Morgunblaðið - 28.02.1980, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1980
5
Flokksráð Alþýðubandalagsins:
Komið í veg fyrir
bandarískt fé til
flugstöðvarinnar
— Málið ekki rætt í ríkisstjórn-
inni, segir utanríkisráðherra
„J/EJA. SEGJA þeir það? l>að er þá vafalaust í góðum tilKangi. En
þetta mál hefur ekkert verið rætt í ríkisstjórninni." sagði Olafur
Jóhannesson utanríkisráðherra. er Mbl. spurði hann. hvort ríkis-
stjórnin hefði hafnað eða a'tlaði að hafna framlagi Bandaríkjastjórn-
ar til bygKÍngar nýrrar flutfstóðvar á KeflavíkuríluKvelli. en meðal
þess sem segir í stjórnmálaályktun flokksráðsfundar Alþýðubanda-
lagsins um helgina. er að með myndun ríkisstjórnarinnar hafi verið
komið í veg fyrir „byKKÍngu fluKstöðvar fyrir bandariska f jármuni".
Ólafur Jóhannesson saKÖi, að
samkvæmt samkomulaKÍnu frá
1974 myndu Bandaríkjamenn
Kreiða kostnað við Kerð fluKbrauta
ok annarra vallarframkvæmda
veKna nýrrar fluKstöðvar, en hins
ve^ar hefði ekkert verið ákveðið
varðandi þátttöku þeirra í kostn-
aði við b.VKKÍr>KU stöðvarinnar
sjálfrar.
„Það mál hefur þó verið
rætt,“ saKÖi utanríkisráðherra,
„en í þeim efnum er ekkert
fráKenKÍð.“ Mbl. spurði Ólaf um
sjónarmið hans í málinu ok kvaðst
hann ekki vilja tjá sík um það að
svo komnu máli.
Bandaríkjastjórn hefur fallizt á
að taka þátt í kostnaði við byKK-
inKu fluKstöðvarinnar ok lÍKKur
fyrir fjárveitinKanefnd banda-
ríska þinKsins beiðni um fjárveit-
ingu til þess.
I málefnasamninKÍ ríkisstjórn-
arinnar seKÍr: „Áætlanir um fluK-
stöð á KeflavíkurfluKvelli verði
endurskoðaðar ok ekki ráöist í
framkvæmdir við hana, nema með
samkomulaKÍ allra aðila að ríkis-
stjórninni.“
Reykhólasveit:
Karlmaður á nám-
skeið í skerma-
og púðasaumi
Miðhúsum. Reykhólasveit.
27. febrúar.
NÝLOKIÐ er hér námskeiði í
skerma- ok púðasaumi, sem kven-
félaKÍð Liljan stóð fyrir. Þátttaka
var mjöK KÓð. enda unnið úr mjöK
KÓðum efnum ok undir hand-
leiðslu mjög snjallrar konu. frú
GuðlauKar Þórðardóttur frá
Reykjavík. Einn karlmaður sótti
námskeiðið og stóð hann sig með
ágætum, en það er í fyrsta skipti.
sem frú Guðlaug hefur fengið
karimann sem þátttakanda á
svona námskeið. Formaður Lilj-
unnar er frú Kristrún Marinós-
dóttir, tilraunastöðinni Reykhól-
um.
í vetur hefur rafmagn verið mjög
óstöðugt vestur hér. Hefur varla
liðið sá sólarhringur, að ekki yrði
rafmagnslaust um lengri eða
skemmri tíma. Við hér teljum, að
rafmagnsverð sé orðið nógu hátt til
Sviðssetning-
in er íslensk
VEGNA fréttar í Mbl. í gær um
frumsýningu Þjóðleikhússins á
leikriti Gorkís, Sumargestum,
skal tekið fram að sviðssetning
verksins er í höndum Islendings,
Stefáns Baldurssonar er annast
einnig leikstjórn. Leikgerðin er
hins vegar Þjóðverjanna Peter
Stein og Botho Strauss.
þess að Orkubúi Vestfjarða sé
óhætt að gera eitthvað fyrir okkur,
en svo virðist vera, að með tilkomu
þess hafi þjónusta öll orðið í öfugu
hlutfalli við raforkuverð.
Sveinn
Siglufjörður:
„Annir“ hár-
greiðslu-
kvennanna
aðeins hálfs
dags starf
AGNES Einarsdóttir hár-
greiðslumeistari í Siglufirði
hafði samband við Mbl. í gær og
kvaðst vilja leiðrétta það, sem
sagði í frétt á bls. 2 í Mbl. í gær
um annir hárgreiðslukvenna í
Siglufirði.
„Við erum nú aðeins tvær starf-
andi hér,“ sagði Agnes, „og ann-
irnar ekki meiri en svo, að þetta er
hálfs dags vinna hjá báðum. Mér
finnst rétt að það komi fram, að
fréttaritari Morgunblaðsins talaði
hvorki við mig né hina hár-
greiðslukonuna vegna þeirrar
fréttar, sem hann sendi uni okkar
annir.“
Siglufjörður:
Fengu vikuskammt
af dagblöðunum
SiglufirÓi. 27. febrúar.
FRAMKVÆMDASTJÓRI og
flugrekstrarstjóri Arnarflugs
komu hingað færandi hendi í
dag með vikuskammt Siglfirð-
inga af dagblöðunum. Voru
þetta rösk 400 kíló af blöðum.
Við höfðum ekki fengið blöð i
viku og í gær flaug Árnarflug
tvær ferðir til Siglufjarðar, sem
reyndar enduðu á Sauðárkróki
vegna veðurs hérna, en í hvorugt
skipti komust blöðin með. Til að
bæta úr óánægju Siglfirðinga
komu þeir Magnús Gunnarsson
og Gunnar Þorvaldsson sérstak-
lega á tveggja hreyfla flugvél í
dag með blöðin og ýmsa fleiri
pakka og mátti það ekki tæpara
standa, því að flugvöllurinn lok-
aðist vegna veðurs, þegar þeir
voru nýfarnir aftur.
Fréttaritari
Bókamarkaður í Sýningahöllinni:
~F~
Ljósm. Kristján.
Á boðstólum eru bækur allt
frá síðustu aldamótum
BÓKAMARKAÐUR Bóksalafé-
lagsins hefst i Sýningahöllinni á
Ártúnshöfða í dag og stendur til
sunnudagsins 9. mars n.k. Mark-
aðurinn er opinn frá kl. 9—18
virka daga. nema þriðjudaga og
föstudaga kl. 9—22. Á laugardög-
um er bókamarkaðurinn opinn kl.
9-18ená sunnudögum kl. 14-18.
Á markaðnum eru um 5—6000
bókatitlar, þeir elstu frá síðustu
aldamótum en þær yngstu frá
árinu 1977. Má t.d. nefna að á
markaðnum verður allt sem til er
af íslenskum ritsöfnum og má þar
nefna allar Islendingasögurnar,
það sem til er af verkum Halldórs
Laxness, ritsafn Torfhildar Hólm
og Þjóðsögur og munnmæli Jóns
Þorkelssonar. Við verðlagningu
hefur að mestu verið fylgt þeirri
reglu að hafa bókina á því verði
sem hún var er hún kom út en eins
og gefur að skilja er ekki hægt að
koma því við í öllum tilfellum.
„DERBY“ frystikistur, 5 stærðir, 2 verðflokkar, frystiskápar, 2 stærðir,
„DERBY“ frystitækin hafa vandað yfirbragð, með haganlega lausn á hverju smáatriði eins og:
„Hermetisk" frystiþjappa sem tryggir hámarks frystiafköst.
Ytrabyrði úr stáli, rafzinkhúðuð til ryðvarnar, búið hitarörum gegn daggarmyndun.
Innrabyrði úr hömruðu áli, en kostir þess eru ótvíræðir, ál er mjög góður varmaleiðari með
afar lágan eðlisvarma, þetta flýtir djúpfrystingunni. lafnframt er ál framúrskarandi auðþrifið.
Lokið lokast óaðfinnanlega þétt, búið jafnvægisgormum sem létta það við opnun, læsingu og
ljósi. Ennfremur er yfirborð þess klætt plasthúð til prýðis og til varnar gegn rispum.
Sérstakt djúpfrystihólf er í ,,DERBY“, þannig má djúpfrysta ný matvæli án þess að kosta til
frekari kælingu á matvælum sem þegar liggja frosin fyrir í kistunni.
Þetta hraðar, djúpfrystingunni og sparar rafmagn.
Einangrunin er hið viðurkennda „Pelyuretan" frauðplast.
í ,,DERBY“ frystikistum er botninn auðvitað frystiflötur líka.
FALKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670