Morgunblaðið - 27.11.1979, Qupperneq 22
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 1979
Slghvatnr: Konnr og bðrn I KJartan oc Svava: Hlupu undlr þlljur. þegar gaf á
llfbátana bátinn
Vegleysur ogr
vinstri stjórn
„Konur og börn
í lífbeltin
• • •
FYRSTA lögbundna grunnkaupsskerðing vinstri stjórnarinnar
var samþykkt á fundi í neðri deild Alþingis hinn 7. apríl
síðastliðinn. Frumvarpið um stjórn efnahagsmála o. fl. sam-
þykktu allir þingmenn stjórnarflokkanna, nema tveir. Frum-
varpið hlaut því í deildinni 22 atkvæði stjórnarsinna, gegn 14
atkvæðum þingmanna Sjálfstæðisflokksins og atkvæði Kjartans
Óiafssonar. Svava Jakobsdóttir sat hjá.
Atkvæðagreiðslur á fundinum voru nokkuð sögulegar með
tilheyrandi nafnaköllum og greinargerðum fyrir atkvæðum, en
þetta var lokaafgreiðsla frumvarpsins. í greinargerðum þingmanna
fyrir atkvæðum sínum féllu í senn þung orð og önnur, sem
nálguðust gamansemi.
Við atkvæðagreiðsluna var hver kafli frumvarpsins fyrir sig
borinn undir atkvæði, en í 1. kaflanum var fjallað um verðbætur á
laun. Gegn honum greiddu tveir þingmenn Alþýðubandalagsins
atkvæði, Kjartan og Svava, allir aðrir samþykktu. Sighvatur
Björgvinsson sagði um þetta háttalag þeirra, að það væri hlutskipti
sumra að hlaupa undir þiljur, þegar gæfi á bátinn og leita skjóls
meðan skipsfélagar kæmu bátnum heilum í höfn. Slík sjóhræðsla
þætti þó hvorki til fyrirmyndar á ísafirði né Súgandafirði. Svava
greiddi öllum öðrum köflum frumvarpsins atkvæði, en sat hjá við
atkvæðagreiðslu um frumvarpið í heild.
Kjartan Ólafsson sagði efnislega, að hann væri á móti, vegna
þess að Þjóðhagsstofnun mæti frumvarpið sem 6% kaupskerðingu,
sem næði að fullu til láglaunafólks. Frumvarpið gengi á gerða
kjarasamninga og því segði hann nei. Sighvatur Björgvinsson kvað
hér vera um tvennt að velja, að standa við gert samkomulag og
stuðla þannig að áframhaldandi stjórnarsamstarfi, eða breyta í
gagnstæða átt og ganga í lið með stjórnarandstöðu.
Sighvatur Björgvinsson sagði, að ekki yrði bæði sleppt og haldið.
Aðalatriðið væri að sigla þjóðarskútunni heilli í höfn. Þó væri
ekkert á móti því, að „konur og börn“ meðal farþega færu strax í
lífbeltin og leituðu skjóls í björgunarbátum ýmiss konar sérstöðu.
Þar mun Sighvatur hafa átt við þá þingmenn Alþýðubandalagsins,
sem greiddu atkvæði gegn frumvarpinu eða sátu hjá.
Alþýðubandalagið og olíumálin
í SEPTEMBER og október í
haust var innvegin mjólk i
mjólkursamlögunum um einni
milljón lítrum minni en á sama
tíma í fyrra. Var tekið á móti 20,7
milljón lítrum í haust, en í fyrra
21.7 m.l. Fyrstu 10 mánuði ársins
var innvegin mjólk 101,4 m.l, sem
er 2,8% minna en sama tímabil
árið 1978.
Óverulegur samdráttur varð í
sölu nýmjólkur að því er kemur
fram í Fréttabréfi Upplýsinga-
þjónustu landbúnaðarins, en mikil
aukning eða 11,7% varð í sölu
rjóma. Undanrennusala fyrstu 10
mánuðina var hálfri milljón
lítrum minni en á sama tíma í
fyrra og smjörframleiðslan 1.295
Bíll út í læk
Á FÖSTUDAGSKVÖLDIÐ varð
það óhapp að jeppabifreið fór útaf
Hafnarfjarðarvegi við Hrauns-
holtslæk og hafnaði í læknum.
Þrjú ungmenni voru í bílnum og
slasaðist tvennt og var flutt á
slysadeildina. Fljúgandi hálka var
á veginum þegar óhappið varð.
tonn sem er 21% minna en fyrstu
10 mánuðina í fyrra. Var smjör-
salan svipuð og í fyrra, aukning
var í sölu 45% osta og aöluaukn-
ing á flestum sérvörum mjólkur-
iðnaðarins. Voru seldir 100 þúsund
lítrar af jógurt-fyrstu 10 mánuð-
ina, sem er 182% aukning frá
fyrra ári, 47% aukning var í sölu
kókómjólkur, 22% söluaukning
bláberjaskyrs og 34% söluaukning
á sýrðum rjóma.
Ekki var hægt að
flytja Svavar í
böndum til Moskvu
OLÍUMÁL og innkaup íslend-
inga á þeim orkugjafa voru
ofarlega á baugi í þjóðmálaum-
ræðunni um mitt þetta ár, er
menn vöknuðu upp við það, að
oliureikningur landsmanna hjá
Sovétríkjunum hafði nær þrefald-
azt miðað við árið á undan, hafði
stigið um 44 milljarða króna, í
68,4 miiljarða. Vegna þessa kom
upp krafa um viðræður við Sovét-
menn um nýja verðviðmiðun í
oliukaupasamningi okkar. Rætt
var um, að Svavar Gestsson,
viðskiptaráðherra, færi til
Moskvu til viðræðna, en hann
reyndist ófáanlegur til þess.
Minnisstæð eru ummæli Stein-
grims Hermannssonar, samráð-
herra Svavars, og formanns
Framsóknarflokksins, sem sagði,
að ekki væri unnt að flytja
Svavar í böndum til Moskvu.
Raunar var það Morgunblaðið,
sem hóf umræðuna um olíumálin
og krafðist þess, að stjórnvöld
gerðu ráðstafanir til þess, að
Islendingar gætu fengið ódýrari
olíu. Sighvatur Björgvinsson
krafðist þess, að Svavar færi til
Moskvu og Benedikt Gröndal,
utanríkisráðherra bauðst til þess
að fara með honum til viðræðn-
anna. „Það er ekki hægt að Ieggja
meiri áherzlu á mál heldur en að
senda ráðherra," sagði Benedikt,
en Svavar sat við sinn keip.
Þjóðviljinn, málgagn sósíalisma
og þjóðfrelsis, kallaði þá kröfu
Morgunblaðsins, að leitað yrði
hagkvæmari markaða til olíu-
kaupa „yfirþyrmandi móðursýki".
Það kállaði það „hreinan barna-
skap“ um sólstöður að óska við-
ræðna við Sovétríkin um nýja
verðviðmiðun. Benti blaðið m.a. á,
að fáranlegt væri að ætla Sov-
étríkjunum að selja íslendingum
olíu á sama verði og þau selja
Austur-Evrópuþjóðum þetta
„svarta gull“. I annan stað benti
það á, að ekki gæti talizt eðlilegt,
að Sovétríkin verðlaunuðu íslend-
inga fyrir aðildina að Atlantshafs-
bandalaginu. Um þetta atriði
sagði í leiðara Þjóðviljans: „Annað
mál er svo það, að viðskiptaráð-
herra hefur að sjálfsögðu haft
samband við Rússa og reynt að fá
þá til að taka upp samninga um
betri kjör okkur til handa. En
samningsstaða Rússa er mjög
sterk og ekki von, að þeir séu að
hygla sérlega Nató-þjóð.“
Hátíð sjálfstæðismanna
á ísaf irði og Hníf sdal
Haustmjólkin tæp-
um milljón lítrum
minni en í fyrra
ísafirði 23. nóv.
Á föstudag gengust sjálf-
stæðisfélögin á ísafirði og í
nágrenni fyrir fjölbreytt-
um hátíðahöldum fyrir
stuðningsmenn flokksins. í
eftirmiðdaginn var opið
hús í Sjálfstæðishúsinu,
þar sem frambjóðendur
Sjálfstæðisflokksins í Vest-
fjarðakjördæmi sátu fyrir
svörum.
Mikill fjöldi manna kom og þáði
veitingar og ræddu við frambjóð-
endur. Um kvöldið var svo
skemmtun í félagsheimilinu í
Hnífsdal, þar sem 5 efstu menn
D-listans fluttu ávörp, Halldór
Jónsson flutti kvæði um vinstri
stjórnina sálugu. Hildur Einars-
dóttir úr Bolungarvík söng gam-
anvísur og kvintett úr Bolung-
arvík, skipaður séra Gunnari
Björnssyni, Einari Jónatanssyni,
Önnu Kjartansdóttur, Guðrúnu
Magnúsdóttur og Veroniku
Björnsson, söng nokkur lög við
mjög góðar undirtektir. Samkom-
unni stjórnaði Guðmundur Þórð-
Frá hátið sjáifstæðismanna i Hnifsdal.
Ljósm.: Úlfar
arson formaður fulltrúaráðs sjálf-
stæðisfélaganna á ísafirði. Sjálf-
stæðiskonur á ísafirði og úr Bol-
ungarvík sáu um kaffiveitingar
sem voru með miklum myndar-
brag.
Að lokum var svo dansleikur að
Uppsölum. Þar söng Ásthildur
Þórðardóttir gamanvísur. Bæði í
Hnífsdal og á Uppsölum var fullt
hús og góð stemmning.
Úlfar.
Frambjóðandi Framsóknar nyrðra:
Andvígur veru
varnarliðs
GUÐMUNDUR Bjarnason bankastjóri, 3 maður á framboðslista
Framsóknarflokks á Norðurlandi eystra, lýsti því yfir, aðspurður,
á framboðsfundi á Dalvík, að hann væri andvígur veru varnarliðs í
landinu.
Guðmundur tók hins vegar fram að hann væri fylgjandi aðild
íslands að Atlantshafsbandalaginu.
Þessi afstaða hans kom fram i svari við fyrirspurn framan úr
sal.
Victor Korchnoi stórmeistari:
Leitar aðstoðar ís-
lenzkra stjómvalda
UTANRÍKISRÁÐUNEYTINU barst i gær bréf frá Victor
Korchnoi, hinum landflótta sovézka stórmeistara, þar sem hann
óskar aðstoðar íslendinga við það að fá konu sína og son frá
Sovétríkjunum. Bréfið er skrifað frá Wohlen í Sviss, þar sem
Korchnoi nú býr og er það stílað til ríkisstjórnar íslands.
Benedikt Gröndal, forsætis- og
utanríkisráðherra sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær, að bréfið
hefði þá rétt borizt. Það væri nú
til athugunar í utanríkisráðuneyt-
inu og kvaðst hann vænta þess, að
viðbragða yrði ekki langt að bíða
vegna þessarar málaleitanar
stórmeistarans.