Morgunblaðið - 27.01.1980, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. JANÚAR 1980
21
Fulltrúaráö sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík:
Ellert B. Schram var
endurkjörinn formaður
ELLERT B. Schram var
endurkjörinn formaður
fulltrúaráðs sjálfstæðis-
flokksfélaganna í
Reykjavík á aðalfundi
þess í fyrrakvöld. Aðrir í
stjórn voru kjörnir:
Ragnhildur Helgadóttir,
hlaut 95 atkvæði, Gunnar
Thoroddsen 94 atkvæði,
Björn Þórhallsson 92, Sig-
urður Hafstein 89, Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson
78 og Gísli Baldvinsson 56.
Aðrir sem hlutu atkvæði
voru Ásmundur Einarsson 52,
Guðjón Hansson 37 og Krist-
ján Guðbjartsson 27.
Á fundinum gerði Ellert B.
Schram ítarlega grein fyrir
störfum fulltrúaráðsins
síðastliðið starfsár, og for-
maður Sjálfstæðisflokksins,
Geir Hallgrímsson, flutti
ræðu. Fundarstjóri var Mark-
ús Örn Antonsson, og fund-
arritari Stella Magnúsdóttir.
Á fundinum var samþykkt
eftirfarandi ályktun:
Aðalfundur fulltrúaráðs
sjálfstæðisfélaganna í
Reykjavík, haldinn 24. janúar
1980, lýsir yfir megnustu and-
úð sinni á stöðugri útþen-
slustefnu og yfirgangi komm-
únista um heim allari. Jafn-
framt fordæmir fundurinn
harðlega innrás Sovétríkj-
anna í Afganistan og
skoðanakúgun þá, sem undan-
farið hefur lýst sér m.a. í
Ellert B. Schram
undirbúningi að brottflutn-
ingi pólitískra andófsmanna
frá Moskvu vegna fyrirhug-
aðra Olympíuleika, og nú
síðast lýst sér með handtöku
og útlegð hins heimskunna
vísindamanns, andófsmanns-
ins Shakarovs.
Aðalfundurinn hvetur þess
vegna alla þjóðholla ísiend-
inga til að standa vörð um
sjálfstæði okkar sem ein-
staklinga og þjóðar, og varar
við síauknum áhrifum komm-
únista og meðreiðarsveina
þeirra í þjóðfélaginu.
Varar aðalfundur fulltrúa-
ráðsins alvarlega við því, að
nokkuð sé gert, sem stuðlað
getur að auknum völdum
kommúnista á hinum ýmsu
sviðum stjórnmála- og
þjóðlífs.
Hefja viðgerð
Sóknarnefnd Hrafns-
eyrarkirkju áformar að
hefja viðgerð á kirkj-
unni næsta sumar. En
kirkjan, sem er nær
hundrað ára gömul, er
orðin allhrörleg.
I sumar er gert ráð
fyrir að grunnur verði
lagfærður og gengið verði
frá festingum. Seinna
verður svo gert við húsið
eftir því sem efni og
ástæður leyfa.
En þar sem söfnuður-
inn er fámennur og kirkj-
an þar af leiðandi félítil,
er það von okkar að
Arnfirðingar heima og
heiman, svo og aðrir vel-
unnarar kirkjunnar, sjái
sér fært að láta fé af
hendi rakna svo að þetta
aldna guðshús megi sem
lengst prýða staðinn.
Sóknarnefndin.
á Hraf nseyrarkirkju