Morgunblaðið - 27.11.1979, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 27.11.1979, Blaðsíða 26
34 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 1979 Fatlaöir fjölmenntu ó leiksýn- ingu í lönó s.l. föstudagskvöld. Á fjölunum var þá leikritið „Er þetta ekki mitt líf?“ Fremstu bekkir leikhússins voru þétt skipaðir af fötluðu fólki og tvœr raðir af hjólastólum voru fyrir framan fremsta bekkinn. „Þetta er mjög merkilegt verk,“ sagöi Sigursveinn D. Krist- insson er blm. hitti hann að móli í sýningarhléi. „Ég hef velt fyrir mér þeirri spurningu sem þarna er á fjölunum. Ég er í rauninni sammála manninum að það sé furðulegt að í sama þjóðfélagi og skortur er á heilsusamlegri að- hlynningu skuli allt gert til aö halda lífi í fólki lengur en það sjálft óskar,“ sagði hann. Sigursveinn sagði að fatlaðir gerðu töluvert af því að fara í leikhús, sérstaklega þeir sem byggju í Sjálfsbjargarhúsinu og öðrum stofnunum. „Athyglisverð sýning“ Sigurrós Sigurjónsdóttir var mjög ánægð með leiksýninguna og sagði hana vera mjög athyglis- verða. „Það er ekki miklum erfiöleik- um bundið fyrir okkur fatlaða að komast í þetta leikhús nema ef við þurfum að ieggja bílunum langt í burtu. Þá getur verið erfitt að komast aö húsinu sérstaklega í hálku eins og núna. En stigarnir í Þjóðleikhúsinu eru mjög erfiðir viðureignar," sagði Sigurrós. „Þróunin í þá átt aö torvelda fötluðu fólki leikhúsferöir“ Magnús Kjartansson ritar um verkió,„Er þetta ekki mitt líf?“ í leikskrána. „Mér finnst þetta feiknagott leikrit,“ sagði hann. „En það er nokkuð annað sem mér finnst Ifka athyglisvert. Það er miklu auöveldara fyrir fatlaðan mann aö komast í Iðnó en í Þjóöleikhúsiö þrátt fyrir það að Iðnó er svo miklu eldra hús. Þróunin er því í öfuga átt og gerir fötluöu fólki mun erfiðara aö komast í leikhús,“ sagöi Magn- ús. Vigdís Finnbogadóttir leik- hússtjóri gekk um meðal hinna fötluðu og bauð þeim sælgæti úr aski. Einn gestanna notaði tæki- færið og spurði hana að því hvort gert væri ráð fyrir fötluðum við byggingu Borgarleikhússins. Vigdís sagöi það vera svo. „Það verður lyfta alveg frá jafn- sléttu og upp að bestu sætunum.“ „Fordómarnir minni nú en áður“ Þeir bræður Gísli og Arnþór Helgasynir voru meðal leikhús- gesta. Eg vil ekki segja aö þetta sé skemmtilegt verk,“ sagöi Arnþór er blm. spurði þá hvernig þeir skemmtu sér undir leiksýning- unni. „Hlátur leikhúsgesta kem- ur oft eins og skrattinn úr sauö- arleggnum. Mér finnst þetta verk fá mann til að hugsa." „Leikritiö er að mínu mati ákaflega raunsæ lýsing," sagði Gísli. Að vísu er hún svolítið yfirdrif- in en ég held aö hún þurfi að vera þaö til að ná til áhorfandans," sagöi hann. — Verðið þið varið við for- dóma gagnvart fötluðu fólki er þið farið á skemmtistaði? „Það er alltaf eitthvað um slíkt en þó hafa þeir fordómar minnkað mikið s.l. 10 ár.“ „Auðveldara að komast í Iðnó en upp allar tröppur Þjóöleikhússins“ Að lokum ræddi blm. við Lýð Hjálmarsson sem sat í fremri röð hjólastólanna. „Ég skemmti mér bara mjög vel, þetta er athyglis- vert verk,“ sagði hann. „Ég get ekki sagt að ég fari oft í leikhús. Þaö er ekki miklum erfiðleikum bundið fyrir mig að komast þangaö en þó er mun auðveldara að komast í Iðnó en upp allar tröppurnar í Þjóðleik- húsinu. Starfsfólkiö er líka lipurt og þaö stendur ekki á hjálp þess ef við þurfum á henni að halda," sagði hann að lokum. Hluti þess hóps fatlaðra sem kom í Iðnó á föstudagskvöldiö. Myndir Emil>a' Fjölmenntu í Iðnó Gísli og Arnþór Helgasynir Sigurrós Sigurjónsdóttir „Mjög athyglisverð sýning.“ Magnús Kjartansson: „Þróun- in er í þá átt að gera fötluöu fólki erfiðara að komast í leikhús.“ Vigdís Finnbogadóttir leikhússtjóri gekk um meðal fötluðu leikhúsgestanna og færði þeim sælgæti úr aski. Lýöur Hjálmarsson: „Mun auðveldara aö komast í Iðnó en upp allar tröppur Þjóö- leikhússins." Sigursveinn D. Kristinsson: „Furöulegt aö reynt skuli aö halda lífi í fólki lengur en það óskar í sama þjóðfélagi og skortur er á heilsusamlegri aðhlynningu.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.