Morgunblaðið - 27.11.1979, Síða 46
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 1979
Fólk og fréttir
úr ýmsum áttum
Þrír kunnir kappar endurnýj-
uðu samninga sína síðustu dag-
ana. Ron Greenwood var ráðinn til
þriggja ára í viðbót sem landsliðs-
einvaldur enska knattspyrnu-
landsliðsins. Terry Venebles skrif-
aði undir nýjan samning við
Crystal Palace og er hann til
fjögurra ára. Loks endurnýjaði
Vestur-Þjóðverjinn Jimmy Hart-
wig samning sinn við meistaralið-
ið HSV til tveggja ára.
- O -
Það er víðast hver venja að reka
þjálfara ef illa gengur. í Vestur-
Þýskalandi er Hertha við botninn,
enda var þjálfarinn, Kvno Klötzer
rekinn fyrir skömmu.
Frank „Presley" Worthington,
miðherjinn sjálfumglaði hjá Bolt-
on, er farinn í fýlu hjá félagi sínu
og hefur óskað eftir sölu. Til þessa
hefur enginn sýnt áhuga.
- O -
Tibor Nyilazi, einn efnilegasti
knattspyrnumaður Ungverja-
lands, hefur lagt skóna á hilluna,
aðeins 24 ára gamall. Heilsan gaf
sig.
- O —
Einhver eða einhverjir hafa
grætt væna fúlgu er leikur Liver-
pool og Wolverhampton fór fram á
Anfield á dögunum. Einhver
rændi nefnilega 2000 stúkumiðum
og seldi þá á svörtum markaði.
Sökudólgurinn er ófundinn.
- O -
Nokkrar merkilegar sölur hafa
átt sér stað í Englandi síðustu
vikurnar. Sunderland keypti Stan
Cummins frá Middlesbrough og
hefur kappinn skorað tvívegis í
tveimur fyrstu leikjum sínum með
Sunderland. Þá keypti Aston Villa
Terry Bullivant frá Fulham.
- O -
Gamli enski landsliðsþjálfarinn
Bobby Moore lætur nú til sín taka
á nýjan leik í ensku knattspyrn-
HSV vann upp tveggja
marka forskot og vann
HSV tryggði sér tvö stig í þýskuj
úrvalsdeildinni með frábærum
lokaspretti gegn Stuttgart, sem
náði tveggja marka forystu á
útivelli gegn þýsku meisturun-
um. Það var Kevin Keegan sem
leiddi HSV til sigurs, hann lagði
fyrst upp mörk þeirra Hrubesch
og Hartwig sem jöfnuðu leikinn
og skoraði siðan sjálfur sigur-
markið með lúmskum skalla.
Áður höfðu þeir Olicher og Volk-
ert skorað fyrir Stuttgart.
Markvörður Stuttgart, Uwe
Greinar, átti ekki góðan leik og
hefði átt að geta komið í veg fyrir
öll mörk HSV. Áður en lengra er
haldið skulum við líta á úrslit
leikja um heigina.
Bayer Lev.k. — VFL Bochum 3—1
Kaiserslautern — W. Bremen 3—1
Hamburger SV — Stuttgart 3—2
E. Frankfurt — FC Köln 3—0
MSV Duisb. — Bayer Uerdr. 2—2
Hertha — 1860 Munchen 1—1
Bayern M. — Bor. Dortm. 4—2
Mönchengl.bach — Dússeld. 2—1
'"-'halke 04 — Brunswick 1—0
Bayern skaust í annað sætið
með stórgóðum sigri á Borussia
Dortmund. Niedermayer skoraði
fyrir Bayern fljótlega og skömmu
síðar spyrnti Augenthaler að
marki og breytti knötturinn um
stefnu af varnarmanni Dortmund
og smaug undir hinn 18 ára gamla
markvörð Dortmuftd, Eike Immel.
Dortmund átti sér ekki viðreisnar
von úr því. Huber minnkaði þó
muninn með því að skora úr víti,
en Breitner skoraði snarlega
þriðja mark Bayern, einnig úr víti,
Karl Heins Rumenigge bætti
síðan fjórða markinu við um
miðjan síðari hálfleik, en síðasta
orðið átti Manfred Burgsmúller
fyrir Dortmund, 4—2.
Frankfurt skaust í þriðja sætið
með stórsigri yfir Köln, þar sem
Tony Woodcoek, nýi maðurinn frá
Nottingham Forest sat í stúkunni
og líkaði ekki vel það sem hann sá
til sinna manna. Kóreumaðurinn
Cha Kun Bum skoraði tvö af
mörkum Frankfurt og Krager það
þriðja, en leikmenn Frankfurt
• Leikmenn Bayern Mtlnchen fagna marki. Lengst til hægri er Paul
Breitner og lengst til vinstri er Niedermayer, en báðir skuruðu fyrir
Bayern um helgina.
klúðruðu nógu mörgum dauðafær-
um til þess að vinna 3—4 leiki.
Schalke og Borussia Mönch-
engladbach hafa nálgast toppinn
mjög að undanförnu og bæði unnu
góða sigra um helgina. Schalke
lenti þó í nokkrum erfiðleikum
með botnliðið Brunswick, en
marði þó sigur með marki útherj-
ans Rúdiger Abramczik. BMG var
hins vegar marki undir gegn
Dusseldorf, en það var Wenzel
sem skoraði fyrir Dusseldorf.
Edward Lienen og Karl Del Heye
svöruðu fyrir BMG og Harald
Nickel brenndi auk þess af úr
vítaspyrnu.
Sænski miðherjinn Benny
Wendt var í ham er lið hans
Kaiserslautern vann Werder
Bremen örugglega 3—1. Wendt
skoraði öll mörk liðs síns, öll með
sköllum og öll á innan við 9
mínútum um miðjan fyrri hálf-
leik. Reinders minnkaði muninn
fyrir Werder snemma í síðari
hálfleik, en markið breytti engu
um úrslitin.
Nýliðarnir frá Bæheimi, Uerdr-
ingen og Leverkusen tryggðu sér
dýrmæt stig um helgina. Lever-
kusen sigraði Bochum örugglega
3—1 með mörkum Demuth (2) og
Hermann, en Abel svaraði fyrir
Bochum með marki úr vítaspyrnu.
Uerdringen krækti í stig á útivelli
gegn Duisburg, en aðeins vegna
þess að Bernd Dietz, fyrirliði
Duisburg, spyrnti úr vítaspyrnu í
stöngina rétt fyrir leikslok. Loka-
tölur leiksins urðu 2—2, Dietz og
Kempe komu heimaliðinu í 2—0,
en Emke og gamla kempan Siggi
Held, 38 ára gamall, skoruðu mörk
Uerdringen.
Þá er aðeins ógetið um einn leik,
viðureign Herthu og annars botn-
liðs 1860 Munchen. Jafntefli varð
og græddi hvorugt liðið á því.
Klieman náði forystunni fyrir
Herthu, en Sensen jafnaði þegar
síðari hálfleikur var hálfnaður.
Staðan í Þýskalandi er nú þessi.
Ilamburger SV
Bayern Munchen
Eintracht Frankfurt
öorussia Dortmund
FC Schalke 04
Borussia Mönchenglb.
FC Köln
VFB Stuttgart
FC Kaiserslautern
VFL Bochum
Bayer Uerdingen
Bayer Leverkusen
Fortuna Dtlsseldorf
MSV Duisburg
Werder Bremen
1860 Munchen
Hertha BSC Berlin
Eintracht Brunswick
14 8 4 2 31:14 20
14 8 3 3 28:16 19
14 905 28:15 18
14 8 24 27:22 18
14 65 3 23:14 17
14 6 53 27:21 17
14 644 28:23 16
14 6 3 5 24:22 15
14 536 22:18 13
14 536 16:17 13
14 536 17:22 13
14 455 19:27 13
14 4 4 6 29:31 12
14 4 37 17:28 11
14 437 16:28 11
14 257 12:22 9
14 25 7 12:24 9
14 3 29 14:26 8,
• Kvennabósinn John Tate og Sjaplín
• Paul Breitner
unni. Hann hefur nú tekið við
framkvæmdastjórastöðunni hjá
Rotherham í 3. deild.
- O -
Austurríski landsliðsmarkvörð-
urinn Friedl Koncilia, sem ekki
alls fyrir löngu var orðaður við
Manchester Utd., er nú kominn til
Anderlecht. Honum hefur þó ekki
gengið allt í haginn og varaliðið
hefur verið hlutskipti hanS í vetur.
Þrátt fyrir það afþakkaði hann
gylliboð, þriggja ára samning við
Cosmos, fullt af seðlum!
- O -
Það er skammt öfganna á milli.
Brasilíski knattspyrnumaðurinn
Levinha var á sínum tíma geysi-
lega vinsæll hjá félagi sínu Sao
Polo. Áhangendur liðsins dýrkuðu
hann. Síðan lá leiðin til Atletico
Madrid þar sem Levinha átti
Þetta eru danskar handknattleikskonur, stæðilegar í meira lagi,
a.m.k. þær dökkklæddu. Hefur margur haft á orði þá furðulegu
breytingu sem verður á kvenfólki frá þeim tíma sem menn sjá þær
hverfa til búningsklefa og þar til þær koma út aftur í fullum
handboltaskrúða. Ef mcnn gera sér ekki í hugarlund hvað átt cr við,
þá...
Sigur og tap
hja Tékkum
Tékkar, Evrópumeistararnir í
knattspyrnu landsliða, tryggðu
sér endanlega sæti í úrslitum
keppninnar á Ítalíu næsta sumar
með því að sigra Luxemborg í
landsleik um helgina og um leið
tryggði liðið sigur sinn í 5. riðli.
Tékkar skoruðu fjögur mörk
gegn dvergríkinu.
Staðan i hálfleik var 3—0 og
yfirburðir Tékka voru miklir.
Panenka skoraði fyrsta markið
og átti allan heiðurinn af næstu
tveimur mörkum sem Marian
Masny skoraði. Viszek bætti
fjórða markinu við í síðari hálf-
leik, en þá fóru Tékkarnir sér
hægar, enda sigurinn í höín.
Loksastaðan í riðlinum varð
þessi:
Tékkóslóvakía 6 5 0 1 17— 4 10
Frakkland 6 4 11 13— 7 9
Svíþjóð 6 1 2 3 9-13 4
Luxemburg 6 0 1 5 2—17 1
Tékkar kepptu á fleiri vígstöðv-
um þessa helgi, en ólympíulið
þeirra mætti ólympíuliði Ung-
verja í undankeppni 01. Tékkarnir
gátu ekki stillt upp bestu mönnum
sínum vegna Evrópukeppninnar
við Luxemburg og mættu því
Ungverjum með skraplið. Ung-
verjarnir mættu hins vegar með
alla atvinnumennina og sigruðu
auðveldlega 3—0. Tatar Karsai og
Kiss skoruðu mörk Ungverja.
Einn leikur er eftir í þeim riðli
sem Tékkar og Ungverjar leika í,
en það er síðari leikur þjóðanna.
Er það úrslitaleikur riðilsins.