Morgunblaðið - 27.11.1979, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 1979
5
Sveit HM
Norðurlanda-
meistari
SKÁKSVEIT Menntaskólans við
Hamrahlíð sigraði með miklum
yfirburðum í keppni norrænna
framhaldsskóla, sem lauk í
Stokkhólmi á sunnudaginn.
Hlaut sveitin 16'/2 vinning af 20
mögulegum.
I næst síðustu umferðinni vann
ísland B-sveit Svíþjóðar 3 V2: lk og
á sunnudaginn vann ísland A-
sveit Svíþjóðar 2Vfe:l Vfe. í sveit MH
tefldu Margeir Pétursson alþjóð-
legur meistari á 1,- borði og hlaut
hann 4'k vinning í 5 skákum, Jón
L. Árnason alþjóðlegur meistari á
2. borði og hlaut hann 5 vinninga
af 5 mögulegum, Þorsteinn Þor-
steinsson á 3. borði og hlaut hann
3 vinninga af 5 og Róbert Harðar-
son á 4. borði og hlaut hann 4
vinninga af 5 mögulegum. Sveit
MH tapaði aðeins einni skák og
var það gegn A-sveit Svíþjóðar.
Róbert lék þá af sér drottningunni
í gjörunninni stöðu og andstæð-
ingurinn að auki í bullandi tíma-
hraki.
Sveit MH hefur þrisvar áður
orðið Norðurlandameistari í skák.
Sýning Braga
og Sigurðar
Arnar fram-
lengd um viku
HIN sérstæða myndlistar-
sýning iistamannanna
Braga Ásgeirssonar og Sig-
urðar Arnar Brynjólfssonar
í sýningarsölum Norræna
hússins hefur gengið mjög
vel, fengið lofsamlega dóma
listrýna og vakið mikla al-
menna athygli.
í tilefni þess hefur Nor-
ræna húsið boðið þeim sér-
staklega að hafa sýninguna
opna i eina viku í viðbót,
sem þeir hafa þegið með
þökkum. Sýningin fram-
lengist þvi til sunnudagsins
2. desember og verður opin
sem fyrr á milli 2 og 10 e.h.
Skólabörn eru velkomin í
fylgd með kennurum sinum.
Afmælis-
happdrætti
í GÆR voru opnuð hin innsigluðu
umslög í afmælishappdrætti Frí:
kirkjusafnaðarins í Reykjavík. í
því voru tveir vinningar, litsjón-
varpstæki, og komu vinningarnir
á miða nr. 776 og nr. 1168.
Leiðrétting
Þorsteinn Sæmundsson óskaði eft-
ir leiðréttingu á frétt Mbl. þar sem
kom fram að hann væri ritstjóri
Almanaks Þjóðvinafélagsins. Er
hann það ekki lengur þar sem
hann lét af því starfi í fyrra eftir
12 ára starf og við tók dr.
Finnbogi Guðmundsson lands-
bókavörður.
hófst í morgun
í gær uröu
lítilf jörlegar
skemmdir vegna reyks í verslun okkar.
Þrátt fyrir það
höfum viö ákveöiö aö gefa afslátt af
vörum verslunarinnar í næstu 3 daga.
Nú er gott tækifæri
til að ná í ódýrar
jólagjafir.
Laugavegi 20. Sími frá skiptiborði 85055.