Morgunblaðið - 27.11.1979, Síða 28

Morgunblaðið - 27.11.1979, Síða 28
3 6 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 1979 Gannar Már Kristófersson EiAur Guónoson GuÓraundur Vésteinsson Sveinn Kristinsson BJörrvin GuAmundsson Skúli Alexandersson Þórunn frá KaAalstöAum DaviA AAalsteinsson Valdimar IndriAason Haukur Ingribergsson Hetjur ríða um héruð Vesturlandskjördæmis: Einn ræðumaður á hverja tíu fundarmenn í Stykkishólmi Hetjur stjórnmála- flokkanna halda áfram að ríða um héruð og halda hvern framboðsfundinn á fætur öðrum í nýjum og nýju byggðarlögum. I kjördæmunum úti á landi eru mjög tíðkaðir fram- boðsfundir allra flokka í senn, þar sem kjósendur fá að sjá hvernig frambjóð- endum vegnar í kappræð- um hver við annan. Víða úti um land þykja slíkir fundir hin besta skemmtan, auk þess sem ræðumenn miðla af þekkingu og stefnu flokka sinna. Á fimmtudagskvöld var haldinn sameigin- legur framboðsfundur Al- þýðuflokks, Alþýðubanda- lags, Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks í Stykkishólmi, nánar tiltek- ið í hinu nýja og glæsilega Hótel Stykkishólmi. Hvorki meira né minna en átján ræðumenn töluðu, og sumir oftar en einu sinni, þannig að Hólmarar fengu á einu kvöldi yfir sig meira en tuttugu fram- boðsræður. Ræðumenn voru mis- jafnlega margir frá hverj- um flokki, frá fjórum upp í sex, og fundarstjórar voru tveir. £7/i/i ræðumadur á hverja tíu íundarmenn Að sögn fundarstjóra voru fundarmenn um tvöhundruð talsins, og lætur því nærri að einn frummælandi hafi verið á hverja tíu fundarmenn. Fundarstjórar á fundinum voru þau Olafur Torfason og Kristín Bjarnadóttir og skiptu þau störfum bróðurlega á milli sín. Ræðumenn voru eftirtaldir og töluðu þeir í þessari röð: Skúli Alexandersson setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna fyrir hönd frambjóðenda. Síðan töluðu: Þórunn Eiríksdóttir frá Kaðlastöðum, Abl., Sveinn Kristinsson Abl., Jósef Þor- geirsson S., Davíð Aðalsteins- son F., Ingibjörg Pálmadóttir F., Eiður Guðnason A., Björgvin Guðmundsson A., Ríkharð Brynjólfsson Abl., Bjarnfríður Leósdóttir Abl., Valdimar Ind- riðason S., Óðinn Sigþórsson S., Jón Sveinsson F., Guðmundur Vésteinsson A., Gunnar Már Kristófersson A., Skúli Alex- andersson Abl., Friðþjón Þórð- arson S., Alexander Stefánsson F., og loks talaði Eiður Guðna- son aftur, og Skúli einnig, er hann þakkaði fundarmönnum fundarsetu, en frambjóðendur skipta þeim störfum með sér milli funda. Stóð íram yfir miðnætti Fundurinn var langur og strangur og lauk honum ekki fyrr en klukkuna var tekið að halla í eitt eftir miðnætti, en fundarmenn settu það ekki fyrir sig og sátu sem fastast þar til yfir lauk. Ræðumenn virtust oft á tíðum mun órólegri á fundinum, iðuðu í sætum sínum, keðju- reyktu pípur, vindla og vindl- inga, og drukku reiðinnar ósköp af vatni. Sumir þeirra gengu einnig um gólf og hurfu að tjaldabaki, svo sem þeir Eiður Guðnason og Björgvin Guð- mundsson flokksbróðir hans. Þá kölluðust ræðumenn einn- ig talsvert á, og voru ekki alltof ánægðir með að þurfa að sitja hljóðir meðan hinir töluðu. Einkum var þetta áberandi hjá Bjarnfríði Leósdóttur af Skaganum, sem var síkvartandi og nöldrandi úr sæti sínu yfir því að ræðumenn hinna flokk- anna skyldu ekki vilja lesa fyrir hana ræðupart sem hún hafði ekki tíma til eða áhuga á að lesa sjálf í sínum ræðutíma. Gekk hún á milli manna með ræðu- bútinn á blaði og grátbændi menn að lesa nú þetta lítilræði fyrir sig, en allt kom fyrir ekki, enginn fékkst til þess. Það vakti nokkra furðu blaðamanns, að ekki bað hún samframbjóðend- ur sína um að lesa plaggið fyrir sig, hefur trúlega vitað að þar talaði hún fyrir daufum eyrum! En öll var þessi framkoma Bjarnfríðar hin kyndugasta og tæplega hefur hún veitt mörg atkvæði á þennan leikþátt sinn, nema þá að kjósendur í Vestur- landskjördæmi geri allt aðrar kröfur til frambjóðenda sinna en aðrir landsmenn. Fátt kom á óvart Ekki verður með sanni sagt, að margt hafi komið á óvart á framboðsfundi þessum og ekki gerðust nein stórtíðindi sem ekki hafa áður gerst í þessari kosningabaráttu. Stefna Sjálfstæðisflokksins var til umræðu mestallan fund- artímann, eins og víðast hvar annars staðar á undanförnum Ræðumenn Sjálfstæðisflokksins i þungum þönkum: Talið frá vinstri: Friðjón Þórðarson, Valdimar Indriðason, óðinn Sigþórsson og Jósef Þorgeirsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.