Morgunblaðið - 27.11.1979, Side 38
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 1979
Víetnamar svipta
Kambódíumenn mat
Nong Samet, Thailandi, 26. nóvember. AP.
FLÓTTAMENN frá Kambódiu halda því fram að víetnamskir
hermenn hrifsi skipulagsbundið til sín matvælaaðstoð frá alþjóð-
legum hjálparstofnunum, komi fyrir jarðsprengjum á hrísgrjóna-
ekrum og skeri við nögl þá matarskammta sem þeir gefi
Kambódiumönnum á iandsbyggðinni.
Flóttamennirnir sem eru nýkomnir frá Kambódíu segja að þeir
hafi svo til enga erlenda aðstoð fengið þótt erlend aðstoð hafi verið
veitt landinu i tvo mánuði. Næstum þvi allir sögðu að þeir teldu að
Vietnamar ætluðu að útrýma kambódisku þjóðinni.
Þrátt fyrir bjartsýni sumra
starfsmanna hjálparstofnana
segja flóttamennirnir frá áfram-
haldandi og kannski auknum
dauðsföllum af völdum hung-
ursneyðar og sjúkdóma.
A mörgum svæðum hefur
jarðsprengjum verið komið fyrir
á hrísgrjónaökrum og víet-
namskir hermenn hafa skotið
suma bændur fyrir að fara inn á
akrana. Kambódíumönnum var
sagt að viðeigandi yfirvöld munu
sjá um uppskeruna til að tryggja
birgðir til framtíðarinnar og
útsæði.
Matvælaaðstoð erlendis frá
ætluð kambódískum borgurum
hefur verið beint í heilu lagi til
um 200.000 hermanna sem
Víetnamar hafa í Kambódíu.
Stundum hafa hermenn komið
um nætur og lagt hald á birgðir
sem átti að dreifa morguninn
eftir. Matvælagjafir voru fáan-
legar í sumum sveitabæjum, en
fengust aðeins í skiptum fyrir
gull, kjöt eða aðrar afurðir —
annað hvort frá hermönnunum
sjálfum eða milliaðilum.
Kambódíumenn í sveitum og
bæjum fá yfirleitt rautt kort
fremur en hrísgrjón sem mat-
arskammt sem flóttamenn segja
að sé miklu minni en dreift var í
stjórnartíð Pol Pots. Dæmigerð-
ur skammtur er ein korndós
handa einum í 10 til 15 daga.
Flóttamennirnir segja að mat-
arskammtarnir séu aðeins við-
unandi í Phnom Penh og þeir eru
handa starfsmönnum ríkis-
stjórnar Heng Samrin forseta.
„Víetnamarnir vilja drepa
okkur með því að taka burtu
hrísgrjónin okkar," sagði Suon
Saroen, fyrrverandi bóndi frá
Kompong Cham.
Starfsménn Barnahjálpar
Sameinuðu þjóðanna og Alþjóða
Rauða krossins, þeirra tveggja
stofnana sem samræma hið al-
þjóðlega hjálparstarf, hafa lýst
því yfir opinberlega að þeir telji
nokkuð öruggt að aðstoðin berist
óbreyttum borgurum og benda á
að skortur á farartækjum tor-
veldi dreifinguna í sveitunum.
En þessar stofnanir játa að
utan Phnom Penh hafi þær mjög
lítið eftirlit með dreifingu að-
stoðarinnar. Þær hafa líka gætt
sín að styggja ekki stjórnvöld af
ótta við að stofna aðstoðinni í
hættu.
Barn tottar móðurbrjóet i Sa Kaew-flóttamannabúð-
unum í Thailandi skömmu eftir komuna frá Kambó-
díu í síðustu viku.
Keisarinn til Mexíkó
innan hálfs mánaðar
New York, 23. nóvember. AP.
MOHAMMED reza Pahlevi fyrrum írnaskeisari sagði í viðtali i gær
við Barböru Waiters, fréttamann ABC, að geislameðferð sem hann
hefði fengið við krabbameini væri lokið og hann færi til Mexikó innan
hálfs mánaðar.
Keisarinn sagði að hann hefði
mikinn hug á því að fara frá
Bandaríkjunum og að hann hefði
aldrei viljað fara þangað. Ungfrú
Walters hafði eftir honum að
hann þyrfti að fá aðra meðferð til
að fjarlægja annan gallstein en
hann vissi ekki hvenær sú aðgerð
hæfist þótt hann vonaði að það
yrði innan tveggja vikna.
Dr. Björn Þorbjarnarson, skurð-
læknir keisarans, sagði þegar haft
Nýtt njósnamál
í Bretlandi
London, 26. nóv. — AP
NÝTT njósnamál hefur skotið upp kollinum í London, og hefur kona,
sem starfaði i tengslum við brezku öryggisþjónustuna, verið
handtekin
Kona þessi heitir Pamela Lam-
ble og er 44 ára. Að sögn lögregl-
unnar starfaði hún í stjórnardeild
er fjallaði um öryggismál, en
talsmaður lögreglunnar neitaði að
gefa frekari upplýsingar um starf
konunnar. Dagblaðið Evening
News segir hinsvegar í dag að
konan hafi unnið hjá leyniþjón-
ustunni M15, sem vinnur að gagn-
njósnum. Er Pamela þessi sökuð
um að hafa stefnt öryggi landsins
í hættu með því að gefa öðrum
aðila upplýsingar, er gætu orðið
óvinum landsins að liði, eins og
segir í ákærunni. Engar frekari
upplýsingar hafa verið gefnar um
málið enn sem komið er.
var samband við hann á heimili
hans í gærkvöldi að hann vildi
ekkert láta hafa eftir sér um
fréttina.
En aðrir læknar sem stunda
keisarann sögðu að þeir mundu
ekki leggjast gegn því að hann
færi þegar geislameðferðinni væri
lokið og gallsteinninn hefði verið
fjarlægður.
Pahlevi var sagður mjög hress
þegar hann talaði við ungfrú
Walters. Hann kvaðst ekki hafa
viljað fara til Bandaríkjanna en
orðið að gera það svo að hann gæti
notið góðs af fullkomnum geisla-
leitartækjum. Hann sagði að kona
sín, læknar og aðrir ráðunautar
hefðu lagt fast að sér að fara.
Keisarinn sagði að aðeins fjór-
um mánuðum fyrir byltinguna í
íran hefði hann verið hylltur af
milljónum og hann hefði ekki átt
von á byltingunni. Þegar ungfrú
Walters spurði hann hvort hann
ætlaði aftur til írans sagði hann:
„Það má margt um mig segja, en
ég er ekki heimskur."
Pahlevi ræddi ekki töku banda-
ríska sendiráðsins í Teheran, en
ungfrú Walters kvað hann gera
sér ljósa grein fyrir áliti fjölmiðla
og fólks um allan heim á honum
og hinni gífurlegu reiði í hans
garð. Aðspurður hvort hann hefði
getað verið um kyrrt í íran án
þess að þurfa að óttast um líf sitt
sagði hann: „Ef ég hefði viljað
úthella blóði, en ég er konungur,
ekki einræðisherra."
Keisaranum gremst þegar sagt
er að hann sé vellauðugur og eigi
allt að 25 milljarða dollara. „Eg er
ekki fátækur maður. Ég mundi
segja að ég eigi eins mikið og
bandarískur milljónamæringur.
Hann kvaðst telja sig eiga 50—100
milljónir dollara en hafa fyrir 50
manns að sjá, þar á meðal örygg-
isvörðum.
Ungfrú Walters sagði að keisar-
inn ætlaði að semja bók í Mexíkó.
„Sagan getur ekki verið óréttlát,"
sagði Pahlevi. „Tölur sýna hvað ég
hef gert fyrir landið miðað við það
sem er að gerast núna. Sagan mun
skilja það.“
Þettagerðist Þriðjudagur 27. nóvember
19fí7 — De Gaulle kemur í veg
fyrir aðild Breta að ÉBE.
1%4 — Brottflutningur Belga
frá Kongó eftir björgun gísla.
1962 — Bretar samþykkja að
senda Indverjum vopn til að
verjast árás Kínverja = 97 farast
með brazilískri þotu við Lima.
1%1 — Sovézk tillaga um taf-
arlaust bann við tilraunum með
kjarnorkuvopn án eftirlits.
1950 — Herlið SÞ hörfar í
Kóreu.
1942 — Stórum hluta franska
flotans sökkt í Toulon.
1940 — Þjóðverjar innlima Lot-
hringen.
1926 — Tirana-friður ítala og
Albana = Uppreisn kommúnista
á Jövu.
1919 — Búlgarar undirrita
Neuilly-sáttmálann og láta land
af hendi við Grikki og Júgóslava.
1912 — Spánverjar stofna
verndarríki í Marokkó.
1905 — Noregur verður sjálf-
stætt konungsríki.
1885 — Búlgarar taka Pirot, en
neyddir að hörfa frá Serbíu.
1879 — Franska þingið flutt frá
Versölum til Parísar.
1815 — Alexander I Rússakeis-
ari gefur út pólska stjórnarskrá.
1792 — Frakkar innlima Savoy
og Nizza = Jakobínar hrifsa
völdin af Gírondínum í Frakk-
landi
1703 — Lundúna-fárviðrið
mikla (8,000 fórust).
1562 — Sigismund III verður
konungur Svíþjóðar við lát Jó-
hanns III.
1095 — Urban páfi II byrjar að
predika Fyrstu Krossferðina í
Clermont.
602 — Rómverski keisarinn
Moritz og fimm synir hans
hálshöggnir í Chalcedon í Litlu-
Asíu.
Afmæii. Fanny Kemble, ensk
leikkona (1809-1893) = Caroline
Kennedy, bandarísk forsetadótt-
ir 1957 ---).
Andlát. Anders Celsius, upp-
finningamaður, 1701 = Eugene
O’Neill, leikritahöfundur, 1953 =
Arthur Honegger, tónskáld,
1955.
Innlent. Vilhjálmur Einarsson
vinnur silfurverðlaun á
Ólympíuleikunum = D. Eiríkur
Briem 1929 = f. Einar Árnason
ráðherra 1875 = Friðrik Bjarna-
son tónskáld 1880 = Útför Gunn-
ars Gunnarssonar 1975 = Við-
ræður við Breta 1972 = „Leir-
finns“-líkanið birt 1974 = Tveir
handteknir í „Pundsmálinu"
1975 = Forseti ed. segir af sér
1978 = f. Ingimar Oskarsson
1892.
Orð dagsins. Flestir vildu heid-
ur deyja en hugsa og gera það
raunar — Bertrand Russel,
brezkur heimspekingur (1872—
1970).
Greenpeace-
samtökin
með nýja
herferð hér
Vancouver, Kanada, 26. nóv. — AP
NÝLEGA lauk í Amsterdam fjög-
urra daga fundi alþjóðaráðs
Greenpeace-samtakanna, og sátu
fundinn fulltrúar átta ríkja.
Voru þar lögð drög að starfi
samtakanna á næsta ári, og er
meðal annars reiknað með frek-
ari aðgerðum gegn hvalveiðum
við ísland á næsta ári.
Fund þennan sóttu fulltrúar frá
Ástralíu, Bandaríkjunum, Bretl-
andi, Danmörku, Frakklandi,
Hollandi, Kanada og Nýja Sjá-
landi, og sagði stofnandi samtak-
anna, Bob Hunter, í Vancouver í
gær að með samstöðu Green-
peace-samtaka fleiri landa ætti að
nást margfaldur árangur, og auð-
veldara ætti að vera að skipu-
leggja alþjóða aðgerðir gegn um-
hverfisspillingu.
Á fundinum í Amsterdam var
ákveðið að herða baráttuna gegn
hvalveiðum, og verður leitað til
Alþjóða hvalveiðiráðsins, sem
þingar í London í júní, með ósk um
að það samþykki algjört bann við
hvalveiðum. Einnig er ákveðið að
senda skip samtakanna, Rainbow
Warrior, til að trufla hvalveiðar
við ísland á sumri komanda. Af
öðrum samþykktum fundarins má
nefna herferð gegn seladrápi við
Nýfundnaland og baráttu gegn því
að geislavirkum úrgangsefnum
verði varpað í sjó.
Svíar hækka
forvexti í 9%
Stokkhólmi 22. nóvember. AP.
SÆNSKI seðlabankinn hefur
ákveðið að hækka forvexti úr átta
í níu af hundraði.
Vextirnir voru hækkaðir úr sjö í
átta af hundraði 26. september.
Bankinn segir hækkunina nauð-
synlega til að samræma vaxta-
ástand í Svíþjóð alþjóðlegu
ástandi vaxtamála.