Morgunblaðið - 27.11.1979, Side 43

Morgunblaðið - 27.11.1979, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 1979 23 Scnwarz leiddi Þór til sigurs EKKI var framkoma Grindvík- inga þeim til sóma í leik þeirra við Þór á Akureyri s.l. laugar- dag. Þórsarar sigruðu 108:85, staðan i hálfleik var 50:43. Dómarar leiksins vísuðu þrem af liðsmönnum UMFG út úr salnum, í seinni hálfleik. Fyrst var Mark Holms rekinn út fyrir kjafthátt af varamannabekknum um miðjan seinni hálfleik, en hann var þá nýkominn útaf með 5 villur. Litlu síðar fylgdu svo þeir Sigmar Eðvarðsson og Eyj- ólfur Guðlaugsson í kjölfarið. Þeim likaði víst ekki einhver dómur dómaranna og voru þeir helst til of hvassyrtir í garð dómaranna, sem umsvifaiaust vísuðu þeim út úr salnum. Á leið sinni út úr salnum gerði annar sér lítið fyrir og hrækti í átt til annars dómarans, ekki beint fyrirmyndarframkoma. En lítum á gang leiksins. Þórs- arar tóku strax forystuna í leikn- um og héldu henni út allan leikinn. Um miðjan fyrri hálfleik höfðu Þórsarar gert 38 stig en UMFG 25, en Grindvíkingar minnkuðu muninn og var staðan í hálfleik 50:43 Þór í vil. í seinni hálfleik juku Þórsarar forystuna jafnt og þétt og um miðjan hálfleikinn var staðan 80:57 og hélst sá munur allt til loka leiksins en lokatölurnar urðu eins og áður sagði 108:85. Leikurinn í heild var ágætlega leikinn, en varnir beggja liða voru ansi götóttar. Hjá Þór var Gary Schwartz langbestur, hann átti mjög góðan leik og hitti mjög vel þegar sá gállinn var á honum. í leiknum tóku sig upp meiðsli hjá Eiríki Sigurðssyni, einni af styrkustu stoðum liðsins, sem hafa hrjáð hann að undanförnu, og er þar skarð fyrir skildi ef hann leikur ekki með á næstunni. Stig Þórs skoruðu Gary Schwartz 42, Er- lingur Jóhannsson 14, Alfreð Túlinius 12, Eiríkur Sigurðsson 12 og aðrir minna. Hjá UMFG var Mark Holms bestur og aðrir leikmenn stóðu honum talsvert að baki. Grindvík- ingar létu smámunasemi dómar- anna fara í taugarnar á sér og kann það ekki góðri lukku að stýra. Stigahæstir hjá UMFG voru Mark Holms 39, Eyjólfur Guð- laugsson 11, Ólafur Jóhannsson 10, Ingvar Jóhannsson 6 og aðrir minna. Dómarar voru Hörður Túlinius og Rafn Benediktsson. Dæmdu þeir ágætlega en voru helst til of smámunasamir. sor. UMFG lagói Tindastol ÞAÐ leit út fyrir að Grindvík- ingar ætluðu að kaffæra Tind- stælinga strax í upphafi leiks þeirra á Akureyri á laugardag- inn. Þeir skoruðu 9 fyrstu stigin, og það var ekki fyrr en eftir 3 mín. að Kára Maríssyni tókst að skora fyrstu körfuna fyrir Tinda- stól. Við það vöknuðu Tindstæl- ingar til lífsins og fóru að saxa á forskotið. Eftir þetta varð mun- urinn aldrei mikill og minnstur 2 stig. Staðan í hálfleik var 39—35, Grindavík í hag. í upphafi síðari hálfleiks tókst Tindastól að jafna 39—39, en síðan datt botninn úr leik þeirra um stund. Gengu Grindvíkingar á lagið og breyttu stöðunni í 55—45. Þrátt fyrir þetta mótlæti gáfust Tindstælingar alls ekki upp og nú náðu þeir, á næstu mínútum, að jafna 57—57 og komast yfir í fyrsta skipti í leiknum, á 15. mín., 59-57. Sú dýrð stóð þó ekki lengi, því strax í næstu sókn fékk Kári Marísson, aðalmaður Tindastóls, sína 5. villu er dæmdur var á hann ruðningur. Grindvíkingar náðu fljótt forystunni aftur og héldu henni til leiksloka. Þegar upp var staðið höfðu Grindvíkingar skorað 73 stig en Tindstælingar 67. Leik- urinn í heild var frekar slakur þó annað slagið brygði fyrir skemmtilegum tilþrifum á báða bóga. Þó ekki væri skorað meira en raun bar vitni var það ekki góðum varnarleik liðanna að þakka, held- ur hve illa leikmenn fóru með upplögð tækifæri. Tindstælingar hljóta að hafa nagað sig í handar- bökin eftir leikinn, því sigurinn hefði alveg eins getað lent þeirra megin. Þeim virtist fyrirmunað að koma boltanum ofan í körfu Grindvíkinga á síðustu mínútun- um og þá er ekki að sökum að spyrja. Hjá Grindavík var Mark Holmes langbestur, stór og sterk- ur leikmaður sem hirðir mikið af fráköstum. Tindstælingar áttu oft á tíðum erfitt með að stoppa hann. Hann skoraði 26 stig, næstir voru Júlíus Ingólfsson með 17 stig, Ólafur Jóhannsson með 9 og aðrir færri. Hjá Tindastól voru þeir Birgir Rafnsson og Kári Marísson í algjörum sérflokki, og þeir einu sem virkilega kvað eitthvað að. Kári stjórnaði spilinu mjög vel meðan hans naut við, og hittni hans var mjög góð á köflum. Birgir var óragur við að brjótast inn í vörn andstæðinganna, sem gekk mjög erfiðlega að stöðva hann nema þá með því að brjóta á honum. Skoraði hann margar körfur á þennan hátt og var stigahæstur með 26 stig. Kári kom næstur með 19, Karl Ólafsson skoraði 6 og aðrir minna. Góðir dómarar leiksins voru Hörður Túliníus og Magnús Jónatansson. Stórsigur ÍBK ÞAÐ heyrir til tiðinda, að enginn Bandarikjamaður var meðal leik- manna er Keflvikingar mættu Borgnesingum i 1. deildinni i körfuknattleik á laugardaginn. Welshans þjálfari ÍBK og Web- ster Spói, þjálfari Borgnesinga máttu ekki leika með liðum sinum og urðu að gera sér að góðu að stjórna liðum sínum af bekkjunum. Keflvikingar unnu stórsigur i leiknum, skoruðu helmingi fleiri stig en Borgnesingarnir, 114:57. Stigahæstir Keflvíkinga voru Björn Skúlason með 28 stig, Einar Steinsson með 25 stig og Sigurgeir Þorleifsson með 24 stig. - áij • Stcfán Kristjánsson blakar knettinum til félaga síns Kristins Jörundssonar áður en að Jónas Njarðvíkingur getur klófest hann. Ljösm. Emilía. Sóknarleikurinn í fyrir- rúmi er UMFN vann ÍR NJARÐVÍKINGAR unnu ÍR- inga 103:96 í bráðskemmtilegum og á köflum mjög góðum leik í úrvalsdeildinni i körfuknattleik i Hagaskóla á laugardaginn. Njarðvíkingar halda því enn stöðu sinni á toppi deildarinnar, en ÍR-ingar verða að herða sig ef þeir ætla að vera með í slagnum í vetur. Með þessum sigri tókst Njarð- víkingum, auk þess að leggja erfiðan andstæðing að velli, að sigrast á þeirri hjátrú að þeir geti ekki unnið ÍR í Hagaskólan- um. Njarðvíkingar töpuðu þrem- ur leikjum þar við ÍR í fyrra, tvisvar í deildinni og einu sinni í bikarkeppninni. Að auki vann ÍR lið UMFN á heimavelli þeirra siðarnefndu í fyrstu umferð úr valsdeildarinnar í haust, þannig að þessi sigur var sérlega kær- kominn fyrir UMFN. ÍR hafði forystu allan fyrri hálfleikinn og í leikhléi var mun- urinn 2 stig, 52:50, en munurinn var mestur 5—6 stig á liðunum. Njarðvíkingum tókst fljótlega að komast yfir í seinni hálfleiknum og undir lokin tókst þeim að auka muninn og innsigla öruggan sigur — sem þeir stálu engan veginn, eins og þeir hafa leikið sér að, að undanförnu. E.t.v. hefur það skipt sköpum í þessum leik að þegar leikmenn UMFN- ÍR 103=96 beggja liða komust í villuvand- ræði, þá voru varamenn UMFN mun sterkari heldur en IR-inga. Þannig misstu Njarðvíkingar Ted Bee og Júlíus út af þegar 8 og 6 mínútur voru eftir, en nokkru áður og síðan þegar 5 mínútur voru eftir fóru Stefán Kristjáns- son og Jón Jörundsson útaf með 5 villur. Skörð Stefáns og Jóns voru ekki fyllt, en þetta virtist ekki breyta neinu fyrir Njarðvíkinga, skiptimennirnir stóðu fyrir sínu. Síðast var jafnt 94:94, en þá skoruðu leikmenn UMFN 9 stig gegn 2 og tryggðu sigurinn. Þrátt fyrir ósigurinn eiga ÍR- ingar hrós skilið fyrir þennan leik. Þeir komu með allt öðru hugarfari til þessa leiks, heldur en gegn KR á dögunum. Hreyfanleikinn og baráttan var allt önnur í liðinu. Keyrt var á sömu 5 leikmennina allan tímann og allir stóðu þeir sig vel, en þegar þeir þurftu að fara út af voru aðrir leikmenn liðsins ekki þeirra makar. Njarðvíkingar leika mjög hrað- an körfuknattleik og sóknarleik- urinn er þeirra aðall. Oft á tíðum er mjög gaman að horfa á Njarð- víkurliðið leika og þeir eru ekki á flæðiskeri staddir með leikmenn. Beztu menn UMFN að þessu sinni voru Guðsteinn Ingimarsson og Gunnar Þorvarðarson, miklir baráttumenn og hittni þeirra beggja var í góðu lagi að þessu sinni. Júlíus, Ted Bee og Jónas léku einnig vel og ekki skal þeim gleymt Brynjari og Jóni Matthí- assyni. Beztir ÍR-inga voru Krist- inn Jörundsson og Stefán Krist- jánsson, en Mark, Jón Jörundsson og Kolbeinn gerðu allir fallega hluti í þessum leik, en sín mistök á mílli. STIG UMKN: Guðsteinn 22. Gunnar 20. Ted Bee 19. Jónas 14, Július 12, Brynjar 10. Jón 6. STIG ÍR: Mark Christiansen 25, Kristinn 22. Jón 17, Stefán 15, Kolbeinn 13, Sigmar 4. DÓMARAR: l’ráinn Skúiason og Guóbrand- ur Sigurðsson dæmdu leikinn. Voru ÍR-ingar óánægðir með frammistöðu þeirra að leik loknum, en hefðu úrslltin orðið Njarðviking- um í óhag er vtst að þeirra menn hefðu bðlvað dómurum ieiksins. - áij.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.