Morgunblaðið - 27.11.1979, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 27.11.1979, Qupperneq 36
44 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 1979 VlK> MORö-dK/ KAFF/NU (ö Nei, ég þarf engan verjanda, ég lýg miklu betur. Er ykkur ekki sama nágrannanna vegna? TeT/r þó að ég veiti svolitið viðnám ' \\í i— '«” T' a Hafið þér verið hér lengi? Nokkur orð um sjónvarpið BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Að ioknum spilum i úrslitaleik heimsmeistarakeppninnar í Ríó í siðasta mánuði höfðu Bandarikin 55 impa forskot yfir sveit Italíu þrátt fyrir að Italirnir byrjuðu leikinn með 37 impa í sínum dálki vegna hetri útkomu í leikj- um þjóðanna í fyrri hluta keppn- innar. En eins og búist var við mættu ítalirnir tvíefldir til leiks í síðustu 16 spilin. Og í spili nr. 83 hófst stigasókn þeirra. Suður gaf, austur-vestur á hættu. Norður S. 82 H. 8753 T. G86 L. 6543 Vestur Austur S. G109653 S. Á H. K H. ÁDG64 T. 75 T. Á10432 L. Á1087 L. D2 Suður S. KD74 H.1092 T. KD9 L. KG9 í opna herberginu sátu ítalirnir í a-v og sagnirnar urðu þessar: COSPER ®P,B COPINNUIN J L o Q 3160 I|p. COSPER 1 “ Síðastliðið sumar var ráðinn nýr forstöðumaður að skemmti- og listadeild sjónvarpsins. Mörg- um fannst slæmur pólitískur þef- ur af þessari veitingu. Um þetta var ekki að sakast, ef ekki hefði verið gengið fram hjá hæfari mönnum. Nú hefur þessi forstöðumaður ekki verið lengi í starfi og því ósanngjarnt að kveða upp endan- legan dóm. „Bragð er að þá barnið finnur," er stundum sagt. Þetta sannaðist nú nýverið, en um síðustu helgi mætti hópur barna (10 ára) inn í sjónvarpshúsi til að mótmæla lélegu efni í barnatímum. Er hægt að fá áhrifameiri viðvörun? Und- anfarnar helgar hafa barnatím- arnir verið óskemmtilegir og allt að því ósmekklegir. Það er t.d. ekki góð uppeldisaðferð að gera grín að þekktum og virtum mönnum í þjóðfélaginu. Einnig er það í meira lagi vafasamt að mæta í réttum og ræða við börnin innan um jarmandi lömbin, sem týnt hafa móður sinni, um það hvort eigi að drepa lömbin þeirra. Loks þriðja dæmið, en af nógu er að taka. Sýnd var mynd af fylliröftum súpandi á flösku um leið og drengir á aldrinum 10—12 Sudur 1 lauf pass pass Vestur 1 spaói 2 spaóar 3 ifrönd NorÖur pass pass allir pass Austur 2 lauf 3 hjörtu Eftir 2 lauf austurs, sem var eðlileg kröfusögn í opnunarlit suð- urs gat vestur sagt 3 grönd óhræddur. Austur hlaut að eiga gott í tíglinum en breytti í 4 spaða að öðrum kosti. 3 grönd reyndust mjög gott game, sem engin leið var að hnekkja. Norður spilaði út laufi og 9 slagir voru auðveld bráð, 600 til Italíu. En í lokaða herberginu valdi ítalinn með spil suðurs heppilegan tíma til að fá einn punkt lánaðan og opna á 1 grandi, sagðist með því eiga 15—17. Og þessi þröskuld- ur reyndist of hár fyrir Banda- ríkjamennina. Eftir tvö pöss sagði austur 2 hjörtu og fékk að spila þau þegar allir möguleikar voru til að ná hærri tölu. Suður hefði ekki fengið marga slagi í einu grandi dobluðu en gegn hjörtunum tveim spilaði hann út tígulkóng, fékk slaginn og skipti í tromp. Og austur var ekki í vandræðum með að fá 11 slagi. Beitti kastþröng í svörtu litunum en 200 til a-v þýddi 400 eða 9 impar til ítala og munurinn orðinn 46 í allt. i Lausnargjald í Persíu Eftir Evelyn Anthony Jóhanna Kristjónsdóttir sneri á íslenzku 124 niður og séð hvernig henni leið að hafa ekki fengið vott né þurrt í næstum sólarhring. Hún klæddi sig og gekk niður stig- ann. Ljós var í talstöðvarher " berginu. — Ahmed, kallaði hún. Hún leit i kringum sig og sá hvar hann lá. Blóðið í munnvikum hans var storknað. Hún hafði séð menn drepna á þennan hátt áður. Hún gleymdi öllu um Eileen Field. Hún stökk að stiganum og hrópaði hástöfum á Resnais. Þegar Logan kom var bíll merktur stjórninni að taka á móti honum. James Keily kom til hans. Engin formsatriði. Hann var iátinn fara beinustu leið og James skýrði ekkert fyrr en þeir voru komnir inn I bilinn. — Keisarinn sendir eftir þér, sagði hann. — Ráðherra hirðarinnar hringdi i morgun. Guði sé lof fyrir að ekki varð seinkun á velinni. — Hvað í fjáranum hefur eiginlega gerzt? sagði Logan önuglega. — Hefur eitthvað komið fyrir varðandi Imshan? Janfes gat varla fengið af sér að svara honum. — Állf er farið fjandans til, sagði hann. — Þess vegna vill keisarinn hitta þig. Hann gaf bendingu i áttina að bilstjóranum. — Ég held það sé ekki vitur- legt að ræða það hér, sagði hann hljóðlega. — Margt af starfsfólkinu skilur ensku. AHa vega við crum komnir á áfanga- stað. Saadabadhöllin var löng tveggja hæða bygging úr hvítum steini. Það rétt grillti í hana handan skreyttra og út- skorinna hliða. Bíllinn nam staðar og báðir mennirnir stigu út. Ilermaður kom til þeirra og James sagði nöfn þeirra og hermaðurinn kannaði á lista sinum. Þeir gengu eftir breið- um trjágöngum sem lágu beint að höllinni. Morguninn var heitur og himininn heiður og blár. Þetta var nútimaleg bygg- ing, byggð þó undir sterkum griskum áhrifum. — Hvað vill hann eiginlega? sagði Logan og óþol hans hafði enn aukizt. — í hamingju bænum. Hvað áttirðu við með að segja að alit sé sprungið eða íarið fjandans til! — Homsi hefur verið hand- tekinn, sagði James. — Hann dó í pyndingunum. Ardalan veit allt. — Guð minn góður, stundi Logan. Þeir lögðu af stað upp þrep- in. Einkennisklæddur hirðvörð- ur kom á móti þeim og ávarpaði James sem hann kannaðist við frá fyrri heimsóknum til hallar- innar. — Hans keisaralega tign mun taka á móti yður og hr. Field innan fárra minútna. Dyrnar lokuðust að baki þeim. Þetta var stærsta her- bergi sem Logan hafði nokkurn tima komið inn i og var hann þó vanur viðum og miklum salar- kynnum. Það var sérstakur iburður yfir öllu i salnum, en allt var þar ekta og tiikomu- mikið og hver hlutur og hvert húsgagn virtist valið af óvenju- legri þekkingu og aðdáunar- verðri smekkvísi. Logan sagði ckki orð. Hann var að safna kröftum fyrir samtalið. Hann neitaði að sætta sig við að það sem James hafði sagt gæti haft þau áhrif að eyðileggja fyrir honum Imshan. Hann var ekki fullkomlega klár á því hvers vegna svona bráðlá á að hitta keisarann umsvifa- laust. Og af öllum mönnum í valdastöðum var Mohammed Reza Pahlavi sá sem einna mest ógn stafaði af. Hann mundi hvaða lýsingu James hafði gefið á honum. Kaldur, afburða- gáfaður og stjórnsemin lýsti af honum. Lét sjaldan eða kannski aldrei leika á sig. Fullkominn hæstráðandi í landi sínu. Hirð- vörðurinn kom aftur og lauk upp dyrunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.