Morgunblaðið - 27.11.1979, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 27.11.1979, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 1979 47 Dollar lækkar I.ondon. 26. nóvember AP. STAÐA dollarans batnadi fyrst í dag en versnaði þegar á daginn leið vegna nýrrar óvissu í íran og dollarinn lækkaði mikið i verði gagn- vart flestum gjaldmiðlum. Gullverð i Evrópu hækkaði um 2.50 dollara únsan. í London hækkaði dollar- inn um rúmlega eitt cent við opnun, en það var skamm- góður vermir. Pundið seidist við lokun á 2,1615 dollara miðað við 2,1595 dollara á föstudag. Sérfræðingur í London sagði að hann teldi að veik- leiki dollarans mundi halda áfram þótt staða hans kynni að skána öðru hverju af tæknilegum ástæðum. En í Tokyo heldur dollarinn áfram að hækka. Andófsmanni ekki sleppt Moskvu, 26. nóvember AP. ALEXANDER Ogorodni- kov, ungur sovézkur andófs- maður. á yfir höfði sér nýjar ákærur sem gætu lengt vinnubúðavist hans að sögn andófsmanna i dag. Ogorodnikov hefur skipu- lagt nokkur neðanjarðar „kristileg námskeið" í Möskvu. Móður hans var sagt á fimmtudag að Ogorodnikov hefði auk þess verið ákærður fyrir „andsovézkan" áróður sem getur leitt til allt að sjö ára vinnubúðavistar. Andófsmenn höfðu búizt við að Ogorodnikov yrði lát- inn laus 20. nóvember eftir dóminn yfir honum í janúar. Hann var dæmdur fyrir að vera „sníkjudýr" — það er að stunda ekki þjóðfélagslega gagnlega atvinnu. Nóg komið Katmandu. Nepal, 26. nóv. — AP HARSHA Bahadur Shrestha er 62 ára og býr í fjallaþorp- inu Danda í Nepal við rætur Himalayafjalla. Hann eign- aðist nýlega fertugasta barn sitt, og ákvað þá að láta gera sig ófrjóan. „Nú er ég búinn að fá nóg,“ sagði hann við fréttastofu Nepals á sunnu- dag. Shreshta á sjö eiginkon- ur, og barnabörnin eru orðin 74. í f angelsi fyrir klám Osló. 26. nóv. - Frá (réttaritara Mbl. MESTI klámmynda- og klámblaðasali Noregs, Leif Ilagen, sem kallaður er „Klám-Hagen“. hefur verið dæmdur til hálfs árs fangels- isvistar fyrir þessa iðju sína. Fyrir tæplega hálfu ári gerði lögreglan í Osló upptæk í verziunum Hagens um 16 tonn af klámmyndum og blöðum, og hefur réttur nú úrskurðað að lögregiunni beri að eyðileggja megnið af þess- um birgðum. Einnig var Hagen gert að greiða eina milljón norskra króna í sekt (nærri 80 millj- ónir ísl. kr.) vegna hagnaðar, sem hann hefur haft af söl- unni. Verzlunarstjórinn hjá „Porno-Hagen" var einnig dæmdur til fangelsisvistar og sektargreiðslu. Amanda Knatchbull, dótturdóttir Mountbattens jarls, sem myrtur var i haust. Foreldrar stúlkunnar særðust illa i sprengingunni þar sem jarlinn lét lifið, en hún er nú orðuð við frænda sinn, Karl rikisarfa i Bretlandi. (AP-simamynd) Karl prins með nýrri vinkonu London, 26. nóvember. AP. KARL Bretaprins hefur eignazt nýja vinkonu að sögn brezkra síðdegis- blaða og snæddi með henni hádegisverð í gær í veiðivarðarkofa á sveita- setri. Vinkona hans er Am- anda Knatchbull, 22 ára dótturdóttir Louis Mount- battens lávarðar sem beið bana þegar írskir hryðju- verkamenn sprengdu bát hans á Donagal-flóa 27. ágúst. Amanda og prinsinn eru skyld. Hún er dóttir Brabourne lávarðar og lafði Brabourne sem slös- uðust í sprengjutilræðinu. Þau komu saman til hádegisverðar í veiðivarð- arkofanum á landareign Brabournes lávarðar í Mersham, Kent, þar sem Karl var við veiðar um helgina. Blöð segja að vopnaðir lögreglumenn hafi verið á verði fyrir utan kofann. Talsmaður Bucking- ham-hallar sagði: „Það þyrfti ekki að koma á óvart ef hann hefur snætt hádegisverð með dóttur gestgjafa síns. Hann hef- ur þekkt hana síðan hún var barn.“ Moskan öll á okkar valdi — segir Yamani SAUDI-ARABÍSKIR hermenn hafa leitað af sér allan grun í Moskunni miklu i Mekka og telja sig nú hafa náð öllum, sem þátt tóku í árásinni á helgidóminn fyrir sex dögum. „Moskan er nú öll á okkar valdi,“ sagði Yamani olíu- og upplýsingamálaráðherra stjórnarinnar í Riyadh. Hann sagði að efri hæð moskunnar hefði náðst úr höndum ofbeldismanna á laugardagskvöld. Enn væru nokkrir ofbeldismenn á sveimi með fáeina gísla í undirgöngum moskunnar, svo og í garði hennar, en af þeim stafaði engin hætta. Sagt er að einhverjir árásarmanna hafi sloppið frá Mekka, en hermenn séu á hælum þeirra i nágrannabyggðum borgarinnar. Hluti moskunnar var á ný opnaður almenningi á sunnudag, en helgidómur- inn hefur verið lokaður frá því að árásin var gerð á þriðjudaginn var. Haft er eftir fulltrúum erlendra ríkja í Riyadh, að árásarmennirn- ir séu af ættflokki Oteiba, sem heldur sig syðst í Saudi-Arabíu. Ættflokkur þessi er afturhaldssam- ur mjög í trúmálum, en leiðtogi árásarmannanna, sem kveðst vera lausnarinnar Mahdi, mun vera meðal þeirra, sem her Saudi- Arabíu hefur komið höndum yfir. Hið eiginlega nafn „Mahdis" mun vera Johaiman, en hann hefur krafizt þess að stjórn Saudi- Arabíu afnemi útvarp og sjón- varp, banni fótbolta og útiloki konur frá þátttöku í viðskiptalíf- Eftir því sem næst verður kom- izt var það Kahled konungur sjálfur, sem ákvað að láta til skarar skríða gegn árásar- mönnum. Herflutningabílar skutu að árásarmönnum úr garði mosk- unnar, en bandarískur þingmaður, Edwin Bethune, sem nú er í Riyadh, segir að árásarmenn hafi verið 200, hið fæsta, en vart hafi þeir farið yfir 1000. Hann telur að milli 50 og 300 manns hafi fallið úr liði beggja í átökum um moskuna. Stjórn Saudi-Arabíu ætlaði að svelta innrásarmenn til uppgjafar en er sýnt var að það tækist ekki í bráð gaf Kahled fyrirmæli um hernaðaraðgerðir í moskunni. Ekki er vitað um skemmdir á helgidómnum en sjónarvottar segja að á nokkrum stöðum í moskunni hafi eldur verið laus þegar átökunum lauk. ýmsir Shiite-sinnar leggja trún- að á það að Mahdi, hinn ódauðlegi, sem undanfarnar aldir hafi dval- izt í leynum á Radwa-fjalli, í námunda við Mekka, eigi að birt- ast á ný einhverntíma á 15. öld, skv. tímatali Múhammeðs hófst hófst hún í síðustu viku. Sam- kvæmt þessari helgisögn birtist Mahdi í Kaaba í dagrenningu. Mekka-búar munu reyn að ráða niðurlögum hans, en hann er ódrepandi og kemst undan. Hann heldur til Jerúsalem þar sem hann frelsar borgina undan valdi Gyð- inga. Þá snýr hann sér að því að sigra heiminn. Það tekst honum þegar sigur er unninn kemst á réttlæti í heiminum, sem þó verð- ur ekki til frambúðar. í Jerúsalem gengur Mahdi í bandalag við Jesúm Krist og í sameiningu snúast þeir gegn falsspámannin- um frá Persíu. Fjörutíu árum eftir að friður og réttlæti kemst á, að þessu undangengnu, verður svo dómsdagur. Sunni-menn, sem eru fjölmenn- asta grein innan Múhammeðs- trúar, trúa á endurkomu spá- manns, sem eigi eftir að hefja trúarbrögðin til nýrrar vegsemd- ar, en þeir kalla þann spámann ekki Mahdi. Samkvæmt Sunni- kenningum er spámaður þessi ekki einu sinni endilega ákveðin per- sóna. Abdúllah Alayli sjeik, sem er trúarleiðtogi og kennivald í Beir- út, segir að leiðtogi árásarmann- anna í Moskunni miklu sé falsspá- maður og svikari. Hann sé á srnærum annarlegra, vinstri afla, sem boði guðleysi og beiti sér fyrir spjöllum á helgum dómum. Alayli segir að dómsdagur komi ekki fyrr en Kristur hafi birzt aftur á jörðinni: „ Að sögn Múhammeðs spámanns verða endalokin þegar Kristur kemur aftur. Þegar sólin kemur upp í vestri og þegar hún myrkvast þrisvar, í austri, í vestri og á Arabíu-skaga. Því næst kemur mikill eldur frá Yemen, og þar með fellur dómur yfir gjörv- öllu mannkyni," segir Alayli. Mú- hammeð sagði um dómsdag að við honum skyldi búizt „eitt þúsund, fremur en tvö þúsund", og hefur þetta verið túlkað svo að heim; sendir verði fyrir árið 2000. í Austurlöndum nær er nú deilt um það hvort Múhammeð hafi hér miðað við tímatal kristinna manna eða Múslima. Alayli segir að heimsendir sé „stöðug þróun“ um alla heimsbyggðina, og Mahdi „birtist og hverfi stöðugt". Sjálfur segist hann trúa því, sem standi um hinn efsta dag í Kóraninum, en þar segir að „jörðin og alheim- urinn verði óþekkjanleg", en Al- ayli útleggur þetta svo að sólin hætti að skína og verði aska ein. Veður víða um heim Akureyri -3 alskýjað Amsterdam 16 heiðríkt Aþena 27 heiðskírt Berlín 8 rigning BrUssel 6 skýjað Chicago 9 skýjað Feneyjar 4 skýjað Frankturt 3 skýjað Genf 5 skýjað Helsinki 5 rigning Jerúsalem 22 skýjað Jóhannesarborg 15 skýjað Kaupmannahöfn 6 skýjað Las Palmas 23 skýjað Líssabon 16 heiðríkt London 15 skýjað Los Angeles 24 heiðskírt Madríd 9 heiðrikt Malaga 13 heiðskirt Mallorca 10 léttskýjaö Miami 26 skýjað Moskva 1 skýjað New York 25 heiörikt Ósló 1 skýjaö París 27 heiðskírt Reykjavík -1 úrkoma í grennd Rio de Janeiro 35 skýjað Rómaborg 16 heiöríkt Stokkhólmur 7 skýjað Tel Aviv 15 skýjaö Tókýó 15 skýjað Vancouver 5 rigning Vínarborg 4 skýjað Anthony Blunt með nýja játningu London, 26. nóv. — AP. ANTHONY Blunt próíessor, listaráðunautur brezku krúnunnar, sem áður hefur viðurkennt njósnir fyrir Sovétríkin allt fram til ársins 1951, játaði á laugardag að þessi tímatakmörkun á njósnunum hafi vissulega verið röng hjá sér. Kvaðst hann hafa verið i sambandi við sovézku leyniþjónustuna einu sinni á timabiiinu 1951—56 þegar hann aðstoðaði njósnarann Kim Philby við að ná sambandi við Moskvu. Þessi nýja játning Blunts kemur Að sögn Observer var það á árinu fram í yfirlýsingu hans, sem birtist í 1955, sem Blunt tók við áríðandi brezka sunnudagsblaðinu Observer í gær. Þar segir Blunt meðal annars: „Ég er feginn að fá þetta tækifæri til að leiðrétta missögn mína. Mér þykir leitt ef einhver hefur látið blekkjast af svari mínu. Það sem ég sagði blaðamönnum í viðtali í fyrri viku var vissulega rangt. Ég var þá í uppnámi eftir yfirheyrslurnar. Frú Thatcher hafði á réttu að standa, en ekki ég.“ Áður hafði Margaret Thatcher forsætisráðherra skýrt Neðri málstofu brezka þingsins frá þessu sambandi Blunts við sovézku leyniþjónustuna. skilaboðum frá Sovézku leyniþjón- ustunni til Kim Philbys þess efnis að leyniþjónustan hefði alls ekki snúið við honum baki, eins og Philby óttaðist. Philby flýði til Sovétríkj- anna árið 1963, en áður höfðu tveir samstarfsmenn hans, njósnararnir Guy Burgess og Donald MacLean flúið þangað. Anthony Blunt játaði árið 1964 að hafa stundað njósnir fyrir Sovétríkin og að hafa aðstoðaö þá Burgess og MacLean við flóttann, en fyrir játningu sína hlaut hann að launum loforð um að verða ekki sóttur til saka.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.