknarflokkurinn fær 22,3% atkvæða og 13 þingmenn, bætir við sig einum þingmanni, Sjálf- stæðisflokkurinn fær 41,9% at- kvæða og bætir við sig sex þing- mönnum eins og fyrr er getið og Alþýðubandalagið fær 19,0% at- kvæða og 11 þingmenn, tapar þremur þingmönnum. Þá nær Eggert Haukdal kjöri á Suður- landi samkvæmt könnuninni. Ekki kemur fram í frétt Dagblaðsins hve stórt úrtakið var í skoðana- könnuninni en 20% þeirra sem spurðir voru höfðu ekki ákveðið sig ennþá, 8,5% vildu ekki svara og 6,5% ætluðu að skila auðu eða kjósa ekki. Fyrir síðustu helgi birti Vísir niðurstöðu skoðanakönnunar sem blaðið lét framkvæma og sam- kvæmt henni fengi Alþýðuflokk- urinn 15% atkvæða, Framsóknar- flokkurinn 20% atkvæða, Sjálf- stæðisflokkurinn 44% atkvæða og Alþýðubandalagið 17% atkvæða. Allmargar skoðanakannanir hafa verið gerðar frá síðustu kosning- um til þess að kanna fylgi stjórn- málaflokkanna. Hér birtist tafla yfir þær og fremst eru hlutfalls- tölur flokkanna í kosningunum í fyrra. Ungírú ísland 1978, Halldóra Björk Jónsdóttir, krýnir Kristínu Bernharðsdóttur frá Vestmannaeyjum ungfrú lsland 1979 á Hótel Sögu s.l. sunnudag. Vinstra megin við hana erAuður Elísabet Guðmundsdóttir sem varð nr. 3 en hægra megin er Guðbjörg Sigurðardóttir sem varð nr. 2. — Sjá bls. 31. M>’ndir Emilla- Vaxtaákvörðun fyrir ríkisstjórn: Hækka vextir um 6 til 8 prósentustig 1. des.? SAMKVÆMT upplýsing- um, sem Morgunblaðið afl- aði sér í gær, hefur Þjóð- hagsstofnun gert spá um framvindu verðbólgunnar með tilliti til þess, að hinn 1. desember á að ákveða vaxtahækkun samkvæmt Ólafur Jóhannesson um forsetaframboð: Tek það til alvar- legrar íhugunar — komi áskorun fram ÓLAFUR Jóhannesson, sem skíp- ar efsta sæti framboðslista Framsóknarflokksins í Reykjavík, segir i samtali við dagblaðið Vísi i gær, að hann muni taka það til alvarlegrar fhugunar, ef hann fái áskoranir um að gefa kost á sér til forsetakjörs. Orðrétt segir Ólafur Jóhann- esson í samtalinu við Vísi: „Það hefur ekki veriö skorað á mig ennþá að gefa kost á mér tii forsetakjörs, en ef það verður gert mun ég taka þann kostinn til alvarlegrar íhugunar.“ Ólafur Jóhannesson sagði einnig við Visi: „Ég verð þing- maður áfram, auðvitað með þeim fyrirvara að lif og heilsa endist, nema ég verði hafinn í æðra vcldi.“ íslenzk stjórnvöld: Mótmæltu sendlráðs- tökunni í Teheran OO , l>- c 1:1 *© . <3 oó cd N 00 r- c •2 oí s-: 05 ip o$ N «0(5 C - . 03 «—• 05 r* > "* s *- p1 0.5 | i q’ « S JO u s cc £ Q -- Vísir í marzh 11 q ~ Vísir 8. okt. Dagbl 21. ok . 'O .b c cc . > <M Alþýðuflokkur 22,0% 21.1% 15,3% 15,1% 16,7% 12,7% 15,2% 12,8% 15% Framsóknarflokkur 16,9% 15,6% 5,1% 13,5% 20,7% 21,5% 8,9% 21,9% 20% Sjálfstæðisflokkur 32,7% 42.2% 44,2% 49,2% 44,3% 50,6% 58,5% 43,3% 44% Alþýðubandalag 22,9% 21,1% 28,4% 22,2% 17,3% 13,3% 17,0% 21,9% 17% ÍSLENZK stjórnvöld mótmæltu nýlega við írönsk stjórnvöld töku sendiráðs Bandarikjanna i Te- heran, að sögn Benedikts Grön- dal, forsætis- og utanríkisráð- herra. Benedikt kvað þó nokkuð mörg ríki, sem hefðu stjórnmála- — 2 •o ' . * > 3 2 bc ~ £ <£> Q IM samband við Iran, hafa tekið saman höndum og létu þau ald- ursforseta sendimanna í Teheran bera fram hörð mótmæli við íranstjórn. Var það sendiherra Tékkóslóvakiu, sem bar fra mót- mæUn. Benedikt Gröndal kvað þessa leið hafa verið valda vegna þess að um er að ræða brot á friðhelgi sendiráðs. Því kvað Benedikt bæði bandarisk og írönsk stjórn- völd vita um afstöðu íslenzkra stjórnvalda til töku sendiráðsins í Teheran. Benedikt kvað öll næstu nágrannaríki okkar hafa tekið þátt í þessum mótmælum, bæði Austur- og Vestur-Evrópu- lönd. lögum vinstri stjórnarinn- ar um stjórn efnahags- mála o. fl. í þessari spá, sem í raun er tvíþætt, er annars vegar spáð með mikilli varúð og gert ráð fyrir 57% verðbólgu á ári og hins vegar er spá þar sem gert er ráð fyrir, að verðbólgan verði hátt á 7. tug prósenta. Miðað við fyrri spána eiga vextir að hækka um 6 prósentustig, en miðað við hina síðari um og yfir 8 prósentustig. Úrvinnsla þessa er nú í höndum Seðlabankans og hefur fyrsta skýrsla verið send ríkisstjórn til ákvörðunar. Er búizt við því, að ríkisstjórnin muni fjalla um vaxtamálin á fundi sínum árdegis í dag, en hvort ákvörðun verður tekin, er ekki ljóst. Benedikt Gröndal, forsætisráðherra sagði í gær, að sér vitanlega, væri ákvörðun Seðlabankans ekki kom- in til ríkisstjórnarinnar. Hún væri seðlabankamál, en hann kvað bankamálaráðherra hafa haft samband við bankastjórnina um málið. „Síðast þegar ég vissi, var niðurstaða Seðlabankans ekki komin, en sé svo, hefur það gerzt nú síðdegis," sagði Benedikt Gröndal í gær. Þótt kveðið sé á um það, að vextir skuli hækka samkvæmt verðbólgustigi í lögum vinstri stjórnarinnar um stjórn efna- hagsmála, í svokölluðum Ólafslög- um, þá er vaxtahækkunin ekki svo fastbundin, þ.e.a.s. áfangarnir eru ekki lögbundnir, að ríkisstjórn hefur á valdi sínu að fresta áfanga um sinn, sýnist henni það betri kostur. Fundur Geirs í Njarðvík í kvöld GEIR Hallgrímsson íor- maður Sjálfstæðisflokksins verður í kvöld kl. 20:30 á almennum fundi í Sjálf- stæðishúsinu í Njarðvík. Mun hann á fundinum íjalla um stefnu Sjálfstæð- isflokksins í hinum ýmsu málaflokkum og svara spurningum fundarmanna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.