Morgunblaðið - 28.02.1980, Page 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. FEBRÚAR 1980
Vetraríþróttahátíðin
verður sett í kvöld
Fékk UMFL
bikarinn á
silfurfati?
EKKI er óliklegt að ÍS haíi
lært UMFL islandsmeistara-
titilinn i blaki á silíurfati, er
Jiðið sigraði Þrótt óvænt i 1.
deild isiandsmótsins i blaki i
iþróttahúsi Kennaraháskól-
ans í fyrrakvöld.
Var leikur Iiðanna æsi-
spennandi, einkum síðasta
hrinan, en staðan var þá jöfn,
2—2. ÍS sigraði í fyrstu
hrinunni 15—7 og aftur í
þeirri næstu, þó með minni
mun, 16—14. Þróttarar voru
ekki á þeim brókunum að
gefa sig, enda titillinn hugs-
anlega í húfi. Þeir sigruðu í
tveimur næstu hrinum 15—8
og 15—9. ÍS reif sig þá aftur
upp og náði góðri forystu í
úrslitahrinunni. Þróttur sótti
á undir lokin, en ÍS sigraði
engu að síður verskuldað
1.5—9. _____
Úlfarnir
gerðu
Liverpool
grikk
ÚLFARNIR gerðu Liver-
pool ærlegan grikk i 1. deild
ensku knattspyrnunnar i
fyrrakvöid, er þeir sigruðu
meistarakandidatana -með
einu marki gegn engu. Það
var John Richards sem skor-
aði sigurmark Úlfanna á 70.
mínútu leiksins og var sigur
liðsins mjög sanngjarn.
Liverpool hefur í síðustu
tveimur leikjum sínum
kastað írá sér að nokkru
þeim yfirburðum sem það
hafði í deildinni. Liðið hefur
að visu tveggja stiga forystu
á Manchester Utd, en nú
hafa liðin leikið jafn marga
ieiki og cru því ýmsir mögu-
ieikar opnir. Bæði liðin eiga
erfiða leiki á laugardaginn,
Liverpool á útivelli gegn
nágrannaliðinu Everton og
MU á útivelli gegn Ipswich.
sem hefur ekki tapað einum
einasta leik af síðustu 19
leikjum.
Úrslit leikja í fyrrakvöld
urðu sem hér segir:
1. deild:
Wolverh. Liverpool 1—0
2. deild:
Charlton — Watford 0—0
Fulham — Bristol R. 1—1
N. County — Wrexham 1—1
3. deiid:
Carlisle — Sheff. Wed 0—2
Gillingh. Chesterf. 0—1
Sheffield Utd. — Chesterl—1
Wimbledon — Bury 0—1
4. deiid:
Darlington — Bradford 3—4
Newport — Doncaster 2—1
•..............
McDougall
til
Blackpool
TED McDougail, einhver
mesti markaskorari ensku
knattspyrnunnar og fyrrum
ieikmaður Bournemouth,
Southampton, Norwich,
Manchester Utd og West
Ham, hyggst ieggja skóna á
hiiluna eftir þetta keppnis-
tímahil. Ætlar hann að ger-
ast þjálfari hjá 3. deildar liði
Biackpooi. Þar mun hann
hitta fyrir gamian félaga frá
Southampton, Alan Ball,
sem verður framkvæmda-
stjóri 3. deildariiðsins frá og
með næsta hausti.
í KVÖLD verður Vetraríþrótta-
hátiðin sett á Akureyri. Það
verður forseti ÍSÍ Gísli Halldórs-
son sem setur hátíðina en setn-
ingarathöfnin fer fram á skauta-
svæðinu á Leirutjörn. íþrótta-
fólkið mun ganga fylktu liði frá
Dynheimum að skautasvæðinu.
Gísli KR. Lórenzson sem á sæti
í vetrarhátíðanefnd sagði í viðtali
við Mbl í gær, að allt væri til
reiðu. Mikill undirbúningur hefði
farið fram og nú væri bara að
veðurguðirnir léku við þá. Þeir
væru bjartsýnir á að fá gott veður.
Það er góður snjór í fjallinu, og
vonandi verður skautasvellið orðið
gott eftir þýðuna sem verið hefur,
en hann spáir frosti í nótt sagði
Gísli.
Þátttakendur í hátíðinni verða
um 315 víðsvegar að af landinu,
um 95 keppendur verða frá Akur-
eyri. Frí verður gefið í öllum
grunnskólum á staðnum.
Vetraríþróttahátíðin er m.a.:
Alþjóðlegt mót í alpagreinum
karla og kvenna. Hermannsmótið,
NÚ ER VETRARLEIKUNUM í
Lake Placid loks lokið og kepp-
endur og föruneyti þeirra eru
sem óðast að tínast burt. Litla
þorpið Lake Placid með sína 2000
íbúa er að komast í sitt raunveru-
lega og fyrra horf. Þessir leikar
cins og aðrir á undan voru flókin
hlanda af gleði og sorg. gleði
fyrir þá sem hrepptu verðlaun.
sorg fyrir þá sem ýmist hlekktist
á í greinum sínum og voru þar
mað dæmdir úr leik. eða voru
átakaniega náiægt því að hreppa
verðlaunasæti. Hundruðustu
hlutar úr sekúndu skiidu stund-
um á milli, eða eins og hjá
Sovétmanninum í stórsvigi karla.
Hann var með afleitt rásnúmer,
en keyrði síðan af slíku offorsi að
þegar hann átti fjögur hlið eftir i
síðari ferðinni og stefndi allt í að
hann hreppti þriðja sætið og
bronsgrip. En þá varð óhappið,
hann féll og var þar með úr leik.
Svona mætti lengi telja.
punktamót í alpagreinum karla og
kvenna. Punktamót unglinga í
alpagreinum. Punktamót í nor-
rænum greinum, göngu og stökki.
Sögu— og vörusýning verða
haldnar sameiginlega meðan á
Vetrarhátíðinni stendur.
Verður sýningin opnuð í Al-
þýðuhúsinu á Akureyri fimmtu-
daginn 28. febrúar kl. 18.00, og
verður síðan opin frá kl. 14.00 —
kl. 22.00 daglega fram á sunnu-
dagskvöld 2. mars. Verða þar
sýndir munir og myndir frá göml-
um og nýjum tíma, svo og úr-
valsskíðakvikmyndir.
- Þr.
Hér á eftir fer svo dagskrá
vetrarhátíðarinnar.
Fimmtudagur 28. fehr.
15.00 Fararstjórafundur í Lundarskóla. Út-
dráttur í skíöa- ok skautakeppni föstu-
daKsins 29. febrúar.
18.00 Opnun soku- ok vörusýninKar í Al-
þýóuhúsinu.
20.30 SkrúÖKanKa frá Dynheimum aö
skautasva^inu sunnan við Hoepfner.
Avörp: P'ormaður Vetraríþróttahátiðar-
Þetta voru sannarlega viðburð-
aríkir Ólympíuleikar á fleiri en
einn hátt, sjaldan hefur verið
önnur eins örtröð og skipulags-
leysi eins og fram af í Lake Placid.
Kvað svo rammt að því, að eitt
sinn kól 10—12 manns sem biðu
eftir rútu sem aldrei kom. Ýmsir
keppendur skráðu nöfn sín á
spjöld Ólympíusögunnar, sérstak-
lega Bandaríkjamðurinn Eric
Heiden, sem sigraði í skauta-
hlaupsgreinunum fimm sem keppt
er í. Setti hann í leiðinni 5
Ólympíumet og eitt heimsmet.
Hanni Wenzel frá Lichtenstein
varð þriðja konan til þess að vinna
til verðlauna í öllum alpagreinun-
um og verðlaunin hennar þrjú,
ásamt silfurverðlaununum sem
bróðir hennar Andreas Wenzel
hreppti í stórsvigi karla, voru
fyrstu verðlaunin sem falla í skaut
dvergríkinu Lichtenstein.
En blikur eru á lofti. Á sama
tíma og Walter Mondale, varafor-
nefndar Hermann SigtrygK.s.son. formað-
ur SKl Sæmundur Óskarsson. forseti
bæjarstjórnar Akurevrar Freyr Ófeigs-
son. Fánar dre^nir að hún. FluKeldasýn-
inK. Listhlaup á skautum. Mótsetninx:
Forseti Isl Gísli Halldórsson.
Fóstudattur 29. febr.
11.30 Svig unKÍinxa: Drengir 13—14 ára.
Stúlkur 13—15 ára. Drenttir 15—16 ára.
12.00 Gantta: 15 km karlar 20 ára otf eldri.
10 km 17 — 19 ára drentfir. 7.5 km 15 — 16
ára drenjfir. 5 km 13—14 ára drengir 5
km konur 19 ára ojf eldri. 3.5 km 16 — 18
ára stúlkur. 2.5 km 13—15 ára stúlkur.
16.00 Skautahlaup: 500 m otf 1500 m.
18.00 Fararstjórafundur í Lundarskóla. Ot-
dráttur í skiða- otf skautakeppni lautfar-
datfsins 1. mars.
20.30 Ishockevkeppni. Íslandsmót. fyrri
leikur.
I. auttardaifur 1. mars
10.00 StórsvÍB untjlintía: Drentfir 13—14
ára. Stúlkur 13 — 15 ára. Drentfir 15 — 16
II. 00 Svík karla.
12.00 Svík kvenna.
12.30 Stókk 13—14 ára. 15—16 ára. 17—19
ára. karlaflokkur.
15.00 Skautahlaup 500 m ok 1500 m.
16.00 fshockeykeppni. 18 ára ok ynxri.
18.00 Fararstjórafundur í Lundarskóla. Út-
dráttur í skíða- ok skautakeppni sunnu-
dagsins 2. mars.
20.30 SkautasýninK. íshockeykeppni.
seti Bandaríkjanna, var að setja
leikana, var forsetinn sjálfur,
Jimmy Carter, að hvetja sem
flestar þjóðir til þess að hundsa
sumarleikana sem fram fara í
Moskvu í sumar. Þarf ekkert að
fjölyrða um ástæðurnar fyrir því,
svo mikið hefur mál þetta verið í
fréttum að undanförnu. Banda-
ríska Ólympíunefndin hefur lýst
Eric Heiden stjarna leikanna
með gullin sin fimm.
því yfir að hún muni gera það sem
Carter óskar og líklegt er að ef
Bandaríkin hætta við þátttöku, þá
fari mörg lönd að dæmi þeirra.
Fari svo, er ekki ólíklegt að dagar
Ólympíuleikanna séu taldir og eru
skoðanir skiptar varðandi ágæti
þess. Þetta byggist allt á því að
Ólympíuleikarnir eru orðnir gegn-
sýrðir af pólitík, þó að það sé
óæskilegt. Nægir að benda á
morðin í Míinchen og þegar Afr-
íkuþjóðirnar hættu allar keppni í
Montreal. Auk þess er bæði orðið
rándýrt að halda slíka leika og æ
erfiðara að finna einhverja sem
eru tilbúnir að leggja á sig þær
drápsklyfjar að halda leikana.
Það er á margan hátt slæmt ef
Ólympíuleikarnir hafa sungið sitt
síðasta, því að víðast hvar njóta
leikarnir gífurlegra vinsælda og
milljónir sitja við sjónvarp og/eða
útvarp, jafnvel bæði í senn eins og
dæmin sanna. Sem dæmi má
benda á, að 1932 þegar leikarnir
voru haldnir síðast í Lake Placid,
voru um 90 fréttamenn meðal
Andreas og Hanni Wenzel systkinin frá dvergrikinu Lictenstein hlutu
tvenn gull- og silfurverðlaun og ein bronsverðlaun.
Stormasöm tilvera Ólympíu-
leika ræðst næstu mánuðina
28. FEBRÚAR —2. MARZ
SunnudaKur 2. mars
11.00 StórsvÍK karla.
12.00 StórsvÍK kvenna.
13.00 BoÖKanKa. 3x10 km eldri flokkur
karla ok 3x5 km ynKri flokkur karla.
16.00 SkautasýninK-
16.30 íshockeykeppni. úrslitaleikur í fyrsta
íslandsmóti í íshockey.
20.00 VerðlaunaafhendinK á skautasvæðinu.
21.00 FluKeldasýninK ok mótsslit.
Stolt Svía Ingemar Stenmark,
brást ekki vonum landa sinna og
hlaut tvenn gullverðlaun i svigi
og stórsvigi.
áhorfenda. í dag, 1980, voru hins
vegar um 2000 fréttamenn, blaða-
menn, útvarps— og sjónvarps-
menn. Sýnir það hve miklum
vinsældum leikarnir eiga að fagna
meðal almennings.
Enn er möguleiki á því að
bjarga megi leikunum, því að
Grikkir hafa boðist til þess að sjá
um leikana í náinni framtíð. Háfa
þeir boðist til þess að reisa
varanlega aðstöðu nálægt þeim
stað þar sem leikarnir voru haldn-
ir til forna, við Ólympíu. Ekki
hyggjast Grikkir gera þetta upp á
eigin spýtur, heldur með aðstoð
þjóða sem hliðhollar eru hug-
myndinni. Kannski er þetta lausn-
in, svar við því fæst væntanlega
fljótlega.
XIIIOLYMPIC