Morgunblaðið - 27.11.1979, Side 33
fclk í
fréttum
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 1979
41
Oskars-verðlaunin í 52. skiptið
+ SEM kunnugt er er það sér-
stök stofnun, sem hefur með
höndum skipulag allt og undir-
búning þess mikla apparats í
Bandaríkjunum, sem er í kring-
um hin svonefndu „Oskars-
verðlaun“, sem veitt eru beztu
kvikmyndum, leikurum og leik-
stjórum, og hinum ýmsu þátt-
um í kvikmyndalistinni. Að
baki liggur vinna heillar aka-
demíu, sem heitir á ensku „Aca-
demy of Motion Picture Arts
and Sciences“. — Forseti henn-
ar er konan á þessari mynd,
sem heldur á vínglasinu, Fay
Kanin. — Hún hefur sjálf starf-
að við kvikmyndir og hennar
sérgrein er gerð kvikmynda-
handrita. — Hún var nýlega á
ferð suður á Ítalíu. Hér er hún
með ítölskum kvikmyndaleikur-
um, Vittorio Gassmann (til v.)
og Alberto Sordi. — Suður þar
lét forsetinn i ljós þá skoðun að
hún hefði áhuga á því að koma
á samstarfi milli kivkmynda-
leikara beggja vegna Atlants-
hafsins m.a. með því að t.d. að
Evrópuleikarar kæmu í kynnis-
för til Hollywood og störfuðu
þar með bandarískum kvik-
myndaleikurum. Afhending
Oskarsverðlaunanna mun fara
fram 14. apríl næstkomandi.
Verður það í 52. skiptið, sem
þessi verðlaun eru veitt. At-
höfninni verður sjónvarpað út
um heimsbyggðina að vanda, til
um 160 milljón sjónvarpsnot-
enda. Það kvöld er kallað
„stjörnukvöld".
Bolivíu-
forseti
+ HÉR höfum við hinn nýja
forseta Boliviu (konuna til
vinstri), Lidiu Gueiler. Hún tók
við forsetaembættinu um
siöustu helgi, er Alberto Na-
tusch herforingi sem braust til
valda 1. nóvember, tilkynnti
þjóð sinni i sjónvarpinu, að
hann hefði látið af forsetaemb-
ættinu. Það sama kvöld yfirgaf
hann forsetahöllina i La Paz i
fylgd hervarðar. Sagt er, að
hann sé kominn i útlegð. Sama
daginn og hann varð að láta af
embætti, hafði mikill mann-
íjöldi safnast saman við forseta-
höilina og var ekkert að fara i
felur með skoðanir sinar á
Natusch. Hinn nýi forseti Boli-
viu, Lidia Gueiler, hefur haft
mikii afskipti af stjórnmálum i
Boliviu, en flokkur hennar er
Byltingarflokkur vinstri bylt-
ingarmanna. Hún er fyrsta kon-
an sem kjörin var á þing
Boliviu, árið 1956.
Kominn í heimsmetabókina
+ ÞESSI Ástralíumaður, sem er frá borginni Bisbane,
Johnny Rogwell, fær nú nafn sitt skráð í heimsmeta-
bók Guiness. — Fyrir skömmu setti hann nýtt met á
svona stökki á bifhjóli, yfir röð bíla. - Stökkið
mældist 54 metra langt og hafði hann þá svifið yfir alls
þrjátiu og tvo bíla, sem lagt hafði verið hlið við hlið
framan við stökkpall bifhjólsins.
LAUSIR TÍMAR
é
HÚSINU
fyrir fjölskyldur, fyrirtæki eða einstaklinga.
Upplýsingar hjá húsverði sími "14387.
Laxidssmiðjan
SÖLVHÓLSGÖTU* 101 REYKJAVIK-SÍMI 2068O TELEX 2307
Ávallt fyrirliggjandi
lofftpressur
af öllum stæráum
JltlasCbpcc
LANDSSMIDJAN annast viðgerðaþjónustu á öllum tegundum
loftverkfæra og tækja.
Ef óskað er sjáum við einnig um fyrirbyggjandi viðhald.
Pappírsbleija — plastbuxur
5
stæröir
Þurrbtoija iuhI barninu htoypir raka út I
ytri pappiratögin, aam taka við mikilli
vaatu
Áfaatar ptoatbuxur koma {vag fyrir að
fðtin btolni
Barninu llður vai mað Pampars btoiju
hún paaaar val og barnið ar purrt.
cMmerióka 2
TUNGUHÁLSI 11. SÍMI 82700.