Morgunblaðið - 01.02.1980, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. FEBRÚAR 1980
25
Veturseta
á Mont-
Everest
+ JAPANSKI fjallgöngukappinn
og ofurhuginn Naomi Uemura, er
kominn aftur í fréttirnar. — Það
var hann sem vann það afrek á
árinu 1978 að ganga einn síns
liðs yfir Norðurpólinn eins og
frægt er úr fréttum. Nú er hann
að undirbúa leiðangur á Mont-
Everest. Hann kleif tindinn einn
sins liðs, eins og alltaf, á arinu
1970. Hann er einasti maðurinn í
heiminum, sem klifið hefur alla
hæstu fjallstinda í heimsálfunum
fimm. Nú er Naomi farinn að
undirbúa leiðangur, — einn síns
liðs á sjálfsOgðu, á Mont Everest
tindinn, en hann kleif tindinn
árið 1970. — Hann ætlar að bjóða
frosthörkum og öllum veðrum
þar uppi byrginn og hafa þar
vetursetu. Undanfarið hefur
hann verið austur í „háalofti
heimsbyggðarinnar“ — Hima-
laja. Þar hefur hann verið á
æfingum undir átök við vetur og
kulda. Hefur hann haft bækistöð
í rúmlega 17.000 feta hæð. Mont
Everest tindurinn er 29.000 feta
hár.
Til móts við
Rauða herinn
+ Afganskur skæruliði á hesti sínum skammt frá
landamærum írans og Afganistans. Hann er á leið til
bardaga við sveitir úr einum öflugasta her heims,
Rauða hernum, sem ruddist yfir landamæri búinn
fullkomnustu vopnum til þess að leggja undir sig land
skæruliðans vígreifa.
Sjóarar
á frægu
torgi
+ ÞESSI mótmælaganga skapaði mikið umferðar-
öngþveiti í götum Rómaborgar fyrir skömmu.
Voru það ítalskir sjóarar á fiskveiðiflotanum sem
fóru fylktu liði um göturnar undir borðum þar
sem þeir mótmæla síhækkandi verði á dísilolíum
til bátaflotans. Hér kemur gangan inn á hið fræga
Rómatorg, Piazza Venezia.
Bridgefélag
Reykjavíkur
Sveit Guðmundar Péturssonar
sigraði örugglega í Board a
match keppni félagsins. Hlaut
sveitin 98 stig. í sveit Guðmund-
ar voru ásamt honum: Karl
Sigurhjartarson, Ásmundur
Pálsson, Guðlaugur R. Jóhanns-
son og Örn Arnþórsson.
Röð næstu sveita varð annars
þessi:
Sigurður B. Þorsteinss. 91
Jón Þorvarðarson 84
Sveit Óðals 84
Hannes Jónsson 83
Alls tóku 12 sveitir þátt í
keppninni.
Bridgefélag
V-Húnavatnssýslu,
Hvammstanga
Fyrir nokkru lauk tvímenn-
ingskeppni félagsins og urðu
úrslit þessi:
Karl — Kristján 401
Eyjólfur — Flemmirig 372
Símon — Jóhannes 367
Aðalbjörn — Guðrún 367
Örn — Þorsteinn 326
Bridge
[ insjóii: ARNÓR
RAGNARSSQN
Fyrir áramót fór fram sveita-
keppni milli Blönduóss og
Hvammstanga og var spilað á
Hvammstanga. Alls tóku fimm
sveitir frá hvorum stað þátt í
keppninni. Úrslit urðu þessi:
1. b. Blönduós 7 Hvammst. 13
2. b. Blönduós 19 Hvammst. 1
3. b. Blönduós 20 Hvammst. 0
4. b. Blönduós 19 Hvammst. 1
5. b. Blönduós 5 Hvammst. 15
Blönduós fékk 70 stig en
Hvammstangi 30 stig.
Núverandi stjórn er skipuð
eftirtöldum mönnum: Símon
Gunnarsson formaður, Baldur
Ingvarsson gjaldkeri, Aðalbjörn
Benediktsson ritari og með-
stjórnendur eru Örn Guðjónsson
og Eggert Levý.
Nýhafin er sveitakeppni fé-
lagsins með þátttöku 6 sveita.
Spilað er í félagsheimilinu
Hvammstanga á þriðjudögum kl.
20.00-
.
g k m /
til Islands
er nu
er bíll sem blotið hefur fjö
allan heim og af mörgum
_ áralugar
viðurkennlnga um
ið talinn bíll þessa
' ''hefur frábæra aksturseiginleika og hönnun hans
FIAT EINKAUMBOÐ A ISLANDI
// DAV/Ð SIGURÐSSON hf //
___________SlÐUIWÚLA 35, SÍMI 85855. /
•■'/MmmmmrnmmmmmmmmmmmimmmmmmmmmmmmmmmmiimmM 'r'