Morgunblaðið - 27.11.1979, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 1979
15
Hristingur með
Soya og Dario Fo
Desembervaka Mennta-
skólans við Hamrahlíð
Leiklistaríélag Menntaskólans
við Hamrahlíð:
SKAPVONSKA Á FLÆKINGI
eftir Soya.
Þýðandi: Soífía Auður Birgis-
dóttir.
Leikstjórar: Soffía Auður Birg-
isdóttir og Gunnlaugur Sigfús-
son.
Sama Leiklistarfélag:
ÞEGAR ÞÚ VERÐUR
FÁTÆKURSKALTU
VERÐA KÓNGUR
eftir Dario Fo.
Tónlist: Guðni Franzson.
Þýðandi: Sveinn Einarsson.
Leikstjóri: Guðrún Alfreðsdótt-
ir.
Lelkllst
eftir JÓHANN
HJÁLMARSSON
Á DESEMBERVÖKU gengst
Leiklistarfélag Menntaskólans
við Hamrahlíð fyrir sýningum á
tveim einþáttungum: Skap-
vonsku á flækingi eftir Danann
Soya og Þegar þú verður fátæk-
ur skaltu verða kóngur eftir
ítalann Dario Fo.
Þetta er að vísu dálítið skrýtin
blanda, en hún lukkast vel hjá
hinum ungu og áhugasömu leik-
urum.
Skapvonska á flækingi er í
átta stuttum þáttum. í þeim er
sýnt hver áhrif skapvonska hef-
ur á samskipti fólks. Önuglyndur
eiginmaður hleypir öllu af stað.
Það verður keðjuverkun í skap-
vonskunni. Eiginmaðurinn hefur
allt á hornum sér heima fyrir og
skammar lestarstjórann í lest-
inni sem hann fer með daglega
til vinnu sinnar. Lestarstjórinn
skammar konu sína fyrir vondan
mat, en hún fer til slátrarans og
tekur hann í karphúsið. Slátrar-
inn finnur að trjám kaupmanns-
ins sem byrgja fyrir honum
útsýnið. Kaupmaðurinn hellir
sér yfir ávaxtainnflytjandann
fyrir lélega appelsínusendingu.
Það veldur hjónaerjum.
Svona leikur Soya sér að því
að draga fram dæmi um ófull-
komleik mannfólksins. Þetta er
kjörið verkefni fyrir skólasýn-
ingar, en krefst samt töluverðr-
ar leikni. Skiptingar eru hraðar
og leikurinn þarf að einkennast
af því óþoli sem er undirrót alls.
En leikstjórar og leikendur voru
vanda sínum vaxnir og þýðing
lipur.
Þegar þú verður fátækur
skaltu verða kóngur er einn af
þessum skemmtilegu einþátt-
ungum eftir Dario Fo. Bak við
gamanið er alvara og boðskapur.
Guðrún Alfreðsdóttir leikstýrir
þessari sýningu, en þýðandi er
Sveinn Einarsson. Tónlist er
eftir Guðna Franzson.
Yfir þessari sýningu sveif andi
ævintýra og drauma sem rætast
með kynlegum hætti. Dóttir
ríkasta manns þorps nokkurs
ákveður að gera þann draum
hans að veruleika að verða
kóngur. Hún fær farandleikara
til liðs við sig. Þeir setja á svið
ævintýri um konungdóm ríka
mannsins. En það er ekki tekið
út með sældinni að vera kóngur,
margt er í raun eftirsóknarverð-
ara. Það á platkóngurinn eftir að
reyna.
í leikskrá eru birt þau orð
Dario Fos sem hljóða svo: „Of
mikil samkeppni. Þess vegna fer
leikhúsið norður og niður.“ Þetta
gildir eflaust um fleiri en far-
andleikara.
Gáskafulla stemmningu Dario
Fos tókst að laða fram í þessari
sýningu. Hún var eins og Skap-
vonska á flækingi verkefni sem
hæfði ungu fólki sem vill vinna
vel og skemmta sjálfu Sér og
öðrum. Þótt leikur væri að
sjálfsögðu misjafn verður ekki
gert upp á milli leikara hér.
Leikþættirnir tveir eru meðal
þess sem Desembervakan býður
upp á. Á henni eru einnig kynnt
utangarðsskáld, ungir höfundar
sem freista þess að fara nýjar
leiðir í skáldskap.
1WM
JS—i
■ EgíII Egílsson
SVEINDÓMUR
Saga úr Reykjavík, lýsir lífi drengs á ungl-
ingsaldri, heima og í skóla. Hver eru þau
uppeldis- og þroskaskilyrði sem samfélagið
býr honum? Hvernig er heimilislífi hátt-
aö í streituþjökuðu samkeppnisþjóðfélagi?
Hvernig snýst skólinn viö þeim einstakling-
um sem eiga örðugt með að aðlagast hegð-
unarkröfum hans? Hvernig lifa menn af í
þessu samfélagi?
Þetta eru nokkrar spurningar sem vakna
við lestur þessarar áleitnu og ögrandi sögu
Egils Egilssonar. Víst er sú þjóðfélagsmynd
sem hér er brugðið upp æði dökk, en um-
fram allt er hún svo rauntrú aö henni verður
ekki vísað á bug. Sagan bregður Ijósi á um-
hverfi lesandans sem hann verður að kann-
ast við, nauðugur viljugur.
SVEINDÓMUR er tímabært framlag til
umræðna um hag barna og unglinga.
SVEINDÓMUR — bók sem þú verður að
lesa.
Bræóraborgarstíg 16
Sími 12923-19156
Adam er i góöu lormi þessa dagana enda
stendur hann klár af vetrinum.
Nú er allt fullt af kuldaflikum hvers konar,
jafnt loöfóöruöum sem vatteruöum, úr tweecT,
riffluöu flaueli og fleiri efnum.
Kynntu þér vetrarvörur Adams þær eru heitar.
LAUGAVEGI 47 SiM117575