Morgunblaðið - 27.11.1979, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 1979
21
j
Hafa leikid
39 leiki
án taps
LIÐ Péturs Péturssonar Feye-
noord sigraði FC Utrecht 3—0
um helgina i hollensku 1. deild-
inni i knattspyrnu. Pétur er
ekki aí baki dottinn, hann bætti
við tveimur mörkum í safn sitt
á sunnudag og hefur nú skorað
15 mörk i úrvalsdeildinni, fimm
mörkum meira en næsti maður.
Þá mun Pétur vera næstmark-
hæsti maður í Evrópu um þess-
ar mundir.
Við slógum á þráðinn til
Péturs til að fá fregnir af
leiknum.
— Þetta gekk ágætlega hjá
okkur í leiknum, og nú höfum við
leikið 39 leiki í röð án þess að
tapa. Fyrsta mark leiksins kom
eftir aðeins þrjár mínútur. Ben
Vijstekers skoraði fyrsta markið
og ég bætti svo öðru marki við úr
vítaspyrnu á 30. mínútu. Jan
Peters var brugðið illa inni í
vítateignum og dómarinn dæmdi
tafarlaust vítaspyrnu. Þriðja og
síðasta mark leiksins skoraði ég
svo þegar þrjár mínútur voru til
leiksloka, komst í gegn um
vörnina og átti ekki í neinum
vandræðum með að renna bolt-
anum framhjá markverðinum.
Áhorfendur að leinum voru um
• Pétur hefur skorað 21 mark
það sem af er þessu keppnis-
tímabili, 15 í deildinni, 4 í
Evrópukeppninni og loks 2 í
hollensku bikarkeppninni.
33.000 og var mikil stemmning á
vellinum. Aðalþjálfari liðsins
gat ekki fylgt okkur til leiksins
þar sem hann var lasinn. Þá eru
fjórir leikmenn úr aðalliðinu
meiddir, og það gæti komið illa
við liðið á miðvikudag er við
leikum í UEFA-keppninni. — þr.
Úrslit í hollensku deildinni
urðu annars sem hér segir.
Feyenoord-FC Utrecht 3—0
Pec Zwolle-Vitesse Arnhem 2—1
PSV Eindhoven-NAC Breda 2—0
Maastricht-Ajax 0—2
Roda JC-Alkmaar 1—2
Tvente-Haarlem 2—2
NEC Nijmegen-Deventer 0-3
Den Haag-Excelsior 1-2
Willem Tilburg-Sparta 1-1
Ajax og Maastricht léku leið-
inlega viðureign, La Ling og
Lerby skoruðu mörk Ajax, en
Frank Arnesen var fluttur á
sjúkrahús með brákaða rist. Er
það áfall fyrir Ajax. Willy Van
Der Kuylen skoraði bæði mörk
PSV gegn Breda og fyrir Alk-
maar gegn Roda skoruðu Roger
Schouveenars og Kristian Ny-
gaard. Mark Roda skoraði Dick
Nanninga.
Staða efstu liða í Hollandi er
nú þessi.
Ajax 14 10 2 2 30:15 22
Feyenoord 14 7 7 0 28:11 21
AZ 67 Alkmaar 14 9 2 3 28:14 20
Körfuknattleikur | Knattspyrna || Handknattleikur
STAÐAN í úrvalsdeildinni í körfuknattleik að lokn- um 6 umferðum:
UMFN 6 5 0 1 533:502 10
KR 6 4 0 2 499:446 8
Valur 6 3 0 3 515:500 6
ÍR 6 3 03 484:514 6
Fram 6 204 503:521 4
ÍS Stigahæstu menn mótsins eru nú: 6 10 5 487:537 2
John Johnson Fram 229
Trent Smock ÍS 197
Jón Sigurðsson KR 159
Tim Dwyer Val 154
Gunnar Þorvarðarson UMFN 128
Marck Christiansen ÍR 127
Símon Ólafsson Fram 119
Kristinn Jörundsson ÍR 113
Guðsteinn Ingimarsson UMFn 110
Eftirtaldir leikmenn hafa hlotið flest stig í stigagjöf Mbl.:
Gunnar Þorvarðarson UMFN 23
Jón Sigurðsson KR 23
Guðsteinn Ingimarsson UMFN 21
Kristinn Jörundsson ÍR 20
Torfi Magnússon Val 19
Símon Ólafsson Fram 18
Sjá allt um körfubolta helgarinnar á bls. 23.
Einn leikur fer í kvöld fram í úrvalsdeild íslands-
mótsins í körfuknattleik. KR og Fram eigast þá við í
íþróttahúsi Hagaskólans og hefst leikurinn klukkan
19.00. Strax að honum loknum leika síðan KR og IR í 1.
deild kvenna.
Atli og Lási
til Bochum?
Margir leikir fóru að venju
fram í íslandsmótinu í hand-
knattleik um helgina, en
lesa má um þá alla á blaðsíð-
um 22, 24 og 25.
• Hinn síungi Karl Jóhanns-
son, sem nú er orðinn 46 ára lék
með liði sínu HK gegn Val að
Varmá um hlegina. Þó að kapp-
inn væri lang elsti leikmaður-
inn á vellinum, var ekki að sjá
að hann gæfi yngri mönnum
eftir. Þvert á móti va hann einn
best maður HK í leiknum.
UMSE lagði UMFL!
„Ég talaði nú ekki við þá
sjálfur, en það kom simtal frá
vestur-þýska liðinu Bochum og
var kjarninn í þvi hvort Sigur-
lás Þorleifsson og ég hefðum
áhuga á að koma út og skoða
aðstæður hjá félaginu,” sagði
Atli Eðvaldsson i samtali við
Mbl. i gær.
Atli sagði enn fremur, að
ekkert hefði verið ákveðið
simleiðis heldur talað um að
félagið sendi þeim félögum bréf
með nánari fyrirmælum. „Við
létum í það skína að við kynn-
um að hafa áhuga á að fara til
þeirra og biðum nú átekta eftir
bréfi. Komi það er ekkert ólik-
legt að við kikjum til þeirra i
jólafriinu,“ bætti Atli við.
Um Bochum er það að segja,
að liðið er um miðja 1. deild.
Liðið er erfitt heim að sækja og
vinnur oft góða sigra gegn
sterkum liðum. Aðra sögu er að
segja um útiárangur liðsins
sem er ekki eins glæsilegur. Um
helgina tapaði t.d. liðið fyrir
Beyer Lcverkusen á útivelli, 1-3.
-gg.
• Atli
Arnór
átti
storleik
Lokeren er eitt og efst í
belgísku deildarkeppninni í
knattspyrnu eftir góðan sigur á
útivelli gegn Cercle Brugge.
Lokatölur urðu 4—2 fyrir Lok-
eren. Að sögn Péturs Pétursson-
ar í Hollandi, en hann fylgdist
með viðureigninni í sjónvarp-
inu, lék Arnór allan leikinn
með Lokeren og stóð sig geysi-
lega vel og væri greinilegt að
hann hefði aldrei verið betri.
„Arnór átti gersamlega tvö
fyrstu mörk Lokeren og hann
var óheppinn að skora ekki
sjálfur í leiknum,“ sagði Pétur
og bætti þvi við að það hlyti að
verða erfitt að setja Arnór úr
liðinu eftir slíkan leik. Úrslit
leikja í belgisku deildinni urðu
þessi um helgina:
Anderlecht—Winterslag 5—0
Waterschei—Molenbeek 1 — 1
Cercle—Lokeren 2—4
Berchem—Beerschot 2—0
Waregem—Charleroi 3—0
Beveren—FC Brugge 2—1
FC Liege—Beringen 1—2
Lierse—Standard 3—1
Ilasselt—Antwerp 1—5
Pétur tjáði Mbl. að Ásgeir
Sigurvinsson hefði skorað eina
mark Standard Liege og gert það
úr vítaspyrnu. En Standard féll
við ósigur sinn niður í 4—5 sæti
deildarinnar. Staða efstu liða í
deildinni er nú þessi. Enska
knattspyrnan er á bls. 28 og sú
V-þýska á bls. 26.
1 — Lokeren 11 2 2 38 10 24
2 - FC Bruges 10 2 3 32 10 22
3 - Standard 8 4 3 39 19 20
4 - PWD Molmbeek 7 6 2 20 13 20
• Sigurlás
UMSE lék sinn besta leik í háa
herrans tíð í 1. deild íslands-
mótsins i blaki er liðið lagði
íslandsmeistarana UMFL að
velli í Glerárskóla á lagardag-
inn. Sigruðu Eyfirðingarnir
3—2 1 miklum hasarleik sem
stóð í 102 mínútur. Fyrstu
hrinuna sigruðu heimamenn
15—11, en siðan virtist vera að
siga á ógæfuhliðina þegar
UMFL vann tvær næstu hrin-
urnar 15-12 og 15-7. UMSE
jafnaði hins vegar 15—9 og
úrslitahrinan var síðan æsi-
spennandi. UMFL komst í 14 —
10 og virtist vera með leikinn í
hendi sér, en þá mistókst hjá
þeim uppgjöf og UMSE sigraði
loks 18—16.
Daginn eftir sneru Laugdæl-
irnir síðan blaðinu við, unnu
UMSE 3-1, 14-16, 15-19, og
loks 15—13. UMFL lék án síns
besta manns, Haralds G. Hlöð-
verssonar og munar um minna,
en UMSE veitti liðinu gífurlega
keppni, jafnt í taplotum sem í
sigurlotunum.
Á föstudagskvöldið sigraði
Þróttur ÍS 3—1 og þökkuðu
Þróttarar því nýju búningunum
sínum sem þeim leið sérlega vel
í. Hrinurnar enduðu 15—11,
15—17,15—16 og loks sigurhrin-
an 15-7.
Tveir leikir fóru fram í 1. deild
kvenna , ÍS sigraði UBK 3—2 og
IMA sigraði UMFL 3—0. Það var
einnig nóg að gera í 2. deild
karla, en Þróttur frá Neskaup-
stað fór í mikla keppnisferð um
Norðurland, vann KA 3—1, en
tapaði fyrir Völsungi 1—3 og
IMA 0—3. gá/gg