Morgunblaðið - 27.11.1979, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 1979
45
w
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100KL. 10—11
FRÁ MÁNUDEGI
ára voru spurðir, hvort þeir hefðu
sopið á þessu. Hvers konar sál-
fræði er þetta? Það örlar a.m.k.
ekki á barnasálfræði hjá þessum
stjórnanda. I stað þess að gera
þættina fræðandi, skemmtilega og
uppbyggilega, þá er ljótleiki, of-
beldi og virðingarleysi uppistaðan.
Ég hélt að nóg væri af hinu
síðastnefnda í okkar þjóðfélagi þó
ekki væri ýtt undir það í sjónvarp-
inu og fyrir augum yngstu
áhorfendanna.
Er ekki kominn tími til að söðla
um og fá eitthvað meira jákvætt?
Hvernig væri að reyna nýjar
leiðir? Mér dettur í hug að fá
skóla landsins til að annast barna-
tímann til skiptis. Á ég þá við að
byrjað væri í barnaskólunum og
hver skóli sæi þá um heilan
barnatíma í einu. Unglingaskól-
arnir gætu síðan tekið við hver af
öðrum. Þannig yrði um vissa
samkeppni að ræða milli skólanna
og enginn vafi á því að margt gott
mundi af þessu leiða. Svo er fyrir
að þakka að við eigum ennþá
marga ágæta uppalendur og kenn-
ara, sem þá fengju verðugt verk-
efni. Á þessu ætti núverandi
forstöðumaður lista- og skemmti-
deildar sjónvarpsins, sem fyrrver-
Þessir hringdu . . .
• Greinaflokk um
Joan Baez
Hringt var til Velvakanda
vegna fréttar um að Joan Baez
hafi fyrir nokkru heimsótt Kam-
bódíu til að skoða vegsummerki
eftir her Víetnama.
„Mig langar til að biðja þá sem
sjá um poppsíðu Morgunblaðsins
að skrifa greinaflokk um Joan
Baez, svipaðan þeim sem þeir
skrifuðu um Bob Dylan. Jafnframt
langar mig til að þakka umsjónar-
mönnum Slagbrands fyrir þann
greinaflokk."
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á meistaramóti RSFSR, sem er
skammstöfun fyrir sovétlýðveldið
Rússland kom þessi staða upp í
skák þeirra Psakhis, sem hafði
hvítt og átti leik, og Petrushins.
27. Hf6! - De7, (Ef 27... .Rxf6 þá
28. Hxd8 - Hxd8, 29. exf6 - Bxf6,
30. Dh4+ - Kg7, 31. Dg5+ - Kf8,
32. Bxf6 o.s.frv.) 28. Rd6 - Hxd6,
(Hvítur hótaði bæði 29. Rf5 og 29.
Rxe8 29. exd6 — De2, 30. Hf2 og
svartur gafst upp.
andi kennari, að hafa skilning.
Það eitt að hljóta embætti og laun
er ekki nóg.
Upp til dáða — annars er hætt
við að lokað verði á ykkur.
Margra barna móðir.
• Skrípaleikur?
í mörg ár hef ég haft áhuga á
að fylgjast með fegurðarsam-
keppnum hérlendis og erlendis.
Álit mitt á framkvæmdum á
fegurðarsamkeppnum hér á landi
er ekki hátt skrifað og ég skil
ekkert í því að ekki skuli vera
fyrir löngu búið að stöðva þessa
starfsemi af erlendum aðilum sem
hlut eiga að máli, sem sagt stjórn
alþjóðafegurðarsamkeppna, því að
stúlkurnar sem hafa farið í keppn-
ir hafa í flestum tilvikum verið
illa undirbúnar.
Fyrir viku síðan var ég staddur
í veitingahúsinu Hollywood og
voru þar kynntar stúlkur úr
Reykjavík og víðs vegar að af
landinu. Svo kom fram í kynning-
unni að ein stúlkan væri stödd í
London að taka þátt í fegurðar-
samkeppni sem stæði þar yfir og
gæti ekki verið með í þessari
kynningu.
Eru þessar stúlkur sem voru
kynntar í Hollywood s.l. miðviku-
dag búnar að fara í keppni eða
hvað? — Ef þær eru búnar að
fara, hvaða skrípaleikur er þetta
þá? Eiga þessar stúlkur að fara
aftur í keppnir?
Það er mikið af fallegum stúlk-
um hér á íslandi sem eiga að fá að
njóta þess að fara erlendis í
keppnir og vel undirbúnar af
okkar hálfu. Það á að kjósa þær
einu ári áður en þær eru sendar og
það tekur eitt ár minnst að
undirbúa unga stúlku til þess að
hún verði tilbúin að mæta því sém
hún þarf að standa skil á þegar
þar að kemur og til þess að hún
verði sér og þjóð sinni til sóma.
Fáfróður.
HÖGNI HREKKVÍSI
„ HANH AÐ (sEfAST úPP 'A > "
Alíar innréttingar eru sérlega smekklegar í hinni nýju verziun —
Corus í Ilafnarstræti 17.
Corus — ný verzlun
NÝLEGA var opnuð ný verzlun í
Ilafnarstræti 16 — Corus. Verzl-
unin sérhæfir sig í sölu gjafa-
vöru, svo sem glervöru, kristals-,
postulíns-, keramik- og fílabeins.
Verzlunareigendur eru hjónin
Benedikt Bachmann og Margrét
Þorsteinsdóttir. Þau flytja sjálf
inn þær vörur, sem í verzíuninni
fást, jafnt frá Kina sem nálæg-
um löndum V-Evrópu.
Innar af búðinni er síðan lítið
gallerí. Þar eru til sýnis og sölu
málverk eftir íslenzka málara, þá
Jóhannes Geir, Gísla Sigurðsson,
Atla Má, Jónas Guðmundsson,
Gunnar Þorleifsson og Svein-
björn Þór.
Allar innréttingar eru sérlega
smekklegar en þær hannaði
Henrik Árnason frá Dekor.
Höfum fyrirliggjandi olíu-
sigti í sjálfsskiftingar.
Skiftum á staönum.
J. SVEINSSON & CO.
Hverfisgötu 116 — Reykjavík.
UtankjiirstaðaktHiing
Utankjörstaðaskrifstofa
Sjálfstæöisflokksins er í Valhöll,
Háaleitisbraut 1, símar 39790, 39788,
39789.
Sjálfstæöisfólk, vinsamlegast látiö skrif-
stofuna vita um alla kjósendur, sem ekki eru
heima á kjördegi.
Skrifstofan gefur upplýsingar um kjörskrá.
Utankjörstaöakosning fer fram í Miöbæjar-
skólanum alla daga 10—12, 14—18 og
20—22 nema sunnudaga 14—18.
Lv<
Sölumannadeild V.R.
Sölumenn
Vilt þú fræöast um Lífeyrissjóð Verslunar-
manna, A-lán, B-lán, lánstíma, vaxtakjör,
iögjöld, lífeyrismál og réttindi þín?
Ef svariö er já, þá mætir þú á deildarfund
þriöjudaginn 27. nóvember n.k. kl. 20.30 aö
Hótel Esju II. hæö.
Þar mun
M Pétur Blöndal
forstjóri
Lífeyrissjóös
Verslunarmanna
flytja erindi um sjóöinn og starfsemi hans.
Allir félagar V.R. velkomnir.
Kaffiveitingar.
Munið: Þriðjudaginn 27. nóv-
ember n.k. kl. 20.30, II. hæð
Hótel Esja.
Stjórnin