Morgunblaðið - 28.02.1980, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1980
45
VELVAKANDI
SVARAR j SÍMA 10100
KL. 13-14 FRÁ
MANUDEGI TIL
FÖSTUDAGS
öðrum tækifæri til að flytja mál
sitt svo hlustendum gefist þar með
kostur á fræðslu um hin ýmsu
viðfangsefni.
Keflavík, 24. febr. 1980,
Skúli Magnússon.
• Eftirlíking
æðri fegurðar
Þjóðleikhúsið hefur í vetur
sýnt þessa frægu óperu eftir
Gluck (F. 1714), sem byggð er á
forngrískri goðsögn. Þessi ópera
hefur ekki hlotið næga aðsókn,
þótt merkilegt megi virðast og því
hefur leikhúsið neyðst til að fella
sýningar niður. Ég þekki fólk, sem
sótti eina þessa sýningu fyrir
nokkru, en lét sér fátt um finnast
og kvaðst enga skemmtun eða litla
hafa af henni haft.
Það var því með hálfum huga,
að ég keypti aðgöngumiða og lagði
leið í Þjóðleikhúsið, föstudaginn 8.
febrúar, en það átti að vera
næstsíðasta sýning þessa verks.
Og ég verð að segja, að sjaldan
eða ekki hef ég farið á jafnheill-
andi leikverk. Fegurðin í- búning-
um, litum, tónum, söng og hreyf-
ingum þótti mér aðdáanleg.
• Þýzka alþýðulýð-
veldið eða Aust-
ur-Þýzkaland
Gunnar Gunnarsson kennari
hringdi og bað Velvakanda fyrir
eftirfarandi ábendingu til Bjarna
Felixsonar stjórnanda íþrótta-
þátta sjónvarpsins: „í fréttum
afÓlympíuleikunum talar Bjarni
alltaf annars vegar um þýska
alþýðulýðveldið og hins vegar um
Vestur-Þýskaland. Með þýzka al-
þýðulýðveldinu á hann við Aust-
ur-Þýzkaland og finnst mér að
hann geti, eins og hann segir
Vestur-Þýzkaland sagt Austur-
Þýzkaland í stað þýzka aiþýðulýð-
veldið. Ég vil aðeins benda honum
á þetta“, sagði Gunnar í lokin.
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
' Á alþjóðlegu skákmóti í Plovdiv
í Búlgaríu í fyrra kom þessi staða
upp í skák þeirra Durao, Portúgal,
og ungverjans Pinters sem hafði
svart og átti leik. Síðasti leikur
hvíts var 28. Rbl—c3?
28. ... Dxc2! 29. Hgbl (Ef 29.
Dxc2 þá Bxf3+, 30. Hg2 - Hhg8
o.s.frv.) Hd2! og hvítur gafst upp.
Pinter sigraði á mótinu, hlaut 8'A
vinning af 11 mögulegum og náði
stórmeistaraárangri.
Þættirnir, sem gerast eiga í
dánarheimum eru stórkostlega
heillandi. Birtan er svo mikil og
fögur, hreyfingar dansendanna
svo léttar og svífandi, að maður
gæti freistast til að halda, að hér
væri um að ræða sýn til æðri
heima, sem engum hér á jörð er þó
gefið að njóta, nema þeim sem
ófreskigáfu hafa eða þeim, sem
stilltir eru til draumasambands
við lengra komna lifendur annars-
staðar í alheimi. Enda er eins og
Hér sé í raun verið að gera tilraun
til eftirlíkingar á því, sem sjáend-
ur í draumi eða vöku hafa fegurst
litið, á ýmsum tímum.
Grikkir hinir fornu munu hafa
verið mjög sambandsnæmir og má
til þess sambands óefað rekja
fegurðarskyn þeirra og óvið-
jafnanlega listsköpun, auk visku
og vísinda. Hinir fögru búningar
kvennanna gætu t.d. hafa átt rót
að rekja til guðanna, sem þeir
trúðu að heima ættu á Ólympos-
tindi, en munu raunverulega hafa
átt heima á björtu og fögru landi
einhvers annars hnattar í fjar-
lægu sólhverfi, og hafa Grikkir,
vegna sambands við þessar æðri
verur, náð þeim hátindi menning-
ar, sem raun varð á, í vísindum og
öllum tegundum lista.
Hinir svifléttu dansar og mjúku
hreyfingar dansendanna á sviði
Þjóðleikhússins voru heillandi og
minna mig á draum, sem kona
nokkur sagði mér frá, fyrir mörg-
um árum:
Henni þótti hún standá undir
fjallshlíð og sá dansandi fólk í
léttum klæðum, eins og bylgjast
hundruðum saman fram og aftur
um hlíðina í litlum og stórum
hringum og sveigum, næstum
svífandi. Fólkið virtist varla
snerta jörðina, svo mikill var
léttleiki þess. Einn hópurinn kom
til hennar og hún sveif með þeim í
dansinn og fann guðdómlegan
unað gagntaka sálu sína, uns hún
vaknaði nokkru síðar.
Sköpun sannrar listar og feg-
urðar á öllum sviðum mun mega
rekja til sambanda við lengra
komna lifendur annarsstaðar í
þessum stóra alheimi, sem allir
lifa og hrærast í. Þangað mun að
leita fyrirmyndanna að öllu því
besta og fegursta, sem mönnum
hefur tekist að skapa og túlka fyrr
og síðar.
Með sýningunni á Orfeifi og
Evridís í Þjóðleikhúsinu mun hafa
tekist einhver sú besta listtúlkun,
sem þar hefur verið boðin fram og
ég álít að hver sá, sem séð hefur
þessa sýningu, en samt ekki getað
notið hennar, hafi farið mikils á
mis, sem og þeir, er alls ekki hafa
átt þess kost, að koma þangað.
I.A.
HÖGNI HREKKVtSI
&&>££ aæ/0 mUT/=*£ájA on."
Óskum eftir aö taka á leigu
100—200 ferm húsnæöi
fyrir mjög léttan og hreinlegan iönaö í Reykjavík eöa
Kópavogi. Þarf aö vera meö góöri aðkeyrslu.
Æskilegt er aö leigja á sama staö 2—3 skrifstofuher-
bergi. Tilboö óskast send augld. Mbl. fyrir 3. marz
n.k. merkt: „Leiga — 6161.“___________
Peugeot Diesel 504 árg. 1978
til sýnis og sölu.
HAFRAFELL HF. — VÁGNHÖFÐA 7 — SÍMI 85211
NÁMSKEIÐ
Hvernig ma verjast streitu?
Á liðnu ári hélt Stjórnunarfélagið 4 nám-
skeið þar sem kenndar voru aðferðir sem
nota má til að draga úr áhrifum streitu og
innri spennu á daglega líðan manna. Nám-
skeiö þessi sóttu um 170 þátttakendur og
þóttu þau afar fróðleg og gagnleg.
Leiðbeinandi á námskeiöunum er dr. Pétur
Guöjónsson, félagssálfræöingur, en hann
hefur á undanförnum árum haldiö þessi
námskeiö í Bandaríkjunum þar sem hann er
búsettur.
Stjórnunarfélagið mun nú í marz efna til 2ja
námskeiða undir leiðsögn dr. Péturs þar
sem hann kennir tækni til að verjast streitu,
vanlíðan og innri spennu.
Fyrra námskeiðið verður haldið að Hótel
Esju dagana 10. og 11. mars kl. 13.30—18.30
báða dagana, en hið síðara 12. og 13. marz á
sama tíma.
Nánari upplýsingar og skráning þátttakenda
hjá Stjórnunarfélagi íslands, Síðumúla 23,
sími 82930.
SUORNUNARFÉIAG
ISIANDS
Síðumúla 23
Sfmi 82930
i VAMPYR 4004 ryksugurwi sameinast allir þeir kostir sem góð ryksuga þarf að vera
gædd, og meira til. Þessi nýja gerð er hljóðlátari, auk þess sem sogkraftur hefur
verið stóraukinn.
BRÆÐURNIR ORMSSON %
LÁGMÚLA 9 SÍMI 38820