Morgunblaðið - 27.11.1979, Side 21

Morgunblaðið - 27.11.1979, Side 21
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 1979 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 1979 29 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson. Björn Jóhannsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 4000.00 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 200 kr. eintakiö. ( Hitaveitan—f ram- tak og frumkvæði Reykjavíkur Reykvíkingar hafa í áratugi haft forystu um uppbyggingu hitaveitu. Nánast öll hús í höfuðborginni eru hituð með hitaveitu. Þetta hefúr jafnan verið mikil kjarabót fyrir Reykvíkinga sem lengst af hafa búið við lægri hitakostnað en aðrir landsmenn. Frumkvæði og framsýni forystumanna Reykvíkinga fyrir nokkrum áratugum hafa valdið mestu um þau hagstæðu skilyrði, sem íbúar höfuðborgarinnar búa nú við. Aðrir landshlutar hafa fylgt fordæmi Reykjavíkur. íbúar nágrannabyggða höfuðborgarinnar hafa notið góðs af uppbygg- ingu Reykjavíkur á þessu sviði og aðrir hafa fylgt í kjölfarið, sem eiga aðgang að heitu vatni. í árslok 1978 var svo komið að um 146 þúsund Islendingar nutu góðs af hitaveitu. Á þeim tíma er Gunnar Thoroddsen gegndi embætti iðnaðar- og orkuráð- herra var gert stórt átak í hitaveitumálum landsins og á þessum fjórum árum fengu 60 þúsund manns hitaveitu. Reykvíkingar hafa notið góðs af eigin frumkvæði og-framsýni. Á næsta ári er hálf öld liðin síðan framkvæmdir hófust við Hitaveitu Reykjavíkur. Jafnan hefur verið litið svo á, að forysta Reykjavíkur í þessum efnum ætti að tryggja höfuðborgarbúum hagstæðustu kjör og ódýra hitaveitu. Það væri sanngjarnt, að íbúar höfuðborgarinnar nytu framsýni forystumanna sinna. Við og við hafa einstaka stjórnmálamenn á vinstri kantinum haft á orði að leggja verðjöfnunargjald á hitaveitugjöld Reykvíkinga. Borgarbúar hafa alltaf hrundið þeim tilraunum. Nú er bersýnilegt, að nauðsynlegt er að gera nýtt átak til þess að sýna vinstri mönnum fram á, að Reykvíkingar munu ekki una því, að þer verði skattlagðir sérstaklega vegna dugnaðar og framsýni í eigin málum. Ólafur vill hita- veituskatt Olafur Jóhannesson, sem skipar fyrsta sæti á lista Framsóknarflokksins í Reykjavík, skýrir frá því í Tímanum sl. sunnudag að hann telji óhjákvæmilegt að leggja verðjöfnun- argjald á hitaveitugjöld Reykvíkinga. Þessi áform Ólafs Jóhannessonar um sérstaka skattlagningu á Reykvíkinga og aðra þá, sem búa við hitaveitu, koma fram í svari hans við spurningu um þetta efni á „beinni línu“ hjá Tímanum. Skv. upplýsingum, sem Morgunblaðið hefur aflað sér yrði að leggja 40% hitaveituskatt á Reykvíkinga til þess að áform Ólafs Jóhannessonar næðu fram að ganga. Vinstri stjórnin hafði skipað nefnd til þess að kanna þetta mál og komst hún að þeirri niðurstöðu að nauðsynlegt væri að leggja 40% gjald á hitaveitugjöld Reykvíkinga til þess að ná jöfnuði á hitakostnaði yfir Jandið. Nú situr vinstri stjórn í Reykjavík, sem hefur sýnt það, að hún er ekki tilbúin til að gæta hagsmuna Reykvíkinga í einu eða öðru eins og glögglega kom fram í Landsvirkunarmál- inu, þegar meirihluti vinstri stjórnarinnar var tilbúinn til að fórna hagsmunum Reykjavíkur í orkumálum. Vinstri stjórninni í Reykjavík verður því ekki treyst til að koma í veg fyrir þessi áform. Taki vinstri stjórn við völdum á ný að kosningum loknum er ljóst að hún mun fylgja fram þeim fyrirætlunum að leggja sérstakan hitaveituskatt á Reykvíkinga og aðra þá, sem hitaveitu njóta. Eina ráð Reykvíkinga til að hindra þetta er að kjósa Sjalfstæðisflokkinn, sem hefur jafnan staðið dyggan vörð um hagsmuni Reykvíkinga. Um leið eiga Reykvíkíngar að sýna hver afstaða þeirra er til manns eins og Ólafs Jóhannessonar, sem telja það sjálfsagt að skattleggja dugnað og framtak höfuðborgarbúa á þessu sviði. Reykvíkingar eiga að þakka Ólafi Jóhannessyni fyrir þann sérstæða hug, sem hann sýnir borgarbúum með því að sjá til þess, að það fylgishrun Framsóknarflokksins í Reykjavík, sem hófst í síðustu kosning- um, haldi áfram. A ELLEFTA tímanum á sunnu- dagskvöldið varð eldur laus i verzluninni Bonanza, Laugavegi 20. Greiðlega gekk að slökkva eidinn en mikiar skemmdir urðu á fatnaði í verzluninni af völdum reyks. Skömmu eftir að eldsins varð vart handtók lögreglan í Reykjavik 18 ára gamlan pilt og játaði hann við yfirheyrslur að hafa borið eld að húsinu. Tróð hann logandi bréfi inn um gat og komst eldur i plasteinangrun i vegg i kjallara. Myndin var tekin á brunastað á sunnudaginn. Ljósm. Mbl. Kristján. Laaaartiagur Í4. nóvember 1979 26Í- tbi. 59. Árg. m *UiS.b' á borö og sigldi jullan fagurlega fyrir landi í kikkertglasi stýrimanns. En þegar nánar var aö gætt, reyndist jullan lús, sem hrökk af kikkertglasinu. Þannig er einnig landsýn marxismans, og þannig hafa jullurnar einnig hrokkiö af kikkertglasi kommúnismans, hvort sem stýrimennirnir hafa verið und- an Kínaströndum eöa annars staö- ar. Þess vegna þurfum viö íslend- ingar nú aö horfast í augu viö flóttamannavandamál, ekki síöur en aðrar þjóöir. Eina lausnin á vandanum er sú, aö alþýða manna geri sér grein fyrir því, aö eitt er julla, en annað lús. Þaö læra menn af reynslunni, en hvorki gylliboðum né fagurgala kommúnískra lýö- skrumara né lestri marxískra nítjándualdar rita. En pólitísk kikkertglös geta brenglaö öllum staöreyndum, ekki sízt ef stýrimennirnir hafa fengið sér einum of mikiö af „kenningunni“.“ Aö lokum má benda á „smáatr- iöi“ í helgarsamtali Vísis viö Árna Bergmann, en þaö kemur þessu máii viö. í samtalinu er Árni auðvit- aö genginn hinu frjálsa markaös- kerfi á hönd, en margt „róttækt“ kúltúrfólk kann betur viö sig í því en fjestir aörir, eins og kunnugt er. Árni er einn af þessum kikkert- mönnum. Og hann hefur marga lúsina séð fyrir stafni kommúnista- jullunnar. I samtalinu er hann spurður, hvaö honum finnist um Gúlagiö. Hann segir, aö þaö sé ein af þeim bókum, sem menn veröa aö þekkja og „horfast í augu viö...“. En er Gúlagiö þá bara í bókum? Eigum viö ekki heldur að horfast í augu viö þaö, eins og það er — austur í Síberíu? En Árni virðist ekki hafa þrek til þess, ef marka má frásögn hans í Þjóöviljanum af Búkovskí-fundinum og svarinu í Vísi. í laugardagsblaöi Morgunblaösins var sýnt fram á, hvernig hann sveipaöi frásögn sína af fundinum yfirbragði hlutlægni meö þeim hætti, aö þeir, sem lásu einungis frásögn Árna „fengu rang- ari mynd af honum en heföu þeir enga frásögn lesiö. Þá heföu þeir enga vitneskju fengiö um fundinn í staö brenglaöra og villandi upplýs- inga“. Meö tilvitnunum og rökum er sýnt fram á þessa brenglun. Hún felst m.a. í því, sem er undanskilið — þ.e. matreiddum „sannleika", sem er auðvitaö nær svörtum galdri en hvítum. En þaö er þó ekki aðalatriöi, heldur hitt, aö Gúlagiö er ekki bók, heldur harmsaga þjóöar og skipbrot pólitískrar stefnu „á tuttugustu öld“. Viö þaö eiga menn „að horfast í augu". En þeir veröa þá aö leggja kikkertglasiö til hliöar. Eitt er víst, aö maður fer ekki til Sovétríkjanna til aö kynnast ástandinu þar, ef marka má upplýs- ingar A. Arbuzov, „líklega vinsæl- astan núlifandi rússneskra leikrita- höfunda", eins og hann er kynntur í Lesbók, en þar er samtal viö hann vegna uppfærslu á leikriti eftir hann hér á landi. Arbuzov sagöi: „Ég haföi aldrei heyrt á Bukovsky minnst fyrr en ég kom hingaö, en hér talar enginn um annað en hann og hans mál. En hin daglega lífsbarátta hins sovéska borgara er bara ekkert á sama piani og mál Bukovskys og annarra útlaga, sem eru svo örlítill hluti af allri þjóöinni. Þeir eru aö tala um mál, sem hinn almenni borgari kynnist lítiö sem ekkert." KIKKERTGLASIÐ rW tJHH I f Afstaöa hundadagastjórnar vinstri manna til Pol Pots-stjórnar- innar er alkunna og blettur á íslenzkri utanríkispólitík — en verstur er þó hlutur krata, sem hafa fariö meö utanríkismálin. Þar eö pistlar þessir eru skrifaöir í tilefni af væntanlegum kosningum, er ekki úr vegi aö minna á þaö pólitíska axarskaft íslenzkra ráöa- manna, þegar skæruliöastjórn Pol Pots var veitt fulltingi á Allsherjar- þingi Sameinuöu þjóöanna. Af- staöa Morgunblaösins í því máli liggur skýr fyrir og veröur rifjuö upp hér á eftir, en áöur er ekki úr vegi aö minna á, aö blaöiö þurfti einnig aö gagnrýna þaö axarskaft for- manns Alþýöuflokksins aö opna herstöö varnarliðsins á Keflavíkur- flugvelli upp á gátt og taka þá miklu áhættu, sem af því hefði getaö leitt. Þar er komiö á jafnvægi sem hindrar óþörf áhrif varnarliösmanna á íslenzkt þjóðlíf — og hefur gefizt vel. Björgunarsveit varnarliösins er aö sjálfsögöu undan skilin, en hún hefur unniö mörg afrek í fórnfúsu þjónustustarfi. Bandaríkjamenn hafa veriö meö einhvern þrýsting og viljað aö varnarstööin yröi opnuð meö þeim hætti, sem utanríkisráöherra hugö- ist fyrir, en okkur dettur ekki í hug aö láta undan slíkum þrýstingi og voru Benedikt Gröndal og ríkis- stjórnin knúin til aö loka varnar- stööinni þegar í stað. Slík varnar- stöö er okkur aö vísu nauösyn, en ill nauðsyn. Eitt eru gestir frá erlendri þjóö, sem tryggja eiga varnir og öryggi íslands á válegum tímum, en annaö er íslenzkt þjóölíf. Gestirnir eru hér í þágu okkar og Atlants- hafsbandalagsins, en viö gerum engar ráöstafanir til að þóknast Bandaríkjastjórn, hvorki í þessum efnum né öörum. Það hefur reynzt okkur heillavænleg stefna og skul- um viö halda henni til streitu, meðan svo ógæfusamlega horfir í heiminum, aö beztu menn telja óráð annaö en halda uppi öruggum vörnum í landinu sjálfu. Þess má einnig geta, að þaö var ekki vegna kröfu alþýðubandalagsmanna eöa Þjóöviljans, sem utanríkisráöherr- ann neyddist til aö loka varnarstöö- inni á Keflavíkurflugvelli, enda haföi málið ekki einu sinni verið rætt á ríkisstjórnarfundi, þar sem ráöherr- ar Alþýðubandalagsins tóku þaö aldrei upp og létu sér fátt um finnast. En til aö rifja upp afstööu íslenzkra ráöamanna til polpot- anna, skulum viö líta á brot úr forystugrein í Morgunblaöinu — þeim til glöggvunar, sem nú eiga aö ganga að kjörboröinu og hafa í hendi sér örlög íslands, pólitískt siögæöi þess út á viö og innra þrek lýöveldisins sjálfs. Viö sögöum á sínum tíma: „Þegar Víetnam-styrjöldin geis- aöi, voru aöeins til tvenns konar manngeröir að dómi kommúnista: guös útvaldir, þ.e. víetnamskir kommúnistar, og svo hinir. Nú er öllum Ijóst, aö Víetnamar eru ekki viö eina fjölina felldir í pólitík sinni, heldur hafa þeir bæði ögraö fjöl- mennustu þjóö heims, Kínverjum, og gert innrás í land annarrar nágrannaþjóöar, Kambodíu. Hafa þeir lagt þaö land undir sig og komiö leppstjórn sinni þar til valda. Stundum heyrist sagt hér á landi, aö atburöir í svo fjarlægum löndum sem Indókína komi Islendingum lítiö sem ekkert viö. En nú sjáum viö, aö þessi lönd eru ekki lengur í órafjarlægö, heldur er engu líkara en þau séu viö túnfótinn hjá okkur. Hingað hafa komiö víetnamskir flóttamenn og verðum viö þannig, ekki síður en aörar þjóöir, aö horfast í augu viö blákaldar afleiö- ingar þess, aö kommúnistar hafa lagt undir sig Indókínaskagann aö mestu. Sæluríkin, sem boöuö voru undir alræöisstjórnum kommúnista íVíetnam og Kambodíu, hafa reynzt þarlendu fólki eins og heitasta helvíti, margir hafa veriö drepnir, aðrir eru sjúkir og hungraöir og draga fram lífiö viö kjör, sem viö getum ekki einu sinni gert okkur í hugarlund, og enn aðrir leggja líf sitt í hættu og flýja „sæluna". Þaö er nú í Ijós komiö, eins og alls staöar hefur oröiö, þar sem komm- únistar hafa hrifsaö völdin, aö boðskapur þeirra um framtíöarríkiö á Indókínaskaga hefur í engu reynzt haldbetri en annars staöar. Fals- vonir marxismans minna einna helzt á þá landsýn, sem bar fyrir augu yfirstýrimanns Árna frá Geita- stekk, og julluna, sem hann sá í kikkertglasi sínu. Hann sá þrjár árar Gjaldeyrisverðmæti sjávarafurða hrapaði um 45% 1967 og 1968 Atvinnuleysið 1968—1969: Efnahagsáíöll, sem islenzka þjóðarbúið varð fyrir seinni hluta árs 1966 og árin 1967 og 1968, leiddu til töluverðs atvinnuleysis hérlendis 1968 og 1969. Þessi staðreynd hefur verið notuð til þess, í yfirstandandi kosningabaráttu. að varpa skugga á svokölluð viðreisnarár, 1959—1971, sem voru á heildina litið farsælir jafnvægistimar með innan við 10% verðbólgu að meðaltali á ári. Hér verður í stuttu máli gerð grein fyrir orsökum þessa timabundna atvinnuleysis. Fyrst verður þó litillega rakin þróun mála frá myndun viðreisnarstjórnar 1959 fram að áföllunum, sem upphaf áttu síðla árs 1966. V elmegunar tímabil Ríkisstjórn Ólafs Thors beitti sér fyrir frjálsræðisstefnu í framkvæmdum og viðskiptum 1960, Sem fylgt var eftir af ríkisstjórn Bjarna Benedikts- sonar. Sú stefna, sem þá var mótuð, og efnahagsaðgerðir, sem gripið var til 1960, lögðu grund- völl að öflugri uppbyggingu at- vinnuvega, sem var örust á árunum 1962—1966, og leiddi til meiri velmegunar en áður hafði þekkst hérlendis. Þrír meginþættir stuðluðu að þessu framfaraskeiði: 1. Frá- hvarf frá höftum til frjálsræðis; 2. Mikil aukning síldarafla; 3. Mjög hagstæð þróun útflutn- ingsverðlags. Síldaraflinn jókst úr um 300 þúsund tonnum 1961 í 771 þús- und tonn 1966. Jafnframt var hafin loðnuveiði og vinnsla. Magn sjávarafurða jókst um 29% á tímabilinu 1962—1966 eða um 5,2% á ári. Magnaukningu sjávarafla fylgdi svo hækkun útflutningsverðs, 46% á árabil- inu 1961—1966, þannig að verð- mætisaukning útfluttra sjávar- afurða jókst á þessu árabili um 88% eða 13,5% á ári. Mikill vöxtur í sjávarútvegi og fiskiðn- aði hafði örvandi áhrif á aðrar atvinnugreinar. Nefna má að íbúðarbyggingar jukust um 86% frá 1961—1966. Iðnaðarfram- leiðsla, önnur en í sjávarútvegi, jókst um 27,5% eða um 5% til jafnaðar á ári. Þessi hagstæða þróun í sjávar- útvegi og öðrum atvinnugreinum leiddi til þess að þjóðarfram- leiðslan jókst um 8,9% á ári, 1961—1966, vöxtur útflutnings og þjónustu um 10,8% á ári, útflutningstekjur um 13,1% á ári (vegna hagstæðra viðskipta- kjara) og þjóðartekjur um 10,2% á ári. Allt þetta leiddi til bættra lífskjara á þessum árum, kaup- máttaraukningar og batnandi stöðu þjóðarbúsins út á við. Bjarni heitinn Benediktsson, sagði í ræðu í október 1966: „Öruggar heimildir eru fyrir því, að fjölmennustu atvinnustéttir hafa frá árinu 1960 bætt hag sinn milli 33% og nokkuð yfir 40%, þ.e.a.s. fengið ríflega sinn hlut af stórauknum þjóðartekj- um. Það er því hægt að fullyrða, að þetta er eitt mesta, eða réttara sagt mesta velmegunar- tímabil, sem almenningur á Islandi hefur notið...“ Aflabrestur — verð- fall útflutnings- framleiðslu Fyrstu merki erfiðleika, sem fóru í hönd, sögðu til sín um mitt ár 1966. Þá hófst eitt mesta verðfall útflutningsafurða okk- ar. Það náði til freðfisks, fiski- mjöls og lýsis eða fulíra % útflutningsins. í október 1966 hafði lýsi lækkað um 37,5% og mjöl um 23%. Frá vori 1966 fram á haust lækkaði verð þorskblokkar í Bandaríkjunum um 20%. Þorskaflinn varð og verulega minni þetta ár en áður. Árin 1967 og 1968 varð þjóðin fyrir áframhaldandi efnahags- áföllum. Verðfallið sem hófst 1966 hélt áfram. Gífurlegur afla- Ólafur Thors brestur varð á síldveiðum, en þær veiðar og vinnsla voru þá ein af meginstoðum verðmæta- sköpunar í þjóðarbúskapnum. Skreiðarmarkaður lokaðist vegna borgarastyrjaldar í Nígeríu. Síldarafli fór úr 770 þús. tonnum 1966 í 460 þús. tonn 1977 og 143 þús. tonn 1968. Þorskaflinn var 15% minni 1967 en 1966 og 23% minni en 1965. — Síldarlýsi féll í verði um 20% 1967, síldarmjöl um 15%, freð- fiskur um 14%. Meðalútflutn- ingsverð sjávarafurða var 10% lægra en árið áður. Verðfallið hélt áfram 1968 og á þessum tveimur árum féll meðalútflutn- ingsverð sjávarafurða um 15,5% til samans. Framleiðslumagn sjávaraf- urða til útflutnings minnkaði um 20% 1967 og verðmæti bræðslusíldarafurða minnkaði um 55%, saltsíldar um 18%. Aflaverðmæti sumar- og haust- síldarveiða fyrir Norður- og Austurlandi varð aðeins 46% þess er það nam 1966. Gjaldeyr- isverðmæti sjávarafurða var Bjarni Benediktsson nær þriðjungi minna 1967 en árið áður. Þetta hrun í útflutningsfram- leiðslu þýddi að vöruflutningur landsmanna nam aðeins 4300 m.kr. 1967 (en hafði verið 6000 m.kr. árið áður). Viðskiptajöfn- uður varð stórlega óhagstæður og gjaldeyrisforði, sem orðinn var nokkur, snarminnkaði. Á árunum 1967 og 1968 til samans hrapaði gjaldeyrisverð- mæti sjávarafurða um 45% og samdráttur nettógjaldeyrisverð- mætis af framleiðslunni varð enn meiri, eða yfir 50%. Samdrátturinn í sjávarútvegi hafði fljótlega neikvæð áhrif á aðrar atvinnugreinar, eins og að líkum lætur. Haustið 1967 fór að síga á ógæfuhliðina og í febrúar 1968 voru 1500 manns atvinnu- lausir eða um 2% af mannaflan- um. I árslok 1968 nam atvinnu- leysið um 3% af mannaflanum. Hæst komst atvinnuleysið í jan- úár 1969, 7%, en þar gætti áhrifa sjómannaverkfalls, sem leiddi til stöðvunar bátaflotans. Á þessum tíma leituðu margir atvinnu utan landssteina, bæði verka- menn en aðallega iðnaðarmenn, en samdráttur í byggingariðnaði var verulegur 1967 og 1968. Upp úr öldudalnum Af framanskráðu má ljóst vera, að efnahagsáföll en ekki stjórnarstefna orsökuðu tíma- bundið atvinnuleysi á þessum árum. — I raun — og skoðað eftir á — gegnir furðu, hve skjótt tókst að draga úr áhrifum svo gífurlegra áfalla og komast upp úr öldudalnum. Þegar á árinu 1969 fór að sjá fyrir ný umskipti í íslenzkum efnahags- og atvinnumálum. Þá fór þjóðarbúskapurinn að lyfta sér upp úr lægðinni. Kom þar hvort tveggja til: efnahagsað- gerðir stjórnvalda og batnandi ytri skilyrði. Þjóðarframleiðsla jókst um 2% 1969 og viðskipta- kjör bötnuðu að meðaltali um 3—4%. Heildaraflamagn lands- manna óx um 17% þetta ár og nýting aflans varð mun betri en fyrr, m.a. vegna meiri vinnslu í neytendaumbúðir. — Útflutn- ingsverð fiskafurða hækkaði og nokkuð, nema á saltfiski og skreið, er lækkaði. I’ramleiðslu- aukning varð og mikil í iðnaði þetta ár, samkvæmt úrtaksat- hugun er þá fór fram, en gengis- breyting hafði styrkt stöðu út- flutningsiðnaðar. Þróun efnahags- og atvinnu- mála 1970 tók af öll tvímæli um það, að lokið var kreppuáhrifum efnahagsáfalla, aflasamdráttar og verðfalls útflutningsfram- leiðslu undangenginna ára. Þjóð- arframleiðslan 1970 jókst um 6% (2% 1969) og þjóðartekjur jukust um 10,5% (3% 1969). — Framleiðsla sjávarafurða jókst um 4% enda var 1970 einn mesti þorskafli fram að þeim tíma, nær 480 þúsund lestir. Á þessum árum var og brotið blað í atvinnusögu þjóðarinnar með byggingu Búrfellsvirkjunar og álvers í Straumsvík, sem síðustu árin hefur lagt til 14— 17% heildarútflutnings héðan. Þar með var hafin, svo um munaði, nýting þriðju auðlindar þjóðarinnar, orkunnar í vatns- föllum landsins, sem hlaut að koma til, samhliða hefðbundnum atvinnuvegum, ef halda á í til jafns við aðrar þjóðir um þjóðar- tekjur og lífskjör. Þegar alls er gætt og mál skoðuð í réttu samhengi og í ljósi staðreynda þessara ára, verða fréttaskýringar vinstri blaða nú á tímabundnu atvinnuleysi 1968—69, haldlitlar, svo að ekki sé sterkara að orði kveðið. —sf. Þrekvirki, hve fljótt tókst að rétta úr kútnum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.