Morgunblaðið - 01.02.1980, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. FEBRUAR 1980
Flugleiðir:
Samningar við
400 starfsmenn
runnu út í nótt
SAMNINGAR Flugleiða hf við
um 400 starfsmenn runnu út á
miðnætti í nótt en félagið sagði
samningunum upp nokkru fyrir
áramót. Hér er um að ræða
samninga við flugmenn, flugvél-
stjóra, flugfreyjur, flugvirkja og
flugumsjónarmenn.
Eins og fram hefur komið í
Morgunblaðinu hafa Flugleiðir
sett fram hugmyndir að nýjum
samningi við flugmenn og eru
aðallegá fólgnar í honum kröfur
um breyttan vinnutíma en tiltekið
að viðræður um starfsaldursstiga
verði teknar upp á síðari stigum
samningaviðræðna.
Sveinn Sæmundsson blaðafull-
trúi tjáði Mbl. í gær að samninga-
fundir hefðu ekki verið boðaðir
ennþá en það yrði væntanlega gert
fljótlega. Hann sagði að kröfur
hefðu ekki borizt frá viðkomandi
fagfélögum enda talið rétt að
Flugleiðir legðu fyrst fram sínar
hugmyndir, þar sem fyrirtækið
hefði sagt upp samningunum.
Alma Þórarinsson læknir:
Ætlar ekki
í forseta-
framboð
— Ekki hægt að
kref jast svars af mér
alveg á næstunni,
segir Hjalti Þórar-
insson.
„MÍN niðurstaða er sú, að
það komi ekki til greina að
þessu sinni að ég gefi kost
á mér til framboðs í for-
setakosningunum og sú
ákvörðun er endanleg,“
sagði Alma Þórarinsson
læknir í samtali við Mbl. í
gær.
Alma sagði, að bæði konur og
karlar hefðu skorað á sig að gefa
kost á sér til forsetaframboðs. „Ég
athugaði málið og kannaði, hvort
verulegt fylgi væri við slíkt fram-
boð meðal kvenna núna, en niður-
staðan varð sú, að svo væri ekki.
Þess vegna kemur ekki til greina
að ég gefi kost á mér.“
Þá spurði Mbl. eiginmann Ölmu,
Hjalta Þórarínsson yfirlækni,
hvað hann hygðist fyrir varðandi
forsetaframboð. „Það hefur eðli-
lega ekkert gerzt hjá mér á meðan
Alma var að athuga málið," svar-
aði Hjalti. „Þess er ekki að vænta
að það verði hægt að krefjast
svars af mér um forsetaframboð
alveg á næstunni."
Viðey RE kom með 160 tonn af góðum fiski til Reykjavíkur i gær, en fyrirhugað hafði verið að skipið sigldi
með aflann. Af afla Viðeyjar voru 120 tonn þorskur, en 40 tonn af öðrum fiski, karfa m.a. (Ljósm.: Emiiia)
Hætt við ísfisksölur íslenzkra skipa í Bretlandi:
Verðið óvenju lágt
- s jómenn gef a físk
Alma Þórarinsson.
NOKKUR íslenzk fiskiskip hafa
undanfarna daga selt afla sinn í
ö
INNLENT
Mótmælastaða við rússneska sendiráðið:
Sovétríkin láti þegar af stríðs-
rekstri sinum gegn Afganistan
— er krafa sex stjórnmálasamtaka
SAMBAND ungra sjálfstæðismanna, Einingarsamtök kommúnista,
Kommúnistaflokkur Islands, Samband ungra framsóknarmanna,
Samband ungra jafnaðarmanna og Vaka, félag lýðræðissinnaðra
stúdenta, efna til mótmælastöðu við rússneska sendiráðið i dag kl.
17.30. Tilefni mótmælastöðunnar er innrás Sovétríkjanna í Afganist-
an og krefjast ofangreind stjórnmálasamtök þess að Sovétríkin láti
þegar af stríðsrekstri sínum gegn Afganistan, dragi herlið sitt til
baka og virði framvegis sjálfstæðis- og sjálfsákvörðunarrétt allra
þjóða.
í tilefni af mótmælastöðunni
hafa stjórnmálasamtökin sent frá
sér eftirfarandi ávarp:
„Sérhvert ríki hefur rétt til þess
að ráða málum sínum sjálft án
íhlutunar og hernaðarafskipta
annarra ríkja. Ofangreind samtök
fordæma sérhverja íhlutun í mál-
efni smáþjóða.
Ofangreind samtök ungs fólks
fordæma innrás Sovétríkjanna í
Afganistan. Innrásin er gerð í
anda heimsvaldastefnu, sem felur
í sér freklegt brot gegn öllum
hugmyndum um sjálfsákvörðun-
arrétt þjóða og gegn alþjóðasam-
þykktum um að þjóðir heims skuli
virða frelsi og fullveldi hverra
annarra, svo sem sáttmála Sam-
einuðu þjóðanna.
Hernaðarafskipti Sovétríkjanna
í Afganistan verður að skoða sem
beina útþenslustefnu risaveldisins
á kostnað sjálfstæðrar smáþjóðar.
Heimsvaldastefna Sovétríkjanna
er bein ógnun við heimsfriðinn.
Við fordæmum beitingu Sovét-
ríkjanna á hervaldi til að kúga
nágrannaríki sín og krefjumst
þess, að Sovétríkin láti þegar af
stríðsrekstri sínum gegn Afgan-
istan, dragi herliðið til baka og
virði framvegis sjálfstæði og
sjálfsákvörðunarrétt allra þjóða."
Bretlandi, en yfirleitt hefur feng-
izt lélegt verð fyrir ísfiskinn. Þá
hafa útgerðarmenn nokkurra
skipa hætt við að láta skip sín
landa ytra og þau í staðinn komið
til heimahafna, má í þvi sam-
bandi nefna Viðey og Karlsefni.
Ástæðan fyrir lágu verði á fiski í
Bretlandi er mikið framboð af
fiski, bæði af heimabátum, en
einnig af fiski frá öðrum Evrópu-
löndum. Mjög vel hefur aflast i
Norðursjónum að undanförnu og
tiðarfar verið gott.
Að sögn Þórleifs Ólafssonar
starfsmanns Fylkis í Grimsby
hafa brezkir sjómenn fiskað mjög
vel í Norðursjónum síðustu vikur.
Þá hefur mikið verið flutt af fiski
á flutningabílum frá Belgíu, Hol-
landi, Frakklandi og V-Þýzkal-
andi.
— Fiskur frá þessum þjóðum
hefur verið boðinn á mjög lágu
verði í Bretlandi og eru brezkir
sjómenn mjög gramir vegna þessa
innflutnings, sagði Þórleifur.
— Þeir hafa lítið fengið fyrir sinn
afla og haft á orði að þeir hefðu
varla fyrir olíu. í Peterhead í
Skotlandi gáfu sjómenn fisk í stað
þess að setja hann á markaðinn og
frá Þýzkalandi berast þær fréttir
að sjómenn hafi lagt bátum sínum
í nokkra daga vegna þess að þeir
fá ekki nóg fyrir aflann, sagði
Þórleifur.
Hann bætti því við, að mark-
aðurinn gæti lagast jafn snögg-
lega og hann hefði versnað. Mætti
í því sambandi minna á heims-
metssölu Ögra í byrjun ársins, en
þá hefði verið lítið framboð og
gæði fisksins mikil, en þau hefði
verið misjöfn hjá íslenzku skipun-
um undanfarið.
Skákmótið í Wijk aan Zee:
Browne vann Kortsnoj
Guðmundur hafnaði í næstneðsta sæti
Hækkanir hjá Pósti og síma:
Afnotagjaldið í 51,240 kr.,
umframskrefið í 28,18 kr.
STOFNGJALD fyrir síma, sem
var 67.100 krónur með söluskatti,
hækkar í dag í 75.640. Gjald fyrir
umframskref hækkar úr 24,89
krónum I 28,18 krónur, afnota-
gjald heimilissíma á ársfjórðungi
hækkar úr 11.346 krónum í
12.810 krónur og venjulegt flutn-
ingsgjald milli húsa á sama
gjaldsvæði hækkar úr 33.550
krónum í 37.820 krónur. Póst-
burðargjald fyrir 20 gr almennt
bréf hækkar úr 110 í 120 krónur
og burðargjald fyrir prentað mál
í sama þyngdarflokki hækkar úr
90 i 100 krónur
I frétt frá Póst- og símamála-
stofnuninni segir að samkvæmt
greiðsluáætlun fyrir 1980 hafi
fjárvöntunin verið 5.700 milljónir
króna.
„Til þess að ná þessu fjármagni,
án þess að mikil stökk væru í
gjaldskrárbreytingu, var farið
fram á 12—15% hækkun frá 1.
nóv. 1979, en við þeirri beiðni var
ekki orðið. Hvert eitt prósentustig
í hækkun 1. febr. gefur Pósti og
síma um 132 millj. kr. en hvert
prósentustig, sem hækkun 1. maí
gefur er um 105 millj. kr.
Samgönguráðuneytinu var því
skrifað um miðjan desember og
beðið um 30% hækkun frá 1. febr.
Sú 13% hækkun, sem Póstur og
sími fékk nú, eykur tekjur stofn-
unarinnar um 1700 millj. kr. á
árinu og vantar þá enn um 4000
millj. kr. til þess að endar nái
saman,“ segir í frétt Pósts og
síma.
„ÞETTA gekk allt á afturfótun-
um út í gegn hjá mér, ég tapaði
fyrir Timman í síðustu umferð.
Hins vegar gerðist það óvænta,
að Browne vann Kortsnoj og
urðu þeir Seirawan og Browne
því jafnir og efstir með 10
vinninga og Kortsnoj þriðji með
átta og hálían," sagði Guðmund-
ur Sigurjónsson stórmeistari, er
Mbl. ræddi við hann í gær að
loknu skákmótinu í Wijk aan
Zee.
í síðustu umferð gerði Seiravan
jafntefli við Sunye. Næstir Kort-
snoj að vinningum urðu Alburt,
Biyiasis og Timman með 7,5 vinn-
inga. Guðmundur varð í 12. til 13.
sæti ásamt Böhm með 4 vinninga
og Lichterink rak lestina með 3
vinninga.
Guðmundur vann eina skák og
gerði 6 jafntefli. „Svo voru einar
þrjár skákir, sem ég hefði unnið
undir öllum venjulegum kringum-
stæðum, en glutraði þeim af mér í
tímahraki, féll meira að segja einu
sinni á tíma með kolunnið tafl,“
sagði Guðmundur. „Ég hef ekki
teflt á móti í hálft ár og er því
ryðgaður. Ég hélt nú satt að segja,
að þetta gæti ekki komið svona illa
niður en klukkan er harður hús-
bóndi. Vonandi reynist þetta mér
þó góð æfing fyrir Reykjavíkur-
mótið heima.“
Um skák þeirra Browne og
Kortsnoj sagði Guðmundur að hún
hefði verið átta tíma barátta.
„Þetta var orðið jafnteflislegt
endatafl, en Browne barði fram
vinning, sem er furðulegt, því
Kortsnoj er nú einn sá albezti í
heiminum í endatafli. En sennilega
hefur hann tapað á kæruleysi."
Kalsaveður á
loðnumiðunum
KALSAVEÐUR gerði loðnubát-
unum erfitt fyrir í fyrrinótt, en
þó fengu nokkur skip góðan afla,
þá stóð loðnan einnig djúpt.
Eftirtalin skip tilkynntu Loðnu-
nefnd um afla á miðvikudags-
kvöld og í gærdag:
Miðvikudagur: Hilmir II 530,
Dagfari 510, Rauðsey 570. Samtals
á miðvikudag 26 skip með 17.540
lestir. y
Fimmtudagur: Haförn 770, Há-
kon 720, Svanur 570, Eldborg 1500,
Sigurður 1300, Helga II 400,'
Húnaröst 550. Átta skip með 6410
lestir.